Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.1998, Side 8

Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.1998, Side 8
8 MIÐVIKUDAGUR 18. NÓVEMBER 1998 Útlönd Stuttar fréttir i>v Danski bankinn gegn fjárkröfu Færeyinganna Forráðamenn Den Danske Bank reyna nú hvað þeir geta til að skjóta kröfu Færeyinga um tugmilijarða skaðabætur vegna bankahneykslisins svokallaða í kaf áður en málið kemur til kasta dómstólanna. Þetta kemur fram í danska blaðinu Árhus Stifts- tidende. Bankinn viE að helsta vopn Fær- eyinga í málinu, skýrslan um sam- skiptin við dótturfyrirtækið Fær- eyjabanka, verði lögð til hliðar. Bankamenn telja að margt af því sem fram kemur í skýrslunni og er ekki sérlega jákvætt í þeirra garð geti ekki verið notað sem sannanir í málinu. ~iu tf ELDHÚS - BAÐ - FATASKÁPAR ELDHÚS INNRÉTTINGAR BAÐ INNRÉTTINGAR FATASKÁPAR VÖNDUÐ VARA - HAGSTÆTT VERÐ Frí teiknivinna og tiiboðsgerð NMífUm* - fyrsta flokks frá iFúmx HÁTÚNI6A REYKJAVlK SÍMI 552 4420 RÆSTINGAR FYRIRTÆKJA RÆSTINGAR STOFNANA RÆSTINGAR HEIMILA A JMk Arnarberg ehf. Fossháls 27 • Draghálsmegin Slmi 567 7557 • Fax 567 7559 ELFA Kenneth Starr yfirheyrður í Bandaríkjaþingi á morgun: Einskorðar sig ekki við Monicu Kenneth Starr, sérlegur saksókn- ari í hneykslismálum Bills Clintons Bandaríkjaforseta, ætlar ekki að einskorða sig við samband forset- ans og Monicu Lewinsky þegar hann ber vitni í Bandaríkjaþingi á morgun. Að sögn bandaríska dag- blaðsins New York Times í morgun ætlar Starr að sýna fram á að til- raunir forsetans og manna hans til að hindra framgang réttvísinnar séu víðtækari en bara í Lewinsky- málinu. Blaðið hefur það eftir lögmönnum sem þekkja til undirbúnings Starr að saksóknarinn hafl ekki tekið endanlega ákvörðun um hvað hann ætli að segja í tveggja klukkustunda inngangsræðu sinni, áður en yfir- heyrslumar í dómsmálanefnd full- trúadeildarinnar byrja. Hugsanlegt er talið að Starr reyni að líkja sam- an því þegar Clinton þrætti fyrir samband við Lewinsky og meintum tilraunum Hvita hússins til að Henry Hyde, formaöur dómsmála- nefndar fulltrúadeildar Bandaríkja- þings, fær tækifæri til að yfirheyra saksóknarann Starr á morgun. trufla rannsókn á ýmsum atriðum Whitewater-fasteignahneykslisins. Dómsmálanefndin hafnaði beiðni Hvíta hússins um að fá að yfirheyra Starr í hálfa aðra klukkustund. Lög- mönnum forsetans stóð til boða að yfirheyra Starr í hálftíma. Nefndin hefur hins vegar í hyggju að kalla til fleiri vitni en áður var áformað í rannsókn sinni á því hvort höfða eigi mál til embættismissis á hend- ur Clinton. Leyniupptökur á samtölum Lewinsky og Lindu Tripp voru gerð- ar opinberar í gær. I upptökunum, sem eru 22 klukkustunda langar, ræða konurnar um samband Lewin- sky við forsetann og starfsmögu- leika hennar í framtiðinni. Auk þess ræddu þær hversdagslega hluti eins og hársnyrtingu og sögðu hvor annarri brandara. Lewinsky hljómaði stundum eins og skólastúlka að blaðra um kærast- ann sinn. Linda gaf góð ráð. Leiötogar APEC, samtaka ríkja við Kyrrahafiö, sitja nú á fundi í Kuala Lumpur, höfuöborg Malasíu. Búist er viö aö leiötogarnir hvetji til þess aö umbætur veröi gerðar á fjármálakerfi heimsins og aö komiö veröi á eftirliti meö skamm- tímaflæði fjármagns. Á þessari mynd má meðal annarra sjá ráöamenn Kína, Filippseyja og Nýja-Sjálands. P. LEMMENS Efnahags- og framfarastofnunin: Varar við miklum samdrætti í heiminum HITABLASARAR Fyrir verslanir - iðnað - lagera Fyrir heitt vatn. Afköst 10 -150 kw Öflugustu blásararnir á markaðnum, búnir miðflóttaaflviftum og ryksíum. Betri hitadreifing - minni uppsetningarkostnaður, lægri rekstrarkostnaður. Hagstætt verð Farestveit & Co.hf. Borgartúni28 g 562 2901 og 562 2900 Hagvöxtur í heiminum mun minnka talsvert á næsta ári séu seðlabankar í Bandaríkjunum og annars staðar ekki reiðubúnir til að lækka vexti. Þetta er mat Efnahags- og framfarastofnunarinnar i Evr- ópu, OECD. í skýrslu OECD, sem kynnt var í gær, segir að efnahagsöngþveitið í Asíu undanfama mánuði leiði lík- lega til þess að hagvöxturinn í heiminum minnki um helming og verði aðeins 2 prósent á þessu ári og næsta. Efnahags- og framfarastofn- unin spáir því að hagvöxturinn i Bandaríkjunum verði 1,5 prósent á næsta ári en ekki 2,1 prósent eins og spáö var í júní síðastliðnum. OECD varaði jafnframt við því að færi allt á versta veg gæti óstöðug- leikinn í fiármálum leitt til þess að efnahagssamdráttur yrði í Banda- ríkjunum eins og í Japan. Það myndi svo leiða til efnahagslegrar stöðnunar um aflan heim. Aðalhagfræðingur OECD, Ignazio Visco, sagði á fundi með frétta- mönnum í gær að líkumar á að slíkt gerðist væru minni nú en í september þegar fiármálaumrótið náði hámarki. Fyrri skýrsla OECD á þessu ári, sem birt var í júní síðastliðnum, var ekki jafn svartsýn. Þá töldu ráðamenn i helstu iðnríkjum heims að þau slyppu við kreppuna sem olli efnahagshruni í Taílandi, Suður-Kóreu og Indónesíu. OECD bendir hins vegar á að efnahagsöngþveitið í Rússlandi í ágúst síðastliðnum hafi leitt til mikils fiármagnsflótta frá löndum þar sem uppgangurinn hefur veriö mestur að undanfömu. Afleiðingarnar hafi orðið keðjuverkun í stóru hagkerfunum. OECD spáir vaxtalækkun í ríkjum Evrópusambandsins, ESB, á næsta ári eftir að myntbandalagið tekur gildi í janúar næstkomandi. OECD spáir því að efnahagsvöxturinn í ESB-ríkjunum verði 2,2 prósent en ekki 2,8 prósent eins og spáð var í júni síðastliðnum. Spáð er að vöxturinn í myntbandalagsríkjunum verði 2,5 prósent. Þörf á meiri aðstoð Þróunarstofnunin Oxfam America hvatti bandarísk stjóm- völd í gær til aö gera meira til aö aðstoða þjóðir Mið-Ameríku við að komast aftur á réttan kjöl eftir hamfarimar af völdum fellibyls- ins Mitch. Lexíur fyrir Rússa Gerhard Schröder, kanslari Þýskalands, hitti Borís Jeltsín Rússlandsfor- seta í Kreml í gær. Við það tækifæri sagði hann að Rússar gætu dregið lærdóm af því hvernig hag- kerfi Austur- Þýskalands var breytt úr áætlana- búskap í markaöshagkerfi. Byrjaðir að vinna á ný Vopnaeftirlitsmenn Sameinuðu þjóðanna í írak hófu störf aö nýju í morgun. Eftirlitsmennimir snem til íraks í gær eftir nærri viku fiarveru vegna yfirvofandi loftárása Bandaríkjamanna. Albanar varaðir við Bandarísk stjómvöld vöruðu albanska aðskilnaðarsinna í Kosovohéraði í Serbíu við því í gær aö framferði þeirra stofnaöi alþjóðlegum stuöningi við mál- staö þeirra í hættu. Frelsisher Albana hefur hreiðrað um sig á mörgum svæðum sem Serbar hafa yfirgefið. Glæpahreiður Njósnastofnunin sem tók við af þeirri sovésku KGB er nú hreiður mannræningja, morðinga og ann- ars konar bófa, að því er hópur embættismanna leyniþjónustunn- ar staðhæföi í gær. Mennimir skýrðu meðal annars frá því að þeim hefði verið fyrirskipað að drepa kaupsýslumanninn Borís Beresovskí. Þeim var jafnframt hótað lífláti ef þeir kjöftuðu frá. Arafat lætur undan Yasser Arafat, leiðtogi Palest- ínumanna, hét því í gær að fafla frá áætlunum um að lýsa yfir stofnun palest- ínsks ríkis. Ara- fat lýsti þessu yfir degi eftir aö forsætisráð- herra ísraels, Netanyahu, stöðvaði flutning ísraelska hersins frá Vesturbakkanum. ísraelska þingið samþykkti í gærkvöld friö- arsamkomulagið viö Palestínu- menn sem undirritað var í Hvíta húsinu í Washington í október. 100 þúsund sleppt Um 100 þúsund rússneskum fongum, sem sitja inni fyrir minni háttar afbrot, verður sleppt á næstunni. Ástæðan er pláss- leysi í fangelsunum. Krabbameinshætta Feitt fólk er í 33 prósenta meiri bættu á að fá krabbamein en aðr- ir. Þetta sýnir rannsókn sem gerö var viö Karolinska institutet í Stokkhólmi. Sækja gegn Talebönum Her stjórnarandstæðinga í Afganistan hefur náð á sitt vald mikilvægu héraði i norðurhluta landsins eftir hörð átök við Tale- bana. Fyrir dómara í desember Breskur dómstóll úrskurðaði í gær að Augusto Pinochet, fyrrver- andi einræðis- herra í Chile, kæmi fyrir dómara 2. des- ember. Þaö er að segja verði niðurstaðan sú aö hann njóti ekki friðhelgi. Æðsti dómstóll Bretlands, lá- varöadeildin, á eftir að ákveða hvort Pinochet verður látinn laus í millitíðinni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.