Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.1998, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.1998, Blaðsíða 26
26 MIÐVIKUDAGUR 18. NÓVEMBER 1998 Fólk í fréttum______________ Kristinn Guðnason Kristinn Guðnason, bóndi og fjall- kóngur í Skarði á Landi, var kjör- inn formaður Félags hrossabænda á aðalfundi félagsins í síðustu viku. Starfsferill Kristinn fæddist í Skarði og ólst þar upp í foreldrahúsum. Hann var á Laugalandsskóla og stundaði sið- an nám við Héraðsskólann í Skóg- um. Kristinn stundaði almenn sveita- störf í Skarði frá bamsaldri. Hann hóf sjálfur búskap þar í félagi við foreldra sína um 1970. í Skarði er stórt fjárbú og kúabú en auk þess mikill hrossabúskapur. Kristinn hefur sinnt mikið hrossa- rækt, tamningum og sölu á hross- um undanfarin ár. Kristinn hóf að keppa sem knapi á kappreiðum um tólf ára aldur og keppti síðan í gæðingakeppnum og með kynbótahross. Hann vann í A- flokki gæðinga hjá hestamannafé- laginu Geysi í fjögur ár í röð. Þá hafa þrjár dætur hans hlotið knapa- bikar Geysis á undanfómum árum. Kristinn sat í stjóm hestamanna- félagsins Geysis um árbil og var for- maður þess í fjögur ár, var formað- ur framkvæmdastjómar á Fjórð- ungsmóti hestamanna á Hellu 1991, á Landsmótinu á Hellu 1994, á Fjórðungsmótinu á Hellu 1996, sat í stjóm Hrossaræktarsambands Suð- urlands í um áratug, var kjörinn formaður Hrossaræktarsamtaka Suðurlands á stofnfundi þeirra 1996. Kristinn sat í hreppsnefnd í Holta- og Landsveit 1994-98, var forðagæslumaður í nokkur ár og hefur verið fjallkóngur á Land- mannaafrétti frá 1980. Fjölskylda Kristinn kvæntist 1970 Fjólu Runólfsdótt- ur, f. 1951, húsfreyju í Skarði. Hún er dóttir Runólfs Þorsteinssonar, og Borghildar Tómas- dóttur. Böm Kristins og Fjólu era Borghildur, f. 9.1.1972, nemi og knapi, búsett í Skarði og á hún eina dóttur; Guðni, f. 12.4. 1975, nemi í stjóm- málafræði við HÍ; Sig- ríður Theodóra, f. 10.2. 1977, nemi og húsfreyja í Nefsholti í Holta- og Landsveit en sambýlis- maður hennar er Engilbert Olgeirs- son bóndi og eiga þau eina dóttur; Laufey Guðný, f. 17.3.1987, nemi. Böm Kristins og Marilyn Tiepen, bónda í Árbæjarhjáleigu, eru Hekla Katarína, f. 26.8. 1990; Rakel Natalí, f. 18.9. 1992. Systir Kristins er Helga Fjóla, f. 7.11. 1957, húsmóöir á Hvolsvelli, gift Ingvari Ingólfssyni verkstæðis- formanni. Foreldrar Kristins: Guðni Krist- insson, f. 6.7. 1926, bóndi og hrepp- stjóri í Skarði á Landi, og k.h., Sig- ríður Theodóra Sæmundsdóttir, f. 9.7. 1931, húsfreyja í Skarði. Ætt Guðni er sonur Kristins, hrepp- stjóra í Skarði, Guðnasonar, b. í Skarði, bróður Guðbjargar, ömmu Eyjólfs Ágústssonar í Hvammi og langömmu Guðlaugs Tryggva, Guð- laugs Bergmanns, Egils Thoraren- sen og Ævars Pálma Eyjólfssonar í Hvammi. Önnur systir Guðna var Guðrún, amma Margrétar Guðnadóttur prófessors. Guðni var sonur Jóns, b. á Skarði, Árnasonar, b. á Galtalæk, Finnboga- sonar ríka á Reynifelli, Þorgilssonar, ættfóður Reynifellsættar þeirra Þórðar Friðjónssonar, Víglundar Þorsteinsson- ar, Eiðs Guðnasonar og dr. Þórs Jaköbssonar veðurfræðings. Móðir Jóns var Margrét Jóns- dóttir, af Háagarðsætt í Eyjum, Geirlandsætt á Síðu og Víkingslækjarætt þeirra Davíðs Oddssonar, Ingólfs Jónsson- ar og Harðar Sigurgestssonar. Móð- ir Guðna Jónssonar var Guðrún Kolbeinsdóttir, b. á Hlemmiskeiði, Eiríkssonar, ættfoður Reykjaættar, Vigfússonar. Móðir Kolbeins var Guðrún Kolbeinsdóttir, dóttir Am- disar, systur Sigríðar, móður Gunn- laugs, ættfóður Briemættar. Móðir Guðrúnar var Solveig, systir Ófeigs, ættföður Fiallsættarinnar. Móðir Solveigar var Ingveldur Helgadótt- ir, systir Gísla á Álfsstöðum, langafa Eiríks, afa Vigdísar Finn- bogadóttur. Móðir Kristins hrepp- stjóra var Guðný Vigfúsdóttir, b. í Steinstóf, Jónssonar, og Sesselju Guðmundsdóttir. Móöir Guðna hreppstjóra var Sig- ríður ljósmóðir Einarsdóttir, b. í Berjanesi í Landeyjum, Hildi- brandssonar. Móðir Sigríðar var Anna Guðnadóttir, b. á Amarhóli, Daníelssonar og Bjarghildar Guð- mundsdóttur. Sigríður Theodóra er dóttir Sæ- mundar, kaupmanns í Reykjavík, bróður Jóhönnu Vigdísar, móður Guðrúnar hæstaréttardómara og Sigríðar sagnfræðigs Erlendsdætra en dóttir Sigríðar er Jóhanna Vig- dís Hjaltadóttir fréttamaður. Sæ- mundur var sonur Sæmundar, b. á Lækjarbotnum, bróður Guðbrands, afa Hauks söngvara og Kristins málara, föður Bubba og Tolla Morthens. Systir Sæmundar var Guðrún, langamma Guðlaugs Tryggva og Elínar Káradóttur, mat- ráðskonu á Bessastöðum. Sæmund- ur var sonur Sæmundar, b. á Lækj- arbotnum, bróður Guðbrands, langafa Guðmundar Danielssonar rithöfundar. Sæmundur var sonur Guðbrands, ættfóður Lækjarbotna- ættarinnar. Móðir Sæmundar kaup- manns var Sigríður Theodóra Páls- dóttir, hreppstjóra á Selalæk, Guð- mundssonar, afa Jóns Helgasonar prófessors og ættfóður Keldnaættar- innar, Brynjólfssonar, b. í Vestari- Kirkjubæ, Stefánssonar, b. í Árbæ, Bjamasonar, ættföður Víkingslækj- arættarinnar, Halldórssonar. Móðir Sigríðar Theodóra var Helga Fióla Pálsdóttir, sjómanns í Reykjavík, Friðrikssonar, b. i Brekku í Vogum, Pálssonar, sjó- manns í Reykjavík, Magnússonar. Móðir Friðriks var Helga Bergsdótt- ir, h. í Hólum, Jónssonar, b. á Hær- ingsstöðum, Ingimundarsonar, b. á Hólum, Bergssonar, ættföður Bergs- ættarinnar, Sturlaugssonar. Móðir Helgu Fiólu var Margrét Ámadótt- ir, b. á Innri-Hólmi, Þorvaldssonar, skipasmiðs á Þorbjamarstöðum, Oddssonar. Móðir Margrétar var Ragnhildur ísleifsdóttir, b. í Skálmadal í Álftaveri, Guðmunds- sonar. Kristinn Guðnason Afmæli Elsa Stefánsdóttir Elsa Stefánsdóttir saumakona, Kjarrvegi 13, Reykjavík, verður sex- tug á morgun. Starfsferill Elsa fæddist á Fáskrúðsfirði og ólst þar upp. Hún var í Bamaskóla á Fáskrúðsfirði og stundaði nám við Hlíöardalsskóla. Elsa stundaði ýmis störf á unglingsárunum, starfaði m.a. við hótelrekstur á Fáskrúðsfirði. Hún flutti til Reykjavikur 1959 og starf- aði þá í tvo vetur við Elli- og hjúkr- unarheimilið Grand. Hún starfaði í fjögur ár við Fæðingarheimilið og á Borgarspítalanum við öldrunar- deildir 1983-87. Hún starfar nú við gardínusaum hjá Zetubrautum í Reykjavík og hefur unnið þar í þrettán ár. Fjölskylda Elsa giftist 28.8. 1960 Kristjáni Magnússyni, f. 2.3. 1939, bifreiða- stjóra og síðar vélstjóra á björgun- arbát SVFÍ. Hann er sonur Magnús- ar Jörundssonar, vélstjóra i Reykja- vík, og Árnýjar Rósmundsdóttur húsmóður en þau eru bæði látin. Böm Elsu og Kristjáns era Magn- ús Kristjánsson, f. 23.3. 1961, leið- sögumaður, búsettur í Reykjavik, kvæntur Báru Kristinu Pétursdótt- ur húsmóður; Stefán Kristjánsson, f. 24.3. 1963, sendibílstjóri, búsettur í Kópavogi, kvæntur Palmu Rassmusen hús- móður; Kristján Krist- jánsson, f. 24.3. 1963, sendibílstjóri, búsettur í Reykjavík, kvæntur Ás- rúnu Karlsdóttur hár- greiðslukonu; Aldís Kristjánsdóttir, f. 28.8. 1968, sjúkraliði, búsett á Selfossi, gift Iaen Peter Matchett kennara; Hörð- ur Snævar Kristjánsson, f. 27.9.1969, sendibilstjóri, búsettur í Reykjavík, kvæntur Nickolinu Rubekksen húsmóður; Davíð Freyr Kristjánsson, f. 11.1. 1982, nemi í foreldrahúsum. Systir Elsu er Fjóla Stefánsdóttir, f. 17.11. 1939, húsmóðir í Reykjavík en sambýlis- maður hennar er Ingi H. Jónsson, starfsmaður hjá Sjálfsbjörg i Reykjavík. Foreldrar Elsu: Stefán Guðmundsson, f. 29.11. 1916, d. 10.12. 1986, sjó- maður á Fáskrúðsfirði og síðar húsvörður í Reykja- vík, og k.h., Aldís Krist- jánsdóttir, f. 25.1. 1914, húsmóðir. Elsa og Kristján verða heima og taka á móti ættingjum og vinum á heimili sínu á afmælisdag- inn, 19.11., eftir kl. 18.00. Elsa Stefánsdóttir. Fréttir Mynd sem ekki mátti taka Búðaropnun númer 13 hjá 10-11 fór fram í síðustu viku. Þá var opnuð ný búð í Amarbakka 4-6. Hún er í húsnæði þar sem Breiðholtskjör var til húsa í fjöl- mörg ár. Litlu matvörabúðimar tapa tölunni en keðjuverslanir yfirtaka þær, laga og bæta. Arnar Þór Óskarsson er verslunarstjóri og starfsmenn era um tíu. Helga Gísladóttir, kaupmaður og eiginkona Eiriks Sigurðssonar kaupmanns, sagði blaðinu í gær að búð- in heföi opnað á 7 ára afmæli fyrirtækisins Vöra- veltunnar sem rekur 10-11 búðirnar. Næsta opnun er í Hafnarfirði á næstunni, síðan i Grímsbæ í febrúar. Þessi mynd var tekin í leyfisleysi og banni í Arnar- bakka og vakti mikið fjaðrafok meöal starfsfólks. í gær tjáði Kristín Hraundal í Amarbakkanum að al- gjörlega væri bannað að taka myndir í búðinni. DV-mynd Teitur Til hamingju með afmælið 18. nóvember 90 ára Kristín Sigurgeirsdóttir, Hlíðarvegi 45, Siglufirði. 80 ára Kjartan Jónsson, Ljósheimum 16 B, Reykjavík. 75 ára Sveinn Jónasson, Fomastekk 3, Reykjavík. Eiríkur Bjömsson, Hólsgerði 5, Akureyri. Þórdis Konráðsdóttir, Hríseyjargötu 13, Akureyri. Stefán Aðalsteinsson, Markarlandi 16, Djúpavogi. 70 ára Guðrún H. Waage, Laugarásvegi 28, Reykjavík. 60 ára Pétur Stefánsson, Álfheimum 58, Reykjavík. Viggó Benediktsson, Starmýri 2, Reykjavík. Hjördís Þorsteinsdóttir, Hrauntungu 55, Kópavogi. 50 ára Sólveig Guðmundsdóttir, Tjamargötu 28, Reykjavík. Guðjón Jónsson, Logafold 184, Reykjavík. Leifur Ólafsson, Álfhólsvegi 46 C, Kópavogi. Matthias Guðmundur Pétmrsson, Ásbúð 100, Garðabæ. Magnþóra Magnúsdóttir, Túngötu 1, Bessastaðahreppi. Þorvaldur Signar Aðalsteinsson, Bjarmastig 15, Akureyri. Gimnar Jónsson, Egilsstöðum. 40 ára Kjartan Ólafsson, Lokastíg 9, Reykjavík. Ólöf Elín Tómasdóttir, Austurbergi 16, Reykjavík. Elínborg G. Sigurjónsdóttir, Hlíðarvegi 13, Kópavogi. Lára Jóna Helgadóttir, Fífumóa 5 D, Njarðvík. Þuríður K. Þorbergsdóttir, Glautnbæ I, Varmahlíð.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.