Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.1998, Page 9
MIÐVIKUDAGUR 18. NÓVEMBER 1998
Utlönd
PKK enn grunað um morðið á Palme:
Sænska löggan vill
••
yfirheyra Ocalan
Nefndin, sem rannsakar morðið á
Olof Palme, fyrrverandi forsætis-
ráðherra Svíþjóðar, vill nú fá að yf-
irheyra Abdullah Öcalan, PKK-leið-
togann sem var handtekinn á flug-
velli í Róm í síðustu viku.
Samtök Öcalans, Partiya
Kerkeren Kurdistan eða Kúrdíski
verkamannaflokkurinn, lágu
snemma undir grun um morðið á
Palme. Lögreglustjórinn Hans
Holmér, sem í upphafi stjórnaði
rannsókninni eftir morðið 1986, var
enn tíu árum seinna sannfærður
um að PKK bæri ábyrgð á dauða
sænska forsætisráðherrans.
Sænska öryggislögreglan var far-
in að hlera samtöl PKK áður en
Palme var myrtur. Stundum ræddu
félagar samtakanna um brúðkaup
en það þýddi morð á dulmáli þeirra.
Öryggislögreglan í Svíþjóð túlkaði
samtölin þannig að PKK hygðist
mjrða einhvem í Svíþjóð.
Áður en Palme var myrtur hafði
Loftsteinadrífa
heillar Asíbúa
með Ijósadýrð
Mikil ljósadýrð var á himninum
yflr Asíu í nótt þegar loftsteinadrífa
fór inn í gufuhvolf jarðar og brann
upp til agna. Litlar skemmdir urðu á
gervihnöttum á sporbaug um jörðu,
eins og vísindamenn NASA, banda-
rísku geimvísindastofnunarinnar, og
forráðamenn símafélaga óttuðust.
Loftsteinarykið, sem er fmna en
sandur, kemur frá halastjömunni
Tempel-Tuttle.
„Það versta virðist vera yfirstaðið
og við fengum stórkostlega ljósasýn-
ingu fyrir íbúa Asiu,“ sagði Jan
Platt, talsmaður Jet Propulsion til-
raunastofnunarinnar sem er hluti
NASA.
Eigendur gervihnatta óttuðust að
loftsteincirykið, sem fór á 250 þúsund
kílómetra hraða á klukkustund,
mundi valda skemmdum á nemum
gervinhnattanna eða valda skamm-
hlaupi. Ekki hafa þó borist neinar
fregnir af slíkum vandræðum, að
sögn Susan Gordon, talsmanns gervi-
hnattafyrirtækisins Intelsat.
Nítján ára japönsk kona hafði ekki
heppnina með sér þegar hún var að
virða fyrir sér loftsteinadrifuna í
morgun. Hún féll í gil og lést af sár-
um sínum, að sögn lögreglu.
Kúrdar víðs vegar að úr Evrópu hafa
streymt til Rómar til aö mótmæla
handtöku Öcalans.
Símamynd Reuter
PKK myrt tvo liðhlaupa í Svíþjóð,
annan á strætisvagnabiðstöð í Upp-
sölum 1984 og hinn í veislu í félags-
miðstöð í Stokkhólmi 1985. Báðir
morðingjamir voru dæmdir í lifs-
tíðarfangelsi. Öcalan hefur viður-
kennt að samtök hans hafi staðið á
bak við morðin á liðhlaupunum.
Ekki er talið útilokað að PKK
hafi viljað hefna sín á Palme þar
sem hann hafði neitað Öcalan um
pólitískt hæli í Svíþjóð. PKK taldi
einnig að sænska ríkisstjórnin væri
í samvinnu við yfirvöld í Tyrklandi
og við tyrknesku öryggislögregl-
una.
Órói er nú í Tyrklandi vegna
handtöku Öcalans. í Istanbul kom
til átaka á götum úti milli stuðn-
ingsmanna Kúrda og tyrkneskra
þjóðemissinna. í suðausturhluta
Tyrklands sprengdi meintur félagi í
PKK sig í loft upp í gær. Þrír
kúrdískir fangar kveiktu í sér en
lifðu af. Þeir brenndust alvarlega
VAiyM!
Ekkerl Kollín -engiiw livítur sykur! ^ "
'r</ 'r<i
IqSméwl
—*g| KBArtMIKILL VOKVI
'\
A
^ r<
Til hamingju:
RÚNAR ALEXANDERSSON fimleikamaður með glæsilegan sigur á
S.terku móti í Finlandi.
Öll félögin í undanúrslitum í Eggjabikar með skemmtilega leiki og
KEFLAVIK með sjgurinn.
KA, Valur, Fram, ÍR og ÍBV með sigur í leikjum sínum í Nissandeildinni
í handknattleik.
Stjarnan, Fram og Grótta/KR í handknattleik kvenna
með sigur í sínum leikjum. ,—j^^mennskU
SVEINN SÖLVASON, BRODDI KRISTJÁNS- ' " *
SON og ÁRNI ÞÓR með góðan árangur á
alþjóðlegu badmintonmóti íTBR-húsinu.
Oskum KRISTNI BJORNSSYNI skíðamanni
góðs gengis í keppni um næstu helgi.
Ofantaldir nota sannarlega allir
Leppin sportvörur I
www.itn.is/leppin
átopp'innmeö
orkudrvkkfráUPPÍÍL
öTgnTTA
ipiTn
www.itn.is/leppin
Mikil Ijósadýrð var á himni austur í Asíu í nótt þegar loftsteinadrífa ein
kom inn í gufuhvolf jarðar. Þessi mynd var tekin á Taívan.
mikil
Gæðarúm
á góðu verði
á RB-rúmi
Ragnar Björasson
Dalshraun 6, Hafnarfirði • Sími 555 0397
MATUR OG KOKUR
Þann 25. nóvember mun aukablað um
mat og kökur fylgja DV.
Blaðið mun að vanda verða fjölbreytt og efnismikið.
Tiivalið fyrir þá sem eru að undirbúa heimilið fyrir jólin.
Helstu efnisþættir verða:
Matar- og kökuuppskriftir.
Ráðleggingar um vín.
Grænar uppskriftir.
Jólaundirbúningur á heimilinu.
Börnin og jólin.
Jólasiðir
og margt, margt fleira.
Umsjón efnis:
Umsjón efnis er í höndum Evu
Magnúsdóttur. Þeim sem vilja koma
upplýsingum á framfæri í blaðið er
bent á að hafa samband við Evu í
síma 566 8759 eftir hádegið eða
senda tölvupóst í netfangið: eva@tv.is
Umsjón með auglýsingum hafa:
Gústaf Kristinsson í síma 550 5731
og Kristinn Pálsson í síma 550 5722
Auglýsendurf athugið!
Vinsamlegast pantið
auglýsingapláss fyrir kl. 17.00
fimmtudaginn 19. nóvember.