Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.1998, Page 16
16
MIÐVIKUDAGUR 18. NÓVEMBER 1998
MIÐVIKUDAGUR 18. NÓVEMBER 1998
17
Iþróttir
íþróttir
Meistaradeild Evrópu:
Staðan í riðlum
A-riðiU:
Veszprém-Alpi Prato .... 37-22
Badel Zagreb-Montpellier .... 25-24
Badel 2 2 0 0 58-43 4
Veszprém 2 10 1 54-43 2
Montpellier 2 10 1 4M2 2
Alpi Patrol 2 0 0 2 41-70 0
B-riðill:
Barcelona-Zaporozhye .... 30-22
Winterthur-Minsk . . .... 28-21
Barcelona 2 2 0 0 60-39 4
Winterthur 2 10 1 50-49 2
Zaporozhye 210 1 50-52 2
Minsk 2 0 0 2 38-58 0
C-riðill:
Kiel-Viking .... 35-29
Volgograd-GOG .... 31-21
Kiel 2 2 0 0 66-55 4
Volgograd 2 2 0 0 5645 4
Viking 2 0 0 2 53-60 0
GOG 200 2 47-62 0
D-riðill:
Lasko-Redbergslid .. . . . . 31-16
Portland-Kovopetrol . . .... 28-22
Lasko 220 0 58-37 4
Portland 2 10 1 53-55 2
Redbergslid 2 10 1 49-56 2
Kovopetrol 2 0 0 2 43-55 0
Bland í nolca
Arvydas Sabonis, miðherji Portland
Trailblazers í bandaríska körfubolt-
anum, hefur samþykkt að leika með
litháíska landsliðinu á ný. Á meðan
verkfaUiö stendur yfir í NBA fannst
Sabonis tilvaliö að nýta tímann og
leika með landsliðinu i leikjum þess í
Evrópukeppninni sem fram undan
eru. Sabonis lék síðast með landslið-
inu á ólympíuleikunum í Atlanta
1996.
Steffen Iversen, Tottenham, og
Thomas Myhre, markvörður Ev-
erton, verða líklega báðir í byrjunar-
liði Noregs sem mætir Egyptum í vin-
áttulandsleik í Kaíró í kvöld. Iversen
er búinn að skora fjögur mörk í síð-
ustu tveimur leikjum Tottenham.
Frode Grodas verður að víkja fyrir
Myre en hann hefur vermt vara-
mannabekkinn hjá Schalke síðan
hann gekk til liðs við þýska liðið í
haust.
John Carew, sem leikur með Váler-
enga og á sæti í norska landsliöinu,
er eftirsóttur hjá mörgum liðum í
Evrópu. Félagi hans i landsliðinu,
Steffen Iversen, hefur sagt Carew,
sem er 19 ára, aö honum liggi ekkert
á. Betra sé fyrir hann þroskast heima
i Noregi áður hann fer út í hinn stóra
heim atvinnumennskunnar.
ítalski refurinn Fabrazio Ravan-
elli, sem leikur með Marseille, miss-
ir af fyrri leiknum gegn Monaco í 3.
umferð UEFA-keppninnar 1 næstu
viku. Kapppinn á við meiðsli að
stríöa í fæti.
Rússar, sem hafa tapað síðustu fimm
landsleikjum í knattspymu, mæta
Brasilíu í vináttuleik í Moskvu í
kvöld. Liðið verður eingöngu skipað
leikmönnum sem leika heima i
Rússlandi. Rússar léku síðast í
Reykjavík gegn Islendingum og
töpuðu þar með eftirminnilegum
hætti.
lozef Chovanec, landsliðsþjálfari
Tékklands, tilkynnti í gær að einn
besti maður liðsins, Pavel Nedved
hjá ítalska liðinu Lazio, myndi ekki
leika gegn Englendingiun í kvöld
vegna hnémeiðsla.
Herrakvöld handknattleiksdeildar
Hauka verður haldið á iaugardaginn
kemur, 21. nóvember. Ræðumaður
kvöldsins verður Gissur Guömunds-
son, rannsóknarlögreglumaður og
bæjarfulltrúi. Húsið verður opnað
klukkan 19.21 og mun Stefún Jóns-
son „tœtari“ bjóða til borðhalds
klukkan 20.30. Miöasala er í Álftafelli,
Sími 565-2464.
Frjálsiþróttaþing verður haldið í
Reykholti í Borgarfirði um næstu
helgi. Þingið er sett kl. 10.15 á
laugardaginn og áætlað er aö því
ljúki um hádegisleytið á sunnudag.
Ingólfur Snorrason náði bestum
árangri íslensku keppendanna sem
tóku þátt í Norðurlandamótinu í
karate um síðustu helgi. Hann varð 4.
í +80 kg flokki og komst i átta manna
úrslit í opnum flokki. Jón Ingi
Þorvaldsson náði ekki að vinna
bardaga í -75 kg flokki og opnum
flokki og sama er aö segja um
Konráö Stefánsson sem keppti í -80
kg flokki.
-JKS/VS
Lasko rassskellti
Redbergslid
- Stefán og Rögnvald dæmdu hörkuleik í Zagreb
Sænska liðið Redbergslid frá
Gautaborg mátt sin lítils gegn hinu
sterka liði Lasko frá Slóveníu í
meistaradeild Evrópu i handknatt-
leik um helgina. Yfirburðir Lasko
voru algjörir allan tímann sem
keyrði á hraðaupphlaupum sem Sví-
amir áttu ekkert svar við. Lokatöl-
ur urðu 31-16.
Skribic átti stórleik í Lasko og
skoraði 12 mörk. Hjá Redbergslid
skoruðu þeir Berntsson, Franzen og
Hallback fjögur mörk hver.
Peruncic skoraði 8 mörk fyrir Kiel
gegn Viking.
Stefán Arnaldsson og Rögnvald
Erlingsson stóðu í ströngu í
Zagreb þar sem áttust við heima-
menn í Badel og franska liðið
Montpellier. Badel hafði sigur í
æsispennandi leik að viðstöddum
10 þúsund áhorfendum. í hálfleik
hafði Badel ein marks forystu,
12-11, en lokatölur urðu hins veg-
ar 25-24.
Saracevic gerði 8 mörk fyrir
Badel og Anquetil skoraði einnig
8 mörk fyrir Montpellier.
Barcelona fékk mótspyrnu
Barcelona fékk harða mót-
spyrnu gegn Zaporozhye frá Úkra-
ínu. Fyrri hálfleikur var í járnum
en í hálfleik var staðan jöfn,
12-12. í síðari hálfleik skildi leiðir
og Barcelona seig hægt og bitandi
fram úr og sigraði að lokum,
30-22, að viðstöddum 3500 áhorf-
endum.
Masip skoraði 8 mörk fyrir
Barcelona. Velykyy skoraði 8
mörk fyrir úrkraínska liðið en fé-
lög í Frakklandi, á Spáni og í
Þýskalandi hafa þennan snjalla leik-
mann undir smásjánni.
Kiel vann öruggan sigur gegn
norska liðinu Stavanger. Athygli
vakti hátt markaskor í fyrri hálfleik
en í leikhléi var staðan 20-15 fyrir
Kiel. Júgóslavinn Nenad Peruncic
átti glimrandi leik fyrir þýska liðið
og skoraði 11 mörk. Skjærvold var
markahæstur hjá Viking með 8
mörk. -JKS
Hvíti hákarlinn
gleypir gull á ný
- Greg Norman kominn á beinu brautina eftir fjarveru frá golfiðkun í sjö mánuði
Sigursteinn
kominn í KR
- skrifaði undir 3ja ára
samning
Sigursteinn Gíslason, knattspyrnumaður frá
Akranesi, skrifaði í gær undir 3ja ára samning við KR-inga.
Sigursteinn er þrítugur og hefur spilað 21 landsleik fyrir íslands hönd.
Hann hóf meistaraflokksferilinn með KR en eftir eitt timabil þar hélt
hann heim á Akranes og hefúr spilað þar síðan.
Sigursteinn hefur leikið 153 leiki í efstu deild, þar af 148 með ÍA, auk
fjölda bikar- og Evrópuleikja, og hann er fimmfaldur íslandsmeistari með
Skagamönnum, árin 1992-1996. Sigursteinn hefur misst mikið úr tvö síð-
ustu tímabil vegna meiðsla en hann spilaði 11 leiki með ÍA í úrvalsdeild-
inni í sumar. -VS
Blakfólkið verði
vakúmpakkað
- enn er deilt um búninga í blaki
Enn hafa forráðamenn Alþjóða
blaksambandsins komið sér og
sinni íþrótt í fjölmiðla víða um
heim með undarlegum áherslum
hvað varðar búninga keppenda í
blaki kvenna og karla.
Forráðamennimir virðast and-
vaka yfir því að búningar blakfólks-
ins séu alls ekki nægilega þröngir.
Á nýafstöðnu heimsmeistaramóti
kvenna varð uppi fótur og fit er öll-
um keppendum liða var skipað að
klæðast þannig búningum að þeir
féllu alveg að líkamanum líkt og
gerist hjá sundfólki. Fannst mörg-
um fyndið að slíkar kröfur kæmu
fram en forráðamönnunum var al-
vara. Fimm lið voru dæmd til
greiðslu hárra sekta.
Sagan endurtók sig á heimsmeist-
aramóti karla sem er nýlokið. Þar
voru sjö lið sektuð vegna þess að
búningarnir voru alltof víðir að
mati Alþjóða blaksambandsins.
Greg Norman er 43 ára gamall og hefur lengi verið í fremstu röð. Fyrir sjö mánuð-
um varð hann að gangast undir erfiðan uppskurð en er nú kominn á sigurbrautina
á ný. „Hvíti hákarlinn" hefur engu gleymt og sést hér slá golfkúluna á móti ■ Banda-
ríkjunum á dögunum en þar vann Norman 83. sigurinn á ferlinum. Reuter
Fyrir sjö mánuðum var framtíð
ástralska kylfingsins í fullkominni
óvissu. Hann hafði þá í 18 mánuði
verið þjakaður af meiðslum í öxl og
varð að gangast undir uppskurð.
Síðan eru liðnir sjö mánuðir.
Um síðustu helgi mætti Greg
Norman, oft nefndur hvíti hákarl-
inn, til leiks á ný og með engu
minni glæsibrag en áður. Hann
sigraði á „hákarlamótinu" sem
fram fór í Kaliforníu ásamt Steve
Elkington.
„Það er gott að vera kominn í
slaginn á ný. Ég fann vel fyrir öllu
þvi sem fylgir að keppa á stóru golf-
móti og mér leið vel,“ sagði Norm-
an eftir sigurinn.
Fyrir sjö mánuðum varð Norman
að velja á milli þess að gangast und-
ir uppskurð eða hreinlega að hætta
allri golfiðkun.
Á þessum tímamótum sagði
hann: „Það fylgir því mun meiri
sársauki en gleði að spila golf í
dag.“
Hefur tapað öllum
stórmótunum f bráðabana
Norman sat sem fastast í efsta
sæti heimslistans þegar uppskurð-
urinn blasti við. Nú þegar hann er
kominn á beinu brautina á ný er
hann dottinn niður í fjórða sætið.
Greg Norman er að mörgu leyti
sérstakur kylfmgur. Hann hefur
tvívegis sigrað á stóru mótunum
íjórum, á British Open 1986 og 1993.
Hann er eini kylfmgur lieimsins
sem hefur þurft að horfa á eftir
sigri til andstæðingsins í bráða-
bana í öllum stóru mótunum fjór-
um.
Að loknum uppskurðinum tók
við löng hvild en brátt fór hann að
geta slegið golfboltann á ný. Fyrir
mánuði taldi hann sig hafa náð góð-
um tökum á öllum kylfunum í pok-
anum og var að eigin sögn tilbúinn
í slaginn.
„Dásamlegt að vakna heima
hjá mér“
En saknaði Norman þess aldrei
að geta ekki spilað golf?
„Nei, aldrei. Fjölskyldan fékk allt
í einu mun meiri tíma frá mér en
áður. Ég fór til dæmis með krakk-
ana á fótboltaleiki og aðrar
skemmtanir. Þá fannst mér dásam-
legt að vakna heima hjá mér um
helgar í stað þess að vakna á hótel-
herbergi," segir Norman sem alls
hefur unnið 83 titla á ferlinum.
Metnaður og keppnisskap
„Metnaður og keppnisskap gerir
það að verkum að mig langar alltaf
til að keppa á golfmótum. Að glíma
við það verkefni að ná fyrri styrk-
leika er mikil áskorun fyrir mig í
dag,“ segir Norman.
Fram undan eru stór mót hjá
Norman, Skins Game, opna ástr-
alska mótið og baráttan um forseta-
bikarinn. Til þessara móta mun
hvíti hákarlinn mæta með meira
sjálfstraust en hann átti von á.
-SK
Sektimar námu um 200 þúsundum
króna á lið.
Ástæðan fyrir þessu öllu saman
er sú að forráðamenn í blakinu telja
að með þrengri búningum og að
vakúmpakka keppendum eins og al-
gengt er með matvörur verði blakið
álitlegri og vinsælli íþrótt í sjón-
varpi. Styrktaraðilar muni tæma
buddur sínar sem aldrei fyrr og aug-
lýsendur komi til með að standa í
löngum röðum til að fá að auglýsa á
blakleikjum.
Hvort þröngi fatnaðurinn verður
allsráðandi í blakinu eða ekki kem-
ur í ljós fljótlega. Keppendur eru
misjafnlega hrifnir af þessu uppá-
tæki forráðamanna íþróttarinnar.
Keppendur eru líka misjafnlega fús-
ir til að opinbera viðkvæmustu
hluti likamans sem forráðamenn
íþróttarinnar eru svona líka spennt-
ir fyrir.
-SK
IHMITJHl1’-'
oka
Dómaranefnd Alþjóða knattspyrnu-
sambandsins ákvað í gær að einung-
is konur myndu dæma i lokakeppni
HM kvenna sem fram fer í Bandaríkj-
unum á næsta ári.
Lothar Döring hættir í vor sem
þjálfari þýska handknattleiksliðsins
Magdeburg, sem Ólafur Stefánsson
leikur með. Döring hefur þjálfað
Magdeburg í 5 ár en ákveðiö var á
fundi hans og stjórnar félagsins í gær
að þetta væri hans síðasta tímabil.
Franski kylfingurinn Olivier Ed-
mond hefur verið kjörinn nýliði árs-
ins á Evróputúrnum. Edmond, sem er
28 ára gamall, varð i 93. sæti á listan-
um yfir tekjuhæstu kylfinga Evrópu
á síðustu golftíð. Besti árangur
Frakkans var þegar hann náði öðru
sæti á opna franska mótinu.
Tékkneski kringlukastarinn Ludvik
Danek er látinn, aðeins 61 árs að
aldri. Danek varð Ólympíumeistari í
kringlukasti í Múnchen 1972. Hann
setti tvö heimsmet á ferli sinum sem
var langur og glæsilegur og varð
fyrsti kringlukastari sögunnar sem
kastaði yfir 65 metra. Banamein
Tékkans var hjartaáfall.
Vlf Kirsten var i gær valinn falleg-
asti knattspymumaður Þýskalands i
kosningu sem iþróttastöðin DSF
gekkst fyrir. Það voru aðallega konur
sem tóku þátt í kjörinu. Kirsten fékk
15 prósent atkvæða, Mehmet Scholl
hjá Bayem Múnchen fékk 13 prósent
og Maurizio Gaudino hjá Bochum
fékk 10 prósent atkvæða.
Hugmyndir um sérstaka úrvalsdeild
bestu knattspymuliða i Evrópu
viröast vera úr sögunni. Fulltrúar 14
stórliöa í álfunni, sem myndað hafa
vinnuhópinn „G-14“, funduðu i gær
og ákváöu að styðja hugmyndir
UEFA um að riðlakeppni
meistaradeildar Evrópu verði
stækkuð úr 24 liðum í 32. Þau vilja
hins vegar að félögin fái stærri skerf
af sjónvarpstekjum en áður. gj^yyg
Þorvaldur Makan á förum frá Öster:
Of dýr fyr-
ir okkur
segir þjálfari Öster. Leiftur líklegast
DV, Svíþjóð:
Nú er orðið ljóst að Þorvald-
ur Makan Sigbjömsson mun
ekki leika með sænska liðinu
Öster á næsta tímabili.
Depurðin ein ræður nú ríkj-
um hjá Öster. Liðið féll sem
kunnugt er úr sænsku A-deild-
inni og fjárhagsstaða félagsins
er vægast sagt bágborin. Nú
mun öruggt að fjórir eða fimm
af ellefu leikmönnum í byrjun-
arliði frá nýliðnu tímabili
munu fara frá liðinu.
Þjálfari Öster sagði í gær í við-
tali við sænska fjölmiðla að Þor-
valdur Makan væri of dýr leik-
maður fyrir Öster sem leikur í
B-deild á næstu leiktíð. Þorvald-
ur sagði í samtali við DV nú ný-
verið að Öster gæti ekki sagt
upp samningi hans við félagið
þannig að staðan er óljós eins
og stendur.
Mestar líkur eru taldar á því að
Þorvaldur Makan gangi á ný til
liðs við Leiftur frá Ólafsfirði en
hann lék með Ólafsfírðingum
áður en hann hélt til Svíþjóðar. -EH/-SK
Andy Cole:
„Glenn Hoddle
er heigull"
Andy Cole, knattspyrnumaður
hjá Manchester United, kallaði
Glenn Hoddle, landsliðsþjálfara
Englands, heigul í viðtali við dag-
blaðið The Sun í morgun. Hoddle
valdi ekki Cole í landsliðið þrátt
fyrir að margir landsliösmenn séu
forfallaðir, og Cole segir að hann
hafi ekki þorað að segja sér ástæð-
una fyrir því. -VS
Gummersbach
var bjargað
Þýska handknattleiksfélaginu Gum-
mersbach var í gær forðaö frá gjaldþroti.
Félagið náði þriggja ára auglýsingasamn-
ingi við stórfyrirtækið Rinol, sem tryggði
því fjárhagslegan grundvöll á ný.
Leikmenn Gummersbach, með kóreska
risann Yoon í fararbroddi, samþykktu all-
ir að leika áfram með félaginu. Þar með
verður ekkert af því að íslendingaliðið
Wuppertal fái Yoon til sín.
Gummersbach hélt síðan upp á daginn
með því að vinna Dutenhofen, 30-27, í A-
deildinni í gærkvöld. Yoon var þar
óstöövandi sem fyrr og skoraði 11 rnörk.
-vs
Papin er
hættur
Jean Pierre Papin, einn mesti
markaskorari franskrar knatt-
spymu frá upphafi, tilkynnti í
gær að hann væri búinn að leggja
skóna á hilluna.
Papin hefúr í vetur leikið með
Guingamp í frönsku B-deildinni
en átt í vandræðum með að halda
fostu sæti í liðinu. Hann er 35 ára
og lék með átta félögum og átti
sín bestu ár með Marseille, AC
Milan og Bayem Munchen. Papin
skoraði 326 mörk í 584 leikjum á
ferlinum og fyrir franska lands-
liðið gerði hann 30 mörk í 54
leikjum. Aðeins Michel Platini
hefur gert fleiri mörk fyrir
Frakklands hönd. -VS
„Steingrímur er
ekki til sölu“
Yfirgnæfandi likur eru nú á
því að markakóngur síðasta ís-
landsmóts í knattspymu, Eyja-
maðurinn Steingrímur Jó-
hannesson, leiki áfram með
ÍBV.
Sænska liðið Elfsborg hefur
verið að gera hosur sínar
grænar fyrir Steingrími undan-
farið en ekkert virðist ætla að
koma út úr þeim þreifingum.
„Okkur hefur ekki borist til-
boð í Steingrím frá Elfsborg
eins og forráðamenn liðsins
voru búnir að boða. Við lítum
svo á að áhugi sænska liðsins
sé ekki lengur fyrir hendi og
Steingrímur er ekki til sölu,“
sagði Þorsteinn Gunnarsson,
framkvæmdastjóri knatt-
spymudeildar ÍBV, í samtali
við DV í gærkvöld.
Eyjamenn hafa beðið í tvo
sólarhringa eftir tilboði frá
sænska liðinu og gera það ekki
lengur. Steingrímur á tvö ár
eftir af samningi sínum við
Eyjamenn. -SK
Skagamenn fá
Portúgala
Ágúst í vanda
Ágúst Gylfason, knattspyrnumaður hjá Brann í Noregi, sagði í
samtali við Bergensavisen í gær að hann væri í ákveðnum vanda
eftir að hafa fengið nýtt tilboð frá félaginu til eins árs.
Ágúst segist ekki sáttur við að vera boðinn aðeins eins árs
samningur, þó um einhverja launahækkun sé að ræða. „Þegar
maður er erlendis með fjölskylduna vill maður meira öryggi en
það. Hins vegar á ég það á hættu, ef ég hafna tilboðinu, að standa
uppi án félags," segir Ágúst.
Enska liðið Brentford hefur einnig gert Ágústi tilboð en hann
segir við Bergensavisen að ekki verði framhald á viöræðum við
Tranmere. Þar lék hann einn leik' með varaliðinu á dögunum.
-VS
Vængbrotiö lið
ÍA gegn Snæfelli
DV Akranesi
DV, Akranesi:
Urvalsdeildarlið Skagamanna í körfu-
knattleik hefur fengið til sin sterkan
Evrópubúa fyrir komandi átök. Victor
Pereira er 33 ára Portúgali sem hefur
búið í Bandaríkjunum en undanfarin tvö
ár hefur hann leikið með og þjálfað lið á
N-írlandi.
Ástæða þess að Skagamönnum bauðst
Pereira er að lið hans varð gjaldþrota.
Pereira er 1,70 metrar á hæð og sennilega
minnsti leikmaður deildarinnar, hann er
bakvörður og leikstjórnandi og kemur á
Skagann tii reynslu. Hann hefur komið á
tvær æfingar og að sögn forráðamanna
Körfuknattleiksfélags Akraness þá eru all-
ar líkur á því að Pereira verði áfram á
Skaganum enda kemur hann til með að
styrkja liðið verulega fyrir komandi átök
um sæti í úrslitakeppninni í vor.
-DVÓ
Það verður vængbrotið lið Skagamanna
sem mætir Snæfelli í úrvalsdeildinni I
körfuknattleik á fimmtudag í Stykkis-
hólmi.
David Bevis verður að öllum líkindum í
banni. Aganefnd tók í dag fyrir beiðni
Skagmnanna um að banninu verði aflétt
en þeir höfðu lagt fram nægar sannanir
fyrir því að banninu yrði aflétt en allt
virðist koma í veg fyrir að Bevis leiki
með Skagamönnum.
Þá er þriggja stiga skyttan Bjarni Magn-
ússon meiddur og Álexander Ermon-
linski sneri sig á ökkla í gærkvöld og mun ekki heldur verða með.
Það verða þvi ungu mennirnir ásamt Pereira hinum portúgalska
sem munu halda uppi heiðri Skagamanna á fimmtudag.
-DVÓ
David Bevis fer í bann
vegna vatnsbrúsa-
málsins.
E
) ENGUND
I norskum fjölmiölum í gær kom
fram aö Espen Bárdsen, markvörður
Tottenham, fengi um 600 milljónir
króna fyrir fimm ára samning. Bárd-
sen sagöi aö fleiri félög hefðu verið
inni í myndinni en honum hefði litist
best á að framlengja samning sinn
við Tottenham. f kjölfarið er ljóst að
Ian Walker á varla möguleika leng-
ur innan Tottenham. Fréttir herma
að hann íhugi að fara á sölulista.
Andreas Köpke er sagður á leiöinni
til Glasgow Rangers. Vandræði eru
með markmennina sem eru þar fyrir
vegna meiösla. Köpke, sem er á mála
hjá Marseille, var í Glasgow í fyrra-
dag og er jafnvel búist við hann gangi
frá samningi við Rangers á morgun.
Johan Mjállby, sem hefur leikið
með AIK, vill ganga til liðs viö
skosku meistarana í Celtic. Það
kemst á hreint 1 vikunni hvort leik-
maðurinn gerir samning við skoska
liðiö.
Forsvarsmenn enska liösins Shef-
fleld Wednesday sögðu í gær að ekk-
ert yrði úr því að liðið myndi bjóða í
Henrik Larsson hjá Celtic. Skoska
liðið er með nýjan samning i smíðum
fyrir Larsson sem verður áfram í her-
búðum þeirra. Larsson skoraði 19
mörk fyrir Celtic á síðasta tímabili og
það sem af er þessa tímabils eru
mörkin orðin 11 talsins.
Jari Litmanen hjá hollenska liðinu
Ajax hefur lýst yfir áhuga að leika
með Liverpool en það hefur verið
hans uppáhaldsfélag frá því hann var
lítill strákur. Samningur Litmanen
við Ajax rennur út í vor og gæti þá
Liverpool fengið hann frítt. Litt-
manen hefur leikið 190 leiki með
Ajax og skorað 110 mörk í þeim.
ítalska lióiö Juventus leitar þessa
dagana aö markaskorara og í þeim
tilgangi var fulltrúi frá félaginu á leik
Nottingham Forest og Derby í fyrra-
kvöld. Staðfest hefur verið að hann
var þar til að fylgjast meö Pierre
Van Hoojidonk og þykir ekki ólik-
legt að tilboð berist í hann á næstu
dögum.
Tore Andre Flo, norski landsliðs-
maðurinn hjá Chelsea, vill gera nýjan
samning við félagiö. Hann sagöi i við-
tali við enska fjölmiðla 1 gær að sér
líkaði vistin vel á Stamford Bridge.
Alan Shearer hjá Newcastle verður
frá æfingum og keppni næstu tvær
vikur. Hann verður fjarri góðu gamni
þegar Englendingar mæta Tékkum á
Wembley í kvöld. Sol Campbell verð-
ur fyrirliði i hans stað.
George Graham, hinn nýráðni
knattspyrnustjóri Tottenham, er
ákveðinn í að styrkja liðið á næst-
unni. í gær voru sögusagnir á kreiki
um að hann væri að ihuga tilboð í þá
Chris Sutton og Tim Sherwood hjá
Blackburn upp á 15 milljónir punda.
Gerard Houllier, knattspyrnustjóri
Liverpool, sagði í gær að Robbie
Fowler væri ekki til sölu. Breskir
fjölmiðlar sögðu í vikunni að Arsenal
væri reiöubúið að greiða 1.400 mill-
jónir króna fyrir kappann.
Leikmenn Glasgow Rangers verða í
æfingabúðum í Flórída i um viku-
tima í janúar. Eftir leikinn við Celtic
þann 3. janúar verður leikmönnum
gefið vikufrí áður en haldið verður í
sólina vestra. Þetta er i fyrsta skipti
sem vetrarfrí veröur í skosku deild-
inni sem stendur út janúarmánuö.
Rune Lange, markaskorarinn ungi
frá Tromsö, fer ekki til Coventry þó
félög hefðu komist að samkomulagi
um að Coventry greiddi fyrir hann
400 milljónir króna. Lange var ekki
sáttur við þau kjör sem Coventry
bauð honum og er farinn aftur heim
til Noregs.
Jon Newsome, reyndur varnarmaður
frá Sheffield Wednesday, er kominn
til Bolton sem lánsmaður. Guðni
Bergsson og Andy Todd eru báðir
meiddir og Mark Fish er að fara í
leikbann, þannig að Bolton er í mikl-
um vandræðum með vamarleikinn.
Jóhann B. Guðmundsson skoraði
eitt marka Watford sem sigraði Ches-
hunt, 6-0, í svæðisbikarkeppni í
fyrrakvöld. Watford var að mestu
með varalið sitt.
Þorvaldur Örlygsson er að ná sér
eftir að hafa misst af tveimur síöustu
leikjum Oldham vegna meiðsla í hné
og spilar væntanlega á ný um næstu
helgi.
Darlington vann Burnley, 3-2, i 1.
umferð bikarkeppninnar í gærkvöld
og mætir Manchester City í 2. um-
ferð.