Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.1998, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.1998, Blaðsíða 3
MÁNUDAGUR 23. NÓVEMBER 1998 27 Valur Ingi- mundarson, þjálfari og leikmaður Tindastóls í úrvals- deildinni, varð fyrsti leikmaðurinn í sögu úrvalsdeildarinnar (frá 1978) til að skora 7000 stig gegn Haukum síö- ast liðið fimmtudags- kvöld. Næstur á eftir Val er Guð- jón Skúlason sem hefur skorað 5348 stig fyrir Keflavík og Grindavík, þá Teitur Örlygsson með 5244 stig fyrir Njarðvík, Jónatan Bow hefur gert 4611 stig fyrir Hauka, KR, Keflavik og Val og loks er Guö- mundur Bragason í fimmta sæti með 4469 stig fyrir Grindavík. Valur, sem vantaði 17 stig upp á fyrir leikinn, skoraði 24 stig í leikn- um og hefur nú skorað 7007 stig i 359 úrvalsdeildarleikjum sem gerir 19,5 stig að meðaltali í leik. Valur hefur skorað 4084 af stigun- rnn fyrir 203 leikjum fyrir Njarðvik (20,1 að meðaltali) en 2923 stig hafa komið i 156 leikjum í búningi Tinda- stóls (18,7 að meðaltali). Valur lék sinn fyrsta leik í Njarð- vík 13. október 1979 gegn ÍR og skor- aði 2 stig í þeim leik sem reyndar tap- aðist. Hann skoraði alls 38 stig fyrsta tímabilið sitt hjá Njarðvík en þá var Gunnar Þorvarðarson stigahæstur íslendinganna í liðinu með 356 stig eða 17,8 að meðaltali. Valur setti met í úrvalsdeild með þvi að hækka meðalskor sitt sex tímabil i röð frá 1979-80 til 1985-86. 1979- 80 191eikir/38stig 2,0aðmeðaltali 1980- 81 20 leikir /152 stig 7,6 1981- 82 20 leikir / 338 stig 16,9 1982- 83 20 leikir / 465 stig 23,3 1983- 84 19 leikir / 454 stig 23,9 1984- 85 20 leikir / 514 stig 25,7 1985- 86 20 leikir / 514 Stig 25,7 Tímabilið 1986-87 skoraði hann 414 stig í 19 leikjum eða 21,8 stig að með- altali. Annað met er einnig í eigu Vals en hann skoraði yfir 20 stig að meðaltali i leik 10 tímabil í röð í úrvalsdeild- inni eða í heilan áratug. Allt frá 1983-83 til 1991-92 skoraði hann yfir 20 stig að meðaltali og þess má geta að hann vantaði aðeins 6 stig upp á 1992-93 til að ná því ellefta áriö i röð. Valur náði einnig þeim einstaka ár- angri að skora yfir 10 stig i 62 leikjum í röð frá 1987 til 1990. Það voru ÍR-ing- ar sem héldu honum loks í 6 stigum 28. október 1990. Valur hefur 12 sinnum skorað meira en 40 stig í leik, flest gegn Haukum eða 55 stig i þríframlengd- um leik á Sauðárkróki 16. október 1988. Valur hitti þá úr 16 af 24 skotum sínum, þar af 3 af 6 þriggja stiga skot- um auk þess að nýta 20 af 22 vítum sínum í leiknum. Valur fagnaöi þannig 10 ára afmæl- is þess leiks með því að skora sitt 7000 stig gegn Haukum á fimmtudag. Hann hefur oftast farið yfir 40 stiga múrinn gegn gömlu félögunum í Njarðvik eða þrisvar en aUs gegn sjö liðum. Þess má geta að Valur skoraði 171 stig í fjórum leikjum gegn Njarö- vík 1990-92 eða 42,8 stig að meðaltali. Yfir 30 stigin hefur kappinn farið 52 sinnum, oftast gegn Valsmönnum eða 13 sinnum en næstoftast gegn Kefl- víkingum eða 10 sinnum. Valur hefur skorað 30 stig eða meira í leik gegn 12 félögum. Flest stig gegn einu félagi hefur Val- ur gert gegn KR eða 1010 en hann hefur skorað flest stigin sín gegn þessum félögum: KR......................1010 stig Valur.........................948 Keflavík......................891 Haukar .......................869 ÍR ...........................719 Þór A.........................416 Njarðvfk .....................399 Grindavík ....................342 ÍS ...........................258 Skallagrímur..................245 Flest stig að meðaltali hefur Valur gert gegn Breiðabliki eða 29,7 í 6 leikjum en hann hefur gert 26,6 að meðaltali í 15 leikjum gegn Njarðvík og 23,5 stig að meðaltali gegn Kefla- vík. Fœst stig að meðaltali hefur hann gert gegn Ármanni eða 8,8 í 4 leikjum en þar á undan eru Snæfell með 13,9 að meöaltali í 14 leikjum og ÍS meö 14,3 að meðaltli í 18 leikjum. -ÓÓJ íþróttir k Kristinn Björnsson getur vel við árangur sinn í gær unað. Hann skíðaði af miklu öryggi og komst örugglega í mark á hreint ágætum tíma. Kristinn keppir aftur í heimsbikarnum að hálfum mánuði liðnum. - sætið varð hlutskipti Kristins Björnssonar í Lake Placid Kristinn Björnsson, Ólafsfirði, hafn- aði í 11. sæti í fyrstu svig- keppni heims- bikarsins i Bandaríkjunum í gær. Kristinn varð í öðru sæti í sama móti í fyrra en árang- ur hans í gær er engu að síður vel viðunandi. Brautin í Lake Placid, þar sem keppnin fór fram, var mjög erfið og fjöldi keppenda féll í henni. Eftir því sem á leið urðu aðstæður verri en Kristinn hafði rásnúmer '15 og var því síðastur af stað í fyrsta ráshóp. Segja má að Kristinn hafi styrkt stöðu sína nokkuð með 11. sætinu í gær. Hann sýndi og sann- aði að hann er í aiira fremstu röð svigmanna í heiminum í dag og að árangur hans í síðustu heimsbikar- keppni var eng- in tilviljun. Mjög mikil- vægt að komast í mark Það var mjög mikilvægt fyrir Kristin að skiia sér i mark í gær. Slæmt hefði verið að falla úr keppni. Kristinn hafði greinilega að markmiði að skila sér í mark og var öryggið uppmálað í báð- um ferðunum. Þegar hann síð- an kom í mark- ið fagnaði hann framgöngu sinni og var greinilega létt. Hann hafði unn- ið sálfræðilegan sigur. Nú er spurn- ingin hvenær lukkudísimar ganga í lið með Kristni. Þá mega andstæð- ingar hans vara sig verulega. Keppnin á svig- mótunum er gríðarlega jöfn og spennandi og margir svig- menn sem geta sigrað. Ekkert má út af bera og minnstu mistök geta kostað mörg sæti. Næsta keppni í svigi fer fram í Ontario að hálf- um mánuði liðnum. Frakkinn Pi- errick Bourgeat sigraði í sviginu á 1:43,34 mín. Annar varð Hans-Petter Buraas frá Nor- egi á 1:43,76 mín og Christian Mayer, Austur- ríki, þriðji á 1:44,02 mín. Kristinn var á 1:44,56 -SK Tábrotinn en vann 4 gull - góður árangur Rúnars í Ósló íslendingar gerðu það gott á Norður-Evrópumótinu í fimleikum sem fram fór í Ósló um helgina. íslendingar, sem aldrei hafa hlotið verðlaun á þessu móti áður, nældu sér í 5 gullverðlaun og tvenn silfurverðlaun. Rúnar Alexandersson varð annar í fjölþraut á laugardaginn með 51,8 stig en Norðmaðurinn Flemming Solberg, sem varð í sjöunda sæti á síöasta EM, sigraði með 52,5 stig. Rúnar tábrotnaði á fyrri keppnisdegi en harkaði af sér og mætti til keppni í úrslitum á fimm áhöldum í gær. Hann gekk út með fern gullverðlaun fyrir æfmgar á gólfi, bogahesti, tvíslá og svifrá. Hæsta einkunn Rúnars var á bogahesti en þar fékk hann 9,7. Dýri Kristjánsson komst í úrslit á tvíslá og náði hann sjötta sæti með einkunina 7,5. Elva Rut Jónsdóttir komst í úrslit á slá og gólfi en tvö fóll á tvíslá eyðilögðu vonir hennar um keppni í úrslitum á tvíslá. Hún sigraði keppnina á slá með 9,35 í einkunn og varð önnur á gólfi. Jóhanna Sigmundsdóttir varð í fjórða sæti á tvíslá meö 7,775 stig. -AIÞ Allt á afturfótunum hjá Birgi Leifi Birgir Leifur Hafþórsson, GL, verður ekki meðal œppenda á Evróputúmum í golfi á næsta ári. Birgi Leifi mistókst herfilega á fjórða keppnisdegi er íann lék holumar 18 á 84 höggum. Við það hrapaði íann niður í 133.-145. sæti en 75 bestu kylfmgamir íomust áfram eftir fjóra hringi. 35 af þeim komast síö- m inn á Evrópumótaröðina. Birgir Leifúr var því nokkuð langt frá því að komast áfram. Hann lék vel fyrstu þrjá hringina og var við parið. Að leika fjórða hringinn á 12 höggum yfir pari gerði síðan möguleikana á að leika á meðal bestu kylfinga Evrópu að engu að þessu sinni, hvað sem síð- ar verður. -SK ÞIN FRISTUND -OKKARFAG V INTER BlLDSHÖFÐA - Blldshöfða 20 - Slmi 510 8020

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.