Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.1998, Page 8

Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.1998, Page 8
32 MÁNUDAGUR 23. NÓVEMBER 1998 Iþróttir SH-liðið fagnaði sigri í bMwteppnlnni mað viðeigandi hætti. Eftlr verðlaunaafhendingu fengu allir sem einn flugferð (laugina í fuHum skrúða. Það var handagangur f öskjunnl og góðum árangri var fagnað lengl og InnMega. Qóð hetgi var að baki hjá sundmönnum og gátu alllr unað glaðir við sitt. DV-mynd Pjetur Formaður SSÍ: BrekMiaaÍ aukast tH maaa „Þetta var stórkostlega skemmtileg bikarkeppni. Það er mjög ánægjulegt aö sjá að breiddin er að aukast til muna og ég held að ailir geti verið sammála um að það er bjart fram undan í sundinu. Það var frábær árangur hjá SH-liðinu að fara yfir 30.000 stig,“ sagði Sess- elja Erla Ámadóttir, formaður Sundsambands íslands, í samtali við DV. -JKS Heildarstaða i bikarkeppmmii Heildarstaða í bikarkeppni 1. deildar í kvenna- og karlaflokki varð þessi: 1. SH ..................... 30422 2. Keflavík ................27578 3. Ægir.....................26140 4. ÍA.......................22728 5. Ármann...................22270 6. Selfoss..................21514 2. deiM 1. UMFN.....................21725 2. UMSK.....................21404 3. KR ..................... 20704 4. Keflavlk-B ............. 20656 5. Óðinn................... 12235 6. Vestri....................9016 7. ÍBV.......................4664 8. USVH Kormákur ............2401 9. UMSB......................1450 lOÞór .......................1310 Setfyssingar féllu í 2. deild en sæti þeirra i 1. deild taka Njarövíkingar. EM innanhúss: 4-5 keppendur til Sheffield Rórir íslenskir sundmenn hafa tryggt sér þátttökurétt á Evrópu- mótið innanhúss sem haldið verð- ur í Sheöield dagana 11.-13. desem- ber næstkomandi. Þau eru Öm Amarson, SH, Hjalti Guðmunds- son, SH, Elín Sigurðardóttir, SH, og Kolbrún Ýr Kristjánsdóttir, ÍA. Lára Hrund Bjargardóttir, SH, á eftir að tryggja sér réttinn en tími til þess rennur út í kvöld. -JKS ^ Sundfélag HafnarQarðar bikarmeistari Qórða árið í röð: A heimsvísu - þegar Örn Amarson bætti íslandsmetið í 100 metra baksundi Sundfélag HafharQarðar heldur traustataki um bik- artitilinn í sundi en í gær vann félagið þennan titil flórða árið í röð í Sundhöll Reykjavíkur. Þessi árangur undirstrikar það starf sem unnið hefúr veriö í sund- inu í Hafnarfirði á liðnum árum. Yfirburðir SH vom umtalsverðir en á heildina litið var árangur í keppn- inni miklu betri en búist var við og má því vera ljóst aö sundið er í uppsveiflu um þessar mundir. Uppbyggingarstarf Gott uppbyggingarstarf er farið aö skila sér svo um munar. Fjögur Islandsmet litu dagsins ljós en met Am- ars Amarsonar í 100 metra baksundi stendur þó upp úr. Hann bætti sitt eigiö met um 1,7 sekúndur í 25 metra laug, synti á 54,02 sekúndum. Engum blöðum er um það að fletta að þessi frábæri tími er árangur á heimsvísu. Amar lét ekki staðar numið og kórónaöi árangur- inn með því að setja ís- landsmet i 100 metra skrið- sundi, synti á 49,21 sek- úndu, og var þar með fyrsti íslenski sundmaðurinn til aö synda þessa vegalengd á undir 50 sekúndum. Hin tvö íslandsmetin settu kvenna- og karlasveit SH í 4x100 metra fjórsundi. Karlasveitin synti á 3:50,18 mínútum Qg kvennasveitin á 4:27,46 mínútum. SH braut stigamúrinn, fór yfir 30.000 stig sem engu liöi hefúr tekist áður. Evrópumótið nsst Bestu sundmenn landsins taka á næstunni þátt í Evr- ópumótinu innanhúss sem haldiö verður í Sheffield á Englandi og verður fróðlegt að fylgjast meö Emi í keppni fremstu sundmanna Evrópu. -JKS Lára Hrund Bjargardóttir úr SH sigraði í 200 metra baksundinu í gær. Hér sást hún á fullri ferð í sundinu. DV-Pjetur SH-menn léku á als oddi í verðlaunaafhendingunni, tóku lagið og fögnuðu sínum fjórða sigri í röð í bikarkeppninni. DV-mynd Pjetur Kom mér á óvart „Ég get ekki annað sagt en ég sé ánægður. Árangurinn í 100 metra baksundinu fór fram úr mínum björtustu vonum. Ég hvíldi ekki fúllkomnlega fyrir þetta mót sem sýnir að ég á örlítið meira inni. Það sem skipti þó mestu var sam- staða okkar SH-manna en lykilorð- ið er samvinna til sigurs," sagði Öm Amarson, sundmaður úr SH, í samtali við DV eftir mótið. „Það verður nóg að gera hjá mér á næsta ári. Raunar byijar tömin strax í næsta mánuði en frá janúar til ágúst syndi ég mikið erlendis. Það er nauðsynlegt fyrir mig að synda á mótum erlendis og elja kappi við þá bestu,“ sagði Öm glaður i bragði en hann vann einnig verðlaun sem stigahæsti maður mótsins. -JKS Stottur af mínu liði „Eftir bikarkeppnina í fyrra töldu margir aö erfitt yrði að bæta stigametið sem þá náðist. Mitt lið sýndi hvers það var megnugt núna og ljóst aö mikil vinna skilaði sér fullkomlega. Ég get sagt aö ég er mjög stoltur af mínu liði,“ sagði Hrafnkell Marinósson, formaöur Sundfélags Hafnarfjarðar, í sam- tali við DV eftir bikarkeppnina í gær. „Kvenfólkið stóðst pressuna frá Keflvíkingum og var það sérlega ánægjulegt. Það sem öðru fremur skapar þennan frábæra árangur er það hvað liðið er jafiit. Það bæta flestir sinn persónulegan árangur. Öm setti sinn svip á keppnina með stórkostlegum árangri í 100 metra baksundinu. Sundmenn SH leggja gífúrlega mikiö á sig til aö ná árangri og synda þetta í kring- um 60-70 km á viku. Þjálfari liðs- ins, Brian Marshall, hefur einnig unnið geysilega gott starf," sagði Hrafnkell glaður í bragði. -JKS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.