Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.1998, Side 2

Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.1998, Side 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 24. NÓVEMBER 1998 Fréttir Hik við að útiloka gamla islenska Smugutogara úr norskri lögsögu: Smjúga inn í norska byggðastefnu - Angelsen sjávarútvegsráðherra sagður vera að linast í afstöðu sinni DV, Ósló: „Við vitum um fortíð þessara togara, og við vitum líka að ef þeir leggja upp fisk hjá okkur fjölgar störfum í sveitarfélaginu," segir Ame Dag Isaksen, oddviti í Loppa- hreppi í Norður-Noregi, um til- raunir norskra stjórnvalda til að útiloka gamla Smugutogara frá veiðum í norskri lögsögu. Til stendur að tveir sögufrægir Smugutogarar, sem áður hétu Már og Runólfur og heita nú Mir og Belomorsk, verði gerðir út frá Loppa og veiði úr kvótum Rússa í Barentshafi. Yfirlýst stefna norskra yfirvalda er að stöðva þessar ráðagerðir en allar líkur eru nú á að togararnir fái að veiða fyrir Loppverja. Rökin eru að hér sé um mikilvægt byggðamál að ræða og að Loppa geti ekki án afla togaranna verið. í norður-norskum blöðum er nú skrifað um að Peter Angelsen sjáv- arútvegsráðherra sé að linast í af- stöðu sinni til gömlu Smugutogar- anna og sé tilbúinn til að opna þeim leið inn í norsku lögsöguna ef það verður til að styrkja sjávar- byggðimar í norðri. Þar er nú víða lítill afli, lítil vinna og fólksflótti yfirvofandi. Togaramir tveir, sem deilan stendur um að þesu sinni, eru metnir á um 300 milljónir ís- lenskra króna. Útgerðarfyrirtækið hefur þegar greitt kaupverðið til fyrirtækis á St. Vincents og fengið skipin skráð í Rússlandi. Nú er beðið eftir veiðiheimild í norsku Togararnir sem áður hétu Már og á neðri mynd Runólfur. lögsögunni og sagt að framtíð fyr- irtækisins velti á þeirri heimild. Oddvitinn í Loppa segir að aðrir Smugutogarar hafi smogið inn í norska lögsögu og í norður-norska blaðinu Nordlys er sagt að bæði Arn- ar, sem einu sinni átti heimashöfn á Skagaströnd, og Geiri Péturs séu nú við veiðar við Noreg. Það á að sýna að Norðmenn hafi ekki getað fylgt útilokun Smugutogaranna eftir og að stöðugt aukist þrýstingurinn á að taka við fleiri togurum. -GK ÁTVR hverfur aftur til gamalla tíma: Vill reka eigin búðir á stærri stöðunum - kaupmenn í Mosfellsbæ óánægðir með að vera haldið volgum síðan í júlí Stjóm ÁTVR ákvað á fundi sínum nýlega að taka hvorugu tilboðinu sem fyrirtækið fékk í sumar þegar Rikis- kaup efhdu til útboðs vegna áfengisút- sölu sem á að koma í Mosfellsbæ. Hildur Petersen, formaður stjómar ÁTVR, segir í samtali við DV að viss stefhubreyting hafi orðið hjá ÁTVR varðandi útsölumálin. Fyrirtækið hverfur aftur að eigin rekstri vínbúða þar sem 3.500 eða fleiri búa á þjón- ustusvæði. Þijú fyrirtæki voru valin úr hópi umsækjenda um vinbúðar- rekstur í Mosfellsbæ til að gera loka- tilboð: Álftárós, eigandi nýrrar versl- unarmiðstöðvar í Mosfellsbæ þar sem Hagkaup verslar, Kaupás, eigandi 11- 11 verslunarinnar í bænum og Mos- fellsapótek. Tvö fyrstneöidu fyrirtæk- in sendu inn tilboð en apótekið skil- aði ekki inn tölu. Nú hefur Áfengisverslunin ákveðið að taka hvorugu tilboðinu en hefur þess í stað auglýst eftir hentugu leigu- húsnæði fyrir verslun í Mosfellsbæ. Tilboðin sem bárust voru upp á 329 þúsund krónur frá 11-11 en Álftárós bauðst til að reka fyrirlækið fyrir 565 þúsund króna mánaðargreiðslu. Sam- kvæmt útboðinu ætlaði ÁTVR að leggja til verslunarstjóra, skaffa tölv- ur og fleira. Sá sem fengi vínbúðina legði til annað starfsfólk, hillur og annan búnað sem til þarf. ÁTVR hefði átt að sjá sjálft um Kópavog „Við töldum rétt að við sæjum sjálf um rekstur þar sem era 3.500 íbúar eða fleiri en hins vegar í samstarfi við verslanir þar sem færri búa og þá tvær útgáfur af slíkum búðum,“ sagði Hildur Petersen, forstjóri Hans Peter- sen og formaður stjómar ÁTVR, i gær. Hún segir að vínbúðin í Kópa- vogi hafi komið nokkuð á skjön inn í þetta mál. Þetta var tilraun en við telj- um eftir á að hyggja að það sé heppi- legra að fyrirtækið sjái sjálft um slík- an rekstur," sagði Hildur. En þar er um að ræða langan samning við verð- listafyrirtækið Listakaup, eða Quelle- vörulistann, og við honum verður ekki hróflað. Hildur sagði að auk þess sem ríkið hagnaðist peningalega á að reka verslanir í stærri bæjum og sveitarfélögum væri hér um að ræða spumingu um góða þjónustu, ekki að- eins peningalegu hliðina. Framkvæmdastjóri Kaupáss, Sig- urður Teitsson, sagði í gær að hann hefði skrifað stjóm ÁTVR bréf þar sem hann óskaði eftir að gengið yrði til samninga við fyrirtækið. Verslun- in hefði tilbúið húsnæði, góð bila- stæði og uppfyllti öll skilyrði. Auk þess hefði Kaupás sent inn hagstæð- asta tilboðið. „Undanfarin ár hefúr stjóm ÁTVR samið við þá sem boðið hafa hagstæðast. Núna er þetta breytt, og tekin niutíu gráða beygja. Mér fannst vinnubrögðin afar sein, við höfum lagt mikla vimiu í þetta síð- an í júlí í sumar og ekkert gengið eða rekið,“ sagði Sigurður. Hann segir að hjá sinni verslun væri hægt að koma við mikilli samnýtingu sem kæmi ÁTVR vel. -JBP Unga fjölskyldan á Suðurnesjum: Atvinnuleyfið í höfn Atvinnuleyfi fyrir Kevin Smith, Bandaríkjamanninn sem flutti hingað með fjölskyldu sína og DV greindi frá í síðustu viku, er nú i höfn. Að sögn Gissurar Pétursson- ar, forstjóra Vinnumálastofnunar, var það afgreitt þaðan 16. nóvem- ber. Erindið barst þangað um sið- ustu mánaöamót. Eins og greint var frá í DV sner- ist málið um ung hjón með tvö böm sem voru að flytjast til lands- ins, Öldu og Kevin Smith. Hann er bandarískur, en Alda og tvær dæt- ur þeirra hjóna íslenskir ríkis- borgarar. Fljótlega eftir komuna til landsins í haust fékk Kevin vinnu við fiskvinnslu, en gat ekki byrjað að vinna fyrr en nú, þar sem auglýsa þurfti starf hans, ef einhver íslendingur skyldi vilja vinnuna. Hjónin voru mjög ósátt við þetta ferli, þótti sem Kevin væri meðhöndlaður sem annars flokks þegn, sem fengi einungis vinnu sem enginn íslendingm- vildi, auk þess sem reglur Vinnu- málastofnunar væru ósveigjanleg- ar þegar ætti í hlut fyrirviima bamafjölskyldu. -JSS Stuttar fréttir i>v Til Karíbahafsins íslandsflug hefur undirritað samning við flugfélagið Air Guade- loupe í samvinnu við Air France um leiguflug í Karíbahafmu. Samn- ingurinn er metinn á 500 milljónir króna. íslandsflug hefúr tekið eina 131 sætis Boeing 737-200 vél á leigu í verkefnið. Morgunblaðið segir frá. Árni segir upp Ámi Gunnars- son, aðstoðar- maður félags- málaráðherra, hefúr ákveðið að segja upp störf- um í ráðuneyt- inu. Ástæðan er sú að Ámi ætlar í ffamboð til alþingiskosninga. Ámi ætlar sér i 2. sæti framsóknar- manna á Norðurlandi vestra. Raforkumarkaður Þórður Friðjónsson, ráðuneytis- stjóri í iðnaðar- og viðskiptaráðu- neytinu, segir að innan 5-10 ára verði raforkubúskapur hérlendis orðinn markaðsvæddur og að skilið verði á mifti vinnslu, flutnings, dreifingar og sölu. Þetta kom fr am á ráðstefnu sem Samorka hélt í gær en þar var rædd framtíðarskipan orkumála. Þórður segir enn fremur að sjálfsagt sé að láta útlendinga taka þátt í áhættu við raforku- vinnslu. Morgunblaðið segir frá. Krefst ógildingar Ágúst Guðmundsson, fyrrum for- stjóri Landmælinga íslands, hefur höfðað mál gegn Guðmundi Bjama- syni umhverfisráðherra og Geir Haarde fjármálaráðherra með kröfu um að brottviking hans úr starfi verði ógild og þar með að hann fái starf sitt aftur. Dagur segir frá. Til Húsavíkur Guðmundur Bjarnason land- búnaðarráð- herra hefur falið stjóm Lánasjóðs landbúnaðarins að kanna hvort aðsetur sjóðsins geti verið annars staðar en í Reykjavík. Ráðherra mun hafa stungið upp á Húsavík sem hugsanlegum kosti. Hefur ráð- herra óskað eftir að niðui-staða liggi fyrir eigi siðar en í lok janúar. Morgunblaðið segir ffá. Athugunar krafist Jóhanna Sigurðardóttir hefur með bréfi til bankaeftirlits Seðla- bankans krafist athugunar á því hvort eðlilegir viðskiptahættir hafi verið brotnir með tilraun verðbréfa- fyrirtækja til að kaupa hlutabréf „bakdyramegin“. Þar á hún við með því að „kaupa“ kennitölur einstak- linga. Dagur segir frá. Ótrúleg hækkun Eiríkur S. Jó- hannsson, kaup- félagsstjóri KEA, veltir fyrir sér hvemig verslun- arkeðja geti hækkað um 580 milljónir á ein- um mánuði. „Hvað er að gerast? Hver á að borga þennan mismun? Mér finnst að Neytendasamtökin ættu að skoða þetta mál,“ segir Eiríkur. Valur Valsson, bankastjóri íslandsbanka, segist engan dóm leggja á hvort verslunarkeðjan 10-11 sé ofmetin. Dagur segir ffá. Kona dæmd 25 ára kona hefúr verið dæmd i héraðsdómi til að greiða fyrirtæk- inu Sjávardýr fjórar milljónir króna vegna innstæðulausrar ávís- unar. Hið sérkennilega við málið er það að hún fyllti ekki sjálf út kenni- tölu á ávisuninni. Dagur segir ffá. Grunur á matareitrun Grunur leikur á matareitrun hafi komið upp í mötuneyti, sem starfs- menn nokkurra ríkisstofnana snæða í við Borgartún 7 í Reykja- vík. Kom hann upp í framhaldi af veikindum á fjórða tugar starís- manna sem snætt höfðu í mötuneyt- inu í síðustu viku. -RR

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.