Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.1998, Page 4

Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.1998, Page 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 24. NÓVEMBER 1998 Fréttir Tíö slys gangandi vegfarenda á Miklubraut: Stórhættuleg slysagildra - segir Valdimar Þórhallsson, starfsmaður við Álftamýrarskóla — Valdimar Þórhalisson, starfsmaður við Álftamýrarskóla í Reykjavík, telur Miklubrautina vera stórhættulega slysa- gildru. Mestu hættuna telur hann vera á milli Safamýrar og Hvassaleitis. DV-mynd GVA „Miklabrautin er stórhættuleg slysagildra. Þar er gríðarlegur um- ferðarþungi. Mesta hættan er á milli Safamýri og Hvassaleitis þar sem miklar sam- göngur bama og unglinga era. Á þessu svæði era Kringlan, Álfta- mýrarskóli og íþróttasvæði Fram. Það er mjög mikilvægt að borgaryf- irvöld taki strax við sér og grípi í taumana áður en við horfum upp á fleiri böm lenda í hræðilegum slys- um á þessu svæði,“ segir Valdimar Þórhallsson, starfsmaður við Álfta- mýrarskóla í Reykjavík. Valdimar er mjög ósáttur við hvernig skipulag gangandi vegfar- enda er yfir Miklubraut milli Safa- mýri og Hvassaleitis. Hann bendir réttilega á að mikill íjöldi barna og unglinga á leið yfir og um þessa miklu umferðaræð borgarinnar. Mörg umferðarslys hafa orðið á Miklubraut á undanfömum áram og oft hafa börn og ungmenni orðið fómarlömb þessara slysa. Nýjasta fórnarlambið var 9 ára drengur sem varð fyrir bíl á Miklubraut gengt Kringlunni síðastliðið fostudags- kvöld. Drengurinn slasaðist alvar- lega en er á hægum batavegi. Þarf róttækar aðgerðir „Ég fer þarna yfir Miklubrautina og á fullt í fangi með það hvað þá böm sem eru með allt annað fjar- lægðarskyn en við fullorðnir. Það var gangbraut yfir Miklubraut gegnt Kringlunni en það er búið að leggja hana af. Af hvrju veit ég ekki. Það era gangstígar beggja megin sem liggja út á götuna en síðan tek- ur ekkert við. Það þarf róttækar að- gerðir í þessum málum og borgaryf- irvöld verða að fara að vakna af værum blundi. í mínum huga era þrjár leiðir sem gætu komið til greina við að bæta þetta ástand. f fyrsta lagi væri hægt að setja upp gangbrautarljós sem er þó að vissu leyti erfitt vegna breikkunar Miklu- brautar í norður. í öðra lagi væri mögulegt að byggja göngubrú yfir Miklubraut á þessu svæði eins og er við Rauðagerði. Þá væri til líka til athugunar að setja áframhaldandi girðingu upp að ljósum Háaleitis- brautar og Miklubrautar," segir Valdimar. -RR Eldhús Vífilstaðaspítala lagt niður: Sameinast eldhúsi Landspítalans - hagræðing og sparnaður, segir hjúkrunarframkvæmdastjóri Eldhúsi Vífilstaðaspítala veröur lokað frá og með 1. desember nk. Eldhúsið verður flutt á Landspítal- ann og sameinað því sem þar er fyr- ir. Þar með verður aðeins eitt eld- hús Ríkisspítalanna og það verður á Landspítalanum. „Þetta er hluti af hagræðingu og búið að standa til nokkuð lengi. Það er talsvert síðan við fengmn kvöld- matinn frá Landspítalanum. Matur- inn er síðan keyrður til okkar alveg eins og er gert á Kleppspítala og búið að vera í mörg ár þar. Það var öllum starfsmönnum eldhússins boðin vinna á Landspítalanum þannig að það var engum sagt upp. Þetta er töluvert mikil hagræðing og sparnaður og ætti ekki að raska neinu. Við verðum að laga okkur að þessum breytingum en það er búið að undirbúa þetta mjög vel þannig að ég kvíði engu um þessi mál,“ seg- ir Bjarney Tryggvadóttir, hjúkrun- arframkvæmdastjóri Vifilstaðaspít- ala, aðspurð um málið. -RR am M M m r m a M mmm wtk Bragð er að þa barmð Fmnur Finnur Ingólfsson bar sigurorð af Siv Friðleifsdóttur í vara- formannsslagnum í Framsókn. Ekki það að miklu máli skipti fyrir framsóknarmenn hver sé varaformaður, með- an Halldór Ásgrímsson fær niutíu og sjö pró- sent atkvæða í for- mannskjöri. Halldór er að vísu önnum kafinn í forsetaheimsóknum til útlanda og fundum úti um alla heimsbyggðina en hann bregður sér heim á flokksþingin hjá Framsóknarflokkn- um og þetta er fylgis- spakur flokkur og kann að meta formann sem lætur svo lítið að líta við á flokksþingum annað hvert ár. En varaformaöur er varaformaður og Finnur Ingólfsson er maður framtíðarinnar og hefur sýnt það og sannað á undanfömum áram að hann er hreinræktaður fulltrúi þeirrar framsóknar- mennsku sem rekur blóðskyldur sínar aftur til fomaldar. Finnur stjórnar viðskiptamálum, orkumálum og iðnaðarmálum í landinu og hefur hjálpað mörgum framsóknarmanninum í banka- kerfinu og atvinnulífinu og allt era þetta fulltrú- ar á flokksþingi sem kunna að þakka fyrir sig. Auk þess er Finnur leiftrandi fyndinn og skemmtilegur stjórnmálamaður sem rífur af sér brandarana þegar hann talar til almennings og hefur auk þess miklu meiri reynslu til að smala atkvæðum heldur en mótframbjóðandi hans. Siv Friðleifsdóttir er ung kona sem líka á fram- tíðina fyrir sér. Konur eiga framtíðina fyrir sér í Framsóknarflokknum en sú framtíð er ekki runnin upp ennþá, enda er Siv ung og óreynd og Finnur taldi hana vel geta unað úrslitunum þeg- ar hún fékk rúmlega þrjátíu prósent í kosningu til varaformanns. Segja má að það hafi verið nokkur bíræfni hjá Siv að bjóða sig fram þegar haft er í huga að framsóknarmenn leggja mikið meira upp úr reynslu heldur en aðrir flokkar og reynsla fæst ekki nema vera kjörinn til embætta og af því Siv hefur ekki áður verið kjörin til embætta skorti hana reynslu sem Finnur hefur og þess vegna er Finnur kosinn af því að hann hefur veriö kosinn áður. Ekki endilega vegna þess að hann er betri heldur vegna þess að það er ekki hægt að kjósa einhverja konu sem ekki hefur verið kjörinn áður til embætta. Fyrst verður að kjósa Siv áður en hægt er að kjósa hana. Að öðru leyti er hún ágæt, hún Siv, og mun öragglega verða kjörin til embætta í flokknum í framtíðinni þegar hún hef- ur öðlast reynslu af því að vera kjörin. En sem sagt, meðan hún hefur ekki verið kjörin áður er ekki hægt að kjósa hana núna. Fram að því mun Framsóknarflokkurinn kjósa þá sem henta flokknum, trausta, reynslumikla, alvörugefna og klónaða framsóknarkarlmenn á miðjum aldri. Bragð er að þá barnið finnur. Dagfari Stuttar fréttir dv Keppa um hæsta jólatréð Ríkisútvarpið greindi frá því að á ný stefiii í samkeppni milli skóg- ræktarmanna á Hallormsstað og Sunnlendinga um hver felli hæsta jólatréð fyrir þessi jól. Austfirðing- ar höfðu vinninginn í fyrra. í frétt- inni sagði aö þeir hafi þegar fellt stórt sitkagrenitré sem sett verður upp við verslun Kaupfélags Hér- aðsbúa. Hins vegar ætla Austfirð- ingar ekki að segja frá því að sinni hvað tréö er hátt. Egyptar eyðslusamari Ríkisútvarpið greindi frá því að samkvæmt nýútkomnum tölum bresku hagstofunnar era íslending- ar ekki lengur í fyrsta sæti yfir eyðslusömustu ferðamenn 1 Bret- landi. íslendingar vora i fyrsta sæti frá árinu 1994. í fyrra eyddi landinn að meðaltali 102 pundum á dag i Bretlandi en Egyptar eyddu um 106 pundum. Vilja Sólveigu sem varaformann Ríkisútvarpið greindi frá því að Hvöt, félag sjálf- stæðiskvenna í Reykjavík, skori á Sólveigu Pét- ursdóttur að gefa kost á sér í vara- formannsemb- ætti Sjálfstæðisflokksins. Aðal- fundur félagsins var haldinn í síð- ustu viku. Guðrún Beck var þá kosin formaður en Margrét K. Sig- urðardóttir, fráfarandi formaður, gaf ekki kost á sér til endurkjörs. Ekki auglýsa áfengi og tóbak Um 100 foreldrar siglfirskra bama sem fædd eru árið 1983 skora á fjölmiðla og aðra auglýsingamiðla að birta ekki áfengis- og tóbaksaug- lýsingar. Foreldramir skrifuðu undir áskorun þess efnis auk þess sem þeir skora á stjómvöld að þau taki af allan vafa sem kann að vera á lögmæti banns viö slikum auglýs- ingum. Foreldramir hvetja alla for- eldra í landinu, og þá sem láta sig varða forvarnir gegn vímuefnum, að taka undir áskorunina. Reiknar breytingu meðallauna Dagur greindi frá því að frum- varp sem ríkis- stjórnin hefur samþykkt að leggja fram geri ráð fyrir að Hag- stofan skuli reikna breytingu meðallauna sem ræður verðbótahækkun húsaleigu, í síðasta sinn miðað við mánuðina október-desember 1998, og tilkynna í síðasta sinn um verðbótahækkun húsaleigu frá og með 1. janúar 1999. Þegar blaðamaður Dags spurði Hallgrím Snorrason hagstofustjóra hvort ætlunin sé að afhema vísi- tölubindingu á húsaleigu sagði hann að það væri samningsfrelsi um húsaleigu. Fær 45.000 tonn 18. ársfundi Norðaustur Atlants- hafsstofnunarinnar lauk á föstudag- inn í London. Á fundinum var ákveðið að stjórnun á úthafskarfa- veiðum á árinu 1999 verði með sama hætti og í ár. í því felst að heildar- veiðiheimildir verði 153.000 tonn. ís- land fær 45.000 tonn í sinn hlut. Samningur undirritaöur Landssími ís- lands hf. og menntamálaráðu- neytiö hafa gert með sér samning rnn að Landssím- inn veiti íslenska menntakerfinu stuðning er miði að þvi að efla notk- un upplýsingatækni í skólum. Styrkur Landssímans til skólakerf- isins nemur samtals 23 milljónum króna á rúmlega þremur árum. Björn Bjarnason menntamálaráð- herra og Guðmundur Bjömsson, forsfjóri Landssímans, undirrituðu samningihn í gær. -SJ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.