Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.1998, Qupperneq 16
16
ÞRIÐJUDAGUR 24. NÓVEMBER 1998
Bridge og skák eru ekki leikur einn. Sumir hafa atvinnu afþessum hugaríþróttum. Hjarta, spaði, tígull, lauf og herflokkamir
tveir á skákborðinu fá þá dýpri merkingu. Stefanía, Hannes Hlífar og Sveinn Rúnar lifa og hrærast í heimi
sem einkennist aföðru en ólsen ólsen og kurteislegum samskiptum tveggja herflokka. Þá gildir blóð, sviti og tár.
Marías, kasína og nú bridge
Einbeitingin skín úr andlitum bridgespilaranna. Hér sjáum
viö hvað mótherjinn er með á hendi. DV-mynd Hilmar Þór
Stefanía Skarphéðinsdóttir er
framkvæmdastjóri Bridgesam-
bands íslands. „Ég hef alltaf
haft gaman af að spila og hef haldið
á spilum svo lengi sem ég man eftir
mér.“ Sem bam spilaði hún marías
og í nokkur ár var kasína í miklu
uppáhaldi. Stefanía var unglingur
þegar hún lærði bridge hjá Bridge-
félagi Sigluíjarðar í kringum 1970.
Hún varð íslandsmeistari í sveita-
keppni árið 1996 en í dag einbeitir
hún sér að skrifstofuvinnunni og
spilar eitt kvöld í viku. „Starííð felst
fyrst og fremst í samskiptum við
bridgefélög úti á landi, sem eru um
35, auk þess að skipuleggja mót og
sjáiim fjármálin."
Á kvöldin má sjá einbeitinguna
skína úr hverju andliti í húsnæði
Bridgesambandsins við Þöngla-
bakka. Þeir sem eiga þessi andlit
hafa yfir sérstökum orðaforða að
ráða. Hringsvíning, öfugur blindur,
samlega, slemmutilraun og áskorun
í game er eitthvað sem tilheyrir
þessum heimi. Bridgespilarar vita
lika að spilin eru i fjómm litum.
Þeir tala ekki bara um þann svarta
og þann rauða.
„Hingaö kemur fólk á öllum aldri
eða frá um átján ára og upp í átt-
rætt. Þetta er
fólk úr öllum at-
vinnugreinum og
fólk spilar á jöfn-
um grundvelli.
Það er mikið um
að bridge sé spil-
að úti á sjó og
hingað koma sjó-
menn til að fá
tæki og tól. Flest-
ir sem spila
bridge að ráði
nota sérstök
sagnbox þótt það sé strangt til tekið
ekki nauðsynlegt. Bridge er tóm-
stundagaman sem fylgir fólki allt
lífið.“
Hjá Bridgesambandinu er átak í
gangi í að ná til ungs fólks. Ástæð-
una fyrir því að æskan ætti að setj-
ast við spUaborðið segir Stefanía að
bridge þroski hugann auk þess sem
Stefanía Skarphéðinsdóttir, framkvæmdastjóri Bridgesambands íslands.
„Ég hef alltaf haft gaman af að spila og hef haldið á spilum svo lengi sem
ég man eftir mér.“ DV-mynd Hilmar Þór
það sé skemmtilegt að spila og aö læra merkingu hringsvíningar,
hitta nýtt fólk. Æskan á því eftir að samlegu og slemmutilraunar. -SJ
List, íþrótt og vísindi
Er með prófgráðu
#
Eg tefldi oft skák þegar ég var
patti og það lá því beint við að
fara í bridge," segir Sveinn
Rúnar Eiríksson sem starfar sem
mótsstjóri hjá Bridgesambandi ts-
lands. „Það er hætta á að skákmenn
einangrist en bridge fylgir mikill fé-
lagsskapur." Hann segir að flestir
spili bridge frekar af félagslegri þörf
en keppnisáhuga.
Sveinn Rúnar segir að bridge sé
góður vettvangur fyrir fólk til að
þroskast bæði andlega og félagslega.
„Það sem mér finnst mest spenn-
andi við bridge er spennan við að
takast á við hvert einasta spil og
það eru alltaf nýir hlutir að gerast.
Þetta er frekar hröð íþrótt."
Þó nokkuð er um að athafnamenn
komi saman og spili bridge, svo
ekki sé minnst á saumaklúbba og
fleiri hópa. Sveinn Rúnar segir að
bridge sé hins vegar ekki eins mik-
il snobbíþrótt eins og golf. „Það
vilja þó sumir hreykja sér af því að
þeir séu á það vitsmunalega háu
stigi að þeir geti spilað bridge. Það
er rangt. Það er reyndar dálítið
erfitt að komast inn í þetta fyrst en
ég get lofað því að eftir það uppsker
fólk fyrir allt erfiðið."
Hann hefur stjómað bridgemót-
um undanfarin ár. „Ég hafði ekki
náð eins góöum árangri og ég hafði
vonast til og þess vegna fór ég út í
það,“ segir Sveinn Rúnar sem er
meö prófgráðu frá Evrópusamband-
inu sem gefur honum rétt til að vera
æðsti keppnisstjóri á sínu svæði.
Hann er sá eini hér á landi sem
getur státað sig af þeirri próf-
gráðu.
„Spilamennskunni fylgir að menn
komast á hátt flug og sýna alls kyns
viðbrögð. Það er í rauninni mitt
hlutverk að sjá um það hvort sem
viðbrögðin eru góð eða slæm.“ Ef-
laust verða margir æstir þegar
hringsvíning er viðhöfð. -SJ
„Það vilja þó sumir hreykja sér af
því að þeir séu á það vitsmuna-
legaháu stigi að þeir geti spilað
bridge." DV mynd Hilmar Þór
H
| annes Hlífar Stefánsson, stór-
: meistari og atvinnumaður í
' skák, ræður yfir heilu orr-
ustunum á tvílita vígvellin-
um. Þar berjast kóngar, drottning-
ar, hrókar og riddarar og lítil peð
og kirkjunnar menn taka ótta-
lausir á móti óvinunum sem
koma æðandi á móti þeim.
Hannes Hlífar, 26 ára
vesturbæingur, lifir
og hrærist í þessum
blóðugu bardögum.
Ríkið borgar hon-
um mánaðarlega
upphæð sem sam-
svarar kennara-
launum fyrir að
stúdera nýjar skákir
og undirbúa sig fyrir að
mæta hershöfðingjanum
sem ræður ferð óvina taflmanna
hans sjálfs. Stundum situr hann við
tölvu en stundum situr hann við
skákborðið. Atvinnumannstitlinum
fylgir kennsluskylda við Skákskóla
íslands.
Stórmeistarinn var 14 ára þegar
hann sigraði í heimsmeistara-
keppni 16 ára og yngri. „Ég byrjaði
að hafa reglulegar tekjur af skák-
inni fyrir 5 árum. Þar áður hafði ég
stefnt að
því að
verða
stór-
meistari en það tók mörg ár.“
Hann var fimm ára þegar hann
lærði mannganginn og voru það
bræður hans sem kynntu honum
íþróttina.
Hann segir að það sem sé mest
spennandi við skákina sé hvað hún
er gefandi. „Skákin er sambland af
list, íþrótt og vísindum." Hann neit-
ar því ekki að stundum fái hann
leiða á skákinni sem er hans aðal-
vinna og -áhugamál. „Ég fæ skák-
leiða, sérstaklega ef ég er búinn að
tefla mikið. Þá hvíli ég mig bara á
skákinni um tíma.“
Miklar líkur eru á að Hannes
Hlífar keppi á alþjóðlegu skák-
móti sem haldið verður í Svíþjóð
um áramótin. Það er eins gott að
hann hafi þá stjórn á mann-
skapnum á vígvellinum.
-SJ
„Skákin er sambland af list, íþrótt og vísindum."
DV-mynd GVA