Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.1998, Side 17
ÞRIÐJUDAGUR 24. NÓVEMBER 1998
17
Sára Jakob Rolland, sóknarprestur í Landakotskirkju:
Viðhorfsbreyting
Fjöldi kaþólikka hefur tvöfaldast hér á landi en nú eru í
kringum 3500 manns í söfnuðinum. Til þess aðforvitnast um
gróskuna í kaþólsku kirkjunni tók Tilveran hús á séra Jakob
Rolland, sóknarpresti í Landakoti.
með heimsókn páfa
Á
hugi fólks á kaþólsku kirkj-
unni hefur aukist mjög síðustu
^ár og talsverð íjölgun hefur
orðið í kaþólska söfhuðinum. Nú eru
í kringum tuttugu manns í trúfræðslu
hjá séra Jakobi Rolland, sóknarpresti
í Landakotskirkju, en þeir sem sækja
slíka fræðslu eru að búa sig undir að
ganga i kaþólska söfnuðinn. Auk þess
eru nokkrir sem sækja einkatíma hjá
öðrum prestum. Um 3500 manns í
söfnuðinum eða rúmt eitt prósent
þjóðarinnar.
„Þetta er ekki stór hópur en hann
vex hægt og hægt. Það eru tvær
ástæður fyrir því að kaþólikkum
hefúr fjölgað hér á landi. Innflytj-
endum frá Póllandi, Tékklandi,
Ungverjalandi og fleiri A-Evrópu-
löndum og Filippseyjum hefur fjölg-
að hérlendis en þessar þjóðir eru
kaþólskar. Hvað aukinn áhuga ís-
lendinga á kaþólskri trú varðar þá
finnst mér að það hafi orðið við-
horfsbreyting með heimsókn páfa
hingað árið 1989. Það var mjög vel
tekið á móti páfa en mér finnst eins
Séra Jakob Rolland, sóknarprestur í Landakotskirkju.
V-mynd Hilmar Þór
og margir hafi litið á kaþólsku
kirkjuna sem nokkurs konar sértrú-
arsöfnuð sem hefðist við hér í
Landakoti. Með heimsókn páfa var
eins og rynni upp fyrir mörgum að
kaþólska kirkjan er heimskirkja,"
segir Jakob.
Það tekur að minnsta kosti tvö ár
að fá inngöngu í kaþólska söfnuð-
inn. „Fyrst og síðast verður fólk að
hafa viljann til að fylgja Jesú Kristi,
treysta honum og læra að byggja líf
sitt á honum. Trúfræðslan er til
stuðnings en þar fjöllum við um öll
trúaratriðin, trúna á Guð, kirkju og
Jesúm Krist. Fjallað er um sakra-
mentin sjö, siðfræði og heilaga
messufóm."
Skyldur hins kaþólska
manns
Að lokinni fræðslunni, sem tek-
ur eitt ár, tekur við reynslutími
sem einnig varir í eitt ár. Þá tekur
fólk þátt í kirkjustarfinu, kemur
til kirkju á sunnudögum og tekur
að sér skyldur hins kaþólska
manns. Fólk lifir heilögu líferni
eftir bestu getu og hafnar þeim
lífsháttum sem ekki samræmast
trúnni. „Fólk er hvatt til að iðka
mikið bænalíf og sækja kirkju á
sunnudögum. Þá verða menn að
láta af hvers kyns óhófsneyslu og
lauslæti. Á reynslutímanum stað-
festir fólk vilja sinn til að tilheyra
kaþólsku kirkjunni og taka á móti
þeirri gjöf sem Jesús Kristur er.
Séra Jakob segir engan vafa
leika á því að áhugi fólks á andleg-
um efnum fari vaxandi og hann
rekur orsökina til þjóðfélagsgerð-
arinnar. „Lífsgæðakapphlaupið
þreytir fólk. Það er mikið vinnuá-
lag og síðan taka áhugamálin við
en þegar upp er staðið hafa marg-
ir glatað lífsfyllingunni. Fólk hef-
ur mannlega þörf fyrir hlýju og þá
leita sumir til kirkjunnar. Trúin
getur vissulega hjálpað mörgum
að finna lífi sínu nýjan og farsæl-
an farveg," segir séra Jakob Rol-
land. -aþ
Rósa Ingólfsdóttir:
Alltaf verið kaþólsk í eðli mínu
Augu mín opnuðust end-
anlega fyrir kaþólsk-
unni síðastliðinn vetur
þegar ég sótti námskeið í Þor-
lákstíðum á vegum Endur-
menntunarstofnunar Háskól-
ans. Þá tók ég í raun upp þráð-
inn frá fyrri tíð því ég var í
sunnudagaskóla í kaþólsku
kirkjunni þegar ég var barn.
Það rann upp fyrir mér að ég
hef alla tíð verið kaþólsk í eðli
minu,“ segir Rósa Ingólfsdóttir
sem nú sækir trúfræðslutíma
hjá séra Jakobi Rolland í
Landakotskirkju.
Að loknu námskeiðinu sótti
Rósa hátið í Skálholti þar sem
800 ára ártíð Þorláks helga bisk-
ups var fagnað. Þá lá leiðin i
Þykkvabæjarklaustur þar sem
séra Jakob Rolland messaði að
kaþólskum sið í klaustri Þor-
láks í fýrsta skipti í 400 ár.
Eftir þetta hellti Rósa sér í
fræðin og er staðráðin að eyða
næstu tveimur árum í undir-
búning áður en hún fær
formlega upptöku í kaþólsku
kirkjuna.
„Eg er búin að velta þessu
talsvert fyrir mér. Ég átti sæti i
fjölmiðlanefnd þjóðkirkjunnar
og fann að þar á bæ var ekki
Rósa Ingólfsdóttir ætlar að verja næstu
tveimur árum í undirbúning áður en hún
gengur í kaþólska söfnuðinn. DV-mynd
Hilmar Þór
Ragna Olafsdóttir sálfræðingur:
Fann sálarró í trúnni
feitan gölt að flá í andlegum efri-
um. Að mínu mati hafa blásið
naprir vindar um þjóðkirkjuna og
því miður ekki verið lögð nægileg
rækt við sóknarbömin. Þar ríkir
bara kuldi. í kaþólsku kirkjunni
firrn ég þá hlýju sem er mér afar
mikilvæg og þá innri næringu
sem er okkur öllum svo
mikilvæg," segir Rósa.
Engin hversdagsmál
Rósa segir að trúmál séu engin
hversdagsmál og þau verði að
taka fostum tökum. Það sé nauð-
synlegt skilyrði að sinna þeim
með fullri meðvitund.
„Fólk verður að vera heilt og gefa
sig algjörlega í þetta. Trúin er
ekkert grin enda uppistaða lifs-
ins. Fólk þarf á andlegri næringu
að halda og þetta er vélin sem
knýr okkur áfram.“
Rósa segir líf sitt eins og svo
margra hafa einkennst af
samfelldum hlaupum og mikilli
vinnu.
„Ég hef einfaldlega ekki haft tíma
til að setjast niður með sjálfri mér
og spá í þessi mál fyrr. Nú finnst
mér rétti tíminn vera runninn
upp og ég er mikið fegin að hann
Þorlákur helgi biskup skyldi hafa
bankað upp hjá mér á
síðastliðnum vetri,“ segir Rósa
Ingólfsdóttir. -aþ
Það koma tímabil í lífi hvers og
eins þar sem maður er leit-
andi en misjafnt er hvert leit-
in leiðir mann. í kaþólskri trú finn
ég það sem ég leita að en það er sál-
arró. Kaþólsk trú gerir kröfur til
iðkunar trúarinnar og til ákveðins
lifsmáta. Hún
krefst þess að
fólk tileink5
sér um-
burðar-
lyndi og
auðmýkt
gagnvart
almættinu.
Við erum
gegndar-
laust kröfu-
hörð og
hrokafull á lífsins
gæði, oftar en ekki
reið og bitur. Við sættum
okkur ekki við gang lifsins,
viljum eiga allt alltaf. í kaþ-
ólsku uppeldi er maðurinn
lítill en guð stór. Allar
manneskjur eru breyskar
en það felst ótrúlega mikill
styrkur í að hafa þessa trú
að leiðarljósi. Þetta fann ég
svo glöggt þegar ég varð fyr-
ir áfalli í mínu lifi eins og
hendir flestar manneskjur
á lífsleiðinni," segir Ragna
Ólafsdóttir, sálfræðingur og náms-
ráðgjafi, sem tók kaþólska trú fyrir
fimm árum.
Ragna segist hafa hlotið venjulegt
íslenskt uppeldi, var skírð og fermd,
gifti sig hjá borgardómara. Trúin
var aldrei hluti af lífinu. „Mín börn
hafa hlotið kaþólskt trúaruppeldi og
trúariðkun er hluti af þeirra daglega
lífi og ég álít það vera gott veganesti
út í harða lífsbaráttu. Þetta skref; að
taka kaþólska trú, hefur einungis
orðið mér til góðs,“ segir Ragna
Ólafsdóttir.
-aþ
Ragna Ólafsdóttir
sálfræðingur segir
mikinn styrk í
trúnni. DV-mynd
E.ÓI.
Jólagjafir, jólaföndur
mm
og ótrúlegt úrval af gjafavöru
Láttu verða af því
aðbúa til þitt eigið
jólaskraut með
allri fjölskyldunni!
Vinnuhópar, saumaklúbbar o.fl. atliugið: námskeiðeftir pöntunum
Opið:
9-18 mán.-föstud.
lau. 10-16 Faxafeni 14
sunnud.13-16
Ftíndur Húsið
581 2121