Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.1998, Blaðsíða 23
ÞRIÐJUDAGUR 24. NÓVEMBER 1998
f © P P % %
í Bandaríkjunum
- a&sókn dagana 20. til 22. nóvember. Tekjur i mllljónum dollara og heildartekjur
Litlu krflin slógu
risana út
Fastlega var búist viö aö spennumyndin
Enemy of the State myndi taka helgina
með trompi en svo reyndist ekki vera, hún
fékk aö vísu ágæta aösókn, en sigurveg-
ari helgarinnar var teiknimyndin frá Para-
mount, The Rugrats Movie, sem byggö er
á vinsaelli sjónvarpsseríu sem sýnd er á
barnarásinni Nickelodeon. Þegar upp var
staðið haföi hún halaö inn rúmlega 27 millj-
ónir dollara sem er fjóröa hæsta opnun á
teiknimynd frá upphafi í Bandaríkjunum.
Þær sem eru fyrir ofan hana eru allar frá
Disney, The Lion King (40,1 m.), Pocahont- Stækkuö útgáfa Chuckie ásamt
.„1 _ _ ° Chrlstine Cavanaugh sem taiar fyr-
as (29,5 m)ogToyStory (29,1 m). The |r hana í myndinni.
Waterboy með Adam Sandler heldur áfram
sigurgöngu sinni og er Ijóst aö hún verður ein vinsælasta kvikmynd árs-
ins. Brad Pitt-myndin Meet Joe Black og I Still Know What You Did fengu
aftur á móti slæma útreið á annarri sýningarhelgi og fór aðsóknin niöur f
um 50%. Þessa helgi var einnig frumsýnd nýja Woody Allen-myndin Celebrity
og þótt hún hafi aðeins veriö sýnd I 500 kvikmyndasölum olli aösóknin
nokkrum vonbrigöum. -HK
Tekjur Heildartekjur
l(-) The Rugrats Movie 27.321 27.321
2 (-) Enemy of the State 20.038 20.038
3 (-) The Waterboy 15.707 100.230
4(3) Meet Joe Black 7.871 26.431
5(2) 1 Still Know What You Did Last... 7.018 26.221
6(4) The Siege 3.577 32.059
7(6) l’ll Be Home for Christmas 2.416 6.907
8(5) Antz 2.326 84.175
9(7) Pleasantville 2.246 34.718
10 (-) Celebrity 1.588 1.588
11 (8) The Wizard of Oz 1.404 12.690
12 (-) American History X 1.340 2.231
13 (-) Elizabeth 1.304 2.219
14 (9) Living out Loud 1.277 10.529
15 (11) Rush Hour 0.974 1 31.219
16 (10) Practical Magic 0.805 44.218
17 (14) Life Is Beautiful 0.754 4.002
18 (18) There’s Something about Mary 0.612 171.317
19 (13) Belly 0.586 8.267
20 (12) Vampires 0.583 19.560 05S
Laugarásbíó/Stjörnubíó - Blade ★★★
Vampýrur allra landa
Það er eins og ekki
ætli að verða auðvelt
að koma þessum
teiknimyndahetium
upp á tjald. Hinn
hálfvampýríski Blade
hefur allt sem þarf til
að gera eftirminni-
lega hetju, flottan
galla, hentug vopn og
innri baráttu vegna
vampýrísks blóð-
þorsta síns; þess utan
er hann leikinn af
Wesley Snipes, svo
hvað gæti hugsan-
lega verið að? Líkt og
Spawn er Blade nú-
tímaleg nálgun á
gamalkunnu efni,
vampýrurnar í Blade
eru hátæknivæddar
og sjáifur er hann
eins hip og nokkur
vampýrubani getur verið.
Blade hefur helgað líf sitt því að
útrýma vampýrum sem eru mun al-
gengari en fólk almennt heldur. Hat-
ur hans á þeim er sprottið af því að
sjálfur er hann smitaður vampýr-
isma, móðir hans var bitin ólétt en
þrátt fyrir að barninu hafi verið
bjargað var skaðinn skeður og hann
óvenju áhugasamur um annarra
blóð. Sér tU aðstoðar við vopnasmíði
og annað hefur hann aldraðan
vampýruóvin (Kris Kristofferson)
sem minnir ekki lítið á Van Helsing
og blóðsérfræðing (NíBushe Wright)
sem er bitin þegar hún er að huga
að steiktri vampýru. Að öðru leyti
gengur plottið út á valdabaráttu inn-
tm vampýrusamfélagsins þar sem
takast á Dragonetti (Udo Kier, loks-
ins aftur í vampýruhlutverku en
sorglega vannýttur) og Deacon Frost
(Stephen Dorfí) sem
lætur sér ekki nægja ei-
líft líf heldur vill líka
guðleg völd.
í sjálfu sér ætti hér
að vera úr nógu að
moða og vissulega tekst
leikstjóranum Stephen
Norrington að gera
margt skemmtUegt og
smart, sérstaklega er
byrjunin og fyrri hlut-
inn vel heppnaður en
svo fer þetta einhvem
veginn allt að þynnast;
persónur og vampýrur
eru Ula kynntar og það
er ekki unnið nægUega
úr mörgum þeim
áhugaverðu þráðum
sem kynntir eru til
leiks. Það er greinilegt
að þama er heilmikil
vampýrusaga á bak við en hún bara
fær aidrei að koma út úr skápnum.
Kannski að þetta sé vegna þess að
Blade er greinilega hugsuð sem
fyrsta í seríu og aðstandendur hafa
ekki viljað gefa allt upp strax en það
er bara ekki nógu góð afsökun.
En hvað um það, þrátt fyrir að
Blade sé kannski ekki mjög eftir-
minnUeg má vel skemmta sér yfir
henni og með finum splattersenum
og góðum húmor er hún næstum því
þriggja stjama virði. Næstum því.
Leikstjóri Stephen Norrington.
Handrit David S. Goyer. Kvik-
myndataka Theo van De Sande.
Tónlist Mark Isham. Aðalhlut-
verk: Wesley Snipes, Stephen
Ðorff, NíBushe Wright, Kris
Kristofferson, Udo Kier.
Úlfhildur Dagsdóttir
Hfrikmyndir?
Háskólabíó - Out of Sight/Út úr sýn ★★★
Frelsið í formúlunni
Elmore Leonard er rithöfundur í Ameríku sem
skrifar reyfara. Þessi oft vanmetna tegund bók-
mennta hentar vel tU kvikmyndagerðar af því tagi
sem stunduð er í HoUywood því hún einkennist af
beinskeyttum stíl og rösklegri frásögn, auk þess að
faha vel að því „bálka“(genre>skipulagi sem tíðkast í
kvikmyndaborginni. Hver bálkur (spennumyndir,
vestrar, rómantískar kómedíur og svo framvegis)
hefur sín tákn og vísanir, nokkurs konar skammstaf-
anir yfir mannlega tUvist sem bíóáhorfendur kann-
ast umsvifalaust við. Kúnstin felst því í að hefja sig
yfir takmarkanir bálksins og færa okkur ferska sýn
á klisjumar. Frelsið býr nefnUega stundum í formúlunni
ef vel er að gáð. LykUinn er að ftnna í persónum sem
manni er annt um og sé sá stígurinn fetaður en plottið
ekki látið ráða fór komast menn stundum undir regnbog-
ann.
Leikstjórinn Soderbergh, sem á sínum tima hlaut þá
þyrnikórónu að slá í gegn með sinni fyrstu mynd (Sex,
Lies and Videotape) - en hefur staðfastlega neitað að stíga
hrunadansinn síðan - veit þetta aUt saman og sýnir það í
Out of Sight. Hér segir af Jack Foley (Clooney) bankaræn-
ingja sem brýst úr prísund sinni og hyggst fremja síðasta
ránið, þetta sem á að ylja honum í ellinni. Hann reiknar
þó ekki með að hitta fyrir hina metnaðarfuUu lögreglu-
konu Karen Sisco (Lopez) sem reynir að stöðva flóttann
en er stungið ofan i skott flóttabUsins ásamt bankaræn-
ingjanum. í skottinu upphefst undurfaUegt samband sem
bæði höfundur og leikstjóri eru algerlega samstíga um að
gera að miðju verksins. Þama eru líka eltingaleikir,
bankarán, innbrot, heimskar löggur og bófar, slagsmál og
byssubardagar en aUt þetta er sem hjóm eitt hjá þeim hár-
fína streng sem ekki slitnar miUi löggunnar og bófans.
Jújú, víst hefur þetta sést áður og
er skemmst að minnast Jackie
Brown eftir Tarantino sem byggð
var á bók eftir sama höfund, þar
sem hæst bar kærleiksbandið miUi
lánlítiUar flugíreyju og lifsþreytts
skUorðsmanns. En galdurinn liggur
í leiknum og Soderbergh stýrir
þeim Clooney og Lopez beina leið í
höfii. Sjarmörinn Clooney hefur nú
í nokkur ár verið fremstur meðal
jafningja í frábærum leikhóp fram-
haldsþáttanna ER en ferUl hans í
bíómyndum hefur verið skrykkjótt-
ur vegna þess að fram að þessu hafa
menn aðeins horft á huggulegt yfir-
borðið en ekki áttað sig á því sem
undir býr. í Out of Sight er hann í sínu elementi, örugg-
ur, seiðandi og dularfuUur en um leið með opið inn að
kviku. Frammistaða hinnar ungu og glæsUegu Lopez gef-
ur og fyrirheit um góðar stundir, með einsemdina í
augnaráðinu og þrjóskuna í munnvikunum heldur hún
fyUUega sínu gagnvart Clooney. Svo er ekki verra aö
horfa upp á restina af leikarahópnum; Ving Rhames
(hvenær ætlar einhver að gefa þeim dýrindis manni aðal-
ruUu?), Albert Brooks, Nancy AUen, já takk - og einnig
dúkka upp óforvarindis tvær súperstjömur en ég ætla að
láta þær koma ykkur ánægjulega á óvart. Það sama má og
segja um myndina sjálfa, þetta er svona hasarmynd á yf-
irborðinu en undir niðri lítiU blús um tvær manneskjur
sem hefðu sameinast á öðrum stað og öðrum tima en
heimurinn er stundum vondur og svosem ekkert um það
að segja nema að þetta jafnast aUt hjá guði.
Leikstjóri: Steven Soderbergh. Handrit: Scott Frank
eftir skáldsögu Elmore Leonards. Tónlist: Cliff
Martinez. Aðalhlutverk: George Clooney, Jennifer
Lopez, Ving Rhames, Albert Brooks.
Ásgrímur Sverrisson
FUIBÚD AF NÝJIIM VÖffll
SAUTJÁN
Laugavegi 91 • Kringlunni
PS • PcuJL
JOSEPH
ALLSAINTS
Obvious
TOMMYfei HILFIGER
^ DIESEL
I A W D ■ M I M
Skór:
Athugið að í kvöld kl 23.20 verður frumsýnd kynningarmynd
um verslunina 17 í Sjónvarpinu (RÚV).