Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.1998, Side 13

Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.1998, Side 13
popp fjöl-hljóðfæraleikari, sólóisti og lagahöfundur, er einn af svalarí gaurum poppsins. Barry Adamson, Barry segist hafa gift sig 27 sinnum, en er neyndar bara Manchester. Hann hafði hrifist af pönkinu og lét slag standa þegar Howard Devoto, aðalmaðurinn í pönkbandinu Buzzcocks, ákvað að stofna nýja hljómsveit. Barry komst yfir hálfónýtan bassa, lærði á hann á einni nóttu, svaraði aug- lýsingu og fékk djobbið. Eftir fimm plötur með Magazine spilaði Barry á tímabili meö Bad Seeds-kombói Nicks Cave. Barry er sonur hvítrar konu og svarts manns frá Jamaíku og þeg- ar Nick Cave fór að pæla of mikið í svartri blústónlist, að mati Barrys, hætti hann í Bad Seeds, enda fannst honum líka tími til kominn að gera eitthvað upp á eig- in spýtur. Önnur platan hans hét „Soul Murder", en með þeirri þriðju, „Oedipus Schmoedipus", varð Barry fyrst nokkuð vinsæll, þá aðallega sem „költ“ fyrirbæri. Á þeirri plötu fékk hann með sér góða gesti, eins og Jarvis Cocker úr Pulp og Nick Cave, en á nýjustu plötunni, „As above, so below“, sem nýlega er komin út, syngur hann í fyrsta skipti sjálfur. Það er frekar skrýtið og seint í raddbönd- in gripið, því Barry hefur ágæta rödd, sem minnir á Tom Waits, áður en Tom var búinn að sukka sig ráman, en Barry svarar því til að hann hafi ekki treyst sér til að syngja fyrr og tónlistin heldur ekki þurft á því að halda. Njósnað um hugarheima Nýjasta platan er mun léttari og þar af leiöandi aðgengilegri en fyrri plötur. Hér eru mörg fín popplög með djössuðum áherslum, en alltaf glittir þó í dimm skúma- skot, enda hefur tónlist Barrys alltaf verið skuggaleg og minnt á gamlar „Film noir“ myndir, þar sem mannlegir breyskleikar og til- finningalegar flækjur eru rauði þráðurinn, ásamt spennu og óvæntum endalokum. Líf Barrys, sem nú er fertugur, hefur enda ver- ið frekar skrautlegt. Hann segist hafa gift sig 27 sinnum, en er reyndar bara þrigiftur og á tvö böm úr fyrri hjónaböndum. Hann fékk taugaáfall fyrir þrettán árum, foreldrar hans og systir létust á stuttu tímabili fyrir tíu árum og karlinn var nýrisinn úr flókinni skurðaðgerð þegar hann fór að leggja drög að nýju plötunni. „Ég var ekki viss um hvort ég kæmi aftur þegar ég fór undir skurðarhnífinn," segir Barry. „Þegar ég raknaði úr rotinu fór ég strax að semja nýju plötuna. Þetta var einhvers konar endurfæðing. Það er þó nokkur andleg angist á þessari plötu, en hún er samt til- raun til að sanna fyrir mér og öðr- um að allt myrkrið í heiminum getur aldrei kæft ljósglætuna." Barry hefur alltaf haft dálæti á hugarheimi njósnarans og það er ekki fráleitt að segja að í textunum sé hann að njósna um eigin hugar- heima og annars fólks. Þessum pælingum pakkar hann í tónaum- búðir þar sem popp, djass, avant garde rokk, danstónlist og blús blandast saman í blöndu, sem eng- inn annar gæti gert. Tónlist Barrys Adamson er auðþekkjanleg, alltaf svöl og athyglisverð, og ætti að vera í sem flestra eyrum. -gih Rúnar Þór og hljómsveit verða á Fógetanum alla helgina og á sunnudagskvöldið verðurlrsk tónlist leikin af hljðmsveitinni Session. f kvöld og annað kvöld munu hinir snyrtilegu og stórskemmtilegu Sixties hita upp fyrir gamlárskvöld á Café Amsterdam. Ásgarður. í kvöld er ball frá níu til tvö. Hljóm- sveit Birgls Gunnlaugssonar leikur fyrir dansi. Svo verður llka dansað á sunnudagskvöldið með Capri tríóinu. Á hinum eins árs gamla stað, Álafoss fót bezt I Mosfellsbæ, verður dagskrá sem tileinkuð er Creedence Clearwater Revlval I kvöld og ann- að kvöld. Hún er flutt af Gildrumezz og það kostar sexhundruðkall inn. Sveitin Á Búöarkletti I Borgarnesi verður hljómsveitin Gammel Dansk að leika alla helgina. Hljómsveitin Skítamórall verður með brjálaðan dansleik á SJallanum Akureyri í kvöld og á morgun tekur Sálln hans Jóns míns við fjörinu. í kvöld leikur hljómsveitin Sóldógg á dansleik hjá framhaldsskólanum í Vestmannaeyjum sem haldinn verður á Höfðanum. Á morgun veröur sveitin aftur á sama stað en þá á al- mennum dansleik. Hafurbjöminn í Grindavík. I kvöld mun Butt- ercup hjálpa til við að hressa andann. Hljómsveitin 8-vlllt, ný og endurbætt, verður með brjálaöan stuðdansleik á Hótel Mællfelll á Sauðárkróki í kvöld en svo verður sama Imeira á.1 VAIUUW UÍ þrígiftur og á tvö böm úr fyrri hjóna- böndum. Hann fékk taugaáfall fyrir þrettán árum, foreldrar hans og systir létust á stuttu tímabili fýrir tíu árum og karlinn var nýrísinn úr flókinni skurðaðgerð David Lynch-myndinni „Lost Highway". Ferill Barrys hófst með Mag- azine, gæðarokksveit frá - Alveg eins og þú: ★★ Land og syni má reka í sömu rétt og Greifana og Sálina og þar standa þeir keikir og jarma hvern smellinn aföðrum. urballaðan, en í bláendann kem- ur húrrandi stuðsveifla, „Vöðva- stæltur", sem er eineggja stuðtví- buri Terlín-lagsins og næsti bær við síðasta bæinn i Geirmundi. Land og synir kunna að spila á hljófærin sín og þeir spila lög sem ganga í heilbrigða æsku þessa lands. Með þessari ofur ófrumlegu og heiladauðu klisju- plötu mun sveitaballaríki þeirra verða víðfeðmt á komandi sumri, sportbílamir síst verri en Skítamórals og hárgelsbirgðirn- ar óþrjótandi. Meintu góðæri fylgir nefnilega popphallæri og þá blómstra leiðindin á vin- sældalistunum. Gunnar Hjálmarsson „Gullna Hliðið“ komið í gull! Sálin áritar: í dag: Skífan Kringlunni kl. 18-19 . w laugardag Bókval Akureyri kl. 16-17 sunnudag Bónus Holtagórðum kl. 17-18 fös.i8.des: Ástco lau. 19. des: Sjallinn Akuceyci sun. 20. des: Gaukur á Stöng aat í jólum: Kótel Selfoss gamlaarskvöld: Stapinn hattar • knöll •happdrætti 18. desember 1998 f ÓkllS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.