Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.1998, Blaðsíða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.1998, Blaðsíða 29
I b í ó The Prince of Egypt verður frumsýnd í Bandaríkjunum um þessa helgi og hér á landi á annan dag jóla. Draumasmiðjan að Um helgina verða þrjár kvik- myndir frumsýndar í Bandaríkj- unum sem allar gætu orðið mjög vinsælar. Fyrst ber að telja teiknimyndina The Prince of Eg- ypt, sem kemur frá DreamWorks og er hún sett í beina samkeppni við stóru teiknimyndimar frá Walt Disney hvað varðar gæði og tækni, You Got a Mail, þar sem Tom Hanks og Meg Ryan leika aðalhlutverkin, en skemmst er að minnast að þau slógu i gegn saman í Sleepless in Seattle, og Playing by Heart sem hefur fjölda þekktra leikara innan- borðs, meðal annars Sean Conn- ery, Madeleine Stowe, Gillian Anderson, Gena Rowlands, Dennis Quaid, Ellen Burstyn og Anthony Edwards. Mesti spenningurinn er í kringum The Prince of Egypt, enda leggur Draumasmiðjan með þá Steven Spielberg, David GefTen og JefTrey Katzenberg fremsta í hópi snjallra kvik- myndagerðarmanna allt sitt und- ir í þessa mynd og er talið að hún sé dýrasta teiknimynd sem gerð hefur verið. Uppgefinn kostnaður er 75 milljónir dollara en flestir eru á því að hann sé nær 100 milljónum dollara. Allt frá því Draumasmiðjan var sett á laggirnar hefur The Prince of Egypt verið á dagskrá og yfirumsjón með gerð hennar hefur Jeffrey Katzenberg haft. Hann var næstráðandi hjá Disn- ey í mörg ár og átti þátt í gerð hinna geysivinsælu The Little Mermaid og The Lion King. Hann fór i nokkru fússi frá Disn- ey þegar Michael Eisner taldi hann ekki nógu góðan til að vera næstan sér að völdum og því má geta sér til að Katzenberg sé það mikils virði að geta skákað Disn- ey með The Prince of Egypt. Hef- ur hann undanfarin misseri ver- ið óþreytandi við að kynna myndina, auk þess sem hann fylgdist vel með allri gerð, var meðal annars viðstaddur talsetn- ingu hennar og tók meira og minna þátt í öllum undirbúningi. Og þessi vinna hans hefur greini- lega borgað sig þvi allir þeir sem séð hafa myndina hafa lofað hana í hástert og víst er að sjald- an hefur annað eins tækniafrek í kvikmyndum verið unnið. Þegar kom að því að velja leik- ara í talhlutverkin var ekki ráð- ist á garðinn þar sem hann er lægstur heldrn- eru stórstjömur í hverju hlutverki. Fyrir Móses talar Val Kilmer og Ralph Fiennes talar fyrir bróður hans, Disney? Ramses. Aðrir leikarar eru Sandra Bullock, Michelle Pfeiffer, Danny Glover, Steve Martin, Martin Short og Jeff Goldblum. Rödd Guðs kemur fyrir í myndinni og var það ætl- un Katzenberg að láta sem flesta leikarana segja setningar Guðs og mixa raddirnar saman. Það gekk ekki upp og fékk hann því Val Kilmer til að tala fyrir al- mættið en rödd hans er nokkuð breytt frá rödd Móses. Fyrir fram taldi Katzenberg að erfitt væri að komast hjá þvl að móðga araba þar sem Móses og hjörð hans eru hetjurnar en Ramses og þjóð hans vonda fólkið. Ýmislegt var gert til að særa ekki araba, meðal ann- ars voru nokkrir hermenn Ram- sesar látnir leggja niður vopn og ganga til liðs við Móses og svo er bara að sjá hvort þetta nægir. Hér á landi verður Egypski prinsinn sýndur með íslensku og ensku tali. Búið er að talsetja myndina og meðal þeirra sem ljá raddir sínar eru Felix Bergs- son, Hjálmar Hjálmarsson, Selma Bjömsdóttir, Bergþór Pálsson og Edda Heiðrún Backman. -HK jgæ»t8g!gra« Laugarásbíó Blade ★★★ I Blade eru vampírurnar hátækni- væddar og sjálfur er hann eins hip og nokkur vampíru- bani getur verið. Sérstaklega er byrjunin og fyrri hlutinn vel heppnaður, en svo fer þetta einhvern veginn allt að þynn- ast, en það má vel skemmta sér hér, og með fínum splatt- ersenum oggóðum húmor þá er hún næstum því þriggja stjarna virði. -úd The Truman Show -HK Regnboginn There’s Something about Mary ★★★ Fjórir lúðar eru ástfangnir af sömu Mary. Cameron Diaz er i toppformi, Matt Dillon alveg ótrúlega skemmtilegur sem slímugur einkaspæjari og Ben Stiller er fæddur lúði. En nú er tími lúö- anna og þrátt fyrir að pólitísk rétthugsun sé þeim bræðrum eitur í beinum er greinilegt að ekki þykir nógu PC lengur að láta lúðana tapa, líkt og þeir gerðu I Dumb and Dumber. Og á því tapa þeir. -úd Dr. Doolittle ★★★ -ge Stjörnubíó Urban Legend ★★★ Urban Legend er ekkert meistarastykki en hún er hiklaust þriggja stjörnu hrylla. Byrjunin var virkilega smart, og lokasenan vlsar hamingjusamlega, og alger- lega óskammfeilið, I möguleikann á heilli syrpu af Urban Legends. -úd Knock Off ★ Hér er á ferðinni þessi líka fina þriðja klassa eftirliking af Hong Kong-mynd- um, en ólikt eftirlíkingunum sem hún fjallar um, þá heldur hún ekki út nógu lengi til að selja sig. Ég veit eiginlega ekki fyrir hvað þessi mynd á að fá stjörnu, I sumum kvikmynda- handbókum er notast við kalkún I tilfellum sem þessum. -úd Can’t Hardly Wait ★★ Þessi unglingamynd sver sig I ætt við gleðimyndir á borð við Grea- se að þvl leyti sem hún fjallar um útskriftarár- gang menntaskóla, paranir og afparanir. Þarna er á ferðinni tilraun til að vinna með þetta menntaskólalokaballs-form, en þessi sjálfsmeðvitund gengur þvl miður ekki nógu langt, og klisjurnar hlaðast æ hraðar upp eftir þvl sem líður á myndina. -úd TflÉSk 1 T'’SH » CxSáx www.visir.is Stærsta tölvuleikjaverslun landsins ...hefur opnað að Laugavegi 26 með gífurlegt úrval tölvuleikja og fræðsluefnis. Gremlin ELECTRONIC ARTS* DISTRIBUTION AcHVísíoh » .ccssssji- i Jólatilboð! PC-leikir Carmageddon 2 - 3.299 kr. Half-Life - 3.899 kr. PlayStation-leikir Fifa 99 - 4.999 kr. Tomb Raider 3 - 4.799 kr. Opið til 22:00 öll kvöld. IDOS S K I F A N Laugavegi 26 Sími 525 5042 4j^^fB33SEEEE> 18. desember 1998 f Ókus

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.