Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.1998, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.1998, Blaðsíða 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 29. DESEMBER 1998 Fréttir Ný lög um tekjuskatt og lífeyrissparnað: Hagsmunamál sem fólk ætti að nýta - segir Halldór Björnsson, formaöur Dagsbrúnar-Framsóknar, stéttarfélags Um áramótin ganga í gildi breyt- ingar á lögum um tekjuskatt. Sam- kvæmt þeim er skylt eins og áður að greiða 4% fastra tekna til lífeyr- issparnaðar og er framlagið skatt- frjálst og leggur launagreiöandi fram tiltekið mótíramlag. Nýmælið er hins vegar það að launþegi má bæta við 2 prósentum til viðbótar til að auka lífeyrisréttindin, t.d. með því að kaupa sér sparnaðarlíftrygg- ingu eða hefja reglulegan sparnað til eftirlaunaáranna og er sú upp- hæð einnig skattfrjáls. Til að hvetja fólk enn frekar til þess að nýta sér þennan aukna rétt hefur lögum um tryggingargjald einnig verið breytt. Samkvæmt þeim skulu launagreið- endur frá áramótum hækka mót- framlag sitt um 0,2 prósent en á móti lækkar tryggingargjald þeirra um sömu prósentuupphæð. Þetta gildir fyrir allan vinnumarkaðinn, bæði hinn almenna og á vegum op- inberra aðila. Hvernig á aö spara? Halldór Björnsson, formaður Dagsbrúnar-Framsóknar stéttarfé- lags og stjórnarmaður i Lífeyris- sjóðnum Framsýn, segir þessa laga- breytingu vera mikilvægt framfara- skref og hagsmunamál fyrir almenn- ing sem sjálfsagt sé fyrir fólk að nýta sér. Verið sé að undirbúa málið og stefnt að því að allt verði tilbúið um Halldór Björnsson, formaöur stéttarfélagsins Dagsbrúnar-Framsóknar. Nýju tekjuskatts- og líf- eyrissparnaöarlögin eru mikilvægt framfaraskref fyrir almenning, aö hans mati. áramótin. í samvinnu við rikisstjórnina verði sent út fræðslu- efni til allra launþega landsins milli jóla og nýjárs. Síðan verði haldið námskeið á vegur Dagsbrúnar- Framsóknar þann 7. janúar fyrir trúnaðar- menn félagsins á vinnustöðum og þeim gerð grein fyrir mikil- vægi málsins svo þeir geti miðlað þeirri þekkingu til félaga sinna. Skattfrelsi þess fjár sem fólk ver til nýs aukalifeyrissparnaðar er bundið því skilyrði að sparnaðurinn sé reglulegur á sama hátt og hinn almenni skyldulífeyrissparnað- ur. Halldór segir að launþegar þurfi hver fyrir sig að gera samn- ing við lífeyrissjóði, eða aðra þá sem leyfi hafa til að annast slíkt, um sparnaðinn. Þegar sá samningur er kominn á sé atvinnu- rekandi skyldugur til að leggja á móti 0,2% sem reyndar hann fær til baka í lægra tryggingargjaldi. Sparnaðarlíftryggingar „Þessu til viðbótar er verið að vinna að því að koma á líftryggingu í tengslum við þetta. í því felst að gert verður samkomulag við líf- tryggingarfélag um líftryggingar- upphæð, t.d. tvær milljónir, sem þá verður greidd af lífeyrissjóðnum af þessari aukafjárhæð, þannig að fólk þarf ekki að hafa neinar áhyggjur af því, einungis að gera þetta sam- komulag sem ég nefndi áðan. Þá borgar viðkomandi minna iðgjald en hann þyrfti að borga sem ein- staklingur vegna þess að innheimt- an er miklu einfaldari, aöeins frá einum aðila sem er lífeyrissjóður- inn,“ sagði Halldór Björnsson. Aðspurður hvort einhverjir töp- uðu á aukalífeyrissparnaði segir Halldór það hugsanlegt ef menn eru á einhvers konar tekjumörkum. „Þetta er skattfrjálst en síðan er það skattlagt þegar það er tekið út. Þá getur það haft áhrif á greiðslur al- mannatrygginga," segir Halldór. Hann segir að tekjutenging bóta frá Tryggingastofnun sé sökudólgurinn í þessu efni og gangi orðið of langt. Þannig byrji bætur Tryggingastofn- unar þegar að skerðast við lífeyris- tekjur vel undir 100 þúsund á mán- uði. -SÁ Átaksverkefni um slysavarnir barna og unglinga: Fleiri slys en í nágrannalóndunum I gær kynnti verkefnisstjórn átaksverkefnis um slysavarnir barna og unglinga verkefni sem vonast er til að dragi úr slysum yngstu kynslóðanna. Það eru full- trúar sex ráðuneyta sem skipa verk- efnisstjórn átaksins en fram- kvæmdastjóri verkefnissstjórnar- innar verður Herdís Storgaard hjúkrunarfræðingur. Átaksverkefn- ið stendur í þrjú ár og markmiðið er að draga úr slysum, samræma krafta þeirra sem sinna slysavörn- um, samhæfa fræðslu og forvamir og veita ráðgjöf um slysavarnir barna og ungmenna. Á Islandi hafa slasast fleiri börn en í nágrannalöndunum á undan- fömum ámm en orsakir þess eru óljósar. Þá hefur skráningu á slys- um verið nokkuð ábótavant en talið er að 20-22 þúsund böm lendi í þannig slysi á ári hverju að ástæða sé að leita aðstoðar heilsugæslu- stöðvar eða sjúkrahúss. Erfitt er að reikna út kostnað vegna slysanna en talið er að tugir milljarða króna fari á ári hverju í beinan kostnað vegna slysa sem þessa. Ingibjörg Pálmadóttir heil- brigðisráðherra lagði tillögu fyrir ríkisstjórn um að freista þess að fækka þessum slysum og var hún samþykkt á síðasta ári. Verkefnisstjómin verður til húsa í Heilsuverndarstöðinni við Baróns- stíg og er fólk hvatt til að hafa sam- band vegna slysa eða koma með ábendingar sem lúta að slysavörn- um. -hb Hið eina og sanna prófkjör A flokkamir eru búnir að koma sér sam- an um prófkjör til að raða upp lista Samfylk- ingarinnar í vor. Ekki það að Kvennalistinn hafi samþykkt að vera með en A-listafólk er ekki af baki dottið og semur reglurnar fyrir Kvennalistann til að vera með og svo ræður Kvennalistinn hvort hann er með í prófkjöri þar sem hinir flokkam- ir hafa ákveðið hvernig skuli kjósa, hvort sem Kvennalistinn verður með eða ekki. Nú er ekki víst að allir skilji reglurnar sem fara verður eftir í prófkjörinu. En þær eru í stuttu máli sem hér segir: Hver kjósandi má kjósa og hefur eitt atkvæði. Hann má þó greiða tvö atkvæði sem gildir sem eitt og hann má velja um flokk þó sami flokkur sé ekki í framboði, vegna þess að prófkjörið er bara fyrir þá sem tilheyra þeim flokkum sem ekki munu bjóða fram í næstu kosningum. Til þess þarf kjósandinn að segja til um hvaða flokk hann mundi kjósa, ef sá flokkur hefði boð- ið fram, til að sá flokkur sem ekki býður fram og kjósandinn krossar við fái sem flesta frambjóð- endur í efstu sæti á lista sem flokkur hans hefur fallist á að komi í staðinn fyrir flokkinn sem hefði verið í framboði ef hann hefði ekki hætt við að vera í framboði. Auk þess er fyrirfram ákveðið í hvaða sæti hver frambjóðandi sitji, þannig að þó einn fram- bjóðandi fái fleiri atkvæði í prófkjörinu heldur en annar frambjóðandi þá er alls ekki víst að hann skipi sæti ofar en sá frambjóðandi sem færri atkvæði fær vegna þess að frambjóðendurn- ir verða, eins og kjósendurnir, að tilheyra ákveðnum flokki sem ekki er í framboði. Þannig komast þeir einir í framboð sem hafa áður verið í framboði eða tilheyrt flokki sem bauð fram. Aðrir eru ómark. Þá má heldur ekki gleyma því að Jóhanna Sig- urðardóttir tekur sæti á listanum án tillits til þess hversu mörg atkvæði hún fær og þess vegna er óþarfi að eyða á hana atkvæði. Þá mega prófkjörskjósendur vara sig á því að gefa „sínum manni“ ekki of mörg atkvæði í efstu sætin því þar með getur hann hrapað niður fyrir aðra sem eiga að vera fyrir ofan. Ef þeir sem verða fyrir ofan fá of mörg atkvæði færast þeir neðar og þess vegna má heldur ekki greiða þeim atkvæði sem eiga að vera fyrir neðan svo þeir verði ekki fyrir ofan. Eins og sjá má af þessum útskýringum er próf- kjörið afar lýðræðislegt og auðskilið og ekki aðal- atriðið að margir kjósi heldur að þeir sem kjósi skilji að þeir verði að kjósa rétt til að mark sé takandi á atkvæðinu. Að öðru leyti er búið að ákveða hvemig raðað verður á listann áður en prófkjörið fer fram og er það til auðvelda fólki að taka þátt í prófkjörinu. Dagfari Stuttar fréttir i>v Breytingar hjá lögreglunni 22. desember undirritaði dóms- málaráðherra reglugerð um sérsveit ríkis- lögreglustjór- ans. Reglugerð- in tekur gildi 1. janúar 1999. Samkvæmt henni skal ríkis- lögreglustjórinn starfrækja sér- sveit lögreglu til að takast á við vopnuð lögreglustörf og öryggis- mál þegar þörf krefur hvar sem er á landinu og innan efnahagslög- sögu íslands. Landslið hestamanna Alþingismennimir Guðni Ágústsson, Hjálmar Ámason og Jónas Hallgrímsson hafa lagt fram tillögu til þingsályktunar á Alþingi um landslið hestamanna. í tillögunni segir m.a. að „Alþingi ályktar að fela landbúnaðarráð- herra aö koma á fót landsliði hestamanna, allt að tíu manna, af báðum kynjum og á öllum aldri, sem falið verði að kynna íslenska hestinn." Dagskráin sagði frá. Nýr vegur Framkvæmdir hófust fyrir nokkru við nýjan veg fyrir Bú- landshöfða á Snæfellsnesi. Það er Héraðsverk frá Egilsstöðum sem sér um verkið en því á að vera lokið í október árið 2000. Skessu- hom sagöi frá. UNESCO-nefnd Menntamálaráðherra hefur skipað nýja UNESCO-nefnd fyrir tímabilið 1.1. 1999-31.12. 2002. Hlutverk íslensku UNESCO-nefnd- arinnar er að vera ríkisstjóm- inni og sendinefnd íslands á aðal- ráðstefnu UNESCO til ráðuneytis í málum er varða UNESCO og tengiliður milli UNESCO og ís- lenskra mennta-, vísinda- og ann- arra menningarstofnana. Jafnréttiskönnun Ingunn Guðmundsdóttir, for- seti bæjarstjórnar Árborgar, lagði fram tillögu á bæjarstjórnarfundi fyrir stuttu þar sem bæjarstjórnin beinir því tU jafnréttishóps félags- málanefndar aö gera athugun á hvort jafnræði ríki milli kynj- anna varðandi fjárframlög til íþrótta-, æskulýðs- og tómstunda- starfs. Dagskráin sagði frá. Vondur vegur Oddviti Dalabyggðar segir ástand Bröttubrekku lögbrot. Vegurinn yfir Bröttubrekku er einn erfiðasti farartálmi í vega- kerfi Vesturlands ef stofnæðar eru bornar saman. Hann er aðal- leiðin milli Dalasýslu og Borgar- fiarðar og þaö er ekki skrýtið þótt gerðar séu kröfur um að fram- kvæmdum við þennan torsótta fiallveg verði hraðað. Slíkar kröf- ur gerast sífellt háværari frá Dalamönnum og öðmm. Skessu- hom sagði frá. Ekki á verksviðinu Sveinn Runólfsson land- græðslusfióri telur það tæpast á verksviði sinnar stofnun- ar að styrkja með fiárfram- lagi átak Félags hrossabænda að fækka hrossum um 1600. Ríkisútvarpið greindi frá. Hækkun á fasteignamati Almenn hækkun á fasteigna- mati atvinnuhúsnæðis úti á landi er 5% en bújarðir ásamt útihús- um hækka um 2,5%. Hlunnindi hækka um 5%. Á nokkrum stöð- um þurfti að hækka mat íbúöar- húsnæðis meira en að ofan grein- ir. Til dæmis var hækkun íbúða í fiölbýli á Selfossi 10%, i Þorláks- höfn hækkuðu einbýlishús um 10% og á Hvolsvelli varð 15% hækkun á öllu íbúðarhúsnæði. Dagskráin greindi frá þessu. -SJ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.