Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.1999, Blaðsíða 2
22
MÁNUDAGUR 25. JANÚAR 1999
íþróttir___________________________________________________________________________________________r>v
Harpa Melsted fær hér óblíðar móttökur hjá varnarmönnum Rússa í fyrri viðureign íslands og Rússlands í undankeppni heimsmeistaramótsins í
handknattleik. Á innfelldu myndinni spennir Theodór Guðfinnsson landsliðsþjálfari greipar á varamannabekknum og er heldur súr á svip. ÞÖK
Tap í tveimur HM-leikjum gegn Rússum um helgina:
Of stór biti
íslandsmótið
í innanhúss-
knattspyrnu
2. deild karla
A-riðill:
KA-Léttir......................4-2
Magni-Sindri...................0-1
Léttir-Sindri .................2-2
KA-Magni.......................2-0
Magni-Léttir...................5-2
Sindri-KA......................5-4
Sindri 7 stig, KA 6, Magni 3, Léttir 1.
B-riðill:
Leiknir R.-Haukar..............3-2
Víkingur R.-KS.................4-4
Haukar-KS .....................7-3
Leiknir R.-Víkingur R..........2-4
Víkingur R.-Haukar ............4-3
KS-Leiknir R...................2-7
Vikingur R. 7 stig, Leiknir R. 6,
Haukar 3, KS 1.
C-riðill:
Stjarnan-Hvöt..................2-3
ÍR-Þróttur N...................1-1
Hvöt-Þróttur N.................5-1
Stjarnan-ÍR....................4-4
ÍR-Hvöt........................3-2
Þróttur N.-Stjaman.............3-5
Hvöt 6 stig, ÍR 5, Stjaman 4, Þróttur
N. 1.
D-riöiU:
FH-Víðir . . . ..............2-2
SkaUagrímur-Ægir ............0-2
Víðir-Ægir ..................6-1
FH-SkaUagrímur...............5-3
Skallagrimur-Víðir...........3-5
Ægir-FH......................6-8
Viðir 7 stig, FH 7, Ægir 3, Skalla-
grímur 0.
Sindri, Víkingur R., Hvöt og Víðir
leika í 1. deild árið 2000 en Léttir, KS,
Þróttur N. og Skailagrímur i 3. deild.
4. deild karla
A-riðill:
Framherjar-Leiftri.............6-4
Framherjar-HSÞ b...............4-5
HSÞ b-Leiftri..................2-1
Leiftri-Framherjar.............5-6
HSB b-Framherjar...............5-9
Leiftri-HSÞ b..................3-3
Framherjar 9 stig, HSÞ b 7, Leiftri 1.
B-riðill:
Bmni-Neisti H..................1-4
KFR-Eldborg....................3-0
Neisti H.-Eldborg..............7-2
Bruni-KFR .....................0-3
KFR-Neisti H...................1-0
Eldborg-Bruni..................2-8
KFR 9 stig, Neisti Hofsósi 6, Bmni 3,
Eldborg 0.
C-riðill:
Víkingur Ó.-Augnablik .........8-1
Þróttur V.-UDN................3-2
Reynir Á.-Víkingur Ó..........3-3
Augnablik-Þróttur V...........3-4
UDN-Reynir Á...................5-2
Þróttur V.-Víkingur Ó.........3-3
Augnablik-Reynir Á............9-5
Víkingur Ó.-UDN..............12-4
Reynir Á.-Þróttur V...........3-6
UDN-Augnablik.................3-9
Þróttur Vogum 10 stig, Víkingur Ó.
8, Augnablik 6, UDN 3, Reynir Á. 1.
Framherjar, KFR, Þróttur úr Vogum
og Vikingur úr Ólafsvík leika í 3.
deild 2000.
2. deild kvenna
A-riöill:
Grindavík-Einherji ............2-1
Hvöt-FH .......................0-4
Fylkir-Grindavík...............2-3
Einherji-Hvöt .................3-3
FH-Fylkir .....................5-1
Hvöt-Grindavik.................4-7
Einherji-Fylkir ...............1-5
Grindavik-FH ..................2-4
Fylkir-Hvöt....................1-2
FH-Einherji....................3-1
FH 12 stig, Grindavík 9, Hvöt 4,
Fylkir 3, Einherji 1.
B-riðill:
Þór/KA-Höttur .................2-1
Selfoss-Grótta ................4-1
Sindri-Þór/KA..................4-3
Höttur-Selfoss.................3-2
Grótta-Sindri..................2-3
Selfoss-Þór/KA ................0-4
Höttur-Sindri .................1-2
Þór/KA-Grótta .................4-1
Sindri-Selfoss ................5-1
Grótta-Höttur .................4-2
Sindri 12 stig, Þór/KA 9, Höttur 3,
Grótta 3, Selfoss 3.
FH og Sindri leika í 1. deild árið 2000.
-VS
íslenska kvennalandsliðið í
handknattleik reið ekki feitum hesti
frá tveimur leikjum gegn Rússum
sem leiknir voru um helgina. Þar
enduðu báðir leikimir með tapi.
Það var allt annað að sjá til
íslenska liðsins í leiknum sem fram
fór í Hafnarfirði í gærkvöld heldur
en í fyrri leiknum á laugardag.
Baráttugleði og vilji til að gera
betur einkenndi allan leik liðsins en
rússneska liðið er einfaldlega allt of
sterkt fyrir það íslenska og sigur
þess, 26-18, var verðskuldaður.
íslensku stelpumar urðu fyrir
miklu áfalli eftir aðeins 30
sekúndna leik þegar Herdís
Sigurbergsdóttir fyrirliði meiddist.
En stelpumar sýndu mikinn
baráttuvilja, þjöppuðu sér saman og
byrjuðu leikinn mjög vel. Liðið
komst yfir, 3-2, eftir 7 mínútna leik
en það var í fyrsta og eina skiptið í
þessum tveimur leikjum sem það
gerðist. Leikur liðsins var mjög
skynsamlegur, sóknirnar vom
langar og þeim lauk flestum með
skoti úr góðu færi en einbeitingin í
sóknarleiknum var ekki næg og
örfá mistök kostuðu mörk úr
hraðaupphlaupum sem íslenska
liðinu tókst ekki að ráða við.
Afar slakur kafli í siðari hálfleik,
þar sem íslenska liðið skoraði ekki
mark úr 9 sóknum og fékk á sig
mörk úr fjórum hraðaupphlaupum,
gerði út um leikinn en fram að því
hafði leynst von um hagstæð úrslit í
þessum leik.
Rússneska liðið er ekki
árennilegt, leikmennimir em flestir
höfðinu hærri en þeir íslensku, auk
þess sem liðið býr yfir miklum
hraða sem var nýttur til hins
ýtrasta og það varð banabiti
íslenska liðsins fyrst og fremst.
Hrafnhildur Skúladóttir, Inga
Fríða Tryggvadóttir og Brynja
Steinsen léku mjög vel í þessum
leik. Fanney Rúnarsdóttir varði
frábærlega í fyrri hálfleiknum en
fann sig ekki i þeim fyrri og þá var
Harpa Melsted mjög öflug í
varnarleiknum.
Engin vandræði í Víkinni
Rússar áttu ekki í vandræðum
með að innbyrða sigur í fyrri leikn-
um í Víkinni á laugardaginn.
Lokatölur urðu 32-19. Rússneska
liðið tók leikinn strax í sínar hend-
ur, skoraði 4 fyrstu mörkin og gaf
þar með tóninn um framhaldið. í
Russland (13) 32
ísland (7) 19
4-0, 6-2, 9-4, 12-5, (13-7), 15-8, 17-10,
20-11, 25-14, 27-15, 29-17, 32-19.
Mörk Rússlands: Smimova 10/1,
Diadetchko 6, Vakhroucheva 5,
Pazitch 4, Koulaguina 3, Malakhova
3, Romenskaia 2, Priakhina 2, Vol-
kova 1.
Varin skot: Saidova 14/2, Alizar 1.
Mörk íslands: Ragnheiður Steph-
ensen 5, Hrafnhildur Skúladóttir 5,
Brynja Steinsen 4, Herdís Sigurbergs-
dóttir 3, Harpa Melsted 1, Svava Sig-
urðardóttir 1.
Varin skot: Fanney Rúnarsdóttir
11/2.
Brottvísanir: Island 8 mín.,
Rússland 10 mín.
Dómarar: Rosskamp og Rotskranz
frá Belgiu. í lagi.
Áhorfendur: Um 320.
Maður leiksins: Svetlana
Smimova, Rússlandi.
upphafi síðari hálfleiks náðu
íslendingar ágætum leikkafla en
þegar á hálfleikinn leið fór að halla
undtm fæti og þær rússnesku náðu
yfirburðaforystu
íslensku stelpurnar gerðu sig
sekar um allt of mörg mistök í
sókninni og þeim var refsað
miskunnarlaust með hraðaupp-
hlaupum hjá rússneska liðinu.
Sóknir íslenska liðsins voru stuttar
þrátt fyrir að Theodór landsliðs-
þjálfari hefði brýnt fyrir leikmönn-
um sínum að spila langar sóknir.
Hrafnhildur Skúladóttir og
Brynja Steinsen léku best í íslenska
liðinu og Fanney Rúnarsdóttir átti
ágætan leik i markinu.
-ih
Island (8) 18
Rússland (12) 26
0-1, 3-2, 3-5, 6-7, 7-9, (3-12), 10-14,
12-15, 12-19, 14-20, 15-24, 18-25, 18-26.
Mörk fslands: Brynja Steinsen
4/2, Hrafnhildur Skúladóttir 4, Inga
Friða Tryggvadóttir 4, Ragnheiður
Stephensen 3, Svava Sigurðardóttir 1,
Gerður Beta Jóhannsdóttir og Harpa
Melsted 1.
Varin skot: Fanney Rúnarsdóttir
9, Hugrún Þorsteinsdóttir 2/1.
Mörk Rússlands: Koulaguina 6,
Smimova 6/4, Malakhova 5, Pazitch
4, Romenskaja 2, Diadetchko 1,
Vakhroucheva 1 og Priakhina 1.
Varin skot: Alizar 8, Saidova 4/1.
Brottvlsanir: Island 8 mín.,
Rússland 10 mín.
Dómarar: Rosskamp og
Rothkranz frá Belgíu, slakir
Áhorfendur: Um 400.
Maður leiksins: Hrafnhildur
Skúladóttir, fslandi.
Herdís sleit hásin
Herdis Sigurbergsdóttir sleit hásin þegar aðeins 30 sekúndur vom liðnar af leik ís-
lands og Rússlands í Hafnarílrði í gærkvöld. Hún var send með sjúkrabíl á spítala þar
sem hún gekkst þegar undir aðgerö. Það er því Ijóst aö hún mun ekki leika meiri
handknattleik í vetur. Dagurinn varð þó ekki alslæmur fyrir hana þar sem hún var
kjörin íþróttamaður Garðabæjar árið 1998.
„Disa meiddist í upphafi og þaö varð mikið áfall fyrir okkur en okkur tókst að vinna
okkur út úr þvi og tvíefldumst. Byijunin var mjög góö hjá okkur en svo kom kafli í
seinni hálfleik sem var alveg út úr kortinu. Þá tók Theodór leikhié og við minnkuö-
um miminn aó-'ins. Við náöum að spila lengri sóknir í kvöld en um leiö og við gerð-
um mistök í sóknarleiknum var okkur refsað," sagði Brynja Steinsen.
„Við förum i alla leiki til að vinna en viö bjuggumst ekki við því aö okkur tæk-
ist að vinna Rússana sem hafa verið í fremstu röö í heiminum í áratugi. Það mun-
aöi miklu aö okkur tókst að byrja vel í dag: allir gáfu sig 120% í báöa leikina og
það er mjög jákvætt," sagði Hrafnhildur Skúladóttir.
Áttum í erfiðleikum með hraðann
„Við lékum þennan leik miklu betur en fyrri leikinn og ég get ekki verið annað
en sáttur við margt í okkar leik. Það var mikið áfall að missa Herdísi út úr þess-
um leik en stelpurnar söfnuðu liöi og okkur tókst að pirra þær verulega í fyrri hálf-
leiknum. Við áttum samt i erfíðleikum með hraðann hjá þeim og á tímabili í seinni
hálfleik missum við aðeins móöinn en þaö kom góöur kafli inn í restina. Vamar-
leikurinn var mun betri en í gær en við erum ekki meö okkar sterkasta varnarlið
og breiddin er ekki meiri en þetta. Ég get ekki teflt fram sterkari leikmönnum held-
ur en þeim sem ég er að gera um þessar mundir. Það vantar Auði Hermannsdótt-
ur, Höllu Maríu Helgadóttur og svo vantaði okkur Herdisi í dag. Það munar miklu
og í dag hefði Herdís sennilega skilað okkur 3 til 4 mörkum í viðbót," sagði Theo-
dór Guöfinnsson landsliðsþjálfari. -ih