Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.1999, Side 8
28
MÁNUDAGUR 25. JANÚAR 1999
íþróttir
V
J
Evrópukeppni B-þjóða í badminton:
íslenska landsliðið í badminton
gerði sér lítið fyrir og sigraði í Evr-
ópukeppni B-þjóða í badminton sem
lauk í Belfast á írlandi í gær.
íslendingar töpuðu að vísu fyrir
Pólverjum, 3-2, í siðasta leik sinum
á mótinu en það kom ekki að sök
því íslendingar báru sigur úr býtum
á mótinu með fleiri sigurleiki en
Portúgalar og Pólverjar en allar
þjóðirnar hlutu 2 stig í úrslitunum
og leika allar í A-keppninni sem
fram fer í Glasgow á næsta ári.
Tómas Garðarsson Viborg tapaði
viðureign sinni í einliðaleiknum,
15-10, 7-15 og 5-15, og Elsa Nielsen
beið lægri hlut í sinum leik, 4-11,
6-11 og 11-2.
Elsa Nielsen og Brynja Péturs-
dóttir töpuðu í tvíliðaleiknum en
þeir Árni Þór Hallgrímsson og
Broddi Kristjánsson unnu sinn leik,
15-7, 6-15 og 15-10. Loks unnu Árni
og Drífa Harðarsdóttir í tvenndar-
leiknum, 15-9 og 15-10.
Sigur á Spánverjum tryggði
A-sætið
íslendingar tryggðu sér sæti í A-
keppninni að ári með þvi að leggja
Spánverja að velli, 4-1, á laugardag-
HBA-DEILDIN
Það hefur mikið verið um
félagaskipti í NBA-deildinni á
síðustu dögum og hér á eftir
getur að líta þau helstu. Fyrst
félagið sem viðkomandi fer í og
síðan gamla félagið:
Isaac Austin . . Orlando/LA Clippers
Chucky Brown . . Charlotte/Atlanta
Mark Bryant .... Chicago/Phoenix
Jud Buechler.......Detroit/Chicago
Derrick Coleman . Charl/Philadelph.
Vlade Divac . Sacramento/Charlotte
Mario Elie......SA Spurs/Houston
Matt Geiger . . Philadelph/Charlotte
Harvey Grant Washingt/Philadelph.
Tom Gugliotta . Phoenix/Minnesota
Derek Harper . LA Lakers/ Orlando
Anthony Johnsen . Atlanta/Sacram.
Steve Kerr.......SA Spurs/Chicago
Jerome Kersey . .. SA Spurs/Seattle
inn. Tómas Garðarsson Viborg
vann andstæðing sinn í einliða-
leiknum, 15-9 og 15-3, en Elsa Niel-
sen tapaði leik sínum í þremur lot-
um, 11-4, 4-11 og 8-11.
í tvíliðaleiknum höfðu Broddi
Kristjánsson og Tryggvi Nielsen
betur og sigruðu andstæðinga sína,
15-7,15-17 og 15-3, og þær Elsa Niel-
sen og Brynja Péturdóttir unnu
sinn leik, 15-3 og 15-6. Loks báru
Árni Þór Hallgrímsson og Drífa
Harðardóttir sigur úr býtum í leikj-
um sínum í tvenndarleiknum, 15-4
og 15-1.
íslendingar mega vera stoltir af
badmintonlandsliðinu. Það lék ein-
staklega vel á mótinu og þetta er án
efa besta landslið sem íslendingar
hafa teflt fram í þessari íþrótt.
Breiddin var okkar styrkur
„Við höfðum mjög góða breidd í
liðinu og það var okkar styrkur í
keppninni. Þessir krakkar hafa lagt
mikið á sig og eru nú að uppskera
árangur erfiðisins," sagði Broddi
sem lék fjóra leiki með Áma Þór
Hallgrímssyni i tviliðaleik á mótinu
og vann þá alla.
Árni vann alla 7 leikina
Árni Þór lék alls 7 leiki og vann
þá alla og þá stóð Tómas Garðars-
son Viborg sig með sóma í einliða-
leiknum þar sem hann tapaði að-
eins einum leik. Konumar stóðu sig
líka mjög vel og sigurinn á íram í
tvíliðaleiknum var mjög óvæntur.
íslenska sigurliðið var skipað
eftirtöldum, aldur í sviga: Broddi
Kristjánsson (38), Árni Þór
Hallgrímsson (30), Tryggvi Nielsen
(22), Tómas Garðarsson Viborg (22),
Sveinn Sölvason (20), Elsa Nielsen
(25), Vigdís Ásgeirsdóttir (21),
Brynja Pétursdóttir (21) og Drífa
Harðardóttir (21).
-GH
Elsa Nielsen vann góða sigra í Belfast eins og félagar hennar í badmintonlandsliðinu sem leikur f næstu A-keppni í
Evrópu.
Bland i noka
Valur sigraði íslands- og bikarmeist-
ara ÍBV, 3-2, í æfmgaleik á Ásvöllum
á laugardaginn. Valur komst i 3-0
með tveimur mörkum frá Jóni Þ.
Stefánssyni og einu frá Arnóri Guð-
johnsen og var það mark af glæsi-
legri gerðinni, a la Arnórsmark!
Regine Cavgnoud frá Frakklandi
sigraði í risasvigi kvenna á heimsbik-
armóti í Cortina á Ítalíu á laugardag-
inn. Syliviane Berthod frá Sviss
varð önnur og Michaela Dorfmeist-
er frá Austurríki þriðja.
Alexandra Meissnitzer frá Austur-
ríki sigraði síð-
an í stórsvigi á
sama stað í
gær. Martina
Ertl frá Þýska-
landi varð önn-
ur og Anita
Wachter frá
Austurríki
þriðja. Meiss-
nitzer jók þar
með enn for-
ystu sina í stigakeppni kvenna í
heimsbikamum.
Tvö heimsbikarmót í bruni fóru
fram i Kitzbiihel í Austurríki um
helgina. Á fyrra mótinu fagnaði
Norðmaðurinn Lasse Kjus sigri,
landi hans, Kjetil Andre Aamodt,
varð annar og Austurríkismaðurinn
Werner Franz þriðji. Á síðara mót-
inu voru Austurríkismenn sigursælir
en þeir urðu i þremur efstu sætun-
um. Hans Knauss varð hlutskarpast-
ur, Peter Rzehar varð annar og
Werner Franz þriðji. Lasse Kjus
hafnaði í tjórða sæti og Kjetil Andre
varð sjöundi.
Patrick Ortlieb frá Austurríki, fyrr-
um heims- og Ólympíumeistari í
bruni, lýsti því yfir um helgina að
keppnisferli sínum væri lokið. Ort-
lieb lærbrotnaði og fór úr mjaðmarlið
þegar hann féll á æfmgu i Kitzbíihel
á fimmtudag en hann ætlaði að hætta
eftir þetta tímabil.
Holland vann góðan útisigim á Sví-
þjóð, 20-21, í undankeppni HM
kvenna í handknattleik á laugardag-
inn. Hollendingar hafa þar með unn-
ið Svía i báðum leikjunum en báðar
þjóðimar eiga eftir að mæta Litháen
tvivegis.
David Frost frá S-Afríku sigraði á
opna suður-afríska meistaramótinu í
golfi sem lauk í gær. Frost lék á 279
höggum. Jafnir í 2.-3. sæti urðu Jeev
Singh frá Indlandi og Banda-
ríkjamaðurinn Scott Dunlap en þeir
léku báðir á 280 höggum.
Aron Kristjánsson og félagar hans i
Skjem skutust á topp dönsku A-
deildarinnar í handknattleik i gær.
Skjern sigraði Ajax á útivelli, 25-32,
og er með 23 stig eins og meistaramir
i GOG sem hafa leikið einum leik
færra. 1 þriöja sæti er Helsinge meö
22 stig.
-GH/VS
Joe Kleine .......Phoenix/Chicago
Christian Laettner . Detroit/Atlanta
Luc Longley.......Phoenix/Chicago
George Lynch . Philadelp/Vancouver
Antonio McDyess . Denver/Phoenix
Erik Murdock N.Jersey/Miami
Martin Muursepp . Chicago/Phoenix
Sam Perkins........Indiana/Seattle
Chuck Person .. . Chicago/SA Spurs
Scottie Pippen . . . Houston/Chicago
Scot Pollard ......Atlanta/Detroit
Olden Polynice . Seattle/Sacramento
Terry Porter .....Miami/Portland
Malik Sealy . . . Minneseota/Detroit
Joe Smith . .. Minnesota/Philadelph
Michael Stewart .. Toronto/Sacram
Loy Vaught . . . Detroit/LA Clippers
Bonzi Wells.......Portland/Detroit
Bubba Wells.......Chicago/Phoenix
Mark West..........Atlanta/Indiana
Rod Williams ......Dallas/Phoenix
Þá hafa margir leikmenn endumýjað
samninga sína og þar má nefna
Charles Barkley (Houston), Terry
Davis (Washington), Joe Dumars
(Detroit), Dale Ellis (Seattle), Eddie
Johnson (Houston), Rik Smits (Indi-
ana), Jerry Stackhouse (Detroit),
Damon Stoudamire (Portland), Ant-
oine Walker (Boston) og Bill Wenn-
ington (Chicago).
Glen Rice missir af hálfu tímabilinu
með Charlotte. Hann var skorinn upp
á fóstudag viö meiðslum á olnboga.
Alonzo Mourning hjá Miami þarf
ekki að taka út seinni leikinn af
tveggja leikja banni sem hann fékk i
fyrravor.
-GH/VS
Einar hættur hjá Bryne
Einar Guðmundsson handknattleiksþjálfari hefur verið
leystur undan Scunningi sínum við norska félagið Bryne en
hann tók við kvennaliði þess síðasta haust og gerði tveggja
ára samning.
Bryne leikur i B-deildinni og á litla möguleika á að komast
upp eins og stefnt var að. Stavanger Aftenblad segir að Einar
hafi átt í deilum við félagið vegna þess að það hafi ekki stað-
ið í skilum með laun en stjómun hans á liðinu hafi einnig ver-
ið umdeild.
Með Bryne leika tvær íslenskar landsliðskonur, þær Hrafn-
hildur Skúladóttir og Helga Torfadóttir. -VS
Landareign í Flórída?
Dennis Rodman, körfuknattleiksmaðurinn skrautlegi, sagði
í sjónvarpsþætti um helgina að hann vildi helst flytja í sólina
í Flórída og spila með Orlando eða Miami. Eitt væri á hreinu,
hann myndi halda áfram að spila körfubolta.
Hinn 37 ára gamli Rodman, sem mætti í þáttinn „Tonight
Show“ með hatt og sólgleraugu sem hann neitaði að taka af
sér, sagðist vera betri en flestir strákEirnir sem væra að spila
í NBA. Það þýddi ekkert að bjóða sér eina milijón dollara (70
milljónir króna) fyrir að spila. Hann væri þó til í að taka við
þeirri upphæð ef viðkomandi félag keypti líka fyrir sig land-
areign sem væri 10-12 milljón dollara virði. -VS
Sjötta í röð
- Kristinn féll eina ferðina enn í heimsbikarnum í svigi
Kristinn Bjömsson féll í gær út
úr sjötta heimshikarmótinu í svigi í
röð. Hann datt í seinni ferðinni í
Kitzbúhel eftir að hafa verið í 24.
sætinu að lokinni þeirri fyrri.
Juri Kosir frá Slóveníu sigraði,
Didier Plaschy frá Frakklandi varð
annar og Giorgio Rocca frá Ítalíu
þriðji.
Kristinn var með rásnúmer 21 i
gær og fellur væntanlega enn við
þessi úrslit, líklega um eitt sæti.
Hann er áfram með þau 24 stig
sem hann fékk fyrir 11. sætið í
fyrsta móti vetrarins. Fyrir mótið í
gær var hann í 36.-38. sæti í stiga-
keppninni í sviginu. Þrír komust
upp fyrir hann í gær og nú er Krist-
inn kominn niður í 39.^41. sæti en
hann endaði í 15. sætinu á síðasta
tímabili með 160 stig.
Arnór Gunnarsson, sem var með
rásnúmer 74, féll í fyrri ferðinni í
Kitzbúhel.
Átfimda og næstsíðasta heimsbik-
armótið í svigi verður í Ofter-
schwang í Þýskalandi í lok febrúar.
Það síðasta er svo i Sierra Nevada
á Spáni um miðjan mars. Næsta
verkefni Kristins er hins vegar
heimsmeistaramótið í Vail í
Colorado í byrjim febrúar.
-VS
1. deild karla
1. deild karla
KA-Stjaman .................3-1
(10-15, 15-10, 15-13, 15-7) .
KA-Stjaman .................2-3
(11-15, 13-15, 15-13, 15-12, 16-18)
Þróttur R.-ÍS...............3-1
(17-15, 15-6, 11-15, 15-11)
1. deild kvenna
Þróttur R.-ÍS...............0-3
(12-15,10-15, 5-15)
Bikarkeppni kvenna
Víkingur-KA b...............3-1
25-20, 22-25, 25-13, 25-19
KA-Þróttur N................3-1
(22-25, 26-24, 25-23, 25-22)