Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.1999, Side 5
íþróttir
NBA-DEILDIN
Aöfaranótt laugardags
Indiana-Chicago..........96-87
Miller 31, Smits 17, Rose 11 -
Kukoc 29, Barry 16, Bryant 10.
Philadelphia-LA Lakers . . 105-90
Iverson 41, Lynch 13, Ratliff 12 -
Shaq 23, Bryant 23, Rice 17.
Toronto-LA Clippers ......93-82
Carter 26, Christie 15, McGrady 10 -
Piatkowski 15, Rogers 15, Taylor 14.
Atlanta-Phoenix...........93-84
Corbin 18, Henderson 15, Blaylock 15 -
Gugliotta 21, Mccloud 17, Chapman 15.
Charlotte-Utah............83-82
Campbell 19, Wesley 16, Phiils 12 -
Homacek 21, Malone 16, Eisley 10.
Detroit-Dallas ...........94-87
Stackhouse 15, HiU 14, Dale 13 -
Finley 18, Bradley 14, Davis 13.
Denver-Minnesota .......101-105
Taylor 21, Van Exel 21, Fortson 19 -
K.Gamett 28, Smith 21, Brandon 17.
Portland-San Antonio .... 90-85
Sabonis 20, Stoudamire 13, Wiiliams
14 - Duncan 29, EUie 14, Johnson 12.
Golden State-Seattle.....90-78
Starks 20, Dampier 19, Caöey 14 -
Schrempf 21, Payton 18, Baker 9.
Aðfaranótt sunnudags
New York-Boston...........96-78
Sprewell 27, Ward 18, Johnson 13 -
Mercer 19, Walker 14, Potapenko 14.
Washington-Cleveland . . . 111-83
Richmond 29, Howard 28, Thorpe 17 -
Newman 18, Kemp 15, Sura 11.
Miami-Indiana............89-94
Hardaway 28, Porter 15, Weatherspoon
13 - Mullin 17, A.Davis 17, Jackson 13.
Atlanta-Milwaukee ........77-83
Crawford 15, Smith 14, Mutombo 11 -
Robinson 21, D.Curry 12, Gatling 12.
Dallas-Sacramento......104-90
Finley 22, Nash 22, Trent 22 -
Wahad 16, Divac 15, Williamson 13.
Houston-Phoenix . . . (frl.) 103-93
Barkley 35, Olajuwon 16, Pippen 14 -
Gugliotta 22, Robinson 17, Kidd 14.
Vancouver-San Ant. . . (frl.) 88-92
Rahim 25, Bibby 18, Chilcutt 11 -
Duncan 24, Elie 16, Elliott 14.
Úrslit í gærkvöld
Orlando-LA Lakers......104-115
Doleac 25, Hardaway 22, D.Armstrong
17 - Bryant 38, Shaq 31, Harper 20.
Boston-Chicago......(frl.) 92-95
Mercer 26, Anderson 19, Barros 12 -
Kukoc 20, Barry 20, Bryant 18.
Staöan, sigrar/töp
Austurdeild:
Miami 18/6, Indiana 17/7, Orlando
18/8, Milwaukee 14/9, Philadelphia
14/9, New York 15/10, Atlanta 14/11,
Detroit 13/11, Cleveland 11/11, Tor-
onto 10/12, Washington 10/14, Char-
lotte 8/14, Boston 8/15, Chicago 8/17,
New Jersey 4/19.
Vesturdeild:
Portland 19/5, Utah 19/5, LALakers
18/9, Houston 16/9, San Antonio 16/9,
Minnesota 14/11, Seattle 12/10, Phoe-
nix 12/13, Sacramento 11/15, Golden
State 10/14, Dallas 9/17, Denver 6/18,
Vancouver 5/20, LA Clippers 1/22.
-GH/VS
MÁNUDAGUR 22. MARS 1999
DV
- yfirburðir Elvu, hörð keppni Dýra og Þóris Arnars
Elva Rut Jónsdóttir úr Björk og
Dýri Kristjánsson úr Gerplu urðu
íslandsmeistarar í fimleikum á
laugardaginn þegar þau tryggðu sér
sigur í fjölþraut. Elva Rut hefur ver-
ið ósigrandi undanfarin ár og á því
varð engin breyting en Dýri sigraði
í fyrsta skipti og nýtti sér fjarveru
Rúnars Alexanderssonar, meistara
síðustu ára, sem gat ekki keppt
vegna veikinda.
Elva Rut sýndi og sannaði að hún
er besta fimleikakona landsins,
hlaut 69,283 stig samtals og var rúm-
um sex stigum hærri en næsta
stúlka sem var Erna Sigmundsdótt-
ir úr Gróttu. Erna stóð sig prýðisvel
og kom mjög sterk til keppni með
fjölda af nýjum erfiðleikaæfmgum,
en hún komst ekki á verðlaunapall í
fyrra. Þriðja varð svo Eva Þrastar-
dóttir úr Björk en hún er enn að ná
sér eftir að hún reif liðþófa í vetur.
Hún framkvæmdi æfingar sínar
mjög vel en sumar æfingar voru
auðveldari en venjulega hjá henni,
sérstaklega afstökkin af áhöldunum.
Hörö barátta Dýra og Þóris
Dýri Kristjánsson og Þórir Arnar
Garðarsson háðu harða baráttu um
íslandsmeistaratitil karla en eftir
fyrri keppnisdag var Þórir með 0,4
stiga forystu á Dýra. Á seinni degin-
um skiptust þeir á um hærri ein-
Úrslitin í
fjölþrautinni
Karlar:
1. Dýri Kristjánsson, Gerplu . 91,400
2. Þórir A. Garðarsson, Árm. . 90,250
3. Birgir Bjömsson, Ármanni. 84,850
4. Viktor Kristmannss., Gerplu 82,200
Þátttakendur voru 8.
Konur:
1. Elva Rut Jónsdóttir, Björk . 69,283
2. Erna Sigmundsd., Gróttu . . 62,917
3. Eva Þrastardóttir, Björk ... 61,750
4. Sif Pálsdóttir, Ármanni . . . 58,133
5. Freyja Sigurðardóttir, Kefl. 57,000
6. Lilja Erlendsdóttir, Gerplu . 56,750
Þátttakendur vom 18.
kunnir á áhöldunum og fyrir sið-
asta áhaldið, svifrána, var Dýri
kominn með 0,2 stiga forystu. Eitt-
hvað voru piltarnir orðnir stressað-
ir því þeir gerðu báðir mistök, Þór-
ir þó mun meiri, og því gekk Dýri út
með gullið og titilinn. Þriðji varð
síðan páskaunginn Birgir Björns-
son úr Ármanni en hann vakti
mikla athygli fyrir heiðgulan
keppnisbúning frá toppi til táar.
Elva vann á þremur
áhöldum
í gær var keppt til úrslita á ein-
stökum áhöldum. í kvennaflokki
sigraði Elva Rut á þremur áhöldum
af fjórum og Erna Sigmundsdóttir á
einu. í karlaflokki sigruðu Birgir
Björnsson, Þórir Arnar Garðarsson
og Jón Trausti Sæmundsson á
tveimur áhöldum hver.
íslandsmeistarinn Dýri Kristjáns-
son átti sinn besta keppnisdag í gær
en það dugði honum ekki til sigurs
á neinu áhaldi. Hann hlaut fern silf-
urverðlaun og tvenn bronsverðlaun.
„Ég er bara svona stabíll keppnis-
maður,“ sagði Dýri og brosti, enda
fékk hann stærsta titilinn og þarf
kannski ekki á meiru að halda í
bili.
Gerpla og Grótta
Fyrsti hluti keppninnar var liða-
keppni. Gerpla sigraði af nokkru ör-
yggi í karlaflokki með 129,150 stig
en Ármenningar hlutu 125,100. í
kvennaflokki sigraði Grótta nokkuð
örugglega með 87,833 stig. Lið Bjark-
ar náði öðru sætinu eftir harða
keppni við Ármenninga en vegna
meiðsla Tinnu Þórðardóttur voru
Bjarkarstúlkur ekki með fullt lið á
öllum áhöldum. Björk hlaut 79,467
stig en Ármann 79,292. -AIÞ/VS
Meistarar á einstökum áhöldum
Konur
Stökk:
1. Ema Sigmundsdóttir, Gróttu . . 8,319
2. Elva Rut Jónsdóttir, Björk .... 8,294
3. Freyja Siguröardóttir, Keflavík 8,144
Jafnvægisslá:
1. Elva Rut Jónsdóttir, Björk .... 8,225
2. Ema Sigmundsdóttir, Gróttu .. 8,013
3. Eva Þrastardóttir, Björk .....7,913
Tvíslá:
1. Eiva Rut Jónsdóttir, Björk .... 8,663
2. Eva Þrastardóttir, Björk .....7,363
3. Erna Sigmundsdóttir, Gróttu .. 7,363
Gölfæfingar:
1. Elva Rut Jónsdóttir, Björk .... 8,413
2. Erna Sigmundsdóttir, Gróttu . . 8,150
3. Eva Þrastardóttir, Björk ....8,050
Karlar
Gólfæfingar:
1. Birgir Bjömsson, Ármanni . . . 8,000
2. Dýri Kristjánsson, Gerplu .... 7,850
3. Viktor Kristmannsson, Gerplu . 7,600
Bogahestur:
1. Þórir A. Garöarsson, Ármanni. 8,150
2. Viktor Kristmannsson, Gerplu . 7,900
3. Dýri Kristjánsson, Gerplu .... 7,750
Hringir:
1. Þórir A. Garöarsson, Ármanni . 7,900
2. Dýri Kristjánsson, Gerplu .... 7,600
3. Birgir Bjömsson, Ármanni . . . 6,250
Stökk:
1. Birgir Bjömsson, Ármanni . .. 8,500
2. Dýri Kristjánsson, Gerplu .... 8,400
3. Þórir A. Garðarsson, Ármanni . 8,025
Tvislá:
1. Jón Trausti Sæmundss., Gerplu 8,150
2. Viktor Kristmannsson, Gerplu . 7,900
3. Dýri Kristjánsson, Gerplu .... 7,750
Svifrá:
1. Jón Trausti Sæmundss., Gerplu 7,800
2. Dýri Kristjánsson, Gerplu .... 7,350
3. Birgir Bjömsson, Ármanni . . . 6,350
Fimleikamolar
Jóhanna Sigmundsdóttir úr
Gróttu barðist viö Elvu Rut
um gullið í fyrra. Jóhanna
slasaðist í upphafi móts en þá
tók litla systir hennar, Erna,
við og náði sömu úrslitum og
Jóhanna í fyrra, öðru sæti.
Eva Þrastardóttir úr Björk
var 0,003 stigum frá þriðja
sætinu i fyrra. Nú náði hún
því sæti af öryggi. Fjófða varð
Sif Pálsdóttir úr Ármanni
með 58,133 stig.
Björn Björnsson úr Ármanni
slasaðist á hné í fyrstu stökk-
seríu á gólfi. Hann hlaut samt
5,5 fyrir gólfæflngar. Nokkuð
gott!
Ásta Sigurlaug Tryggva-
dóttir úr Keflavík varð að af-
sala sér keppnisrétti sínum í
úrslitum á slá. Hún vaknaði
með bólgið hné að morgni
sunnudags og gat varla stigið 1
fótinn.
Þórir Arnar Garóarsson,
Ármanni, náði að skelfa alla
áhorfendur ansi vel er hann
framkvæmdi stökk, yfirslag
framhelja, og lenti með beina
fætur. Hann slasaðist ekki al-
varlega en hætti keppni.
Jón Trausti Sœmundsson úr
Gerplu vann tvenn gullverö-
laun í keppni á einstökum
áhöldum. Jón keppti ekki á
öðrum degi en hann var þriðji
eftir fyrsta keppnisdag í fjöl-
þrautinni.
Sif Pálsdóttir úr Ármanni og
Viktor Kristmannsson úr
Gerplu vom yngstu keppend-
ur mótsins. Sif verður 12 ára á
þessu ári og Viktor verður 16
ára. Elva Rut Jónsdóttir og
Jón Trausti Sœmundsson
vom elst, Elva verður tvttug
og Jón Trausti 23 ára i ár.
„ Við erum komnir til að sjá
og sigra, Dýra digra,“ sögðu
Ármenningar og komu með
skilti og annað tilheyrandi.
Það dugöi þó ekki þvl Dýri
sigraði í fjölþrautinni.
Elva Rut Jónsdóttir
leikur listir sínar á
jafnvægisslánni á
íslandsmótinu um
helgina. Hún vann meö
miklum yfirburöum í
fjölþraut og sigraði á
þremur áhöldum af
fjórum.
DV-mynd Hilmar Þór
8 liða úrslit í handbolta kvenna:
• •
Oruggur Framsigur
Framstúlkur unnu öruggan
sigur, 30-23, á ungu liði ÍBV í
fyrsta leik liðanna i úrslita-
keppni 1. deildar kvenna á
laugardag.
Leikurinn var ekki mjög
skemmtilegur á að horfa og
handknattleikurinn var ekki í
háum gæðaflokki þegar á
heildina er litið. Það var að-
eins á fyrstu tíu mínútunum
sem einhver spenna var í
leiknum en í stöðunni 5-4
þéttu Framarar vömina hjá
sér og skoraðu 6 mörk gegn
einu á 11 mínútum. Eftir það
var aldrei spurning hvom
megin sigurinn lenti. Staðan í
hálfleik var 15-9 og mestur var
munurinn níu mörk í seinni
hálfleik en i lokin munaði sjö
mörkum.
Hjá Framstúlkum bar mest
á Marinu Zovevu, Guðríði og
Jónu Björgu en hjá ÍBV var
Amela Hegic best auk þess
sem Guðbjörg Guðmannsdóttir
átti góðan síðari hálfleik.
Varnir beggja liða voru hins
vegar hriplekar, ef undan er
skilinn áðumefndur kafli þar
sem Fram náði frumkvæðinu.
Mörk Fram: Guðríður Guðjóns-
dóttir 7, Marina Zoveva 7/3, Jóna
Björg Pálmadóttir 6, Svanhildur
Þengilsdóttir 3, Sara Smart 3, Þur-
tður Hjartardóttir 1, Diana Guð-
jónsdóttir 1, Arna Steinsen 1, Olga
Prohorova 1.
Varin skot: Hugrún Þorsteins-
dóttir 11/1.
Mörk ÍBV: Amela Hegic 6/1,
Guðbjörg Guðmannsdóttir 6, Ingi-
björg Jónsdóttir 3, Stefanía Guð-
jónsdóttir 3, Eyrún Sigurjónsdóttir
2, Anita Ársælsdóttir 1, Hind
Hannesdóttir 1, Jennie Martinsson
1.
Varin skot: Lukrecia Borau 13,
Petra F. Bragadóttir 2.
Liðin mætast aftur í Eyjum
í kvöld kl. 20. -HI
Drífa Skúiadóttir, FH-ingur, skýtur aö marki Víkings en Heiörún Guömundsdóttir er til
varnar. FH vann góöan útisigur og stendur vel að vígi. DV-mynd Hilmar Þór
8 liða úrslit í handbolta kvenna:
Ekkert gefið eftir
- FH lagði Víking á útivelli, 18-20
FH-ingar gerðu sér lítið fyrir
og sigruðu Vikinga, 18-20, i
Víkinni í 8 liða úrslitunum.
FH-ingar komu mun ákveðnari
til leiks og höfðu undirtökin
allt frá byrjun. Það var aðeins
um miðbik fyrri hálfleiks sem
Víkingar spyrntu við fótum og
náðu eins marks forystu, 5-4,
en þá skoraði FH fjögur mörk í
röð og lagði grunninn að góð-
um sigri.
„Þetta hafðist á baráttunni
og í úrslitakeppninni er það
dagsformið sem ræður. Við
vitum það að Víkingarnir eru
með mjög sterkt lið en það er
ekkert gefið í þessu og það
verður barist til síðasta
dropa,“ sagði Hildur Erlings-
dóttir, fyrirliði FH.
Inga Lára Þórisdóttir lék
best í liði Víkings ásamt Höllu
Maríu Helgadóttur sem er
komin aftur inn í liðið eftir
meiðsl.
Það var gaman að sjá til FH-
liðsins í þessum leik, samstað-
an og sigurviljinn er allsráð-
andi í liðinu og það getur orð-
ið lykillinn að góðu gengi liðs-
ins í úrslitakeppninni. Jolanta
Slapikiene og Dagný Skúladótt-
ir léku best í liði FH.
Mörk Víkings: Inga Lára Þóris-
dóttir 4/3, Guðmunda Kristjáns-
dóttir 3, Halla Maria Helgadóttir 3,
Eva Halldórsdóttir 3, Svava Sigurð-
ardóttir 3 og Kristín Guðmunds-
dóttir 2.
Varin skot: Hjördís Guðmunds-
dóttir 4 og Kristín M. Guðjónsdótt-
ir 4.
Mörk FH: Þórdís Brynjólfsdóttir
7/5, Dagný Skúladóttir 4, Guðrún
Hólmgeirsdóttir 3, Björk Ægisdótt-
ir 3, Drífa Skúladóttir 2 og Hildur
Erlingsdóttir 1.
Varin skot: Jolanta Slapikiene
14. -ih
t
29
pjígf
" wl 1
* il
?ÆIm
■
I ■
• p-54.Á4c,4'Sc4‘ö‘;‘, • sPít
■
’ "'í- , V*\'•■ J
Iþróttir
Innanhússmeistaramótið í sundi:
Sjö met
í Eyjum
- Hafnfirðingar voru sigursælir
Fimm íslandsmet í einstaklings-
greinum og tvö boðsundsmet féllu á
íslandsmeistaramótinu innannhúss
í sundi sem lauk í Vestmannaeyjum
í gærkvöld.
Sundfólk úr Sundfé-
lagi Hafnarfjarðar var
mjög sigursælt á mót-
inu og það þarf svo sem
ekki að koma á óvart
enda hafa Hafnfirðingar
á að skipa bestu sund-
sveit landsins. SH gerði
sér lítið fyrir og vann
24. íslandsmeistaratitla.
Arangur Láru og
Arnar stendur upp
úr
„Ég er mjög sáttur
við mótið sem gekk
mjög vel. Það sem ein-
kenndi það var jafnari
keppni en áður, mikil
Orn Arnarson náöi setti
met í 50 m flugsundi.
og hörð
keppni um sigur í flestum greinum
og betri tímar. Það sem stendur
kannski upp úr er sund
Láru Hrundar í 200
metra fjórsundinu og 50
m flugsund Amar Arn-
arsonar,“ sagði Magnús
Tryggvason, sundþjálf-
ari og landsliðsnefndar-
maður, við DV í gær.
Örn Arnarson úr SH
setti eitt íslandsmet á
mótinu. Hann synti 50
m flugsund á’24,87 sek-
úndum og hann synti
einnig undir skráðu Is-
landsmeti í 200 m skrið-
sundi en sigurtími
hans var 1:50,25 mínút-
ur.
Friðfinnur og
Ríkharður með met
Friðfinnur Kristinsson setti ís-
landsmet í 100 m flugsundi karla í
undanrásunum þegar hann synti á
55,66 sek. en í úrslitunum bætti Rík-
harður Ríkharðsson, Ægi, metið og
synti vegalengdina á 55,63 sekúnd-
um.
Ríkharður setti einnig nýtt ís-
landsmet á fyrsta degi mótsins en
hann synti 50 m flugsund á 25,17
sek. í undanrásum.
Lára Hrund Bjargardóttir úr SH
Lára Hrund Bjargardóttir
setti met í 200 m
fjórsundi.
setti Islandsmet í 200 metra fjór-
sundi kvenna en sigurtími hennar i
úrslitunum var 2:18,71 mín. í sama
sundi bætti Kolbún Ýr Kristjáns-
dóttir, ÍA, stúlknametið
en hún kom önnur i
mark á 2:20,02 mínút-
um.
Tvö met SH-
manna
Þá setti karlasveit SH
tvö íslandsmet. Það
fyrra í 4x200 metra
skriðsundi þegar hún
kom í mark á 7:41,28
mín. og það í gærkvöld
þegar hún sigraði í
4x100 metra skriðsundi
á 2:29,95 mínútum.
Ómar Snævar Friðriks-
son, SH, synti sig inn í
ólympíuhóp Sundsam-
bandsins, þar sem hann náði B-lág-
marki FINA (alþjóðasundsambands-
ins) en ÍSÍ hefur ekki gefið út
ólympíulágmark.
Landsliöið valið
fyrir smáþjóða-
leikana
Eftir mótið var tilkynnt
um hvaða sundmenn
keppa fyrir íslands
hönd á smáþjóðaleik-
unum sem fram fara í
Liechtenstein í maí.
Liðið er þannig skipað:
Konur: Elín Sigurðar-
dóttir, SH, Eydís Kon-
ráðsdóttir, Keflavík,
Halldóra Þorgeirsdótt-
ir, SH, íris E. Heimis-
dóttir, Keflavík, Kol-
brún Ýr Kristjánsdótt-
ir, ÍA, Lára Hrund
Bjargardóttir, SH, Louisa Isaksen,
Ægi, Sunna B. Helgadóttir, SH.
Karlar: Friðfinnur Kristinsson,
Selfossi, Hjalti Guðmundsson, SH,
Jakob J. Sveinsson, Ægi, Númi
Snær Bjömsson, Selfossi, Ómar S.
Friðriksson, SH, Tómas Sturlaugs-
son, Ægi, Ríkharður Ríkharðson,
Ægi og Örn Amarson, SH.
-GH
8 liða úrslit í handbolta kvenna:
„Það sem koma skal“
- Stjarnan áfram eftir sigur á Gróttu/KR
Það var eins og Stjaman tefldi
fram nýju og breyttu liði frá því í
fyrri leiknum gegn Gróttu/KR á
föstudag. Vamarleikurinn small
saman og Stjömunni tókst að sigrast
á þeim vanda sem skapaðist við það
að Ragnheiður Stephensen var tekin
úr umferð. Þetta skilaði síðan góðri
markvörslu sem hið unga lið
Gróttu/KR átti ekkert svar við og
Stjaman vann öruggan sigur, 17-24.
„Þetta var stórkostlegur leikur á
allan hátt, vömin small saman, það
var góð barátta og stemning i liöinu
og við höfðum gaman að þessu og
þannig innbyrtum við þennan sigur.
Þetta er það sem koma skal í úrslita-
keppninni,“ sagði Anna Blöndal sem
stóð sig vel eins og reyndar Stjömu-
liðið allt. Margrét Theodórsdóttir
meiddist á kálfa snemma í leiknum
og er óvíst hvort hún leikur meira
með liðinu í úrslitakeppninni.
Grótta/KR á hrós skilið fyrir góða
baráttu, liðið er ungt og bráðefnilegt
og á framtiðina fyrir sér. Ágústa
Edda Bjömsdóttir lék þeirra best.
Mörk Gróttu/KR: Ragna Sigurðard. 7,
Ágústa E. Bjömsd. 5, Edda H. Kristinsd. 2,
Eva B. Hlöðversd. 2, Helga Ormsd. 1. Var-
in skot: Þóra H. Jónsd. 12.
Mörk Stjömunnar: Ragnheiður Step-
hensen 8/5, Hrund Grétarsd. 4, Nína K.
Björnsd. 4/1, Inga St. Björgvinsd. 3, Anna
Blöndal 3, Guðný Gunnsteinsd. 1. Varin
skot: Lijana Sadzon 17, Sóley Halldórsd. 1.
Stjaman vann fyrri leikinn á föstu-
dagskvöldið, 24-22.
Mörk Stjörnunnar: Inga Fríöa
Tryggvad. 7, Ragnheiður Stephensen 7/3,
Nína K. Bjömsd. 3, Hrund Grétarsd. 3,
Anna Blöndal 2, higa Björgvinsd. 1, Mar-
grét Theodórsd. 1. Varin skot: Liljana
Sadzon 11/1.
Mörk Gróttu/KR: Helga Ormsd. 7/3,
Eva B. Hlöðversd. 4, Ágústa Edda Björns-
d. 3, Kristín Þórðard. 3, Edda H. Kristins-
d. 3/3, Brynja Jónsd. 1, Ragna Sigurðard.
1. Varin skot: Þóra Hlíf Jónsd. 10. ..
-íh
Sigurvin
fer í Fram
Sigurvin Ólafsson, knatt-
spyrnumaður frá
Vestmannaeyj-
um, hefur ákveð-
ið að ganga til
liös við Fram.
Eins og fram
kom í DV á dög-
unum buðu
Framarar honum
þriggja ára samning. Sigurvin
staðfesti þetta í samtali við DV í
gærkvöld.
Óvíst er hvenær Sigurvin
byrjar að spila en hann fótbrotn-
aði illa síðastliðið sumar. -VS
Gunnarí
mark
Talsverðar líkur eru á að
Gunnar Sigurðs-
son, fráfarandi
markvörður
Eyjamanna í
knattspyrnunni,
gangi til liðs við
sænska B-deild-
arliðið Brage.
Gunnar fór tO
Brage til reynslu á fimmtudag og
stóð sig mjög vel í leik með liö-
inu í gær. Hann verður þar um
tíma í viðbót til frekari skoðun-
ar. -VS
Kristinn í ÍBV
Kristinn Geir Guðmundsson,
markvörður úr Val og unglinga-
landsliðinu, er á leið til ÍBV.
Hann gengur væntanlega frá
málum í dag og verður vara-
markvörður fyrir frænda sinn,
Birki Kristinsson, í sumar. -VS
Leó þjálfar
Skagastúlkur
DV, Akranesi:
Leó Jóhannesson var í gær
ráðinn þjálfari úrvalsdeildarliðs
ÍA í knattspymu kvenna. Leit að
þjálfara hafði tekið langan tíma
en Leó er knattspyrnuunnend-
um á Skaga að góöu kunnur.
-DVÓ
KR og HSÞ unnu
sveitaglímuna
KR sigraði í karlaflokki og
HSÞ í kvennaflokki í sveita-
glímu íslands sem haldin var í
Reykjahlíð í Mývatnssveit á
laugardag. I karlaflokki fékk KR
28 vinninga, HSÞ 24,5 og HSK
22,5 vinninga. I kvennaflokki
fékk HSÞ 11 vinninga og HSK 5.
HSÞ sigraði í flokkum stráka og
meyja og HSK í flokki sveina.
-VS
8 liða úrslit í handbolta kvenna:
Gerður sá um Haukana
- Stjarnan áfram eftir sigur á Gróttu/KR
Stórleikur Gerðar Jóhannsdóttur ásamt
feikisterkri vöm færðu Valsmönnum sigur,
19-16, yfir Haukum í öðrum leik liðanna í
úrslitakeppninni í Strandgötu í gærkvöld.
Þar með em Haukar, sem hafa leikið til úr-
slita um titilinn síðustu þrjú árin, úr leik.
Staðan i hálfleik var 7-6 fyrir Val.
„Við vissum að Haukar ætluðu ekki að
koma hingað til að gefast upp. Þær reyndu
að hleypa leiknum upp og við vorum
nokkurn tíma að finna svar við þvi. Við
spiluðum óskynsamlega í fyrri hálfleik en í
þeim seinni fundum við svar. Svona leikir
eru hins vegar tóm slagsmál. í þessum leik
var það þrekið og vinnan yfir veturinn sem
skilaði sér,“ sagði Ragnar Hermannsson
þjálfari Vals.
Hjá Valsmönnum voru það Gerður og
Larissa markvörður, sem varði þrjú víta-
köst, sem voru hetjur liðs síns. „Það eru
alltaf vonbrigði að tapa. Það sem verður
okkur að falli í þessum leik og reyndar í
heild í vetur eru öll þessi meiðsl sem við
höfum lent í. Við verðum bara að bíta í
þetta súra epli,“ sagði Andrés Gunnlaugs-
son, þjálfari Hauka. „Þær kláruðu sóknirn-
ar betur en við og það skildi á milli.“ í liði
Hauka bar best á Hörpu Melsted og Telma
og Hanna áttu einnig ágæta spretti.
Mörk Vals: Geröur Jóhannsd. 8, Þóra Helgad.
3, Alla Gokorian 2, Anna Halldórsd. 2, Sigurlaug
Rúnarsd. 2, Arna Grimsd. 1, Sonja Jónsd. 1. Var-
in skot: Larissa Zoubar 16/3.
Mörk Hauka: Harpa Melsted 5/2, Hekla Daða-
d. 4/1, Thelma B. Árnad. 3, Björg Gilsd. 2, Hanna
Stefánsd. 2. Varin skot: Guðný Agla Jónsd. 8,
Vaiva Drillingaite 1.
Valur vann fyrri leikinn á föstudag, 21-18.
Mörk Vals: Sonja Jónsd. 5, Gerður B. Jóhanns-
d. 5/3, Alla Gokorian 3, Anna Halldórsd. 3, Arna.
Grímsd. 3, Þóra Helgad. 1, Lilja Valdimarsd. 1.
Varin skot: Larissa Zouber 15/2.
Mörk Hauka: Harpa Melsted 5/2, Hanna G.
Stefánsd. 3, Tinna Halldórsd. 2, Berglind Sigurðar-
d. 2, Sandra Anulyte 2/1, Björg Gilsd. 1, Thelma B.
Árnad. 1, Hekla Daðad. 1, Auður Hermannsd. 1.
Varin skot: Vaiva Drilingaite 11.
-HI