Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.1999, Blaðsíða 4
20
ÞRIÐJUDAGUR 6. APRÍL 1999
ÞRIÐJUDAGUR 6. APRÍL 1999
21
íþróttir
Punktar um KR
og Keflavík
Gudbjörg Noröfjörö, fyrirliði KR,
hefur örugglega þurft að bíða lengst
allra körfuknattleikskvenna eftir
fyrsta Islandsmeistaratitlinum.
Guöbjörg lék sinn fyrsta leik með
Haukum 1986 en loks nú 13 árum
seinna fagnar hún íslandsmeist-
aratitlinum í fyrsta sinn. Hún skipti
úr Haukum yfir í KR 1992.
Guóbjörg lék á laugardag sinn 34.
leik í úrslitakeppni kvenna en hún
hafði lent 5 sinnum í öðru sæti með
KR, þar af þrisvar þrjú síðustu árin.
Linda Stefánsdóttir, félagi hennar í
liöinu, fagnaði einnig sínum fyrsta
titli á 12 ára ferli sínum. Þessar tvær
eru 2 af þremur leikjahæstu íslensku
landsliðkonunum og má því segja aö
þeirra tími sé loks kominn.
Hanna B. Kjartansdóttir fagnaði
aftur á móti sínum íjórða íslands-
meistaratitli fyrir sitt þriðja félag.
Hanna varö meistari með Keflavík
1993 og 94 og með Breiðabliki 1995 en
vann einnig bikarinn með Haukum
og hefur því unnið stóra titla fyrir 4
félög.
Anna María Sveinsdóttir úr Kefla-
vik er stigahæst í úrslitakeppni
kvenna frá upphafi með 427 stig, Guð-
björg Norðfjörð kemur næst með 416
stig en Helga Þorvaldsdóttir, KR,
er með 360 stig. Anna Maria gat ekki
verið með í öörum úrslitaleiknum
vegna veikinda.
Kristin Blöndal sendi 11 stoðsend-
ingar í leiknum á laugardag og jafn-
aði þar með tæplega vikugamalt met
Limor Mizrachi frá því í fyrsta leikn-
um. Áður hafði Helga Þorvaldsdóttir
úr KR sent flestar stoðsendingar I
einum leik eða 10 f keppninni 1995.
Limor Mizrachi lék 13 leiki í vetur
fyrir KR, skoraði í þeim 23,1 stig að
meðaltali, sendi 7,3 stoðsendingar,
tók 7,0 fráköst og stal 5,4 boltum að
meðaltali í leik. Góður liðsstyrkur
þar á ferðinni en hún kom til liösins
í janúar í framhaldi af þvi að
atvinnumannadeildin sem hún
spilaði í fór á hausinn. -ÓÓJ
Fjórða árið \
röð í Hagaskóla
Hagaskóli hefur tekið að sér
að vera vettvangur fyrir ný-
krýnda íslandsmeistara í fyrstu
deild kvenna undanfarin ár.
Á laugardaginn fengu íslands-
meistararnir bikarinn afhentan í
húsinu Qórða árið í röð en loks-
ins var komið að heimastúlkum
að ná í gripinn. KR-stúlkur
höfðu þurft að horfa upp á það
þrjú síðustu árin að gestaliðið
ynni þær í úrslitaleik um titilinn
en nú er öldin önnur og á hundr-
að ára afmælinu fengu þær loks-
ins að kynnast skemmtilegri
kostinum. -ÓÓJ
Leikur númer tvö:
Bæði lið léku
undir getu
DV, Reykjanesbæ:
KR vann Keflavík, 50-60, í öðr-
um leik liðanna í Keflavík á mið-
vikudagskvöldið.
Keflavík spilaði án Önnu Mar-
íu Sveinsdóttur, sem gat ekki
verið með vegna veikinda, og er
óhætt að segja að það hafi mun-
að um minna fyrir Keflavíkurlið-
ið. Bæði lið spiluðu vel fyrir neð-
an getu og verður þessa leiks
ekki minnst fyrir gæða körfu-
bolta. Keflavík tapaði boltanum
33 sinnum og KR 32 sem gerir 65
tapaða bolta í einum og sama
leiknum.
Stig Keflavíkur: Tanya Sampson
10, Marín Karlsdóttir 9, Birna Val-
garðsdóttir 9, Kristín Blöndal 8, Guö-
rún Karlsdóttir 5, Kristín Þórarins-
dóttir 4, Lóa Gestsdóttir 3, Bima Guð-
mundsdóttir 1.
Stig KR: Limor Mizrachi 17, Guð-
björg Norðfjörð 10, Kristin Jónsdóttir
8, Hanna Kjartansdóttir 7, Helga Þor-
valdsdóttir 7, Linda Stefánsdóttir 5,
Sigrún Skarphéðinsdóttir 4, Rann-
veig Þorvaldsdóttir 2.
-BG
Tilbúnar aðfórna
öllu fyrir titilinn
„Ég átti kannski ekki vcm á að við myndum vinna mótið með svona
miklum yfirburðum en það verður aö segjast eins og er að KR-liðið er
einstaklega gott sem gaman hefur verið að vinna með. Stelpumar voru
tilbúnar að fórna öllu fyrir það að vinna íslandsmeistaratitilinn og það
kom berlega í Ijós í vetur. Við þurftum að hafa fyrir að vinna þennan
leik. Keflavíkingar eru engir aukvisar. Þeir urðu meistarar í fyrra og
vildu ekki tapa þessu einvígi, 3-0, og við vissum að þeir kæmu baráttu-
glaðir til leiks eins og reyndin varð. En mínar stelpur sýndu karakter og
núna þegar þær hafa kynnst því að vinna vilja þær halda þessu áfram,“
sagði Óskar Kristjánsson, þjálfari hins sigursæla liðs KR.
- Það hlýtur auðvitað að hafa breytt miklu að fá Limor Mizrachi
í liðið?
„Að sjálfsögðu. Það fengu öll liðin í deildinni sér útlendinga og viö vor-
um síðastir til þess. Hún var auðvitað mikil himnasending fyrir okkur.
Hún er sennilega besti körfuknattleiksmaður sem hefur komið til íslands
og tæknilega séð er hún betri en margir körfuknattleikskarlar sem hafa
komið til landsins. Hún er mikill leiðtogi og með einstaklega góðan
karakter. Ég reikna ekki með að Limor spili fleiri leiki með KR. Hún
mun örugglega spila í bandarísku atvinnumannadeildinni í sumar.“
- Verður þú áfram með liðið?
„Ég ætla ekkert að segja til um það núna heldur ætla ég að njóta þess
að hafa unnið titilinn. Það verður erfitt að toppa þennan árangur og það
er því spurning hvort maður hætti ekki bara á toppnum. En það er samt
aldrei að vita,“ sagði Óskar.
Ekki langt aö bíöa aö viö verðum komnar á toppinn aftur
„Það hlaut að koma að þessu. Við erum búnar að vera á toppnum í 12
ár en við erum að byggja upp svo við kvíðum ekki framtiðinni. KR er
búið að vera með besta liðið í vetur og það er ekki hægt að taka það frá
KR-ingum að þeir eiga titilinn skilinn. KR átti samt fullt í fangi með að
vinna þennan þriðja leik því við höfðum leikinn í höndum okkar fram í
miðjan seinni hálfleik. Við erum því nokkuð sáttar þó svo maður sé
aldrei ánægður með að tapa. Þess verður ekki langt að bíða að við verð-
um komnar á toppinn aftur," sagði Anna María Sveinsdóttir, þjálfari og
leikmaður Keflvíkinga, við DV eftir leikinn.
Langþráöur titill
„Þetta er langþráður titill. Ég er búin að vera í þessu síðan ég var 13
ára gömul og aldrei unnið íslandsmeistaratitil svo ég er auðvitað í sjö-
unda himni. En ég bjóst alveg við að þetta tækist i ár. Við erum með frá-
bæran þjálfara og eftir að við töpuðum Reykjavíkurmótinu sagði hann
að við skyldum ekki tapa fleiri leikjum og við stóðum við það. Við átt-
um í basli í þessum síðasta úrslitaleik enda Keflavík með gott lið sem
þekkir það að vera í svona sporum. Við vildum klára mótið með fullu
húsi og hampa titlinum hér á heimavelli og það tókst sem betur fer,“
sagði hin leikreynda Linda Stefánsdóttir við DV eftir leikinn. -GH
Guöbjörg Noröfjörö og Hanna Kjartansdóttir halda bikarnum á milli sín í
sigurhring KR-inga í Hagaskólanum.
Úrslitakeppni kvenna í körfu:
Besta lið sögunnar
- KR vann 31 af 33 leikjum í vetur
Ef litið er í metabækur kemur í
ljós að lið KR í kvennakörfunni í
vetur er samkvæmt tölfræðinni
besta liö sögunnar. KR-stúlkur
unnu alla 28 leiki sina á tímabilinu,
í deild (20), bikar (3) og úrslita-
keppni (5) og enn fremur 3 af 5 í
Reykjarvíkurmótinu sem verður þó
að teljast sem undirbúningsmót. í
Reykjavíkurmótinu í haust tapaði
liðið tveimur leikjum fyrir ÍS sem
og Reykjavíkurmeistaratitlinum en
síöan þá hefur liðið ekki stigið feil-
spor, unnið alla þá titla og leiki sem
voru í boði.
KR var nú fyrsta félagið í karla-
og kvennaflokki til að fara ósigrað í
gegnum deild, bikar og úrslita-
keppni en aðeins einu sinni áður
hefur lið farið í gegnum tímabil
ósigrað þegar KR vann alla 19 leiki
sína í deild og bikar veturinn 1982
til 1983.
Sigramir 28 eru einnig met í flest-
um sigram i röð en Keflavík hafði
áður unnið 26 í röð 1988 í öllum
keppnum og aðeins einu sinni áður
hefur lið farið gegnum úrslita-
keppnina ósigrað er Grindavik
kom, sá og sigraði í úrslitakeppn-
inni 1997 eftir að hafa lent í fjórða
sæti í deildinni.
11 landsliðskonur
Þetta er örugglega sterkasta lið
sögunnar, 11 leikmenn liðsins eiga
landsleiki að baki, í liðinu era 4 af 7
leikjahæstu íslensku landsliðskon-
unum auk þess sem tilkoma ísra-
elsku landsliðskonunnar Limor
Mizrachi styrkti liöið enn frekar og
gerði það að verkum að KR-stúlkur
voru í sérflokki í vetur. -ÓÓJ
- Islandsmeistaratitillinn í höfn hjá vesturbæjarliðinu eftir 12 ára bið
KR er með besta körfuknattleikslið
landsins í kvennaflokki. Á því leikur
enginn vafi en KR-ingar tryggðu sér
íslandsmeistaratitilinn með því að
sigra Keflavík í þriðja úrslitaleik lið-
anna um íslandsmeistaratitilinn,
90-81, í Hagaskóla á laugardaginn. Þar
með sigraði KR í öllum 28 leikjum sín-
um í deild og bikar á keppnistímabil-
inu sem er einstæður árangur og sýn-
ir og sannar hversu mikla yfirburði
KR hafði í vetur.
Þess virði aö bíöa eftir þessu
„Loksins tókst þetta og ég held að
það hafi verið þess virði að bíða eftir
þessu. Þetta er búinn að vera rosalega
skemmtilegur vetur. Eftir að við töp-
uðum í Reykjavíkurmótinu fór gæfu-
hjólið að rúOa af stað og hefur ekki
stöðvaö síðan. Þrátt fyrir að við lent-
um 8 stigum undir í síðari hálfleik fór
aldrei um mig. Ég trúði því alls ekki
að viö myndum tapa en Keflavíkurlið-
ið spilaði mjög vel og veitti okkur
verðuga keppni. Ég held að þessi leik-
ur hafi verið mjög skemmtilegur og
góður og hann var vonandi góð aug-
lýsing fyrir kvennaboltann sem hefur
að mínu mati tekið miklum framför-
um. Ég held að við getum haldið mjög
svipuðu liði fyrir næsta tímabO. Að
vísu missum við öragglega Limor.
Hún er það góð að hér hefúr hún ekk-
ert að gera. Það verður erfitt að fyOa
skarð hennar en það kemst samt eng-
inn með tærnar þar sem hún hefur
hælana. Við munu reyna að fyOa
skarð hennar eins vel og við getum,"
sagði Guðbjörg Norðfjörð Elíasdóttir,
fyrirliði KR, við DV eftir leikinn.
Frábær skemmtun
Þessi þriðji úrslitaleikur liðanna
var frábær skemmtun og það er hægt
að taka undir orð fyrirliða KR að
hann var góð auglýsing fyrir kvenna-
körfuknattleikinn hér á landi sem er í
framfór. Stigaskorið var mjög hátt,
hittnin góð og baráttan mikil og leik-
urinn var lengstum mjög jafn og tví-
sýnn. KR-ingar byrjaðu leikinn með
miklum látum. Þeir komust í 22-8 og
áttu Keflvíkingar í miklum vandræð-
um með pressuvörn vesturbæjarliðs-
ins. En þá skiptu Keflvíkingar Önnu
Maríu Sveinsdóttur inn á og við það
gjörbreyttist leikur Suðumesjaliðsins.
Á skömmum tíma skoraði Keflavík 14
stig í röð og náði yfirhöndinni, 26-25.
Það sem eftir lifði af fyrri hálfleiknum
skiptust liðin á að hafa forystu en í
hálfleik var staðan 42-45, Keflavík í
vO. Kristín Blöndal fór á kostum í liði
Keflvíkur í fyrri hálfleik. Hún skoraði
13 stig og átti 9 stoðsendingar.
Enn einn stórleikur Mizrachi
Keflavikurstúlkur héldu uppteknum
hætti í byrjun síðari hálfleiks. Þær
börðust eins og ljón og æOuðu greini-
lega að selja sig dýrt. Þær spOuðu vöm-
ina fast sem tók sinn toO því Bima Val-
garðsdóttir fékk sína 5. viOu þegar 14
minútur voru eftir. Keflavík náði mest 8
stiga forskoti, 46-54, en þá sögðu KR-ing-
ar hingað og ekki lengra. Drifhar áfram
af stórleik Limors Mizrachi, hinnar
ísraelsku, náði KR að komast yfir eftir
10 mínútna leik og eftir það höfðu KR-
konumar frumkvæðið. Þeim gekk þó
Ola að hrista af sér gott Keflavíkurlið
þar tO fjórar mínútur vora eftir að í
sundur dró.
Limor Mizrachi átti enn einn stór-
leikinn fyrir KR. Hún skoraði grimmt
og stjómaði leik KR-liðsins af mikOli
festu. Hún var mikOl hvalreki fyrir KR
og íslenskan körfuknatOeik og það verð-
ur mikiO sjónarsviptir að henni. Linda
StefánsdóOir, Guðbjörg Norðfjörð og
Hanna KjartansdóOir léku einnig mjög
vel. 12 ára bið KR er loks á enda en fé-
lagið var síðast meistari árið 1987 en
þetta er í 11. sinn sem KR hampar ís-
landsmeistaratidinum.
Efniviðurinn mikill hjá
Keflavík
Hjá Keflavík lék Kristín Blöndal
best. Hún fór á kostum í fyrri hálfleik
en nokkuð dró af henni í þeim síðari
enda leikurinn mjög hraður. Anna
María átti einnig góða spretti. Hið sig-
ursæla lið Keflavíkur á undanförnum
árum hitti ofjarla sína í þessu einvígi
en engu að síður geta Keflavíkurstúlk-
ur borið höfuðið hátt. Mikifl efniviður
er hjá Suðurnesjaliðinu og ef réO verð-
ur haldið á spilunum á þeim bæ verð-
ur þess ekki langt að bíða að Keflavík
hampi titlinum á nýjan leik. -GH
KR (42) 90
Kefíavík (45) 81
11-2, 15-5, 22-8, 26-19, 26-30, 32-32,
35-33, (42^5), 42-47, 46-54, 53-56,
58-58, 67-62, 72-71, 84-76, 90-81.
Stig KR: Limor Mizrachi 40,
Hanna Kjartansdóttir 14, Guöbjörg
Norðfjörð 13, Linda Stefánsdóttir 8,
Helga ÞorvaldsdóOir 7, Kristín Jóns-
dóttir 6, Sigrún Skarphéðinsdóttir 2.
Stig Keflavikur: Kristin Blöndal
15, Anna María Sveinsdóttir 15, Birna
Valgarðsdóttir 10, Marin Rós Karls-
dóttir 9, Tonya Sampson 8, Birna
Guðmundsdóttir 8, Guðrún Karlsdótt-
ir 6, Kristín Þórarinsdóttir 6, Lóa
Björg GestsdóOir 4.
Sóknarfráköst: KR 14 , Keflavík 3.
Vamarfráköst: KR 20 , Keflavík 27.
3ja stiga körfur: KR16/6, Keflavík
16/7.
Vítanýting: KR 47/32, Keflavik
13/10.
Dómarar: Björgvin Rúnarsson
og Eggert Þór Áðalsteinsson.
Áhorfendur: Um 400.
Maður leiksins: Limor
Mizrachi, KR.
íþróttir
Kristín B. Jónsdóttir, Hanna Kjartansdóttir og Guðbjörg Norðfjörð ráða sér
ekki fyrir kæti eftir að íslandsmeistaratitillinn var kominn í höfn.
Limor Mizrachi var föðmuð í bak og fyrir af félögum sínum í KR eftir leikinn
gegn Keflavík enda átti hún stóran þátt í velgengni vesturbæjarliðsins í
vetur. Hér er sú ísraelska í faðmlögum við Sigrúnu SkarphéðinsdóOur.
Einar Karl Hjartarson bætti
íslandsmetiö í hástökki:
Einar Karl Hjartarson, nastökkv-
arinn ungi og efnflegi úr ÍR, gerði
sér lítið fyrir og bætti íslandsmet
sitt í hástökki utanhúss á móti í
Alicante á Spáni um helgina.
Einar stökk 2,22 metra og bætti eig-
ið met um fjóra sentímetra. Einar
sigraði á mótinu í AOcante og var
ekki langt frá því að fara yfir 2,25
metra. Ekki er langt síðan Einar bætti
íslandsmet sitt innanhúss en hann
vippaði sér yfir 2,20 metra á stökk-
móti Reynis, Árskógsströnd, sem
fram fór á Akureyri í síðasta mánuði.
Stutt frá því aö komast í hóp
þeirra bestu
„Þetta lítur mjög vel út hjá Ein-
ari. Hann er ekki nema 19 ára gam-
all og ég held að það séu mjög fáir í
heiminum sem hafa náð þessari
hæð svona ungir. Hann er stutt frá
því að komast í hóp bestu há-
stökkvara heims. Hann var hárs-
breidd frá því að fara yfir 2,25 metra
og þegar menn eru komnir yfir þá
hæð er stutt í þá bestu,“ sagði Vé-
steinn Hafsteinsson landsliðsþjálf-
ari við DV.
3 sentímetrum frá HM lág-
marki
Einar Karl var aðeins þremur
sentímetrum frá því að tryggja sér
sæti á heimsmeistaramóti fuflorð-
inna og ef að líkum lætur er ekki
langt að bíða þess að hann nái því.
Einar stökk hins vegar inn í
Sydney-hópinn svokallaða en fyrir í
honum eru Jón Arnar Magnússon
tugþrautarkappi, Vala Flosadóttir
stangarstökkvari, Þórey Edda Elis-
dóttir stangarstökkvari, Guðrún
Arnardóttir hlaupari, Martha
Ernstsdóttir langhlaupari, Magnús
Aron Hallgrímsson kringlukastari
og Jóhannes Már Marteinsson
spretthlaupari.
Margir af bestu frjálsíþrótta-
mönnum landsins eru við æfingar
erlendis um þessar mundir og und-
irbúa sig fyrir sumarið.
-GH
Einar Karl Hjartarson sló íslandsmet sitt í hástökki utanhúss á móti á Spáni
um helgina þegar hann stökk 2,22 metra.