Dagblaðið Vísir - DV - 16.04.1999, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 16.04.1999, Blaðsíða 15
auðug ekkja ræður hann til sín og afhendir honum 8 mm filmubút sem hún hafði fundið í geymslu- hólfi eiginmanns síns. Eiginkonan er hneyksluð enda er filmubútur- inn úr svokallaðri „snöff mynd“ sem eru klámmyndir af grófustu gerð þar sem jafnvel þátttakendur láta lífið. Þegar filmubúturinn er skoðaður virðist sem unglings- stúlka sé myrt. Ekkjan biður Tom að komast að sannleikanum, fá vit- nesju um unglingsstúlk- una og hvort hún hafi ver- ið myrt og í framhaldi að hafa uppi á mönnunum sem gerðu myndina. Við leit að sannleikan- um kynnist Tom nýjum heimi, heimi innan um sorann í mannlífinu og hann verður aldrei samur maður upp frá því. Eftir því sem hann gengur lengra í að upplýsa málið verður hann fastur í net- inu og leggur um leið fjöl- skyldu sína í hættu. Við leit að sannleikanum fær Tom aðstoð frá Max (Joaquin Phoenix), afgreiðslu- manni í klámbókabúð, og liggur leið þeirra félaga á slóðir í Los Angeles og New York sem Tom hafði ekki ímyndað sér að væru til. 8MM er nýjasta kvikmynd hins þekkta leikstjóra Joels Schumachers og hefur hún notið vinsælda vestanhafs undanfamar vikur. Schumacher þykir oftast róa á örugg mið í kvikmyndavali og má geta þess að síðustu kvik- myndir hans voru Batman mynd- imar tvær, Batman Forever og Batman and Robin, og A Time to Kill og The Client, sem báðar era gerðar eftir skáldsögum Johns Grishams, eins mest selda rithöf- undar í heimi. Schumacher fædd- ist og ólst upp í New York þar sem hann nam hönnun við viðurkennd- an skóla. Hann komst í kynni við skemmtanaiðnaðinn í gegnum sjónvarpsauglýsingar sem hann tók að sér að gera. Þóttu auglýsing- ar hans það góðar að hann fékk til- boð um að vinna við kvikmyndir þar sem hann vann sig upp í leik- stjórastólinn. Fyrsta sjónvarps- myndin sem hann leikstýrði var The Virginia Hill Story en í henni var Dyan Cannon í titilhlutverk- inu og Harvey Keitel lék mafiufor- ingjann Bugsy Siegel. Vann hann síðan jöfnum höndum í nokkur ár í sjónvarpi og kvikmyndum. Breyt- ingar á högum hans urðu þegar hann skrifaði handrit og leikstýrði St. Elmo’s Fire árið 1988 en sú mynd náði miklum vinsældum og varð stökkpallur fyrir nokkra unga leikara. Næsta kvikmynd úr smiðju Schumachers heitir Flawless og í henni leikur Robert De Niro aðalhlutverkið. -HK „Ian Michael Smith er einstakur drengur sem gefur mikið af sér. Við gerð myndarinnar var hann atvinnumaður fram í fingurgóma og heillaði aila aðra með jákvæðu viðhorfi. Hann er aðeins ellefu ára gamall en hefur hæfileika og ein- beitni sem margir fullorðnir leik- arar gætu verið stoltir af. Ég er ekki að oflofa þegar ég segi að hann sé snillingur og að hann sé gömul og vitur sál i litlum lík- ama.“ Þetta era orð leikstjórans Marks Stevens Johnsons úm að- alleikara sinn í Simon Birch. Og það er fleira sem þessum ótrúlega dreng er til lista lagt. í skólanum er hann yfirleitt hæstur, leikur á píanó og trompet, siglir þriggja metra skútu og les að meðaltali tvær bækur á dag. Þegar Ian Mich- ael Smith var að lesa skáldsöguna A Prayer for Owen Meany, sem Simon Birch er byggð á, kom hann eitt kvöld til foður síns og sagðist vilja rannsaka betur persónuna sem hann átti að leika. Faðir hans rétti honum Biblíuna og sagði að hann myndi finna allt sem hann þyrfti í henni. „Simon Birch“ er ólíkur mér,“ segir Ian Michael Smith. „Honum er sama hvað ann- að fólk heldur um hann svo fremi sem hann heldur að hann sé að gera rétta hlutinn og hann er mjög trúaður. Biblían hjálpaði mér mik- ið að skilja hann.“ Ian Michael Smith fæddist í maí 1987 og býr í Chicago. Hinar miklu gáfur hans hafa gert það að verk- um að hann er á hraðferð í skóla og er langt á undan jafnöldrum sín- um í mörgum greinum. Hann hef- ur einstaklega gott minni og á mjög auðvelt með að túlka það sem hann les og sér. Áhugamál hans era mörg og ólík, visindi og tölvur leggur hann til jafhs við sund og siglingar og auk þess að vera í námi á píanó og trompet þá er hann í skólakórnum. Eitt af því skemmtilegasta sem hann gerir er að taka þátt í erfiðum spurninga- keppnum þar sem hann vinnur yf- irleitt. -HK Kynnir tvo frábæra myndasöguklúbba fyrir fólk á öllum aldri Vandað efni frá Frakklandi, Belgíu Ítalíu, Japan og Bandaríkjunum. ALLT EFNIÐ VERÐUR Á ÍSLENSKU. HVER BÓK ER FALLEGA INNBUNDIN í HÖRÐUM SPJÖLDUM. HVER BÓK ER 50-100 SÍÐUR. um. Fyrst og fremst verður gefið út NÝTT EFNI auðvitað laumum við inn góðum sígildum Einstakt inngöngutilboð 10 TITLAR á ári fýrir aðeins Hér er á ferðinni skemmti- legur klúbbur með efni fyrir alla fjölskylduna, krakkana, mömmu, pabba, afa og ömmu. Við bjóðum ykkur ótrúlegt úrval af bókum á ótrúlegu verði aðeins 896.-kr. á mánuði. Einstakt inngöngutilboð 10 TITLAR á ári fyrir aðeins HRIIUCDU OC SKRÁÐU ÞIG í SÍMA EÐA FARÐU Á HEIMASlÐUNA OKKAR OG SKRÁÐU ÞIG: www.centrum.is/myndaklubb ERUM VIÐ SlMANN ALLA VIRKA DAGA FRÁ 9:00-22:00, LAUGARD. FRÁ 10:00-16:00 Klúbbur fyrir alla fjölskylduna 8-88 ára 896.-kr. Klúbbur fyrir fullorðna 16-88 ára áttunni Ert þú unnandi myndasagna og vilt efni við þitt hæfi? Þá er hér kominn klúbbur fyrir þig. Ótrúlegt úrval af því besta. é 16. apríl 1999 f Ókus 15

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.