Dagblaðið Vísir - DV - 16.04.1999, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 16.04.1999, Blaðsíða 16
J4 Quarashi réttir úr kryppunni Rapprokksveitin Quarashi átti hug og hjörtu ræflarokkara og mínípoppara fyrir jólin ‘97 þegar hún seldi 6000 eintök af fyrstu breiöskífunni sinni. Sveitarmeölimir iiföu í kjölfariö hátt á börunum og í einkasamkvæmum en minna var beinlínis æft eöa spilaö. Eftir að sveitin rokkaöi í Poppi í Reykjavík fannst aöalmanninum, Sölva Blöndal, nóg komiö af ruglinu og brá sér í langa ferö um S-Ameríku, eins og lesendur Fókuss ættu að vita. Nú hefur heyrst aö Sölvl, Hössi, Steini og Dj. Dice séu farnir aö hitt- ast í lekum bílskúr í vesturbænum og nýlr hittarar hreiniega hrannist upp. Nokkuö nýr tónn er kominn í strokk * Quarashi en frekari upplýsingar um nýju línuna hafa ekki sloppið úr skúrnum. Fólk verður bara aö bíöa til 14. maí, en þá heldur Quarashi tón- leika, sína fyrstu í 10 mánuði, á ónefndum staö í Reykjavík. f sumar á svo aö gefa út smáskífu. Hægt er aö fylgjast meö fréttunum um ieiö og þær gerast á heimasíöu sveitarinnar: this.ls/quarashi. Innflutningur á erlendum tónlistar- mönnum er meö miklum blóma um þessar mundlr og hver stórviöburður- inn á sviði rokks og danstónlistar rekur annan. Fönkiö hefur líka veriö aö sækja í sig veðriö og seint í maí fá fönkarar feitan bita frá New York þegar hljómborösbullan Wayne Hor- vitz mætir meö bandið sitt, Zony Mash. Wayne gefur út hjá tilrauna- djassmerkinu Knitting Factory og á tvær plötur aö baki. Hljómplötubúllan 12 tónar flytur fönkarana inn og læt- ur þá spila á tvennum tónleikum í Loftkastalanum 28.-29. maí. Jagúar og Dlp koma til meö aö kynda upp kofann áður en Wayne og kó trylla fönkfjöldann. Horfnar hugsjónir: 6ss virði! Slaqorð friðarsamtaka ©r stofnuð voru í Kvosinni fyrir ssxtá rum. Þau áttu að vera í náinni samvinnu við stofnfundinum höfðu um 500 listamenn skrí samtök nú? Hvert fóru þau? Var komíð á a að miklum friði að þau hurfu? Eða voru þau hittast yfir léttvínsqlasi á þessum s Óskalaga sjómanna? Iþjóðleg friðarsamtök listamanna og á 3 sig í samtökin. En hvar eru þessi 3erum friði í þessum samtökum? ara afsökun til að halda fund og örtu tímum gömlu góðu Gufunnar og Friörik Þór Friöriks- son kvikmyndaleik- stjóri: „Hugsjónirnar eru ekki dauöar.“ Knut Ódegárd Ijóðskáld. Þorgeröur Ingólfs- dóttir kórstjóri: Minnist þess aö hafa hlustaö á verk eftir Svövu Jakobs- dóttur á þessum fundi. Þorkell Sigurbjörnsson tónskáld (var í stjórn- inni): „Þaö eina sem ég man að viö stóöum fyrir var blysför á Þorláksmessu." Örn Guömundsson skólastjóri: Var á fundinum en veit ekki frekar en aör- ir hvar samtökin eru. Birgir Sigurösson rithöfundur: „Eg hélt aö ég heföi ekki veriö í þessum samtökum." Hrafn Gunnlaugsson kvikmyndaleikstjóri. í DV 6. október 1983 er sagt frá stofnun nýrra samtaka undir kjör- orðinu „Lífið er þess virði“. Stofn- fundurinn var haldinn í Kvosinni og fluttu Þorsteinn Ö. Stephensen, Nína Björk Ámadóttir og Stefán Benediktsson ávörp við þetta til- efni. Samtökin áttu að vinna með innlendum og erlendum friðar- hreyfingum að upplýsingaöílum og miðlun þeirra upplýsinga, svo eitt- hvað sé nefnt. Það var einnig kosin fimm manna nefnd, eða stjóm. í henni áttu þau Þorkell Sigur- bjömsson, Ágúst Guðmundsson, Helga Bachmann, Sigrún Guð- jónsdóttir og Viðar Eggertsson sæti. Horfin samtök Það kom fljótlega í ljós að erfitt var fyrir þá sem á myndinni (á síð- unni) voru, að muna eftir því að hafa nokkum tíma verið í þessum samtökum, og hvað þá að hafa mætt á fundinn og sötrað léttvín undir merkilegum ávörpum. Jafnvel þeir sem voru í stjóm félagsins höfðu ekki hugmynd um hvað varð um þessi félagasamtök. Einn þeirra er Þorkell Sigurbjörnsson tónskáld, en á þessum tíma var hann einnig for- seti Bandalags íslenskra lista- manna. „Við vorum náttúrlega bara áhugasöm um að halda friðinn," segir Þorkell og bætir því við að á þessum tíma hafi ákveðnir aðillar, Nató og aðrir, viijað eigna sér frið- inn og talið sig vera friðarhreyf- ingu, þrátt fyrir að vera það gagn- stæða. En hvað varð um samtökin? „Ég veit það ekki. Skömmu eftir þetta hætti ég í stjóm Bandalags is- lenskra listamanna og snéri mér að öðm. Það eina sem ég man að við stóðum fyrir var blysfór á Þorláks- messu og mig minnir að kór Hamra- hlíðarskóla hafi verið með í förinni. Annars veit ég ekki hvert samtökin hurfu.“ Sömu sögu er að segja af Birgi Sigurðssyni rithöfundi. Aðspurður um hvað hann sé að gera á þessari ljósmynd, segir hann að sig bresti minni. „Ég hélt að ég hefði ekki ver- ið í þessum samtökum!" Kannastu ekki samt við þá sem sitja við borðið hjá þér? „Jú. Þetta er stjórn Bandalags ís- lenskra listamanna. Á þessum árum var Þorkell forseti, Hrafn Gunn- laugsson var í stjóm fyrir kvik- myndagerðarmenn og ég fyrir rit- höfunda," segir Birgir og telur það vera skýringuna fyrir því af hverju þau sitja öll saman þarna á þessum stofnfundi. En veistu hvað varð um þessi samtök? „Ég veit ekkert um þau. Það get- ur vel verið að þetta hafi bara sprottið upp og horfið. Þau gufuðu bara upp.“ Utangarðsmenn og kjarnorkusprengjur Friörik Þór Friðriksson kvik- myndagerðarmaður er einn af mönnunum á myndinni. Hann situr hugsi í skjóli við súlu en á erfitt með að muna eftir því að hafa verið þama í Kvosinni. En þegar hann heyrir að Þorsteinn Ö. hafi flutt er- indi, þá minnist hann þess að hafa hlustað á hann. Svipaða sögu er að segja um Þorgerði Ingólfsdóttur kórstjóra. Hana rámar i að hafa ver- ið á þessum fundi og man þá helst eftir því að það var flutt verk eftir Svövu Jakobsdóttur. Önnur deili kann hún ekki á samtökunum og hefur ekki hugmynd um hvert þau hurfu. „Upp úr ‘81 voru friðarsamtök mikið í deiglunni," segir Friðrik Þór til útskýringar um hvaða fyrir- bæri Friðarsamtök listamanna vom. „Það var mikið í gangi þama á þessum árum. Mikil andstaða við kjarnorkuvá. Utangarðsmenn að spila og Herstöðvarandstæðingar mjög virkir. Ég man að ég skipu- lagði kvikmyndahátíð gegn kjarn- orkuvá,“ segir Friðrik og augljóst að sögumaðurinn man eftir stemn- ingunni sem var á þessum ámm. Það vom sem sagt allir í þessum friðarbransa? „Já. Anga af þessu má líka rekja til herstöðvarandstæðinga. Þeir vom á þessum tíma að þróast yfir í að vera friðarhreyfing. í Evrópu voru svona friðarsamtök mjög sterk, því þar vom ekki til neinir herstöð varandstæðingar. “ Og nú era þessar hugsjónir horfn- ar allar saman? „Nei. Hugsjónirnar eru ekki dauðar. Nú era Rússar að hugsa um að fara að miða kjamorkusprengj- um aftur á okkur út af Kosovodeil- unni. Þá munu þeir ekki bara miða á Keflavíkurflugvöll heldur einnig Reykjavíkurflugvöll og hann er nú héma rétt hjá mér,“ segir Friðrik að lokum. KRAFTMESTA OG HRAOVI NINTEfHQO LEIKJATÖLVAIHEIMI Elnföld I notkun (Barnavan) Aflmikll - 84 blta Rauntima - þrividd Englnn blðtiml. (Allt að 15 min í ððrum leikjatðlvum) Allt að 4 spllarar Besta lelkjatðlvan ‘98 i elnu UMBQOSMENN í.yj'a' Golden Eye 007, hæst dæmdi leikurlnn 1998 (98%) Margfðld endlng lelkja Um 80 leikjatltlar B R Æ Ð U R N I B 11 “ ORMSSC rágmúTo 8 *’ S í m i «3 28001 Reykfavfki Hegkavp. itnJmrn. Eiko, BT-teivur. Heimskrinjlawi, SAM-iánliít. Jap.'í. Vetturlend: Mðlningarbtónuptar., Akrenwl. Hltómsýn, Akrenest. Kf. Berqiirðirpa Borganest. Vesttirilr: Qetrseyjarbúðtn, Patreksftrðt. ■ 1 Ratverk, Bokingarvlk. Straumur. fsalirði. Norðurlanrt: Kt. Húnvetninga, BlðnduOsi. vershmln Hegrí, Sauíárkrókí, Hljðmver, Akureyrl. BOkvai, Akureyrí. Hagkeup Akureyri Oryggl. llúsavfk Suðurland: Aivífkinn, SeilDssi. I Arneeinge, Sello»l. Rá», Þorlákstiðffi Beykjanee: Ijáaboginn, Knllavik. Samkaup, Knilavik. 16 f Ó k U S 16. apríl 1999

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.