Dagblaðið Vísir - DV - 16.04.1999, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 16.04.1999, Blaðsíða 6
GSM viötaliö Ágúst Jakobsson er án efa víðförlasti kvikmyndatökumaður okkar íslendinga. Hann hefur unnið með ótrúlegustu stjörnum úti í hinum víða heimi við gerð músíkmynd- banda eða heimildarmynda og auk þess hefur hann verið upptökumaður á ólíklegustu ■ verkefnum. Hann er að vísu kominn heim og gerði Popp í Reykjavík í sumar og í síðustu viku var hann að Ijúka við að taka upp kvikmyndina Fíaskó í leikstjórn Ragnars Bragasonar. Fókus tók púlsinn á Gústa og kíkti aðeins á ferilskrá kauða. r ^ " Þórhildur Þorleifsdóttir. Camilla Parker Bowles. Sumir blómstra í menntaskóla og sfðan aldrei meir. Aðrir eiga sitt blóma- skeið enn fyrr - drottna yflr tólf ára bekknum og leggja alla þá í einelti sem ekki sýna þeim tilhlýðilega virðingu. Og enn aðrir blómstra seint á ævinni, skjótast upp á toppinn þegar ungt og efnilegt fólk er hætt að vera ungt og efni- legt og orðið miðaldra og þreytt. Þannig var það meö Camillu Parker Bowles. Hún beið þolinmóð í skugga Díönu. Hún vissi að þeim famast ekki vel sem tek- ur of mikið of snemma út af Gleöibankanum. Og hún hafði rétt fyrir sér. Nú er Camilla sú sem breska þjóðin elskar og hugsar hlýtt til. Þórhildur Þorleifsdóttir beið lika síns tíma. Hún vissi að ungir spútnikkar - eins og Viðar Eggertsson - springa á limminu. Og þegar það gerðist rann upp tími Þórhildar. Og eins og hjá Camillu er það tími þegar allir eru komnir á þann aldur að æskufegurð er einskis virði - aðeins gömul minning sem enginn vill rifja upp. Sigmar Guðmundsson fréttamaður í Sjónvarpinu Sigmar: Já (stuna). Fókus: Varstu sofandi? S.: Já. F.: Nú. Þetta er Fókus. S.: Blessaður. F.: Segirðu ekki allt gott? S.: Jú, jú. Þetta er bara frekar ókristi- legur tími. F.: Ertu uppi í rúmi. S.: Já. Ég ligg uppi í rúmi. Maður sefur yflrleitt í rúmi. F.: Áttu ekkert að vera í vinnunni? S.: Ég mæti ekkert fyrr en i hádeginu. Er á ellefufréttavakt. F.: Já. En hvað með ... S.: Ekki ertu að taka þetta upp? F.: Jú. Reyndar. S.: Alltaf í vinnunni? F.: Já. En þetta er ekkert háalvarlegt við- tal eða neitt svoleiðis. Bara smátilraun. S.: Þarf ég þá ekki segja neitt gáfulegt? F.: Nei, nei. Bara tveir vinir að spjalla. S.: Má ég þegja? F.: Nei. Ég er að tala við þig. S.: Já (geispar). F.: Ferðu upp í vinnu á eftir? S.: Já. F.: Hvað gerirðu? Tekur púlsinn á heim- inum og ferð svo og flnnur fréttir? S.: Já. Ég tek púlsinn á heiminum. Hringi í Madeline Albright og svona. Athuga hvort hún hafi verið að sprengja eitthvað í nótt. F.: En hvað á að gera um helgina? S.: Ég veit það ekki. Get ekki ákveðið það fyrr en ég er í það minnsta vaknaður. F.: Jæja. S.: En ætli ég slappi ekki af. En þú? F.: Bara vinna. Heyrðu, Inga Lind biður aö heilsa þér. S.: Já. Sömuleiðis. F.: Hlustarðu enn þá á X-ið? S.: Já. Ég geri það þegar ég er í bflnum. F.: Saknarðu strákanna? S.: Ég veit það nú ekki. Ætli þeir sakni mín ekki aðallega. Saknar þú þcirra? F.: Nei. Ég vann ekkert lengi þarna. S.: Heyrðu? Eigum við ekki að fara að hætta þessu? F.: Jú. S.: Þá fer ég aftur að sofa. F.: Já. S.: Heyrumst (sónn). Fyrst ég þoldi hálfl ár JUfl ilöS hlyti ég þola vi jneí) jíi>!jj2JJjj „Ég flutti út til LA ‘87 og byrjaði í Colombia Collage ‘88,“ segir Ágúst Jakobsson kvikmyndatökumaður og leikstjóri aðspurður um hvar þetta hefði allt saman byrjað. „Um leið og ég kom út byrjaði ég að vinna hjá Sigurjóni Sighvats- syni í Propaganda Films. Vann þar alla skólagönguna sem endaði með IVtA-prófi hjá American Film Institu- te ‘92. Mestan tímann var ég bara svona polli að hjálpa til. En fljótlega byrjaði ég að skjóta músíkmyndbönd fyrir litla og óþekkta leikstjóra þarna úti og það vatt síðan upp á síg. Að vísu hitti þannig á að fyrsta videoið mitt var með Guns N’ Roses,“ segir Gústi. Hann átti síðan eftir að vinna mik- ið með Guns N’ Roses í gegn um árin. Það var á hápunkti ferils þeirra. Þeg- ar Appitite For Destruction hafði selst í 12 milljónum eintaka, bara í Bandaríkjunum, og allt var í þvílíku rokki hjá þeim. Auk þess hefur Gústi unnið með ótrúlegasta fólkið að mjög merkilegum verkefnum. Listin er ótæmandi en hann hefur gert heim- ildarmyndir um TLC, Sikurmolana og svo hefur hann unnið með mönn- um á borð við F. Gary Gray (leik- stýrði m.a. Set It Of og Negotiator), Scott Calvert (leikstýrði m.a. Basketball Diaries), Dom & Nick (leikstjórar músikmyndbanda með Oasis, Supergrass og Chemical Brothers) og Janusz Kaminski (fékk óskarinn fyrir kvikmyndatöku á Sav- ing Privat Ryan og Schindlers List). En er samkeppnin ekki mikil þarna úti? „Jú. Það er geðveik samkeppni. Það eina sem kemur þér áfram er annað hvort að þekkja einhvern eða að vera óeðlilega heppinn. Ég var heppinn og mér var reddað um vinnu og í gegnum hana kynntist ég fólki sem var að vinna góða hluti. Dæmi um heppni er til dæmis þegar ég gerði myndbandið við Smells Like Teen Spirit með Nirvana. Þá vissi enginn hvaða hljómsveit þetta var en nokkrum vikum seinna var hún orð- in að stórveldi.“ Nú varstu aö vinna hjá ótrúlegum stæróum þarna úti, eru ekki brjálaóir peningar í þessu? „Þetta getur verið vel borgað ef maður er í góðum verkum. En það er hægt að flokka þetta eftir vissum flokkum fyrir kvikmyndatökumenn og leikstjóra. Myndböndin borga vel, auglýsingarnar betur og kvikmynd- imar mest.“ Á ekki heima hér „Ég var að vinna í mjög mörgum verkefnum þarna úti. Var líka aukatökumaður á nokkrum sjónvarpsþáttum og sjón- varpsmyndum. Movie of the Week og fleira slíkt. Það getur verið ágætt að vinna við slíka heila- lausa vinnu. Maður sest bara við mynda- vélina og myndar eitthvað," segir Gústi og bætir því við að auðvitað sé skemmtilegast að vinna þegar mað- ur ræður mestu. Það er mjög krefj- andi og skapandi að taka upp heila bíómynd og þurfa að vera með hvert einasta smáatriði á hreinu. En af hverju komstu heim? „Það eru margar ástæður fyrir því. Að- allega var það bara af því að ég og konan mín, Andrea Brabin, ákváð- um að taka okkur pásu. En þó ég hafi komið heim fyrir ári er ég búinn að vera sýnd. bönd og fleira slíkt.“ Ætlaróu út aftur? „Örugglega. Ég á ekkert heima hér þó ég hafi fæðst hérna. En ég veit ekkert hvenær ég fer út. Konan rek- ur fyrirtæki hér heima og kannski á maður bara eftir að vinna úti um all- an heim þó maður búi hér, ég veit það ekki.“ Hér heima hefuröu aóallega verið í aö taka upp auglýsingar, myndbönd fyrir erlendar hljómsveitir og fleira slíkt en auk þess gerðirðu Popp í Reykjavík. Ertu ánœgóur meö þá mynd? „Já. Ég er mjög ánægður með hana. Þetta var skemmtilegt verkefni en ég er kannski ekkert sérlega ánægður með aðsóknina. Enda held ég að fólk muni hvort eð er ekki fatta þessa mynd Rusty Cage meö Johnny Cash og Tom Petty - abaltökumaður. „Þetta er eitthvert stúdíóvídeó. Það er örugglega búið að gera fimmtíu svona vídeó. Tveir menn að spila og syngja í stúdíói, allt svart-hvítt og bara þetta klassíska. En þeir voru ótrú- lega skemmtilegir. Sérstak- lega Johnny Cash. Hann er ekta kúreki og lætur hattinn aldrei frá sér og klæðist bara svörtum fötum. Er líka mjög almennilegur náungi. fyrr en eftir frnim ár,“ segir Gústi. En hann var einnig að koma úr tökum á kvikmyndinni Fíaskó á dög- unum. Sú mynd er eflaust yngsta myndin sem frumsýnd verður á þessu ári. Leikstjórinn hefur ekki leikstýrt bíómynd áður og er yngsti leikstjórinn sem er í þessu braski hér heima og tökumaðurinn, Gústi, er sömuleiðis ekki einn af þessum sem vanalega eru í smóking við frumsýn- ingu á íslenskum kvikmyndum. Og meira að segja framleiðendurnir eru að framleiða sína fyrstu mynd og það veit því enginn við hverju má búast i september þegar Fíaskó verður frum- -MT Myndbandið Wanted Dead or Llve með Snoop Doggy Dog og Tupac Shakur - að- altökumaður. „Þetta var lag úr myndinni Grid- lock'd," útskýrir Gústi. „Þegar við gerðum þetta myndband var að visu búið að myrða Tupac og Snoop gerði myndbandið bara sjálfur en við vörp- uðum Tupac bara upp á vegg með myndvarpa. Þetta var svoldið væmið náttúrlega en Snoop var samt flottur meö alla Doberman-hundana sína og Rolls Royce-inn og fullt af negrum og stelpum í kringum sig.“ Hln ýmsu myndbönd með Nlrvana ásamt nokkrum tónlelkaferðum - aðal- tökumaður. „Það var alltaf skrýtið að vinna meö Nirvana. Þeir voru alltaf uppdóp- aðir og aldrei hægt að ræða neitt við þá. Svo ég segi eina góða sögu þá hringdi David Geffen einu sinni i mig og bað mig um að gera sér greiöa. Hann sagði að fyrst ég hefði þolaö tvö og hálft ár með Axi þá hlyti ég að þola eina viku með Kurt Kobain. Kurt var þá i Seattle og vildi ekki vinna með neinum leik- stjóra heidur leikstýra öllu sjálfur og var mjög erfiður. Þetta hefur ver- ið svona viku eða tíu dögum áður en hann drap sig - þessi saga hefur ekki góðan endi. En ég samþykkti að taka upp video með honum og nokkrum dögum áður en ég átti að fara til Seattle þá heyrði Tónleikaferð meb Guns N' Roses - allur helmurlnn, tvlsvar - leikstjóri og aöal- tökumaður „Ég var mjög mikið með þeim. Túraöi stanslaust I tvö og hálft ár. Fór um allan heim, tvisvar, og þetta var mikið „Rock N' Roll“ og eigin- lega er hægt að margfalda það með tíu. Þeir voru líka alltaf aö reyna að toppa allt sem gert hafði verið og þá sérstaklega það sem Rolling Stones höfðu gert. Ég varð vitni af þessu öllu þvl ég var að gera heimildarmynd um þá og þeirra lífstíl. En þaö skemmtilegasta sem ég gerði þarna var að einu sinni þegar Guns N' Roses voru í sánd- tjékki á Wemblay þá leyfði trommuleikarinn mér að taka trommusóló. Það var rosalegt. Ég var að vísu púaöur niður en þetta var hámarkið á trommuleikaraferlinum mínum," segir Ágúst en hann trommaði í S/H draumi áður en hann fór út til LA. að vinna erlendis og svo á ég fyrirtæki úti í LA ásamt nokkrum Japönum. Það fyrirtæki sérhæfir sig í upptökum fyrir Jap- ana. Þar eru gerð stór músikmynd- Tónlelkaferð með Beck - San Franclsco, Portland, Seattle og Vancouver - aðal- tökumaður „Beck er snillingur. Hann er líka búinn að gera tíu, fimmtán stuttmynd- ir sjálfur og þegar við gerðum þessa tónleika þá bað hann okkur alltaf að koma með sér til aö gera stuttumyndir á milli tónleika. Frábær náungi í alla staði og ótrúlegar pælingar hjá honum. Hann var alltaf að fá einhverjar fáránlegar hug- myndir og lét okkur taka upp í hvert skipti sem viö stoppuöum einhvers- staðar. Við vorum annars með sex kamerur þarna og ég man einu sinni að þá lét hann okkur taka sig upp þegar hann þóttist drepast í ein- hverjum smábæ. Svo á næstu tónleikum lagðist hann einu sinni á sviðiö og þóttist lifna við. Hann ætlaði að klippa það saman og var alltaf með einhverjar svona hugmyndir sem maöur fékk aldrei neinn botn í.“ 6 f Ó k U S 16. apríl 1999

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.