Dagblaðið Vísir - DV - 16.04.1999, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 16.04.1999, Blaðsíða 4
Verður O nafnið þitt á Expo ‘00 ■ kynnt landiækni að hann ætli ekki að vera í gagnagrunninum hans Kára. Full sæmd í því „Ég hef ekkert hugleitt það,“ seg- ir Sigmundur Guðbjamason, for- maður Mannverndar, og bætir því við að hann hafi farið á heimssýn- ingu og sjái í fljótu bragði ekkert athugavert við þetta. „Ef þetta eru bara nöfn íslendinga þá er mér full sæmd af þvl að vera á meðal þeirra." En þú ert samt búinn að draga þig út úr gagnagrunninum? „Já. Ég hef tilkynnt landlækni að ég viiji ekki vera í þessum gagna- gmnni en ég sé ekki hvernig það kemur þessu við.“ Hvað segirðu annars í fréttum af þessum nýju samtökum, Mann- vemd, um persónuvemd og rann- sóknarfrelsi? „Þau vora stofnuð í haust og starfið gengur ágætlega. Það er gott fólk að vinna innan þeirra en það er á brattann að sækja. En þetta eru virk samtök og ekkert meira um það að segja,“ segir Sigmundur Guðbjamason og bætir þeirri spurningu við hvort við eigum ekki að segja þetta gott. Með þeim orð- um leyfum við Sigmundi að halda baráttunni áfram. Eins og lesendum DV er eflaust kunnugt hefur verið ákveðið að láta Kára Stefánsson skaffa nöfn allra íslendinga til að hengja upp á World Expo '00 í Hannover, Þýskalandi. Enn hafa ekki fengist neinar upplýsingar um hver réttur þeirra sem kæra sig ekki um að hanga uppi á Expo ‘00 er. Það er kannski öllum sama um hvort nafnið þeirra hangi þarna en eflaust eru til einhverjir Islendingar sem skammast sín fyrir það og kæra sig ekki um aö hanga uppi á ýturvaxinni heimilissýningu í Þýskalandi. Eftirlitsmyndavélar í miðbænum eru stað- reynd. Við höfum fylgst með borgar- stjóranum opna þær með pomp og prakt og lögreglumenn hafa útskýrt fyrir fólki hvernig þær virka. Þær eiga að fylgjast með fylliríinu og glæp- unum í miðbænum, vera auga lögreglunn- ar og alltaf á upptöku - eins konar Robocop sem getur súmað og stækkað myndir eins og besta kvikmynda- upptökuvél. Fókus fór á stjá og athugaði hvernig það er að lifa undir eftirliti lögregl- unnar í Reykjavík. Þaö e iuei) „Vélin sér inn um svalahurðina hjá mér,“ segir Róbert G. Róberts- son, en hann býr á móti eftirlits- myndavélinni sem hangir utan á Hótel Borg. „Ég er á fjórðu hæðinni þannig að hún horfir upp til mín og ég get ímyndað mér að einhverjir i húsinu hafi þaö verra en ég.“ Róbert er einn þeirra sem segist ekki vera hlynntur stóra bróður sem slíkum en hann reynir að horfa já- kvætt á þessar vélar og vonar að lög- reglumennirnir misnoti ekki aðstöðu sína. „Ég get fullyrt að daginn sem vél- amar voru settar upp þá gjörbreytt- ist ástandið í miðborginni. Rúðubrot minnkuðu og lætin þögnuðu og subbuskapurinn minnkaði til muna,“ segir Róbert og bætir því við að auðvitað sé verið að ráðast inn á heimili hans og að einhverju leyti skerða réttindi hans á einkalífi. Helduröu aö vélarnar séu komnar til aö vera? „Já. Ég vona að þær séu komnar til að vera. Þetta er hlutur sem við þekkjum ekki og eigum eftir að venj- ast en ég kippi mér ekki upp við þetta og geng um stofuna á nærbux- unum ef mér sýnist. Enda hef ég ekki séð þá beina vélinni að íbúðinni minni þrátt fyrir að þeir geti það. Það er einmitt neikvæða hliðin á þessu. Að einhver perri geti fylgst með manni en ég verð bara að treysta því að það séu ábyrgir menn sem sitji yfir þessu niðri á Lögreglu- stöð.“ Það em að sjálfsögðu margar hlið- ar á þessu eftirlitsmyndavélakerfi. Löggan er hrifln af þessu, borgar- stjóri enn hrifnari en hvers eiga ein- staklingar, sem búa í miðbænum, að gjalda? Það er enn verið að setja upp myndavélar á nýj- um stöðum í bænum og í þessum mánuði er ráðgert að koma upp einni á Bókhlöðu- stíg. Þar býr Þorgeir Þorgeir- son í íbúð númer 6b. Honum líst engan veginn á þær fram- kvæmdir og telur að um lög- leysu sé að ræða. „Mér er ekki kunnugt um lög varðandi þessar vélar. Þetta er á mörkum persónunjósna og ætti ekki að líðast í siðuðu samfélagi." Aðspurður um hvort hann hygð- ist leita réttar síns hvað þetta mál varðar segir Þorgeir að ef lögreglan fari að líta eftir því hverjir heim- sæki sig fari hann að kanna það. Aðrir þeir sem vildu tjá sig um málið voru aftur á móti mishrifnir af því að búa í námunda við eftirlits- myndavél sem gat njósnað um þá á degi jafnt sem nóttu. Einn þeirra var Þráinn Gunnlaugsson, íbúi í Aðal- stræti, en eftirlitsmyndavélin sem hangir á gamla Morgunblaðshúsinu sér inn um stofugluggann hjá hon- um. „Það er hægt að leiða hugann hjá þessu,“ segir Þráinn, „en þetta er náttúrlega brot á friðhelgi heimilis- ins. Stóri bróðir er kominn á glugg- ann hjá mér.“ Þér líst sem sagt ekki vel á þessar „Nei. Þetta er líka bara partur af stærra dæmi og svo eru þessir lög- reglumenn algerlega eftirlitslausir. Ég held að þetta sé ekki sniðugt og alls ekki hollt fyrir þjóðfélagið," seg- ir Þráinn og bendir einnig á að þeir sem eigi að hafa eftirlit með lögregl- unni standi sig ekki. Þá á hann við fjölmiðlana og vill benda á að rannsóknarblaðamennska á ís- landi sé frekar slöpp og sinni ekki eftirlitsskyldu fiölmiðlanna. Helduröu að vélarnar séu komnar til aö vera? „Ég vona ekki. En við höfum örugglega hópa í þjóðfélaginu sem eru hlynntir þessu. Ég er annars eindregið á móti þess- um myndavélum og sú afsök- un að fólk sé á fylliríi i mið- bænum réttlætir ekki tilvist þeirra. En lögreglan vill fylgjast með fólki og koma \ veg fyrir að það fremji glæpinn. Þar er forsjár- hyggjan að verki og rétturinn er bara þeirra megin, jafnvel þótt það sé brotið á mér,“ segir Þráinn og ekki er laust við að hann sé frekar þungur á brún yfir að þurfa að hugsa sig tvisvar um áður en hann dregur gardínurnar frá stofuglugganum á sínu eigin heimili. • 1 Morgunblaðshusið • 2 Hótel Borg • 3 Austurstræti 3 • 4 Hafnarstræti 2 • 5 Lækjargata 1 • 6 Tollhúsið • 7 Hafnarhúsið • 8 Bókhlöðustígur • (er verið að setja hana upp) 4 f Ó k U S 16. apríl 1999

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.