Dagblaðið Vísir - DV - 01.05.1999, Blaðsíða 7
LAUGARDAGUR 1. MAÍ 1999
Umferðargetraun 4:
Hver á réttinn?
Enn efnum við til umferðarget-
raunar og eins og fyrri daginn
spyrjum við hvaða tveir bílar sem
sjást hér á teikningunni eigi rétt-
inn. Þetta er spurning um hvemig
ökumenn eiga að haga sér við viss-
ar kringumstæður. Hér em tvenns
konar gatnamót sýnd og nokkrir
kostir gefnir um það hverjir eigi
þarna forgangsrétt. Nú er það ykk-
ar, lesendur góðir, að skera úr um
það hvemig menn fara rétt að þess-
um hlutum.
Það eru Bifreiðar & landbúnaðar-
vélar sem gefa verðlaunin að þessu
sinni. Fyrstu verðlaun eru forláta
kvars-armbandsúr, með merki Land
Rover. Önnur verðlaun em lykla-
kippa og budda úr mjúku leðri,
merkt BMW, en þriðju verðlaun em
slæða með merki Land Rover.
Klippið þrautina úr blaðinu og
merkið x í réttan kassa. Skrifið
greinilega nafn og heimilisfang og
síma.
Lausnir þurfa að hafa borist fyrir
20. mai. Dregið verður úr réttum
lausnum.
Utanáskriftin er DV-bílar, Um-
ferðargetraun 4, Pósthólf 5380, 125
Reykjavík.
A og D áttu forgangsréttinn
Góð þátttaka var í umferðarget-
raun 3 sem birtist í DV-bílum 27.
mars síðastliðinn. Þar var spurt um
forgangsrétt í ákveðmnn tilvikum
þar sem skiptust á aðalbraut og
hliðargötur með umferðarmerkjum
sem túlka mátti sem biðskyldu-
merki og/eða merki um stöðvunar-
skyldu.
Um þessi efni eru umferðarlögin
alveg skýr. I fýrra tilvikinu, þegar
þurfti að gera upp á milli A og B,
ber B að bíða vegna þess að hann er
með umferðarmerki sem gefúr til
kynna biðskyldu eða stöðvunar-
skyldu á þessum gatnamótnm. Um
það segir svo í 25. grein umferðar-
laga:
„Ökumaður sem ætlar að aka inn
á eða yfir veg skal veita umferð öku-
tækja á þeim vegi úr báðum áttum
forgang, ef það er gefið til kynna
með umferðarmerki.“
í hinu tilvikinu ber C að veita D
forgang þar sem hinn síðamefndi
ætlar beint yflr gatnamótin. Um
þetta segir í sömu grein umferðar-
laganna:
„Þegar ökumaður ætlar að beygja
á vegamótnm ber honum að veita
forgang þeirri umferð sem á móti
kemur.“
Rétt svar í umferðargetraun 3 er
því A og D. Þeir eiga forgangsrétt.
Það var Toyotaumboðið á íslandi
sem gaf verðlaunin í umferðarget-
raun 3. Fyrstu verðlaun voru Cit-
izen-armbandsúr, önnur verðlaun
Cross-sjálfblekungur en þriðju verð-
laun hitabrúsi úr stáli og tveir boll-
ar með. Þegar dregið var úr réttum
lausnum komu upp eftirtalin nöfn:
1. Citizen-úr: Þorsteinn Ólason,
Víðihlíð 5, 550 Sauðárkróki.
2. Cross-sjálfblekungur: Ása
Sverrisdóttir, Huldugili 34, 603 Ak-
ureyri.
3. Hitabrúsi úr stáli og tveir boll-
ar: Sigurgeir Már Sigurðsson,
Fannafold 115,112 Reykjavík.
Verðlaunin verða send til vinn-
ingshafa.
Jóhann Gunnar Stefánsson og Páll H. Guðmundsson, eigendur Orku,
ásamt Snorra Snorrasyni, framkvæmdastjóra Snorra G. Guðmundssonar.
Orka og Snorri sameinast
„Snorri í glerinu" og Orka hafa
ákveðið að sameinast i eitt fyrir-
tæki og er stefht að því að form-
legri sameiningu ljúki á árinu.
Fyrirtækin hafa að verulegu leyti
selt vörur til bílaviðgerða, réttinga
og sprautunar og bæta að því leyti
hvort annað upp.
Orka ehf. er jafngömul lýðveld-
inu og var á sjötta áratugnum eitt
af stærri fyrirtækjum landsins og
flutti inn fjölda vöruflokka, allt frá
alls konar smávöru upp í Fiat og
Jaguar-bíla. Fyrirtækið hefur nú í
mörg ár selt DuPont bílalakk og
flest verkefni til bílamálunar og
réttinga. Ennfremur álprófila,
smurolíur, Champion veghefla,
snjótennur á bíla og ýmislegt
fleira. Eigendur eru Jóhann Gunn-
ar Stefánsson og Páll H. Guð-
mundsson.
„Snorri í glerinu" - fullu nafni
Snorri G. Guðmundsson ehf. heitir
eftir stofnandanum, Snorra G,
Guðmundssyni, sem stofnaði það
árið 1946 og enn er aðaleigandi. í
fyrstu flutti fyrirtækið inn ýmiss
konar vaming en fór um 1953 að
sérhæfa sig í bílrúðum sem hefur
verið meginstarfssvið fyrirtækis-
ins síðan, frá Pilkington/Arva og
Velas, auk þess sem fyrirtækið
rekur sitt eigið ísetningarverk-
stæði fyrir bílrúður. Jafnframt
flytur fyrirtækið inn bílrúðulista
og smellur, margvislegar efnavör-
ur, verkfæri, bremsuvörur, kúp-
lingar og viftureimar.
Eigendur fyrirtækjanna sjá
beinan hag í því að sameina fyrir-
tæki sem eru að stofni til með svo
skyldan rekstur, ekki síst hvað
snertir sölukerfið. Áformað er að ■
flytja meginstarfsemi sameinaðs |
fyrirtækisins í sameiginlegt hús-
næði fyrir lok ársins en nota nöfn
beggja fyrirtækjanna áfram. -SHH
'hflar,
Umferðargetraun 4
Bilastæði
3 I-------1
Hverjir eiga forgangsrétt ?
Umferðargetraun 3
r
í F 3 I I I I I I I I I
■ , ■ I i \
Hverjir elga forgangsrétt? Hér eiga A og D forgang. Um þetta segir í 25. gr. umferðarlaga: Okumaöur sem ætlar aö aka
inn á eöayfír veg skal veita umferö ökutækja á þeim vegi úrbáöum áttum forgang, ef þaö ergefíö til kynna meö
umferöarmerki. Og síðar: Þegar ökumaöur ætlar aö beygja á vegamótum ber honum aö veita forgang þeirri umferö
sem á móti kemur.
1. verðlaun: Armbandsúr.
Eftir rúma viku:
Glæsileg sportbfla-
sýning
- fyrirhugaðri sýningu í Mosfellsbæ
frestað
Eins og flestir lesendur DV Bíla hafa ef-
laust tekið eftir þá hefur verið hljótt um
sportbílasýninguna sem fyrirhugað var
að halda í nýju og glæsilegu iþróttahúsi
Mosfellinga um þessa helgi og sagt var frá
fyrir nokkru.
Ekkert verður af þessari sýningu, að
sinni að minnsta kosti, því henni hefur
verið frestað um ár að sögn Ólafs
Tryggvasonar, eins þeirra sem hugðist
standa fyrir þessari sýningu, þar sem
gestir áttu kost á því að hljóta Porsche
Boxter sportbU í verðlaun.
„Við tókum ákvörðun um að fresta sýn-
ingunni vegna þess að það gekk ekki upp
að halda tvær svona sýningar með svo
stuttu millibili", sagði Ólafur, „en eftir
tæpar tvær vikur hefst í Laugardalshöll-
inn stór og mikU sportbUasýning þar sem
gefur að líta marga glæsivagna bæði inn-
lenda og erlenda og var það samkomulag
okkar og þeii'ra sem standa fyrir þessari
sýningu að við myndum fresta okkar sýn-
ingu“.
Undirbúningur sýningarinnar í Laug-
ardalshöUinni er kominn vel á veg og þar
munu verða sérinnfluttir sportbUar sem
aldrei hafa sést áður hér á landi, auk þess
sem bUaumboðin munu sýna þá sportbUa
sem þau hafa upp á að bjóða.
MeðaLannarra bUa sem fluttir verða tU
landsins er Ferrari keppnisbUl Michael
Schumachers frá því á síðasta ári. og mun
hann tróna efst á stalli í hópi aflmestu og
failegustu sportbfla sem snertagötur þessa
lands, eins og segir á vefsíðu sýningarinn-
ar, www.bUasyning.com. Einnig munu
verða þarna tU sýnis margir af bestu
sportbUum landsins í einkaeigu.
Þessi mikla sportbílasýning hefst
flmmtudaginnl3. maí, á uppstigningardag
og stendur fram tU sunnudags, 16. maí.
DV mun gera þessari sýningu góð skil
í sérstöku aukablaði um sýninguna sem
kemur út miðvikudaginn 12. maí. -JR
2. verðlaun: Lyklaveski úr
mjúku leðri.
3. verðlaun: Slæða.
Verið velkomin í verslun okkar par sem
við bjóðum upp á mikið úrval aukahluta
fyrir jeppa. Alltaf heitt á könnunni!
MALARHÖFÐI 2-110 REYKJAVIK ■ SIMI 577 4x4