Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.1999, Blaðsíða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.1999, Blaðsíða 30
34 FIMMTUDAGUR 10. JÚNÍ 1999 Afmæli____________________ Jón Haukur Hauksson Jón Haukur Hauksson hdl, Kala- stöðum, Hvalfjarðarstrandarhreppi, er fertugur í dag. Starfsferill Jón Haukur fæddist í Reykjavík. Hann lauk stúdentsprófi frá MR 1979, stundaði nám í dýralækning- um við Edinborgarháskóla 1979-81, lauk embættisprófi í lögfræði frá HÍ 1987 og öðlaðist hdl.-réttindi 1990. Jón Haukur var fulltrúi hjá bæj- arfógetanum í Kópavogi 1987, full- trúi á lögmannsstofu Atla Gíslason- ar hrl. og Magnúsar M. Nordahl hdl. í Reykjavík 1988-94. Jón Haukur stofnaði eigin lögmannsstofu á Akranesi 1994 sem sér um almenn lögmannsstörf og hefur starfrækt hana þar síðan. Jón Haukur var stjórnarmaður í ferðaklúbbnum 4x4, Vesturlands- deild, í þrjú ár, var formaður ung- mennafélagsins Vísis á Hvalfjarðar- strönd 1995-97, hefur setið í barna- verndarnefnd Hvalfjarðarhrepps frá 1994 og er formaður bygginganefnd- ar vegna iðnaðarlóðar Norðuráls á Grundar- tanga. Fjölskylda Jón Haukur kvæntist 26.3. 1983 Ástu Jenný Magnúsdóttur, f. 26.12. 1960, húsfreyju. Hún er dóttir Magnúsar Stefáns- sonar, f. 3.11. 1920, bónda á Kalastöðum, og k.h., Sigríðar Jensdóttur, f. 8.11. 1922, húsfreyju. Böm Jóns Hauks og Ástu Jennýjar eru Elísabet Ósk, f. 23.9. 1983, nemi; Katrín Lilja, f. 19.7. 1987; Haukur Páll, f. 28.7.1989, nemi. Bræður Jóns Hauks eru Heimir Hauksson, f. 22.8. 1952, kerfisfræð- ingur í Awali á Bahrain við Persaflóa; Reynir Hauksson, f. 5.8. 1957, leiðsögumaður og þýðandi, bú- settur á Seltjarnamesi. Foreldrar Jóns Hauks: Haukur Jónsson, f. 29.12. 1921, d. 29.6. 1980, hrl. í Reykjavík, og Guðrún Lilja Þórólfsdóttir, f. 17.8. 1924, d. 8.2. 1987, húsmóðir. Ætt Haukur var sonur Jóns, b. á Hafrafelli í Skutuls- firði og síðar á Ásfelli í Innri-Akraneshreppi Guðmundssonar, b. á Skarði í Bjarnarfirði og á Gautshamri í Steingríms- firði Jónssonar, b. á Kleif- um Pálssonar. Móðir Guðmundar var Rósa Andrésdóttir. Móðir Jóns á Hafrafelli var Halldóra Sigríður Halldórsdóttir, vinnumanns í Mið- húsum í Reykhólasveit Jónssonar. Móðir Hauks hrl. var Kristín Ele- onora, systir Sveins á Góustöðum, föður Ólafs, yflrlæknis á Sauðár- króki, Guðmundar, framkvæmda- stjóra Netagerðar Vestfjarða, Gunn- ars, fyrrv. kaupfélagsstjóra i Kefla- vík, og Þorsteins, fyrrv. kaupfélags- stjóra á Egilsstöðum. Kristín var dóttir Guðmundar Helga, útvegsb. og sýslunefndarmanns á Hafrafelli Oddssonar, b. á Hafrafelli Tyrfings- sonar. Móðir Kristínar var Ólöf Sveinsdóttir, b. á Kirkjubóli í Skut- ulsfirði Sölvasonar. Móðir Ólafar var Ólafia Guðmundsdóttir, b. í Arnardal Pálssonar, af Arnardal- sætt. Guðrún Lilja var dóttir Þórólfs, b. í Litlu-Ávík Jónssonar, lausamanns í Kjós í Víkursveit Björnssonar, b. á Klúku í Bjamarfirði Björnssonar, í Guðlaugsvík Björnssonar. Móðir Björns í Klúku var Sigríður Gísla- dóttir. Móðir Jóns var Kristín Jóns- dóttir, pr. á Prestsbakka Jónssonar. Móðir Þórólfs í Litlu-Ávik var Pálína Guðmundsdóttir. Móðir Guðrúnar Lilju var Jó- hanna Guðbjörg Jónsdóttir, b. í Litlu-Ávík Magnússonar, b. í Ing- ólfsfirði Jónssonar. Móðir Jóns í Litlu-Ávík var Guðbjörg Jónsdóttir. Móðir Jóhönnu Guðbjargar var Jó- hanna Magnúsdóttir, b. á Krossa- nesi Guðmundssonar. Jón Haukur Hauksson. Fréttir Ágreiningur um refaveiði hjá ísaQarðarbæ: Gera refaveiði að skrifstofustarfi - segir Finnbogi Jónasson, refaskytta og harðfiskverkandi DV, ísafirði: ísafiarðarbær hefur gert samn- inga við fióra aðila um eyðingu refa og minka í sumar og gert er ráð fyr- ir að samið verði við þrjá menn til viðbótar um eyðingu þessara dýra í landi bæjarins sem liggur að frið- lýstum svæðum á Homströndum. Þá er nú borgað fast gjald fyrir refa- veiði vestan ísafiarðardjúps í stað skiiagjalds á hvert unnið dýr og er upphæðin 800 þúsund krónur. “Það er skítalykt af þessu máli,“ segir Finnbogi Jónasson, harðfisk- verkandi á ísafirði, sem um árabil hefur stundað refaveiðar og er mjög óhress yfir hvemig staðið hefur ver- ið að ráðningu þessara manna. „Undanfarin ár hafa verið borgaðar 7 þúsund kr. fyrir hverja skotna fullorðna tófu og 1600 krónur fyrir yrðlinga, en minna fyrir mink. Nú virðast ekki vera neinir hæfir menn á Vestfiörðum tO að vinna þessi verk. Bæjaryfirvöld vilja helst nota aðkomumenn í allt og væla svo yfir atvinnuleysi. Það hafa staöið yfir samningar við tvo menn um refa- veiði síðan í haust með mikilli leynd og enginn hefur mátt vita af þessu. Það var heldur ekkert aug- lýst. Minkaveiðin var auglýst og í hana ráðnir menn úr Kópavogi. Það virðist því ekki vera um annað að ræða, ef ég ætla að stunda svona veiði í þessu byggðarlagi, en að flytja lögheimili mitt suður." Gera refaveiðina að skrif- stofustarfi „Núna er borgað fast gjald fyrir refaveiðina og mér skilst að þessir menn þurfi ekki lengur að skila skottum, heldur bara skýrslum sem er þá væntanlega best að gera inni á einhverri skrifstofu. Þessi fasta upphæð er miklu hærri en greidd hefur verið undanfarin ár. Senni- lega þarf svona mikið ef á að gera refaveiðina að skrifstofustarfi." Finnbogi segir samt að þeir menn sem voru ráðnir séu ágætar refa- skyttur. “Ég. hef ekkert út á.þá að-setja þó ég sé ósáttur við hvernig staðið er að hlutunum. Málið er bara það, að ef menn vilja fá vinnu hjá ísafiarð- arbæ, verða þeir að vera skráðir i Hafnarfirði, Kópavogi eða Reykja- vík. Ef maður spyr um þessi mál hjá bænum verða menn reiðir og ásaka mann um afskiptasemi og dóna- skap.“ Svæðið innan bæjarmarka ísafiarðarbæjar sem um ræðir er æði víðfemt. Það nær frá Langanesi í Arnarfirði að vestan að landi Bol- ungarvíkur og Súðavíkurhrepps að austan. Að auki er Snæfiallaströnd- in austan ísafiarðardjúps, frá landa- merkjum Hólmavikurhrepps að sunnan og að friðlýstu svæði Horn- stranda að norðan. Að sögn Þorleifs Pálssonar, starfandi bæjarstjóra, er auk þess haft samráð um eyðingu refa og minka við Bolungarvík og Súðavík og bætist þá við svæðið vestanvert við ísafiarðardjúp, frá Skálavík í norðri og að botni ísa- fiarðar í suðri. Lakur árangur undanfarin ár Þorleifur sagði að árangurinn undanfarin ár hefði ekki verið nógu góður og því verið farin sú leið að semja beint við tvo menn um refa- veiðina, þá Val Richter frá ísafirði og Arnfinn A. Jónsson úr Hafnar- firði, sem er Dýrfirðingur að upp- runa. Undanfarin ár hefur svæðinu vestan ísafiarðardjúps að Arnarfirði verið skipt á milli nokkurra aðila, en verður nú í höndum 2ja manna. Þá var samið við feðga frá Kópavogi um eyðingu á mink í landi Isafiarð- arbæjar og Súðavíkurhrepps, en þeir hafa yfir 5 minkahundum að ráða. Sagði Þorleifur að í ísafiarðar- bæ væru engir sem hefðu slika hunda. Það væru 2 menn í Bolung- arvík með hunda sem sinntu Bol- ungarvík og þá bæði með eyðingu á ref og minki. Varðandi svæðið austan ísafiarð- ardjúps, sem liggur að friðlandinu á Hornströndum, sagði Þorleifur að mælt hefði verið með ráðningu sömu manna og í fyrra. Þeir yrðu væntanlega bæði ráðnir til refa og minkaveiða. Það eru Sigurjón Hall- grímsson frá ísafirði, Ragnar Jak- obsson úr Bolungarvík og Jónas Helgason úr Æðey. Heimamenn hafa verið hvattir til að koma sér upp minkagildrum á afmörkuðum svæðum síðla sumars og yfir vetur- inn. Gildrur hentuðu ekki yfir sum- artímann þegar got stendur yfir og þá yrði að notast við hunda. Hann sagði að það ætti alls ekki að þurfa að koma til neinna árekstra á milli þeirra sem væru annaðhvort með gildrur eða hunda. Það gæti vel gengið hlið við hlið. -HKr. Finnbogi Jónasson, refaskytta og harðfiskverkandi á ísafirði. DV-mynd Hörður DV Til hamingju með afmælið 10 júní 95 ára Guðbjörg Guðmundsdóttir, Kleppsvegi 64, Reykjavík. 90 ára Sverrir Sigurðsson, Bakkavör 28, Seltjarnamesi. 80 ára Eyrún Normann, Torfufelli 35, Reykjavík. 75 ára Helgi Runólfsson, Borgarbraut 35, Borgarnesi. Sigríður Gestsdóttir, Njörvasundi 12, Reykjavík. Unnur Benediktsdóttir, Ásenda 9, Reykjavik. 70 ára Arnbjörg Sæbjörnsdóttir, Tjarnargötu 31, Keflavik. Áslaug Sólveig Stefánsdóttir, Bjamarstíg 7, Reykjavík. Erla Kristjánsdóttir, Hjallalandi 22, Reykjavík. 60 ára Auður Ólafsdóttir, Ekru, Eyjafiarðarsveit. Erla Guðríður Líndal, Þinghólsbraut 8, Kópavogi. Sigríður Guðmundsdóttir, Svalbarði, Svalbarösstrandarhreppi. Sólveig Stefánsdóttir, Miðsitju, Akrahreppi. 50 ára Aðalsteinn Jónsson, Víðivöllum, Hálshreppi. Anna Stefanía Wolfram, Melási 3, Garðabæ. Guðbjartur Ásgeirsson, Urðarvegi 33, ísafirði. Ingibjörg Helgadóttir, Klyfiaseli 11, Reykjavik. Kristjana HaUgrímsdóttir, Túngötu 8, Grenivík. Ragnar Gunnarsson, Mímisvegi 12, Dalvík. Sigrún Einarsdóttir, Hesthömrum 2, Reykjavík. Þorbjörg B. Gunnarsdóttir, Breiðvangi 6, Hafnarfirði. Þóra Emilía Ármannsdóttir, Nesvegi 55, Reykjavik. 40 ára Brynhildur Björg Jónsdóttir, Einigmnd 19, Akranesi. Daníel Einarsson, Bjarnarvöllum 12, Keflavík. Einar Arnarson, Glerá I, Akureyri. Finnbogi Gunnlaugsson, Snælandi 8, Reykjavík. Guðný Bergvinsdóttir, Víðimýri 12, Akureyri. Guttormur Bjarnason, Skálholti, Biskupstungnahreppi. Jón Haukur Hauksson, Kalastöðum I, Akranesi. Óskar Jafet Hlöðversson, Dalbraut 1, Reykjavík. Petrína Helga Ottesen, Heiðarbraut 47, Akranesi. Tómas Atli Ponzi, Bjarnarstíg 3, Reykjavík.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.