Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.1999, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.1999, Blaðsíða 14
4 Ungu -leik Katie Holmes Katie Holmes, sem leikur Claire, fæddist og ólst upp í Toledo í Ohio. Hún byrjaöi í leik- listarskóla meö fram því sem hún stundaði mennta- skólanám. Snemma fór hún aö stunda módel- störf og þaö var viö slík störf sem virtur umboðsmaður leikara tók hana upp á sína arma og kom henni í sjónvarpið. Þar hlaut hún fast hlut- verk í vinsælli sjónvarps- eríu, Dawson Creek, sem sýning- ar eru aö hefjast á hér á landi. Hefur þessi þáttaröö fengið góðar viðtökur. Hennar fyrstu kvik- myndahlutverk voru i The Ice Storm og Disturbing Behavior. Nýlega lauk hún við að leika í Killing Mrs. Tingle, sem er fyrsta kvikmyndin sem handritshöfund- urinn Kevin Wiliamson (Scream, I Know What You Did Last Sum- mer) leikstýrir. á kreik Brendan Fraser, Rachel Ticotin og John Hannah í múmíuleit. Jay Mohr Jay Mohr var heppinn þegar hann fékk sitt fyrsta hlutverk í kvikmynd á móti Tom Cruise í Jerry Maguire. Þangað kom hann úr hinni vinsælu sjónvarpsseríu Saturday Night Live, þar sem hann þótti oft fara á kostum í eftirhermum. Auk Jerry Maguire hefur Jay Mohr leikið í The Mafia þar sem grín var gert að Guðföður-seríunni, Picture Perfect, Small Soldiers og Playing by Heart þar sem hann leikur ungan deyjandi mann á móti Sean Connery og Gillian Anderson, þá má sjá hann meðal fjölda annarra þekktra leikara í 200 Cigarettes sem sýnd er í Há- skólabíói. Sarah Polley Þeir sem séð hafa hina frá- bæru kvikmynd Atom Egoyan, The Sweet Hereafter, eiga auð- velt með að muna eftir Sarah Polley. Þar sýndi hún í erfiðu hlutverki að miklu má búast við af henni í framtíð- inni. Áður hafði Egoyan notað hana 1 Exotica. Þá lék hún í kvikmynd David Cronenbers, eXistenZ sem Laugarásbíó hefur sýnt að undan- förnu. PoUey hef- ur þó aðaUega leikið í sjónvarpi, meðal annars í verðlaunaseríunni Avonlea. Sarah Polley kom fyrst fram átta ára gömul í aðalhlutverki í sjón- varpsseríunni Ramona og níu ára lék hún í The Adventures of Bar- on Munchausen. Scott Wolf Scott Wolf hefur undanfarin fimm ár leikiö í hinni vinsælu sjónvarpsseríu Party of Five sem Stöö tvö sýnir. Með fram leik í ser- iunni hefur hann leikið í nokkrum kvikmyndum, sjónvarpsmyndum og auglýsingum og var búinn að leika í nokkur ár áður en Party of Five kom til. Þekkt- ustu kvikmyndir sem Wolf hefur leik- ið í eru The Even- ing Star, sem er framhald Terms of Endearment, og White Squall, þar sem hann lék einn af strákunum sem Jeff Bridges tók með í örlaga- ríka siglingu. Árið 1719 fyrir Krist á sér stað í egypsku borginni Thebes ástarsam- band milli æðstaprestsins Imhotep og Anck-Su-Namun, sem er hjá- kona faraósins. Þetta samband er fordæmt að eilífu þegar upp um það kemst. Anck-Su-Namun fremur sjálfsmorð en æstipresturinn flýr til borgarinnar Hamunaptra, borg- ar hinna dauðu, þar sem hann leit- ar ásjár guðanna. Þar eru lögð þau örlög á hann að hann skuli vera ódauðlegur og grafast lifandi í múmíuklæðum. Neðanjarðar mun hann síðan geta fylgst með rotnun líkama síns, sem verður mjög hæg- fara. Ekki á hann sér undankomu auðið fyrr en einhver finnur hann og losar hann úr prísund sinni. Ef það gerist mun kraftur hans aukast dag frá degi... Þetta er forspilið að The Mum- my, sem forsýnd verður um helg- ina á þremur sýningum. The Mum- my, sem er fyrsti stóri sumarsmell- urinn í Bandaríkjunum og hefur þegar halað inn 146 milljónir doll- ara, er gerð eftir klassískri kvik- mynd frá árinu 1932 sem ber sama nafn. í henni lék Boris Karloff múmíuna. í nútímaútgáfunni er tit- ilhlutverkið leikið af Arnold Vos- loo sem meðal annars lék Darkman í samefndum kvikmyndum. í aðal- hlutverkunum eru Brendan Fra- ser, Racel Ticotin og John Hannah sem er að spreyta sig i fyrsta sinn í amerískri stórmynd. Hin upprunalega The Mummy var sú fyrsta af fjölmörgum múm- íumyndum sem gerðar hafa verið og voru einkar vinsælar á fimmta áratugnum. Meðal múmíumynda frá þessum árum má nefna The Mummy’s Hand (1940), The Mum- my’s Tomb (1942), The Mummy’s Ghost (1944) og The Mummy’s Curse (1945). Tuttugu árum síðar endurlífgaði breska kvikmyndafyr- irtækið Hammer múmíuhefðina í kvikmyndum á borð við Curse of the Mummy’s Tomb (1964), The Mummy’s Shroud (1966) og Blood from the Mummy’s Tomb. í þessum kvikmyndum léku aðalhlutverkin stórstjörnur Hammers, Christo- pher Lloyd og Peter Cushing. Söguþráðurinn í The Mummy eftir að forspilinu lýkur er hefð- bundinn múmíusaga þar sem tveir ævintýramenn finna rústir hinnar helgu borgar Hamunaptra, en hugsa ekki mikið um sögu borgar- innar. Nokkrum árum síðar eru upplýsingar þeirra félaga góð sölu- vara til björgunar lífi þeirra. Leið- angur er gerður út til að fmna mik- inn fjársjóð sem á að vera falinn í bíódómur Háskólabíó - Perdita Durango ★ ★ Ofbeldi ofbeldisins vegna Leikstjórl: Álex de la Iglesla. Handrlt: Álex de la Iglesla, Jorge Guerrlca og Davld Trueba. Kvlkmyndataka: Flavlo Martínez Lavlano. Tón- list: Slmon Boswell. Aðalleikarar: Rosle Perez, Javier Bardem, James Gandolflnl og Scream- ing Jay Hawklns. Ekki hef ég séð fyrri tvær mynd- ir spánska leikstjórans Álex La Ig- lesia, Acción Mutante og E1 día de la bestia, en veit að hann er mikils metinn í heimalandi sínu. Ef þess- ar tvær myndir eru eitthvað í lík- ingu við Perdita Durango þá tel ég mig ekki hafa misst af miklu. Þó grunar mig að með þessari þriðju kvikmynd hans, og þeirri fyrstu þar sem enska er töluð, þá hafi hann leitað í smiðju Quentins Tar- antinos og Roberts Rodriques og sé í raun að bjóða sig fram í Hollywood. í mörgum atriðum gæt- ir áhrifa frá þessum meisturum of- beldis. Gallinn er bara sá að La Ig- lesia kann sér ekki hóf og þvi virk- ar ekki hið mikla ofbeldi sem er kjarni myndarinnar og ég hafði það oft á tilfinningunni að tilgang- urinn væri ekki að gera metnaðar- fulla kvikmynd um hið flókna eðli mannsins, eins og margt bendir til í handritinu, heldur eingöngu að reyna á þolrifin í mannskepnunni hvað varðar tilgangslaust ofbeldi. Aðalpersónurnar eru tvær, titil- persónan Perdita Durango (Rosie Perez) er kona sem alist hefur upp í öngstrætum stórborga, selur sig þegar hana vantar pening og er til- búin að drepa sér til ánægju. Reynt er að afsaka framferði Durango með atriðum úr fortíðinni og þannig má kannski finna skýringu á hugarfarsbreytingu hennar í lok- in, en langsótt er það. Ef grimmd Perditu hefur verið bæld þá fær hún útrás þegar hún tekur höndum saman við hinn alræmda Romeo Dolorosa (Javier Bardem), sem er með FBI á hælum sér. Romeo er ekki aðeins samviskulaus ræningi og morðingi heldur stundar hann svartagaldur þar sem fóm er há- punkturinn. Segja má að þegar sem forsýnd verður um helgina á þremur sýningum í sam- vinnu við Fókus, var fyrsti stóri sumarsmellurinn í Bandaríkjunum og vék ekki úr efsta sæti aðsóknarlist- ans fyrr en Stjörnustríðsmynd Lucasar var frumsýnd. hinni helgu borg, en eins og ætla má þá fylgir íjársjóðnum óvæntur fundur, múmía sem hefur allt ann- að í huga en að láta grafa sig aftur lifandi. Það sem The Mummy hefur fram yfir forvera sína er fyrst og fremst tæknin sem er beitt á áhrifamikinn máta og gerir myndina að miklu sjónarspili. Leikstjóri The Mummy, Stephen Sommers, skrifar einnig handritið. Eftir að hafa lokið háskólanámi, bæði í Bandarikjunum og á Spáni, gerðist Sommers leikari með leik- hópum, auk þess sem hann vann að því að koma rokkhljómsveitum á framfæri í Evrópu. Við þetta starf- aði hann í fjögur ár. Leið hans lá síðan til Los Angeles þar sem hann innritaðist í kvikmyndaháskóla og dvaldist þar næstu þrjú árin. Stutt- mynd sem hann gerði á skólaárun- um, Perfect Alibi, vakti athygli á honum og í kjölfarið var honum falið að skrifa handritið og leik- stýra nýrri útgáfu af Stikilsbeija- Finni með Elijah Wood og Jason Robards í aðalhlutverkum. Næstu tvær kvikmyndir hans voru The Jungle Book og spennumyndin Deep Rising með Treat Williams í aðalhlutverki. Áður en hann tók til við gerð The Mummy skrifaði hann handrit og framleiddi fyrir sjónvarp Oliver Twist þar sem Eli- Romeo tekur Perditu upp á sina arma hitti skrattinn ömmu sína. Allt þar til skötuhjúin ákveða að ræna tveimur ungmennum er tals- verður kraftur í myndinni, hraði mikill og skondnar persónur koma til skjalanna. En um leið og ákvörðun er tekin um ránið, þar sem öðru ungmenninu á að fóma á altari svartagaldursins, þá fer myndin að missa flugið. Ekki era ungmennin tvö aðeins óþarfar per- sónur i myndinni, og hundleiðin- legar að auki, heldur fer La Iglesis þá leið að láta allt snúast um þau. Og eftir það sem á undan er gengið og hversu leiðinleg ungmennin eru þá er erfitt að trúa því að samvisk- an fari allt í einu að trufla Perditu og Romeo þeirra vegna. Rosie Perez er Hollywoodstjarna og hefur yfirleitt verið góð í kjaft- forum hlutverkum en stimdum er eins og henni ofbjóði og virkar hún ekki sannfærandi. Það er aftur á móti spánski leikarinn Javier Bar- dem í hlutverki Romeos sem fer á kostum og skapar einhverja ógn- vænlegustu persónu sem lengi hef- ur sést. Þá er vert að geta góðrar frammistöðu James Gandolfini í hlutverki þrjósks FBI-löggu, sem ávallt stendur uppréttur eftir ýms óhöpp, svo ekki sé meira sagt. Hilmar Karlsson 14 f Ó k U S 2. júlí 1999

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.