Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.1999, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.1999, Blaðsíða 16
Stuttm y n d a dagar í Hafnar- Qarðai^ borg Jóhann og Stefán búa í Hafnarfjaröar- borg og sjá um Stuttmyndhátíðina. Stuttmyndahátíö Hafnarfjarð- . arborgar verður haldin í Bæjar- bíói, Hafnarijarðarbæ, á föstu- daginn eftir viku, 9. júlí. Það eru að sjálfsögðu vegleg verð- laun í boði. Hundrað þúsund kall fyrir bestu myndina en að- eins 15 myndir verða sýndar á hátíðinni. „Myndimar mega vera há- mark 20 mínútur,“ segir Jóhann Guðlaugsson, annar fram- kvæmdastjóri stuttmyndadag- anna. Hvað, er Hafnarfjörður orðinn * að borg? „Nei, nei. Ég segi það nú ekki. Þetta er bara stafsetningarvilla í fréttatilkynningunni. Eða kannski ekki stafsetningarvilla heldur bara eitthvað sem kom upp þegar við vorum að ræða um að halda þessa stuttmynda- hátíð.“ En er Hafnarfjörður aðalstað- urinn á landinu? Já, hiklaust. Hann hefur alltaf verið það og það munaði engu hér á árum áður að Hafnarfjörð- ur yrði höfuðborgin. Þá væri nú aðeins skrýtnara að vera íslend- ingur.“ Það er samt enginn hroki í „ ykkur, er það? „Nei, ekkert of mikill. Það mega allir taka þátt hjá okkur þó þetta sé Stuttmyndahátíð Hafnarfjarðarborgar. Þú mátt vera Tyrki þess vegna. Bara að koma upp í verslunarmiðstöðina Fjörðinn og fyUa út umsókn." Hvernig leistu eiginlega út áður en þú byrjaðir að æfa? „Ég var mjó. Fjörutíu og níu kíló og einn sextiu og níu sentimetrar á hæð.“ Nú ertu komin á fertugsaldur- inn. Hvað ætlar þú að nenna að standa í þessu vaxtarræktar- stússi lengi? „Ég er seig og á örugglega eftir að keppa til fertugs. Svo er ég líka naut. Og nautsterk." En ert samt meira fyrir vaxt- arrækt heldur en kraftlyftingar? „Já. Ég tók aðaliega þátt í keppn- inni Sterkasta kona íslands vegna þess að ég var beðin um það. Ég þyki skemmtilegur keppandi og var mikið notuð til að auglýsa keppnina." Ertu á lausu núna? „Njah. Eiginlega ekki. Ég á lett- neska vinkonu sem heitir Barbara, alltaf köllu Barbie, en hún er að vinna núna í Lúxemborg. Hún ferð- ast mikið af því að hún er nektar- dansmær og staldrar aldrei lengur við en mánuð í senn á hverjum stað.“ Hvernig kynntust þið? „Það var nú eiginlega rómantísk- asta atvik lífs míns. Ég leit við á Clinton eitt kvöldið, þar sem hún var þá að dansa, og heillaðist gjör- samlega af henni. Ég horfði í aug- un á henni og hún á mig og straumamir vom ótrúlegir." Hvemig endaði kvöldið? „Það endaði inni á prívatinu..." Eru margar nektardansmeyj- ar lesbískar? „Þær em jafn misjafnar og þær eru margar, held ég. Sumar eru meira fyrir konur, aðrar fyrir menn og enn aðrar vilja bæði kyn- in. Ég held reyndar að fólk sem hneigist til beggja kynja sé bara í millibilsástandi. Þetta er samkyn- hneigt fólk sem þorir ekki alla leið út úr skápnum og er enn að átta sig á málunum." Sumir segja að aUar konur séu lesbískar í sér. Ertu sammála þeirri fuUyrðingu? „Ég hugsa að það sé margt til í henni. Ég held að konur séu for- vitnari hvað þetta varðar heldur en karlmenn.“ Hvernig áttaðir þú þig á því að þú ert lesbísk? „Ég þori nú varla að svara því. Ég var tíu ára og fannst nágranna- kona mín ekkert venjulega Að vinna frá hálf sjö á morgnana ti tvö eftir miðnætti sem einkaþjálfari í GYM 80 og dyravörður á Vegas útheimtir talsverða orku. Eina konan á íslandi sem virðist búa yfir nógu miklum krafti til að afreka það er Margrét Sigurðardóttir. kynæsandi. Sömuleiðis langaði mig frekar að slást við strákana í skólanum heldur en að kyssa þá eins og vinkonur mínar gerðu. En eins og aUir aðrir reyndi ég að fylgja einhverju normi og hef þess vegna líka verið með karlmönn- um.“ En ekki lengur? „Mig hryllir við tilhugsuninni um að sofa hjá karlmanni núna. Ég vil bara konur og helst nóg af þeim. Ég er mikið fyrir kynlíf. í rauninni er ég gröð. Enda í góðu líkamlegu formi og það er eins og slíkt ásig- komulag kalli á mikið kynlíf. Karl- menn virðast hins vegar sækja frekar mikið í mig. Þeir segja mér margir að ég hafi aldrei fengið al- mennilegan drátt og þess vegna sé ég með konum. Þeir hinir sömu bjóðast jafnframt til þess að gefa mér einn slíkan drátt.“ Hvernig konum heillast þú helst af? „Kvenlegum konum með fallegar línur. Ég geri ekki kröfur um vöxt eins og minn en vil heldur ekki ör- mjóar spírur með beinin út í loft- ið.“ Myndirðu vilja eignast börn? „Mig langar ekki til að blása út og ganga með barn. Hins vegar finnst mér böm frábær og væri al- Hver er kyn- þokkafyUsti hluti kvenlík- amans? „Kvenmannsbrjóst heilla mig mest. Handfylli af fallegum brjóstum er eitt af því besta sem ég veit.“ En hvað ertu ánægðust með af þínum líkama? „Rassinn. Hann er flottur og margir hafa haft á því orð.“ Áttu einhver föt sem þér finnst þú æðisleg í? „Mér finnst ég æðisleg- ust í þröngum fötum sem sýna línurnar. Oftast er ég í svörtu eða hvítu enda er ég KR-ingur.“ Hvernig er annars að vera dyravörður á nektardansstað? „Ég hef verið dyra- vörður á Kaffi Reykjavík, Sir Oli- ver og Hollywood. Mér likaði vel alls staðar en á Vegasi á ég heima. Það er draumur að vera innan um allt þetta fallega kvenfólk. Ve- gas er rétti staður- inn fyrir mig.“ Dansar þú stundum sjálf? „Já. Þegar ég er í stuði. Ég dansaði síðast fyrir viku. Dró upp gadda- dressið og dreif mig upp á svið. Geri þetta öðra hverju." Hún segir að allur þessi kraftur geri sig líka graða og þegar hún er í þannig stuði vippar hún sér úr dyravarðargallanum, hoppar upp á svið og dinglar sér aðeins á súlunni. Annars er hún á fullu núna við að gera sig klára fyrir vaxtarræktarmótið í nóvember.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.