Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.1999, Blaðsíða 17
i
^ 2. júlí - 8. júlí myndlist popp
Lífid eftir vin m 1e i khús fyrir börn klassik bíó L J veitingahús eínnicp á yísir.is
Popp
Fyrir nokkru hélt Tilraunaeldhúsiö nokkur eftir-
minnileg tilraunakvöld á Kaffi Thomsen. I
kvöld kl. 22 verður vakið upp gamla góða til-
raunastuðið, en i Kaffilelkhúsinu i Hlaðvarp-
anum. Tvær hljómsveitir koma fram. Big Band
Brutal er skipaö Spúnk-píunum, trommaran-
um Óbó, Bödda Brútal og Daða úr Jagúar. BBB
hyggst vekja argandi stuð. Hitt bandið er svo
Jagúar, fönkbandið síhressa, sem ætlar að
hamast og hitna í hamsi. Boðið verður upp á
nart að vanda, en 500 kall kostar inn á gleð-
ina.
(Klúbbar
Gæsagleðin i algleymingi i Leikhúskjallaran-
um. Á mótl sól verður í brakandi stuöi og
nennir engu suöi. Gummi Gonzalez nennir
heldur engu puði.
Nökkvi og Árnl eru didíar Skuggabars. Mono
87,7 og Ballantines standa fyrir stuðinu að
þessu sinni. 22ja ára aldurstakmark (sem er
takmark í sjálfu sér).
spor t
Ke, Ke,
Oskar Guðjónsson og DJ 011 improve-grúva á
Ráðhúskaffl, Akureyri.
askar er annars að
gera sig kláran í
megatúr umhverfis
landið með bráðgott
tríó sitt.
Kaffi Thomsen:
Þossi með puttann á
fönkinu. Engir útlendingar
aldrei þessu vant.
©Krár
Svensen junlor og Hallfunkel skemmta gest-
um á Gullöldlnnl. Sonurinn er ekki síöri en
gamli seigur segja þeir sem hlustað hafa. Vist
er að stemninguna vantar ekki.
Llz Gammon skemmtir gestum á Café Rom-
ance sem aldrei fyrr.
Upplyfting er á Naustkránni. Nú er komið á
hreint hverjir skipa bandið: Haukur er á gítar,
Krlstján á nikku og Magnús á trommur.
Rauða Ljónið er eini staðurinn i vesturbænum
með lifandi tónlist sem stendur. Hot ‘n'
Sweet, með Hermann Inga fremstan meöal
jafningja, skemmtir gestum þessarar vistlegu
kráar.
Hunang er komið aftur og er til sýnis á Gaukn-
um. Þeir Jakob Jónsson úr Skriðjöklum, Karl
Olgelrs (Bítlarnir), Ingólfur Sigurðsson (SSSðl)
og Hafsteinn Valgarðs, (Hjálpum þeim) lofa
geðveiku djammi enda gamlir hundar í brans-
anum.
Gleðisveitin KOS er á Fjörukránni. Þetta er
ekki sama sveit og lék í arababúningum á Mel-
arokki.
Kókos er á Grand Rokk. Þar inni rikir ætíð
skemmtilegasta fýlleriið í bænum. Allir vin-
gjarnlegir og stemningin timalaus.
Rúnl Júl er á besta aldri og það eru gestirnir á
Fógetanum líka.
um helgina
„Ég var lasinn um síðustu helgi þannig
að ég ætla að gera eitthvað verulega
skemmtilegt núna. Ég var jafnvel að
velta því fyrir mér að fara með honum
Svenna félaga mínum út á land. Okkur
langar að veiða eða fara í göngutúra. Ég
ætlaði að gera þetta um síðustu helgi
en þegar ég var nýkominn upp í sveit
þurfti ég að fara heim af því að ég var
orðinn svo veikur. Mig langar ekki að
fara á mannmargt tjaldstæði, ónei og
ojbarasta. Ég var nefnilega að hætta
að reykja og má þess vegna ekki
djamma af því að þá fell ég. Núna vil
ég íslenska náttúru, sól, sumaryl og
frið.“
Kerlingar
fiöll
m
„Maður þarf alls ekki
að vera góður á bretti til
að fara með í þessa ferð,“
segir Aðalheiður Birgis-
dóttir, eða Heiða, í Týnda
hlekknum. Hún er þá að tala
um árlega snjóbrettaferð sem
samnefnd verslun stendur fyrir
um helgina. Ferðinni er heitið í
Kerlingarfjöll.
„Þetta er skemmtiferð fyrir alla
sem vilja en ekki skipulagt snjó-
brettamót. Tveir plötusnúðar,
Kári og Matti, verða með í för og
ætla að halda uppi stuðinu þegar
kvölda tekur,“ segir Heiða.
Hún gerir ráð fyrir að í ferðinni
verði um það bil hundrað og
fimmtíu manns og að auki ein-
hverjir sem fara á einkabílum eða
koma úr annarri átt en suður frá
Reykjavik.
„Við vonum að sem flestir
mæti. Það virðist nefnilega vera
útbreiddur misskilningur að snjó-
brettafólk sé einhver tiltölulega
fámenn klíka í kringum Týnda
hlekkinn. Þannig er það hins veg-
ar alls ekki og snjóbrettaiðkan er
ekki unglingasport. Brettin
stunda fleiri hundruð manns á
aldrinum fimm til sextíu ára. Þeir
sem vilja prófa bretti í fyrsta
skipti eru líka hvattir til að koma
með. Við leigjum til dæmis út
bretti,“ segir Heiða, og bætir því
við að fyrst að allt bendi til þess
að veðrið verði glimrandi fint um
helgina ættu allir að nota tæki-
færið og renna sér í snjónum um
mitt sumar í sól og blíðu.
Skráning í ferðina hófst í gær
og hún stendur til klukkan íjögur
í dag, að sjálfsögðu í Týnda
hlekknum á Laugavegi.
Heiða í Týnda hlekknum er brettakerling númer eitt, tvö og
þrjú á íslandi. Hún veröur í Kerlingafjöllum alla helgina.
Viggó Örn Jónsson
auglýsingamaður.
Hálft í hvoru rokkar sem aldrei fyrr á Kaffl
Reykjavík.
Nýtt nafn á skemmtimarkaðnum, Tvennlr tím-
ar, skemmtir á Péturs-pub í Höfðabakkanum.
Ætla má að fjölbreytní sé ráðandi á prógramm-
inu.
Böl 1
Cantablle frá Akureyri er komið I bæinn og
færirfjörí leikinn á Næturgalanum I Kópavogi.
Staöurinn er annars tveggja ára um þessar
mundir. Til hamingju Anna V. og co!
•Sveitin
Rokkarinn og trúbadorinn
Siggi BJörns verður í
Hóplnu, Tálknaflrðl.
Slagverk, bassi og gítar
honum til aðstoðar.
Við pollinn á Akureyri
býður viðstöddum upp á
megabandið Sín. Úlfur
hræða og Kerþjálfaður
mæta.
Skítamórall leikur i Sjallanum, Akureyrl núna
um helgina. Tveir dansarar verða með í för,
þær Yasmine Olson og Nanna Jónsdóttir. Eru
þær jafn nautnalegar og þessar hjá Stuö-
mönnum? Rótaraband hljómsveitarinnar tekur
svo tvö lög.
Sóldögg er á Vopnafiröi en þar er hús sem
heitir Mlkligaröur. 16 ára aldurstakmark.
Knudsen á Stykkishólml verður með OFL á
sviðinu í kvöld í fyrsta sinn. Árni Helga fær fritt
á barnum í kvöld!
I hinu nýja Ingólfskaffi úti I sveit er Fiöringur-
inn að skemrrita. Gamli svíngur, Péíur W. Krist-
jánsson, mætir með þeim til leiks. Svo fer
Bjöggi beint að veiða I góða veðrinu. Tekur
hann ekki helst á nóttunni, Bjöggi?
Grænl hatturinn er skemmtistaður á Akureyri
og skemmtileg súrrealísk barnabók. Slxtles
er skemmtileg og súrrealísk hljómsveit sem
endurskapar gamla tíma eins og Árbæjarsafn.
Það eru bjórframleiðendurnir Corona og War-
seteiner sem bjóða.
Nýr staður, A eyrinni, tekinn til starfa á ísa-
firði, eða hvað? Buttercup verður í boði en
þetta er í fyrsta sinn sem hún leikur þarna fyr-
ir vestan. Allir hvattir til að mæta og njóta.
Abba og Dabba eru á Blönduósi um helgina
við undirleik alþýðusveitarinnar, sem ekki þarf
að nefna. Aðrir á svið eru Addi rokk, Úlfur
skemmtari og Sérfræöingarnir aö sunnan.
Leikhús
Helllsbúinn er aftur fluttur í helli sinn í ís-
lensku óperunni. Sýningin byrjar klukkan
20.00 en Bjarni Haukur Þórsson túlkar sem
fyrr þennan ágæta hellisbúa sem alla ætlar að
æra úr hlátri. Sigurður Sigurjónsson er leik-
stjóri en þýöandi verksins er Hallgrímur Helga-
son. Síminn í Óperunni er 551 1475 og þaö
er hægt að panta miða eftir klukkan 10.00.
Á stóra sviði Borgarleikhússlns er Lltla hryll-
Ingsbúöln sýnd klukkan 20:00. Höfundur
verksins er Howard Ashman en leikstjóri er
Kenn Oldfield sem er svo sannarlega orðinn
.íslandsvinur". Hann hefur leikstýrt nokkrum
stykkjum hér á landi, meðal annars Grease
sem hlaut fádæma góðar viðtökur. Aðalhlut-
verk í Hryllingsbúðinni leika Stefán Karl Stef-
ánsson, Þórunn Lárusdóttlr, Bubbl Morthens,
Eggert Þorleifsson og Selma Björnsdóttir svo
einhverjir séu nefndir. Um tónlist sér hinn
margrómaði Jón Ólafsson. Rétt er að benda á
að klukkustund fyrir sýningu eru miðar seldir á
hálfvirði.
\/=Fókus mællr með
Stendur þú
fyrir einhverju?
Sendu upplýsingar í
e-mail fokus'æfokus.is / fax 550 5020
Hallgrímur
Helgason hef-
ur skrifað nýtt
verk fýrir Há-
deglslelkhús- ,.
iö, Þúsund íi
eyja sósa. Þar
segir af viðskiptafrömuðinum Sigurði Karll
sem stundar flókin rekstur og kanna að kjafta
sig út úr öllum vanda. Meö aðalhlutverk fer
Stefán Karl Stefánsson, en Magnús Gelr
Þórðarson leikstýrir, Sýnt er í lönó sem fyrr.
staðir
á Islandi
•Opnanir
Gylfi Ægisson opnar í dag málverkasýningu í
Safnahúsinu á Húsavík. Þessari sýningu lýkur
Reykjavik: Austurstræti 3, Suðurlandsbr. 46,
Esso-stöðin Ártúnshöfða & Kringlunni.
Hafnarfjörður: Esso-stöðin, Lækjargötu 46,
Esso-stöðin, Reykjavíkurvegi 54.
Keflavík: Hafnargötu 32. Akureyri: Kaupvangsstr. 1.
^SUBUIRY'
Ferskleiki er okkar bragð.
2. júlí 1999 f Ó k U S