Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.1999, Síða 8
24
umh verf i
MIÐVIKUDAGUR 14. JÚLÍ 1999
SVR hefur nýveríð mótað sér umhverfisstefnu og
býður þjónustu sem hvetur til þess að fóik ferðist
saman og mengi minna. DV-mynd Pjetur
Strætisvagnar Reykjavíkun:
ímyndin
venði tengd
jákvæðum
áhnifum á
umhverfið
segin Jóhannes Sigurðsson
Sumarið 1997 var ákveðið að fjög-
ur fyrirtæki á vegum Reykjavíkur-
borgar tækju þátt í verkefni sem
fólst I að framkvæma umhverfisút-
tekt og móta stefnu í umhverfismál-
um. Eitt af þessum fyrirtækjum var
Strætisvagnar Reykjavíkur og var
verkefnið unnið með aðstoð ráð-
gjafa frá Iðntæknistofnum íslands.
Stofnaður var umhverfishópur hjá
fyrirtækinu og hófst verkefnið á að
haldið var námskeið fyrir hópinn.
Fyrsta verkefnið hjá hópnum var
svo að framkvæma umhverfisrýni í
fyrirtækinu þar sem starfsemin var
greind eftir starfs- og/eða vinnslu-
ferlum. Þegar vinnu við greiningu á
núverandi stöðu var lokið var hafist
handa við að móta umhverfisstefnu
fyrirtækisins. Var hún unnin í sam-
einingu af yfirstjóm fyrirtækisins
og umhverfishópnum auk þess sem
ráðgjafinn kom að vinnunni.
Verði þekkt fyrir
ábyrgð aagnvart
umhverfinu
Að sögn Jóhannesar Sigurðsson-
ar, forstöðumanns þjónustusviðs
SVR, er umhverfisstefnan í þremur
liðum. Framtíðarsýn SVR er að
ímynd fyrirtækisins verði tengd já-
kvæðum áhrifum á umhverfið og
fyrirtækið sé þekkt fyrir ábyrga
starfsemi gagnvart umhverfinu.
SVR býður þjónustu sem stuðlar aö
því að fólk ferðist saman og mengi
minna og vill stuðla að því að upp-
lýsa almenning um framlag almenn-
ingssamgangna til umhverfisvemd-
ar. „í innra starfi skal stuðlað að
því að starfsemi SVR hafi sem
minnst neikvæð áhrif á umhverfið.
í því skyni era eftirfarandi megin-
markmið sett fram og leiðir til að ná
þeim skilgreindar: Að sýna gott for-
dæmi í stjómun og framkvæmd á
þeim þáttum starfseminnar sem fyr-
irtækið hefur skilgreint sem mikil-
væga umhverfisþætti. Þessir þættir
eru orkunotkun, útblástur frá vögn-
um, hljóðmengun og notkun og förg-
un skaðlegra efna,“ segir Jóhannes.
Ýmsar leiðir em nefndar til að ná
fram þessum markmiðum eins og
að setja strangar kröfur um um-
hverfissjónarmið við kaup á nýjum
vögnum, taka skal tillit til orkunýt-
ingar við skipulagningu leiðakerfis
og halda skal notkun skaðlegra efna
í lágmarki og nota umhverfisvænar
vinnuaðferðir. -hdm
- •• --,ú *** •"
Móttaka fyrir allt brotajárn
Kaugtim alla málma
endurvinnslustöð
HHRINGRAS EHF
ENDURVINNSLA
Sími 581 4757 ■ Sundahöfn