Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.1999, Page 1
19
Bætti 11
ára met
Lára Hrund Bjargardóttir náði besta ár-
angri íslensks sund-
manns á Evrópumót-
inu í sundi í Istanbúl
í Tyrklandi til þessa
er hún lenti í 13. sæti
í 200 metra fjórsundi
og bætti um leið
ellefu ára gamalt ís-
landsmet Ragnheiðar
Runólfsdóttur í þessu
sundi.
Lára synti yfirvegað sund og byrjaði
mun betur en þegar hún synti inn í und-
anúrslitin fyrr um daginn, þá líka á sín-
um besta tíma, 2:23,21.
Bætti sig um sekúndu
Metið setti Ragnheiður á Ólympíu-
leikunum í Seoul 1988, er hún synti á
2:22,65, en Lára Hrund hefur bætt sig um
heila sekúndu í þessarri grein á mótinu.
Þessi grein samanstendur af fjórum 50
metra sprettum í flugsundi, baksundi,
bringusundi og skriðsundi og Lára synti á
2 mínútum, 22 sekúndum og 42 sekúndu-
brotum. Lára Hrund bætti gamla metið
því um 23 sekúndubrot en það setti Ragn-
heiður 23. september 1988 í Suður-Kóreu.
Lára Hrund var þegar búin að bæta
met Ragnheiðar í 25 metra laug en
íslandsmet hennar í styttri laug er síðan í
mars síðastliðnum. -ÓÓJ
Bevis hættur við
Bandaríski körfuknattleiksmaðurinn David Bevis er
hættiu- við að leika með Þórsurum á Akureyri næsta vet-
ur. Bevis, sem lék áður með ísfirðingum og Skagamönn-
um, tilkynnti Þórsurum í vikunni að hann kæmi ekki af
persónulegum ástæðum og norðanmenn eru því komnir á
byrjunarreit með sín útlendingamál á ný. -JJ/VS
Vigni boðið
til Texas
Vignir Stefánsson, landsliðs-
maður í júdó, hefur fengið gullið
tækifæri til að styrkja sig fyrir
átök komandi ára. Honum hefúr
verið boðið, fyrstum íslenskra
júdómanna, að keppa fyrir
bandarískan háskóla.
Vignir keppir fyrir Texas
A&M-skólann á komandi tíma-
bili. Hann tekur þátt í níu há-
skólamótum víðsvegar um
Bandarikin og keppir þar við
bestu júdómenn þar í landi. Eitt
mótanna gefúr stig til þátttöku-
rétts á Ólympíuleikunum í Sidn-
ey en Vignir stefnir á að komast
þangað. -VS
Styrkur til Stóla
- fá Kristin Friöriksson úr Skallagrími og öflugan Dana frá Skovbakken
Körfuknattleikslið Tindastóls hef-
ur fengið mikinn liðsauka fyrír
komandi tímabil. Kristinn Friðriks-
son, sá reyndi skorari, er kominn til
Sauðárkróks frá Skallagrími og þá
hefur Tindastóll samið við öflugan
danskan leikmann, Sune Henrik-
sen.
Kristin þarf ekki að kynna ítar-
lega en hann hefur lengi verið í
hópi bestu körfuknattleiksmanna
landsins. Hann lék með Keflavík en
síðan Þór, BK Odense í Danmörku
og síðasta vetur með Skallagrími.
Sune Henriksen er 22 ára leik-
stjórnandi sem kemur frá dönsku
meisturunum Skovbakken. Hann
lék stórt hlutverk í sigri þeirra á
síðasta tímabili, skoraði ekki mikið
en átti fjölda stoðsendinga og var
drjúgur í að stela boltanum. Henrik-
sen hefur leikið með aðalliði Skov-
bakken frá 17 ára aldri og lék með
yngri landsliðum Dana.
Nýr Bandaríkjamaður
Þá er frágengið að bandaríski
leikmaðurinn Ryan Williams spilar
með Tindastóli næsta vetur. Hann
kemur frá San Diego-háskóla, er
1,98 m á hæð og getur leikið sem
framherji eða miðherji. „Samkvæmt
tölfræði er þetta mjög sterkur leik-
maður og ég tel að hópurinn hjá
okkur sé nú orðinn ágætlega sterk-
ur,“ sagði Halldór Halldórsson, for-
maður körfuknattleiksdeildar
Tindastóls, við DV i gærkvöld.
Sverrir Þór Sverrisson er hættur
við að hætta með Tindastóli en ljóst
er að liðið missir Amar Kárason,
sem fer erlendis eða suður, og Ómar
Sigmarsson, sem er genginn tO liðs
'við Hamar. -VS
Dida bjargaði Brasilíu
Brasilía komst í nótt í undanúrslit álfukeppninnar í knattspymu í
Mexíkó með 1-0 sigri á Bandaríkjunum. Ronaldinho skoraði sigurmarkið
en það var þó Dida sem tryggði Brasilíu sigurinn með því að verja víta-
spymu frá Joe-Max Moore. Þjóöverjar sigmðu Ný-Sjálendinga, 2-0, með
mörkum frá Michael Preetz og Lothar Mattháus. -VS
Hilmar slasaðist illa
Hilmar Þór Hákonarson, knattspymumaður úr Skallagrími, slasaðist
illa í leik liðsins við FH í fyrrakvöld og leikur ekki meira í sumar. Hilm-
ar kinnbeins- og augnbeinsbrotnaði í samstuöi við FH-ing og handar-
brotnaði síðan þegar hann fékk leikmanninn ofan á sig. Þetta er mikið
áfall fyrir Borgnesinga en Hilmar er einn lykilmanna þeirra. -EP