Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.1999, Blaðsíða 4
40
LAUGARDAGUR 14. ÁGÚST 1999 HD’V
Nýr og endurbættur Opel Omega í haust
310 hestafla 5,7 lítra V8-vél á næsta ári
Nýr og endurbættur Opel Omega
kemur í sölu á hausti komanda.
Flaggskip þýsku Opel-verksmiðj-
anna hefur verið endurbætt, jafnt
utan sem innan, hæði hvað varðar
hönnun og i tæknilegu tilliti.
Meðal nýjunga má telja nýja 144
hestafla 2,2ja lítra bensínvél. Þetta
er vél sem er, að sögn framleiðanda,
með meira tog en nokkur önnur vél
í þessum stærðarflokki, eða há-
markssnúningsvægi upp á 205 Nm.
Fjöðrunin hefur einnig verið end-
urbætt og enn er haldið í afturhjóla-
drif sem á að vera með mun meira
veggrip en áður, jafnframt þvi að
auka þægindi í akstri.
Virkir höfuðpúðar eru staðalbún-
aður í þessum nýja bíl og þeir sem
ferðast í öflum gerðum Omega
munu njóta þægindanna sem skyn-
vædd rafeindastýrð miðstöð og loft-
ræsting veitir. Miðstöðin er einnig
með nýjum búnaði sem skynjar ef of
mikið er af útblásturslofti frá öðr-
um bílum i andrúmsloftinu og
skiptir þá sjálfkrafa á innri
hringrás.
Gæði þessara nýju Omega-bíla
Við fyrstu sýn er ekki mikil breyting
á útliti Opel Omega en ný aðalljós,
nýtt yfirbragð á V-laga vélarhlífinni
og nýtt grill setja sinn svip á bílinn.
endurspeglast í tíu
ára ábyrgð gagnvart
gegnumtæringu.
Omega V8, með 5,7
lítra, vél bætist við á
næsta ári. Hér munu
ökumenn hafa heil
310 hestöfl til ráðstöf-
unar og hámarks-
snúningsvægið er
450 Nm.
Opel hefur sett
sem nemur 300 millj-
ónum þýskra marka,
eða sem svarar 12
milljörðum króna, í
þróun á þessum end-
urbætta Opel Omega
sem verður sýndur í
fyrsta sinn opinberlega á alþjóðlegu
bílasýningunni, IAA, í Frankfurt i
september. Sem dæmi um hve
miklu hefur verið breytt í bílnum
má segja að meira en þriðjungur
þeirra 3000 hluta sem notaðir eru til
smíði Omega sé nýr eða endurhann-
aður.
Breytt útlit
í útliti hefur greinilega verið lagt
meira upp úr finlegum breytingum
en að bylta því. Að framan ber mest
á nýjum aðalljósum með gegnsæju
gleri og vélarhlífm er komin meö
áberandi V-laga línur, líkt og í Vect-
ra. Nýtt krómað grill undirstrikar
breytinguna að framan enn frekar.
Stuðarar og hliðarlistar eru samlit-
ir bílnum.
Að aftan ber mest á nýjum aftur-
ljósum og nýrri opnun á farangurs-
rými sem hægt er að fjarstýra frá
lyklinum eða innan úr bílnum.
Rafstýrðir hliðarspeglarnir hafa
verið endurhannaðir og nýjar felg-
ur, 15, 15 eða 17 tomma, allt eftir
búnaðarstigi bilsins, setja sinn svip
á hann.
Meiri þægindi
Rúmgott innanrýmið endurspegl-
ar enn meiri þægindi en áður.
Mjúkt yfirborð hluta úr plastefnum
og þægileg áklæði eru áberandi.
Stýrishjól, mælaborð og miðstokkur
hafa verið endurhönnuð frá grunni.
Atriði eins og nýir þægilegir rofar
fyrir rafstýringu á rúðum innan á
hurðum og nýr þægilegur armpúði
með innbyggðu geymsluhólfi í
miðju eru enn til að auka á þægind-
in.
Aflmiklar vélar
Nýja 2,2ja lítra 16 ventla Ecotec-
vélin er sérlega mjúkgeng því hún
er með tveimur jafnvægisstöngum
sem snúast andsælis snúningi vélar-
innar og gefa mikla mýkt í gangi.
Snúningsvægið, 205 Nm við 4000
snúninga, er 10% meira en fyrir-
Innanrýmið hefur verið endurhannað frá grunni og
nýtt stýrishjól og mælaborð setja sinn svip á þennan
nýja Omega. Kort fyrir leiðsögukerfi er í sjónlínu frá
ökumanni rétt hægra megin við stýrið.
Að aftan ber mest á nýjum afturljósum. Stuðarar og hliðarlistar eru samlitir
bílnum.
Stationgerðin er einnig komin með nýtt yfirbragð.
rennarinn, 100 hestafla vélin sem
var fyrir, gaf.
Þessi nýja fjögurra strokka vél
kemur Opel Omega frá 0 í 100 km á
10,5 sekúndum og þar sem aksturs-
aðstæður leyfa nær hún að koma
bílnum úr 80 km hraða á klukku-
stund í 120 km í fimmta gír á 15 sek-
úndum.
Einnig er val um aflmeiri V6-vél-
ar, 2,5 lítra vél, 170 hö., og 3,0 lítra
vél, 211 hö. Fyrir þá sem vilja dísil-
vélar er val um tvær túrbóvélar, 2,0
Ecotec DTI 16V, 100 hö„ og 2,5 lítra
sex stokka beinlínuvél, 130 hö.
Til enn aukins öryggis er Omega
kominn með aflmeiri hemlabúnað
en áður. „Quick-Power“-aflhemlarn-
ir skynja ef ökumaðurinn stígur
snöggt á hemlana og snöggauka
vökvaþrýstinginn og stytta þannig
hemlunarvegalengdina verulega.
-JR
Ford Explorer - kynntur þýskum bílablaðamönnum á íslandi.
gefinn kostur á að verða með í þess-
ari kynningu.
Explorer-jeppinn er sá sami og
verið hefur hér í sölu nema með
minni háttar endurbótum sem
fylgja nýrri árgerð, svo sem stillan-
legum höfuðpúðum, nýjum bretta-
köntum og nýjum framstuðara og
fleira þess háttar. Enn fremur er
drifbúnaður endurbættur sem þýðir
meiri hámarkshraða og enn betra
viðbragð. Útfærsla bílanna er hin
sama, hvort sem þeir eru ætlaðir til
sölu í Þýskalandi eða á íslandi.
Með í ferðum verður nýr bíll af
gerðinni Ford Ranger en hann verð-
ur notaður sem aðstoðarbíll. Þetta
er nýr bífl sem er að koma á mark-
að á íslandi, fyrsti hálfkassa-skúffu-
bíllinn (double cab) sem ber heitið
Ranger. Þetta er aldrifsskúfíúbíll
með 109 ha. 2,5 lítra dísilvél með for-
þjöjpu, rafdrifnar rúður allt um
Þýskir kynnast Explorer á Islandi
Ford í Þýskalandi er að undirbúa
sérstakt átak í sölu á Ford Explorer
þar í landi. í því sambandi vildu
BIFREIÐASTILLINGAR
NIC0LAI
menn gera eitthvað öðruvísi en
vanalega til þess að vekja athygli á
Explorer. Niðurstaðan varð sú að
hafa samband við Fordumboðið á ís-
landi, Brimborg hf„ og leita eftir að-
stoð við kynningu á íslandi á Ex-
plorer-jeppanum fyrir þýska bíla-
blaðamenn.
Nú eru væntanlegir tveir hópar
þýskra bílablaðamanna sem munu
dvelja hér í þrjá daga hvor hópur til
að kynnast Explorer jafnt sem lúx-
*enVaSv^rí^'a
BORÐINN hf.
Smiðjuvegi 24
sími 557 2540
VISA
Vélastillingar • Hjólastillingar
■jg" • Rafmagnsviðgerðir • Ljósastillingar
• Almennar viðgerðir • Varahlutaverslun á staðnum
usbíl og sem jeppa sem spjarar sig
við erfiðar aðstæður. Um leið munu
þeir kynnast landinu og því um-
hverfi sem kynning af þessu tagi
kallar fram. Tveimur islenskum
bílablaðamönnum verður einnig
kring, samlæsingu, brettakanta,
hátt og lágt drif og sitthvað fleira.
Þessi bíll kemur væntanlega á
markað á íslandi í október.
-SHH
EfiESSr / ú
"saiÁ K 6:71
Ford Ranger - nýr skúffubíll með tvöfalt hús sem kemur á íslenskan mark-
að í haust.
Árið 2002 áætlar Renault að geta
markaðssett bfla sína með líkn-
arbelg fyrir aftursætisfarþega.
Belgnum verður komið fyrir í
læsingu bílbeltisins og hann á
að tengjast sömu skynjurum og
stjórna líknarbelgjum ökumanns
og framsætisfarþega. Þetta er 60
lítra belgur sem á að koma í veg
fyrir að aftursætisfarþegi stangi
sætisbökin eða jafnvel fólkið fyr-
ir framan sig þannig að meiðsli
hljótist af.
Ný Serena
í Japan
Nissan hefur endurhannað
Serena-fjölnotabíl inn sem dálítið
hefur verið af hérlendis og þótt
standa sig vel. Nýi bíflinn er
ávalari í formunum en sá sem
hann tekur við af og ýmislegt
hefur verið endurnýjað frá
grunni, t.d. mælaborðið. Bíllinn
allur er sagður rýmri og þægi-
legri i umgengni. Fyrst um sinn
er nýja gerðin bundin við Japan
og útflutningur tæpast á döfinni
fyrr en á næsta ári.