Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.1999, Síða 4
LAUGARDAGUR 21. ÁGÚST 1999
Á opnum Porsche Carrera 4 í umferðinni í Reykjavík:
Skemmtileg
upplifun
Það er ekki oft sem tækifæri
gefst til þess að aka opnum „al-
vöra“-sportbílum hér á landi. Slíkt
tækifæri kom þó upp í hendurnar
á okkur á sólríkum sumardegi fyr-
ir nokkru þegar við fengum
Porsche Carrera 4, sportbílinn
sem Bílabúð Benna fékk gagngert
til landsins til að kynna nýtt
Porsche-umboð hér á landi í síð-
asta mánuði.
Sjálf kynningin fór fram á Egils-
staðaflugvelli undir vökulum aug-
um flugvallarstarfsmanna og lög-
reglunnar á staðnum. Veðurguð-
irnir höfðu sent frá sér allgóða
vætu þannig að rennislétt malbik-
ið á flugbrautinni, sennilega þeirri
bestu á landinu, var vel blautt og
því reyndi vel á veggrip, hemla og
stýri.
Það var því búið að reyna bílinn
til hins ýtrasta þarna fyrir austan
þannig að í góðviðrinu í Reykjavík
mátti reyna allt aðra hluti þá dag-
stund sem við fengum að hafa bil-
inn.
Mikil upplifun
Það er mikil og skemmtileg upp-
lifun að aka bíl eins og Porsche Car-
rera 4. Þetta er bíll sem leit fyrst
dagsins ljós fyrir rúmum þremur
áratugum og þrátt fyrir að útlitið
hafi fengið stöðuga endumýjun er
stutt til uppranans. í tæknilegu til-
liti hefur hins vegar mikið breyst og
allt til hins betra.
Þessi bíll er þannig útbúinn að
hann er með blæju sem með einni
fingursnertingu er hægt að renna af
og geyma í til þess gerðu rými yfir
vélinni sem er að aftan.
Sól skein í heiði og í hægum and-
vara var ekkert þvi til fyrirstöðu að
kippa í handbremsuna, ýta á hnapp-
inn og sjá blæjuna renna niður. Því
næst var ekið af stað.
Það er allt önnur tilfinning sem
kemur fram þegar bíl á borð við
Porsche Carrera 4 er ekið með op-
inn toppinn. Allt umhverfið er í
meiri nálægð, umferðin færist nær,
meira að segja lyktin í umhverfinu
hefur áhrif á aksturslagið, hvort
Sportlegur og klassískur bfll: Porsche Carrera 4, með toppinn niðri á sólríkum sumardegi.
sem um var að ræða lykt af brunnu
eldsneyti í þéttri innanbæjarum-
ferðinni eða gróðurangan þegar
komið var út fyrir þéttbýlið. í heild
verður aksturinn dálítið órarmvera-
legur, allt þýtur hjá, fólk, hús og
aðrir bílar, en eftir situr þægileg til-
fmning. Djúpt murrið frá vélinni
leikur undir eins og hljóðfæri.
Vekur athygli
Það var heldur ekki ofsögum sagt
að þessi blái og knái sportari vekti
ekki athygli í umferðinni og þeir
vora margir sem renndu öfundar-
augum til bílsins hvar sem hann
fór, enda liggur álíka verðmæti í
svona bíl og dágóðri meðalstórri
íbúð.
Vegna þess að búið var að reyna
bílinn í raunverulegum hraðakstri
á flugvellinum eystra var auðvelt að
sitja á sér og halda sig vel innan
þeirra hraðatakmarkana sem lög og
reglur kveða á um, njóta þess að
líða áfram og vita af öllu aflinu og
snerpunni sem var til staðar.
Gengur vel hár
Þegar undirritaður reyndi fyrst
Porsche við bestu aðstæður á þýsk-
um hraðbrautum fyrir fjöldamörg-
um árum kom það upp í hugann að
þetta væra bílar sem seint myndu
ganga hér á landi. Eftir þennan
stutta kynningarakstur hér heima
er þó komið annað hljóð í strokk-
inn. Þetta er bíll sem sómir sér vel í
íslenskri umferð, bíll sem hlaðinn
er tæknibúnaði, er með dágóða
fjöðrun og vel búinn hvað varðar ör-
yggi-
Þegar hið dæmigerða íslenska
veður heilsar þarf ekki annað en að
nema staðar, taka í handbremsuna
(því ekki er hægt að setja toppinn
upp eða niður nema hún sé á) og
loka bílnum. Þá er kominn bíll sem
hentar ágætlega í íslenskri rign-
ingu.
Við það að setja toppinn upp
breytir þessi bíll líka um karakter.
Hljóðið breytist og tilfinningin fyrir
umhverfmu líka. Bilar og fólk hætta
að þjóta hjá eins og i kvikmynd og
allt verður nánast eðlilegt. Porsche
Carrera 4 verður lipur, sportlegur
bíll, þar sem aldrifið gefur aukna
aksturseiginleika. Hann verður þó
aldrei eins og hver annar bíll, til
þess eru sérstæðir eiginleikamir of
miklir. Þar við bætist klassískt út-
litið sem hefur haldist lítið breytt í
áranna rás. -JR
Kapphlaupið um nothæfa efnarafala í algleymingi
Ford og Daimler Chrysler sýndu ný-
lega í Kalifomíu bfla sem sagt er að boði
nýja tækni í orkugjöfum fyrir bíla - bíla
með efharafal. Daimler Chrysler sýndu
sérstaka útfærslu af A-bensinum (Necar
4) en Ford sýndi Mondeo P2000.
Ford og Daimier Chrysler hafa unnið
saman að þróun efnarafals (fuel cells) í
samvinnu við olíufélögin Arco, Shell og
Texaco, ásamt bandarísku stjóminni.
Markmiðið er að ná tökum á öðrum
orkugjafa en bensíni og olíu sem menn
gera sér grein fyrir að endist ekki um
aldur og ævi.
Áætlað er að árið 2003 verði 30 fólks-
bflar og 20 strætisvagnar komnir með
efharafal í staðinn fyrir bensin- eða
dísflvélar og ári síðar ættu fyrstu vinnu-
bflamir með þessari tækni að verða til
sölu i Bandaríkjunum. Vitað er að ffam-
an af verða þessir bílar talsvert dýrari
en bflar sem nota hefðbundna orkugjafa
en með aukinni framleiðslu verður var-
an ódýrari.
Daimler Benz hefur alla tið verið
framarlega í þessum tilraunum og smið-
aði fyrsta Necar-bílinn árið 1992. En eft-
ir að Benz og kanadíski framleiðandinn
Ballard tóku höndum saman um verk-
efhið árið 1997 slóst Ford einnig í hóp-
inn. Sameining Daimler Benz og
Chrysler breytti engu þar um.
Það gífurlega fjármagn sem með þess-
ari fjölþættu samvinnu hefur verið
hægt að leggja i verkefhið skilar sér i
því að efnarafaflinn, sem í upphafi var
BORÐINN hf.
°9
VSA
Smiðjuvegi 24
sími 557 2540
' Vélastillingar • Hjóiastillingar
pjjg ^ • Rafmagnsviðgerðir • Ljósastillingar
• Almennar viðgerðir *Varahlutaverslun á staðnum
NIPPARTS
*S
Japanskir
varahlutir
fyrir japanska bíla
NP VARAHltiriR EHF
SMIOJUVEGUR 24 C — 200 KÓPAVOGUR
SÍMI 587 0240 — FAX 587 0250
alltof stór, tekur nú ekki meira rúm en
venjuleg bflvél. Vatnsgeymamir sem
tæknin byggist á eru þó enn of fyrirferð-
armiklir. Unnið er að endurbótum á
því.
Hvers konar orkugjafa á að nota er
enn á tilraunastigi. Hreint vetni er of
eldfimt og það er erfitt að geyma það og
dæla því á milli geyma. Gas og ýmiss
konar olíuefni eru enn sem komið er
álitlegri kostur. En í prófunum á nýj-
ustu efnarafólum hefur komið í ljós að
orkunotkun efnarafalanna slær jafnvel
spameytnustu dísflvélar út.
Necar 4 og Mondeobfllinn, sem sýnd-
ir voru í Kalifomíu, era með 75 og 100
ha. efnarafala. Bent er á að bflar með
efnarafala hafi kosti umfram rafbfla að
því leyti að aðeins taki fáeinar mínútur
að endurhlaða þá og þeir komist miklu
lengra á fyllingunni.
En ofannefndir era ekki þeir einu
sem sperra sig hvað þeir geta í þessu
kapphlaupi. General Motors vinnur að
sams konar þróun i samvinnu við
Toyota og era ásamt Daimler Chrysler,
Ford og Bállard í fararbroddi í þessari
samkeppni. Áhöld munu um hvorir era
lengra á veg komnir.
Heimild: Der Spiegel
Ingvar Helgason og Bílheimar með stórátak í kjölfar mikillar sölu:
Landsútsala á notuðum bílum
- samtímis á ellefu stöðum um allt land
Það hefur ekki farið
fram hjá neinum að
sala á nýjum bílum
hefur stóraukist á
þessu ári. Nýir bílar
hafa streymt til lands-
ins og sala hjá flestum
bilaumboðum hefur
blómstrað. Góðærið í
bílaviðskiptum hefur
haft í för með sér að
framboð á notuðum
bilum hefur jafnframt
aukist mikið og fylla
þeir nú plön og næsta
nágrenni flestra um-
boða sem hafa gripið
til ýmissa ráða til að
vekja athygli á þessum
bilum og koma þeim
aftin- út til kaupenda.
Meðal þeirra bíla-
umboða sem hafa selt
vel á þessu ári eru Ingvar Helgason
og Bílheimar, sem eru í sambýli við
Sævarhöfðann, en þessi umboð aug-
lýstu landsútsölu í vikunni.
„Vegna mikillar sölu nýrra bíla
voram við hreinlega að drukkna í
notuðum bílum og urðum að grípa
til einhverra ráða,“ segir Helgi
Ingvarsson, framkvæmdastjóri hjá
Ingvari Helgasyni hf. „í flestum til-
fellum kemur notaður bill á móti
sölu á nýjum bíl og það gefur auga-
leið að i mikilli sölu koma notaðir
bflar í auknum mæli inn til okkar.
Við vfldum láta afla landsmenn
njóta þess með okkur að salan hefur
verið góð og sendum því hluta af
þessum stóra flota uppítökubíla tO
umboðsmanna okkar úti á landi og
geram því fólki þar kleift að eignast
góðan, notaðan bO á góðu verði því
jafnframt því að efna til þessarar
landsútsölu höfum við lækkað verð-
ið á notuðu bOunum verulega," seg-
ir Helgi og bætir við: „Þegar við
erum að tala um afslátt þá eram við
að tala um alvöraafslátt."
Á ellefu stöðum
„Við fengum Samskip í lið með
okkur og sendum fjölda af bílum,
bæði vestur, norður og austur á
land. Auk BOahússins, sem selur
notaða bíla fyrir fyrirtæki okkar
hér í Reykjavík, Ingvar Helgason og
Bílheima, era umboðsmenn okkar á
Akranesi og Borgamesi, ísafirði,
Sauðárkróki, Akureyri, EgOsstöð-
um, Reyðarfirði, Höfn, Selfossi og
Keflavík með okkur í þessari útsölu
og á öUum stöðunum bjóðum við
upp á breitt úrval bOa, bæði hvað
varðar aldur, stærð og verð.
Við erum því með útsölu á notuð-
um bOum á ellefu stöðum á landinu
samtímis.
Við vonumst til að með þessari
landsútsölu séum við að slá tvær
flugur í einu höggi: fækka þeim not-
uðu bflum sem við höfum tekið upp
í sölu á nýjum bflum og samtímis að
gefa fólki um aflt land kost á því að
kaupa góða bOa á góðu verði,“ segi
Helgi Ingvarsson. -JR