Dagblaðið Vísir - DV - 23.08.1999, Side 6
6
MÁNUDAGUR 23. ÁGÚST 1999
Fréttir
íslenski björgunarhópurinn i Tyrklandi:
Höfum engan fundið á lífi,
- segir Sólveig Þorvaldsdóttir, framkvæmdastjóri Almannavarna
íslenski björgunarhópurinn í
Tyrklandi hefur unnið nær sleitu-
laust frá því hann kom til Tyrk-
lands á föstudaginn. í gærkvöld
fékk hópurinn hvíld en er í raun
alltaf á vakt til að svara útköllum að
sögn Sólveigar Þorvaldsdóttur,
framkvæmdastjóra Almannavarna
ríkisins og stjórnanda hópsins. Hún
sagði jafnframt að andinn og heilsa
í hópnum sé góð þrátt fyrir erfiðar
aðstæður og mikla hita. Menn eru
mjög ánægðir með að vera í Tyrk-
landi og fá tækifæri til að bjóða
fram sína aðstoð.
Hópurinn starfar í borginni
Izmit, sem er rétt hjá upptökum
skjálftans og varð einna verst úti,
en í dag er ætlunin að fara til Sakar-
ya sem er i um 20 km frá Izmit. Þar
hefur lítið verið leitað og vonast
Sólveig eftir góðum árangri þar í
dag.
Engan fundið á lífi
„Síðan við komum hingað höfum
við ekki fundið neinn lifandi. Ef við
erum að leita og finnum á lyktinni
að þar er enginn á lífi þá hættum
við. Við vinnum ekki við að grafa
upp látna því við einblínum á að
finna lifandi fólk. Við erum svolítið
vonsvikin að hafa engan fundið á lífi
en það er ekki öll von úti enn. Tæk-
in sem við komum með reynast mjög
vel. Við erum i raun með betri tæki
en bandarísku sveitirnar og þær
sækja mjög í að njóta okkar krafta.
Við komum einnig með tvö GPS-tæki
að heiman og þau hafa reynst ótrú-
lega vel. Hér er mjög erfitt að rata og
við höfum getað leiðbeint þyrlum
sem hér þmfa að athafna sig. Björg-
unarmenn okkar eru því að öðlast
geysilega mikilvæga reynslu, bæði í
raunverulegri rústabjörgun og í að
vinna í alþjóðlegu björgunarsam-
starfi," segir Sólveig.
Skaftafellssýsla:
Tiikynnt um dauð dýr daglega
Lögreglan á Höfn í Homafirði
segir að svo virðist sem það hafi
verið að aukast undanfarið að bíl-
ar aki á lömb og kindur á þjóðveg-
um umdæmisins, t.d. í Suður-
sveit. Nú orðið líði varla sá dagur
að einhver bóndinn hringi ekki
og tilkynni um dautt lamb eða
kind sem einhver ökumaðurinn
hefur drepið með því að aka á.
Komið hefur fyrir að bændur hafi
gengið fram á hálfdauð dýr. Öku-
menn tilkynna sjaldnast til
bænda eða lögreglu ef þeir hafa
ekið á dýr og aka jafnan í burtu
eftir að óhöppin hafa átt sér stað.
í september mun Vegagerðin
halda fúnd með bæjaryfirvöldum
á Höfn þar sem ræddar verða leið-
ir í eins konar tilraunaverkefni
með hvemig koma megi í veg fyr-
ir lausagöngu búfjár þar sem
hætta er á slysum.
-Ótt
íslenski björgunarhópurinn heldur leit áfram þrátt fyrir að víða hafi þungavinnuvélar leyst björgunarmenn af hólmi.
Ömurlegar aðstæður
„Okkar starf gengur þannig fyrir
sig að við fáum upplýsingar frá
bandarísku sveitinni, sem við störf-
um við hlið, um hvar við eigum að
leita. Oftast eru þær upplýsingar
komnar frá innfæddum en samstarf
við heimamenn hefur gengið ákaf-
lega vel. Svo virðist sem heima-
mönnum þyki ákaflega vænt um þá
miklu aðstoð sem þegar hefur
borist. Aðstæður fólks hér eru öm-
urlegar og mjög margir hafast við á
götum úti í hálfgerðum hreysum.
Ég veit ekki hvort það er vegna
heimilisleysis eða af ótta við sterka
eftirskjálfta en það má alveg búast
við þeim. Hér hefur verið rafmagns-
laust frá því á þriðjudaginn en
smám saman er að komast á eitt-
hvað rafmagn. Við höfum nóg vatn
en almenningur hér býr við vatns-
skort,“ segir Sólveig.
Viljum halda áfram
„Við viljum halda áfram að leita
að fólki. Sá dagur hefur ekki enn
liðið að enginn finnist á lífi í rúst-
unum og á meðan svo er viljum við
halda áfram. Ef við finnum að þörf
er fyrir krafta okkar höldum við
ótrauð áfram. Það er í mínum hönd-
um hvenær við hættum störfum hér
en ég ákveð það í samráði við utan-
ríkisráðuneytið. Eins og staðan er
núna búumst við að vera hér í viku
eins og upphaflega var ráðgert. Hins
vegar geta aðstæður hér breyst
mjög fljótlega þvi þetta er náttúr-
lega jarðskjálftasvæöi," segir Sól-
veig að lokum. -bmg
• ««
innimáfnine/
5 litrar kr. 1.955.-
ÖH filtteppi á kr. 250.- m2
Gótfdúkar frá kr. 590.- m2
15% afstáttur
öttum hreintœtisttekjum
VerMcemi:
Geqnheitar útíftísar frá kr. 990. -
Afoangar frá kr. 600.- m2
KNARRARVOGI 4 • S 568 6755
Hornbatke.
r nieð nutítíi
99.500..
o
ÓDÝRI MARKAÐURINN
ÁLFABORGARHÚSINU KNARRARVOGI 4