Dagblaðið Vísir - DV - 23.08.1999, Side 9
MÁNUDAGUR 23. ÁGÚST 1999
9
Utlönd
Jonathan Motzfeldt.
Grænlendingar
vilja að Nyrup
biðjist afsökunar
Jonathan Motzfeldt, formaður
grænlensku heimastjórnarinnar,
segir að sambandið við Danmörku
eigi eftir að batna í kjölfar dómsins
í svokölluðu Thule-máli. Land-
stjórnarformaðurinn vildi þó gjarn-
an að Poul Nyrup Rasmussen, for-
sætisráðherra Danmerkur, bæðist
afsökunar á framferði danskra
stjórnvalda.
Eystri-Landsréttur í Kaupmanna-
höfn dæmdi á föstudag forsætis-
ráðuneytið danska til að greiða
skaðabætur til íbúa í Thule á Græn-
landi fyrir nauðungarflutninga
þeirra burt frá heimilum sínum ár-
ið 1953. íbúarnir þurftu að rýma fyr-
ir bandarískri herstöð þar.
Motzfeldt hefur nú verið boðið til
Kaupmannahafnar til að fara yfir
dóminn með forsætisráðherranum.
Hann telur að dómurinn muni bæta
samskipti landanna.
„Við getum nú rætt saman á jafn-
réttisgrundvelli," sagði Motzfeldt í
danska blaðið Aktuelt.
Lögmaður íbúa Thule sem fóru í
mál við danska ríkið segir forsætis-
ráðherrann allt að því skyldugan að
biðja Grænlendinga afsökunar á
flutningunum.
Barist um mikilvægt þorp í Dagestan:
Múslímar reynast
Rússunum erfiðir
Næsta víst þykir að rússneskir
ráðamenn geti ekki staðið við stóru
orðin um að hersveitir þeirra muni
fljótt og vel ráða niðurlögum ís-
lamskra uppreisnarmanna í
Kákasuslýðveldinu Dagestan.
Harðir bardagar geisuðu i gær milli
milli rússneskra hermanna og upp-
reisnarmanna múslíma sem vilja
stofna íslamskt ríki. Bardagamir hafa
nú staðið á þriðju viku.
Deilendur sögðust hvorir tveggja
sér hafa orðið vel ágengt í gær í orr-
ustum um mikilvægt þorp í fjöllum
Dagestans.
Innanríkisráðherra Rússlands,
Vladímír Rúsjaíló, sagði í viðtali við
ríkissjónvarpið RTR að uppreisnar-
menn væru innikróaðir í þorpinu
Tandó.
„Þeir geta ekki flúið og það er ætl-
un okkar að ganga alveg frá þeim,“
sagði ráðherrann.
Rússneskir embættismenn sögðu
að hersveitir þeirra hefðu náð hluta
Tandó á vald sitt. Uppreisnarmenn
segjast aftur á móti hafa svarað árás-
um Rússa af fullri hörku og tortímt
flokki fallhlífarhermanna.
Rússar vörpuöu sprengjum úr flug-
vélum á stöðvar uppreisnarmanna all-
an daginn.
Vladímír Pútin, forsætisráðherra
Rússlands, sagði hinn 10. ágúst að
uppreisnarmennirnir yrðu þurrkaðir
út innan hálfs mánaðar. Sá frestur
rennur út á morgun og eru litlar líkur
taldar á að Pútín geti staðið við þetta
loforð sitt. Pútín hitti háttsetta menn
í gær til að ræða ástandið í Dagestan.
Rússneskir hermenn taka fyrir eyrun vegna hávaðans í sprengjuvörpunum
sem þeir beita í bardögum við uppreisnarmenn múslíma i Dagestan.
Uppreisnarmenn
í Alsír drepa sjö
Uppreisnarmenn úr hópi rót-
tækra múslíma drápu sjö menn
úr hópi vopnaðra stuðningssveita
stjómvalda í fyrirsát á laugar-
dagskvöld og særðu aðra fimm.
Heimildarmenn herma að upp-
reisnarmennirnir hafi sprengt
sprengju í vegkantinum nærri
farartækinu sem mennirnir tólf
vom í á fjallavegi um 110 kiló-
metra austan höfuðborgarinnar.
Siðan skutu uppreisnarmennimir
úr vélbyssum sínum.
Útsalan
Síðustu dagar
Barnaskór í miklu úrvali
Stærðir
25-34
Komið og gerið
góð kaup
Toppskó
1 * Veltusundi
rinn
Veltusundi v/lngólfstorg
Sími 552 1212
Stanslaust á verði
fyrir neytendurP
t Bónusbœklingurinn kom-inn "*■
á heimilin á þriðjudaginn var,/
» sneisafullur af tilboðum!
Bónusbrauð, ólegg, SS pylsur'
og Prinsessan og durtarnir,^
► .skyndiréttir, nautahakk,
kartöflur, gulrœtur og rófur,-
• kafti, kex og grautar,
kökur og margt fleira.
. Gluyyið í tilboðin! 3
BONUS
"1
1