Dagblaðið Vísir - DV - 30.08.1999, Qupperneq 4
22
MÁNUDAGUR 30. ÁGÚST 1999
Sport
i>v
Grindavík meistari
Grindavík vann hraðmót Vals í körfubolta en þar tóku öll
úrvalsdeildarliðin í körfuboltanum þátt, auk Valsmanna.
Grindavík vann Keflavík 50-48 í æsispennandi úrslitaleik.
Liðin léku einnig úrslitaleikinn í fyrra en þá vann Keflavík.
Stigahæstur Grindvíkinga var Randy Bolden með 29 af 50
en hjá Keflavík skoruðu Guðjón Skúlason og Fannar Ólafs-
son flest eða 11 stig. -RG/-ÓÓJ
Yfirburðir hjá Hafsteini
Hafsteinn Ægir Geirsson úr Brokey sigraði
með yfirburðum á íslandsmeistaramóti á
Laserbátum sem lauk í Hafnarflrði í gær.
Hann fékk aðeins 5 refsistig. Guðjón Ingi
Guðjónsson úr Nökkva kom næstur með 9
refsistig og Baldvin Björgvinsson úr Ými varð
þriðji með 18. -VS
Bow til KR-inga
Jonathan Bow lék með KR-ingum á hraðmóti Vals í körfu
um helgina og er að öllu óbreyttu á leið til liðsins. Bow lék
síðast hér heima með KR-ingum veturinn 1996-97 en hefur
leikið í Skotlandi og Þýskalandi undanfarin tvö ár. Bow
hefur einnig leikið meö Haukum, Keflavík og Val hér á
landi en kom hingað 1989. -ÓÓJ
ÍAO(O) - Valur 1 (0)
Ólafur Þór Gunnarsson - Reynir Leósson,
Gunnlaugur Jónsson, Alexander Högnason,
! Sturlaugur Haraldsson (Unnar Valgeirsson 80.) - Kári Steinn
: Reynisson, Jóhannes Harðarsson @, Heimir Guðjónsson, Pálmi
: Haraldsson @ - StefánÞ. Þórðarson @, Kenneth Matijane (Ragnar
Hauksson 73.) Gul spjöld: Jóhannes.
Rjörvar Hafliðason @ - Guðmundur Brynjólfsson,
Stefán Ómarsson, Lúðvík Jónasson @, Jón Þ.
: Stefánsson - Adolf Sveinsson (Izudin Daði Dervic 85.), Kristinn
Lárusson @, Sigurbjörn Hreiðarsson @@, Mattías Guðmundsson
í (Helgi M. Jónsson 78.) - Ólafur Ingason, Amór Guðjohnsen @.
Gul spjöld: Jón Þ., Stefán, Lúðvík, Dervic. Rautt spjald: Stefán.
r*
Baráttuglaður vlnnuhestur sem drelf sína menn áfram.
ÍA - Valur ÍA - Valur
Markskot: 15 10 Völlur: Mjög góður.
Hom: 9 5 Dómari: Rúnar
Áhorfendur: Um 650. Steingrímsson, sæmilegur.
Maður leiksins: Sigurbjörn Hreiðarsson, Val.
6mörk
- enn glopra Framarar niður forustu
Leiftur og Fram gerðu enn
eitt jafnteflið og nú eru bæði
liðin búin að gera 7 jafntefli í
sumar og eru þar á toppnum.
Það má reyndar segja að bæði
lið hafi tapað tveimur stigum.
Með sigri hefði Leiftur tryggt
sér sæti í deildinni og Fram
bjargað sér af mesta fallsvæð-
inu en eftir leiki helginnar er
rúmlega helmingur liðanna í
bullandi fallhættu.
Skyndisóknir Fram
Framarar beittu hættuleg-
um skyndisóknum. Upp úr
tveimur slíkum komu fyrstu
mörkin og í bæði skiptin
steinsvaf vöm Leifturs. Fram-
arar fengu eitt algjört dauða-
færi þegar
Hilmar
Björnsson
var einn á
móti Jens,
sem varði
feikilega
vel í það
skiptið.
Leifturs-
menn
skiptu úr
þriðja gír í
þann Qórða
strax eftir
hlé, enda
skoruðu
þeir á besta
tíma.
það
nánast um
einstefnu
að marki
Fram að
ræða. Leiftur réði gangi leiks-
ins nánast alveg og Framarar
virtust ráðþrota, enda fengu
þeir á sig tvö mörk til viðbót-
ar og voru, þegar upp var
staðið, stálheppnir að fá stig
úr leiknum. Það var ekki fyrr
en á allra síðustu mínútunum
að Framar hresstust og sóttu í
lokin.
Sterkur sigurvilji
Það er ekki hægt annað en
að hæla liði sem lendir tveim-
ur mörkum undir og kemst
síðan yfir. Slíkt sýnir karakt-
er og sterkan sigurviija. Það
voru aðeins augnabliks mis-
tök reynds markvarðar í blá-
lokin sem kostuðu Leiftur sig-
urinn og þar
með tvö stig.
Hins vegar
geta Framar-
ar líka nagað
sig í handa-
bökin fyrir að
missa niður
tveggja marka
forystu en
þeir eru orðn-
ir vanir slíku.
Liðið koðnaði
niður strax í
seinni hálfleik
og leikmenn
voru utan-
gátta, enda
voru þá Leift-
ursmenn að
spila hreint
alveg glimr-
andi vel.
-HJ
Eftii
víu
0-0 Ágúst Gylfason (36.)
w v skoraði með óveijandi
skoti frá vítateig eflir að hafa ein-
leikið óáreittur upp alian völl.
0-0 Ásmundur Arnarsson
v ” (40.) skoraði laglega úr
vítateig eftir fínan undirbúning og
sendingu Hilmars Björnssonar.
0-0 Póll V. Glslason (48.)
v w með skalla eftir hom
nafna sins Guðmundssonar.
0-0 Uni Arge (68.) úr víta-
w w spymu sem hann fékk
sjálfur er Sævar Guðjónsson braut.
0_C\ Alexandre da Silva
” (76.) hamraði knöttinn
inn af stuttu færi eftir aukaspymu
Páls Guömundsonar.
Ö_0 Höskuldur Þórhallsson
(87.) með skalla yfir Jens
Martin sem var kominn of langt út.
Ásmundur gaf fyrir markið.
Leiftur3(0) - Fmm3(2)
Jens Martin Knudsen - Sergio de Macedo @,
Hlynur Birgisson @, Július Tryggvason @, Steinn
Viðar Gunnarsson, - Þorvaldur Sveinn Guðbjömsson, Páll V. Gíslason
@, Alexander da Silva @@, Gordon Forrest (Alexander Santos, 47.),
Páll Guðmundsson @ - Uni Arge @.
Gul spjöld: Steinn, da Silva.
Friðrik Þorsteinsson @ - Albert Ásvaldsson, Sævar
Guðjónsson, Sævar Pétursson @, Anton Bjöm
Markússon - Halldór Hilmisson, Ágúst Gylfason @, Sigurvin
Ólafsson, Hilmar Bjömsson @ (Höskuldur Þórhallsson 84.), -
Ásmundur Amarsson @, Marcel Orlemans.
Gul spjöld: Halldór H., Sigurvin, Albert, Hilmar.
Leiftur - Fram Leiftur - Fram
Markskot: 16 10 Völlur: Sunnangola.
Hom: 7 4 Dómari: Kristinn
Áhorfendur: 250. Jakobsson. Ágætur.
Maður leiksins:Alexandre da Silva, Leiftri
Feykilega duglegur með gott auga fyrir spili.
Fylkir meistari
0-1 Jóhann Traustason (15. min)
1- 1 Theódór Óskarsson (18. mín)
2- 1 Gylfl Einarsson (37. min)
3- 1 Kristinn Tómasson (55. mín)
Fylkir tryggði sér meistaratitil 1.
deildarinnar á föstudagskvöld með
3-1 sigri á KA en sólarhring áður
var sæti Árbæinga í úrvalsdeildinni
gulltryggt.
Leikurinn var ágætis skemmtun,
og fullur af færum, sérstaklega upp
við mark KA. Þó gat KA-liðið verið
mjög beitt í sóknum sínum með þá
Ásgeir M. Ásgeirsson og Dean Mart-
in fremsta í flokki. Fylkisliðið aftur
á móti hefur sýnt að þama fer eitt
sterkasta lið sem félagið hefur átt og
hefur á að skipa mörgum góðum
leikmönnum eins og Kristni Tóm-
assyni, Kjartani Sturlusyni og Gylfa
Einarssyni. Einnig verður að nefna
Ómar Valdimarsson sem líklega
sterkasta varnarmann deiidarinnar.
„Já, þetta hefur verið góður sólar-
hringur. í gær fórum við upp, í dag
erum við orðnir meistarar og stiga-
metið er en innan seilingar,” sagði
Kristinn Tómason eftir leikinn.
Maður leiksins: Kristinn Tóm-
asson, Fylki. -EÞG
. DEILD KARLA
Fylkir 15 12 0 3 34-18 36
ÍR 15 8 2 5 41-27 26
Stjarnan 15 7 2 6 30-27 23
FH 15 6 4 5 33-25 22
Dalvik 15 6 3 6 25-34 21
Þróttur R. 15 6 2 7 23-22 20
Skallagr. 15 6 1 8 29-31 19
Víðir 15 5 2 8 23-37 17
KA 15 4 4 7 20-22 16
KVA 15 4 2 9 24-39 14
Eilíft Irf Vals
- Hlíðarendapiltar komust úr botnsætinu með sigri á ÍA
Strákarnir í Val blésu
kröftuglega á falldrauginn
sem riðið hefur húsum að
Hlíðarenda í allt sumar þegar
þeir gerðu sér lítið fyrir og
unnu Skagamenn á þeirra
eigin heimavelli, 1-0, í efstu
deild karla í gær.
Með sigrinum færðust
ValsEU’ar úr neðsta sæti deild-
arinnar í það áttunda. Valur
er eina lið efstu deildar sem
ekki hefur fallið niður um
deild og með sigrinum í gær
lagði liðið grunninn að því að
svo verði ekki á þessari öld í
það minnsta, haldi liðið
áfram að leika með sömu bar-
áttu og það gerði í gær.
Leikurinn hófst með mikl-
um látum og strax á fyrstu
mínútu leiksins fengu bæði
lið góð færi sem þeim tókst
ekki að
nýta.
Skaga-
menn náðu
undirtök-
unum í leiknum og fékk liðið
nokkur kjörin tækifæri til að
skora en inn vildi boltinn
ekki.
Skagamenn komu ákveðn-
ir til síðari hálfleiks, sóttu
mun meira, en Valsmenn
vörðust fimlega og skyndi-
sóknir þeirra voru hættuleg-
ar. Á 78. mínútu fékk Stefán
Ómarsson reisupasscmn fyrir
tvö gul spjöld en við það mót-
læti hertust
Valsmenn
og skoraði
Kristinn
Lárusson
sigurmark þeirra rúmri mín-
útusíðar. Eftir markið bökk-
uðu Valsmenn og á sama
tíma gætti óþolinmæði í leik
Skagsimanna, sem gerðust að-
gangsharðir við Valsmarkið
án þess að ná að leika á
Hjörvar Hafliðason, mark-
verði Vals, og vörn hans.
Lukkan gekk í lið með Val
í þessum leik, enda vann lið-
ið til þess með baráttu- og sig-
urvilja. Þetta var fyrsti sigur
liðsins í fimm leikjum og
aðeins annar sigur þeirra á
útivelli í 22 leikjum. Skaga-
menn höfðu undirtökin
lengst af leiknum en geta
nagað sig upp að olnbogum
fyrir að hafa ekki nýtt þau
færi sem buðust og tryggt sér
eitt stig eða fleiri úr þessari
viðureign. -ih
0-A Kristinn Lárusson (80.)
v v með skalla úr vltateig eftir
sendingu írá Amóri Guðjohnsen úr
aukaspymu, gullfallegt mark.
Dalvíkingar sloppnir?
- eftir sigur á Víðismönnum, 1-0
1-0 Atli V. Bjömsson (28.)
Dalvíkingar unnu
gríðarlega mikilvægan
sigur í botnbaráttunni í
1. deild þegar þeir lögðu
Víði með minnsta mun
á heimavelli á laugar-
daginn og eiga nú alla
möguleika á aö sleppa
við fall.
Það voru Víðismenn
sem voru miklu sterkari
í fyrri hálfleik, án þess
að skapa sér teljandi
færi. Það má því segja
að mark Atla Viðars á
28. min hafi komið gegn
gangi leiksins. Eftir
markið hljóp svolítið líf
í heimamenn, en ekki
skoruðu þeir fleiri
mörk. Að öðru leyti var
fyrri hálfleikur tíðinda-
lítill.
í síðari hálfleik
treystu heimamenn
mikið á skyndisóknir.
Víðismenn lögðu allt í
sóknina og náðu ágætu
spili um tíma en þegar
kom að vítateig and-
stæðingsins urðu þeir
ráðþrota. Sóknarleikur-
inn var frekar hug-
myndasnauður og það
var auðvelt fyrir vörn
Dalvíkinga á taka á mál-
inu. Dalvíkingar áttu
miklu fleiri opnari færi
og voru nær því að bæta
við öðru marki. Með
öðrum orðum: Sigurinn
var miklu öruggari held-
ur en markatalan segir
til um.
Maður leiksins: Atli
Viðar Björnsson, Dal-
vík. -HJ
KVA á hættuslóð
0-1 Hreinn Hringsson (15.)
Staða KVA í 1. deildinni er orðin mjög
erfið eftir 0-1 tap gegn Þrótti R. á Eskifirði
á föstudagskvöldið. Leikmannahópur KVA
hefur orðið fyrir hverju áfallinu af öðru og
liðið spilar engan veginn eins og það getur
best. Það átti þó í fullu tré við daufa Þrótt-
ara í leik sem einkenndist af baráttu og
taugaspennu en áferðarfalleg knattspyrna
varð að víkja. Hreinn skoraði markið eftir
mikil varnarmistök KVA og heimamönn-
um var veitt náöarhöggið undir lok fyrri
hálfleiks þegar Marijan Cekic var vikið af
velli eftir hörmuleg dómaramistök. Það var
þó ekki fyrr en KVA tók áhættu í sóknar-
leiknum að Þróttarar nýttu sér liðsmuninn
og fengu færi til að auka muninn.
Maður leiksins: Hreinn Hringsson -FÞ