Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.1999, Page 14
14
ÞRIÐJUDAGUR 31. ÁGÚST 1999
Kvikmyndir
Limbo
á hjara veraldar
Trick
Gamaldags
rómantík eftir
„klæðskiptingu
Drama
. . . j John Sayles er leikstjóri
sem alltaf tekur áhættu og
þótt Limbo sé hans fyrsta kvikmynd
gerð innan ramma stóru fyrirtækj-
anna í Hollywood þá hefur hann öll
völd um endalega útkomu sem sést
vel í lokin. Víst er að hefði hann
ekki haft þetta vald hefðum við
fengið annan endi sem hefði verið í
anda Hollywood. Endirinn leiðir
hugann að því að sjálfsagt er sú ein-
hæfni og hugmyndaleysi sem ein-
kennir stóran hluta kvikmynda frá
Hollywood að hluta til kominn
vegna þess að verið er að krukka í
endanlegar útgáfur leikstjóranna af
markaðsmönnum með dollara-
glampa í augum. Hvað um það,
John Sayles tekur mikla áhættu í
Limbo, ekki bara í lokin heldur
hvemig hann breytir rómantiskri
sögu um tvær manneskjur, sem
nálgast miðjan aldurinn og hafa
orðið undir í lífinu, í dramatískt
ævintýri xnn hvemig hægt er að
komast af í auðnum Alaska, þar
sem kuldinn er mikill að nóttu til og
veturinn nálgast. Þessi snögga
skipting í miðri kvikmynd hefði get-
að orðið akkilesarhæll myndarinn-
ar, en Sayles er vandanum vaxinn
og vinnur vel úr persónum sínum.
Hann sýnir nýjar hliðar á þeim sem
ekki var hægt að merkja áður og má
segja að Sayles neyði okkur til að
gleyma því sem persónumar vora
áður og taka við þeim á nýjan leik.
Frábær úrvinnsla sem skiíar sér f
sterku drcima.
Þetta tekst Sayles með aðstoð frá-
bærra leikara. David Straitham,
sem leikið hefur í fleiri en einni
mynda Sayles, leikur fyrrum flski-
manninn Joe Gastineau, sem getur
ekki gleymt atriði úr fortíð sinni og
vill kenna sér um dauða tveggja sjó-
manna. Verður þessi rólyndi og yf-
irvegaði maður einkar sannfærandi
í meðforum hans. Mary Elizabeth
Mastrantonio fær litríkari persónu
til að kljást við, söngkonuna Donnu
DeAngelo sem cddrei hefur náð að
komast upp úr streðinu sem því
fylgir að syngja á börum og ekki
hefur hún verið heppnari með
kærasta. Mastrantonio sýnir snilld-
arleik og er þar að auki góð söng-
kona. Það kæmi ekki á óvart ef hún
yrði orðuð við óskarsverðlaunin á
næsta ári. Þriðja aðalhlutverkið er
dóttir Donnu, Noell, gáfúð stúlka
sem á við sálræn vandamál að
stríða, sættir sig ekki við móður
sína og þaö líf sem hún lifír. Þessum
persónum telfír John Sayles saman
á hjara veraldar þar sem hið eina
sem getur komið þeim til bjargar er
sjálfshjargarviðleitnin.
Limbo er dýpri kvikmynd en ætla
mætti í fyrstu, raunsæið er ailsráð-
andi og Sayles sleppir aldrei persón-
um sínum í einhvem vaðal um lífið
og tilveruna án þess að minna okk-
ur á að ekki er allt gull sem glóir.
Leikstjórn, klipping og handrit:
John Sayles. Kvikmyndataka:
Haskell Wexler. Tónlist: Mason
Daring. Leikarar: Mary Elizabeth
Mastrantonio, David Straitharn,
Vanessa Martinez, Kris
Kristofersson og Casey Siema-
szko. Hilmar Karlsson
irirí Gabriel (Christian Campbell)
er skrifstofublók sem semur
söngleiki í frístundum. Á heimleið úr
vinnu einn daginn kemur hann við á
fatafellubar þar sem Mark (John Paul
Pitoc) leikur listir sínar. Fyrir tilviljun
hittast þeir stuttu síðar í neðanjarðar-
lest og hefjast þá æði dramatísk kynni.
Vinkona Gabriels,
Katherine (Tori
Spelling), er þó
ekki með öllu sátt
við gang mála og
verður þrándur í
götu þeirra. Það
sem kemur einna
helst á óvart við
Gabriel og Mark og
aðrar samkyn-
hneigðar persónur myndarinnar er
hversu miklar stereotýpur þær eru, en
ætli það sé ekki til gamans gert.
Hoilywood hefur vissulega orðið um-
burðarlyndari í garð homma á undan-
fómum árum og mætti nefna því til
staðfestingar myndir á borð við The
Object of My Affection (1998) og Phila-
delphia (1993). (Jonathan Demme leik-
stýrði þeirri síðamefndu en mynd hans
Beloved er að finna á kvikmyndahátíð-
inni.) Engu að síður hefur Hollywood
aldrei, svo ég viti, tekið upp sjónarhom
homma með jafn afgerandi hætti og
Trick gerir. Þar á ég við að linsan dans-
ar eftir áhuga þeirra og löngunum í stað
„hins aimenna áhorfanda". Ef marka
má kvenpersónur myndarinnar er
reyndar með ólíkindum að karlmenn
vUji almennt eitthvað með hitt kynið
hafa, þótt sú ímynd sé auðvitað sett
fram í háði.
Hvort sem það er vegna þess að
HoUywood gerir slíkar hommamyndir
eður ei virðist
ríkja sú tUhneig-
ing að telja þær
einatt tU list-
rænna mynda.
Trick er aftur á
móti dæmigerð
rómantísk ástar-
saga í léttum dúr
að því fráskUdu
að tveir karlar
mynda parið. Þó ber að nefna að tungu-
tak Trick er óvenju djarft. Almennt séð
er margt skemmtUega og vel gert en
myndin hefur sig vart upp úr meðal-
mennskunni. Hér er þó um að ræða ein-
stakt tækifæri fyrir samkynhneigða
áhorfendur því það er víst áreiðanlegt
að myndir af þessu tagi eru sjaldséðar í
kvikmyndahúsum hérlendis. Öðrum er
hægt að lofa forvitnUegri tUbreytingu og
ágætisskemmtun.
Leikstjóri: Jim Fail. Handrit: Jason
Schafer. Kvikmyndataka: Terry Stacey.
Aðalhiutverk: Christian Campbell, John
Paul Pitoc, Tori Spelling og Stephen
Hayes. Bandarísk, 1999.
Bjöm Æ. Norðfjörð
Dagskrá þriðjudaginn 31. ágúst
HÁSKÓLABÍÓ
sámi
SNORRABRAUT
16:50 The Winslow Boy 17:00 Sex-Annabel Chong
17:00 Lucky People Center Full Metal Jacket
19:00 Ratcatcher Beloved
Non Stop 19:00 Sex-Annabel Chong 16:00 Happiness
21:00 Black Cat White Cat 19:15 Slam 17:00 Half a Change
Do You Remember Bell 21.00 Sex-Annabel Chong Children of Heaven
23:00 Time of the Gypsies Slam 18:30 Happiness
My Mom is a Gangster The Big Swap 19:00 Last Days
23:00 Sex-Annabel Chong Three Seasons
Full Metal Jacket 21:00 Happiness
23:20 The Shining 23:30 Arizona Dream Happiness Trick
er klúbbur hútfðarinnar
vefs/ða hán'ðarinnar
vísir.is
ná
FLUGfíLAO ÍSLANDS 'S
Air iceland iHBHi
TVG-ZIMSEN