Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.1999, Blaðsíða 15
ÞRIÐJUDAGUR 31. ÁGÚST 1999
15
Gæsaskyttiríið að hefjast
Þann 20. ágúst sl. hófst nýtt gæsaveiði-
tímahil. Þúsundir veiðimanna hafa beðið
óþreyjufullar eftir því að geta farið með
byssuna upp um fjöll og fimindi að leita
sér að bráðf enda vita sumir ekkert
skemmtilegra en vera að veiðum í guðs-
grænni náttúmnni. Tilveran ræðir við
þrjár gæsaskyttur í dag.
Margrét og maðurinn hennar, Sigurður Magnússson matreiðslumaður, kynntust í gegnum gæsaveiðiáhugann og
fara mikið á veiðar saman.
Margrát Pétursdóttir hefur verið gæsaskytta í þrettán án
Sumir karlmenn dauðöfunda okkur
Eg hef stundað þetta í þrettán
ár og er alltaf að læra eitthvað
nýtt og nýtt,“ segir Margrét
Pétursdóttir. „Ég byrjaði vegna
áhrifa frá fjölskyldunni og hef verið
í þessu síðan. Yfirleitt er þetta
þannig að við förum út um nótt með
gervigæsir og bíðum eftir morgun-
flugi gæsanna og byrjum þá veið-
ina. Þetta er mjög spennandi."
Hvemig finnst þér álit almennings
vera í garð gæsaskyttna?
„Stundum finnst mér vera nei-
kvæður tónn í umræðunni og oft er
hún mjög tilfinningatengd. Fólk
gleymir því stundum að bæði tíðar-
far og rándýr taka sinn toll af gæsa-
stofninum, ekki síður en veiðin.
Þetta er samt allt á réttri leið,“ seg-
ir Margrét. „Sumir halda að þetta
sé bara óður byssuleikur en það er
algjör vitleysa. Ég hef ekki vonda
samvisku yftr því að drepa gæsim-
ar, enda væri ég þá sennilega löngu
hætt.“
Með hverjum ferðu helst á veið-
ar? „Ég fer mest með manninum
mímnn og við skemmtum okkur vel
við þetta, enda eigum við þetta
áhugamál sameiginlegt. Gæsaveiðin
varð til þess að við kynntumst.
Sumum körlum finnst voðalega
asnalegt að hjón fari saman á veið-
ar og vilja helst halda þessu alveg
fyrir sig, að „fara með strákunum"
að veiða, og ég skil það alveg. Það
getur stundum verið gott að kúpla
sig frá fjölskyldunni. En okkur
finnst skemmtilegt að fara á veiðar
saman. Sumir karlmenn dauðöf-
unda okkur og langar að fá konum-
ar sínar með sér i veiðimennskuna,
þannig að þetta skiptist í tvö hom.
Það er bara svo skemmtilegt að
vera úti í náttúrunni og kynnast
henni betur og betur með hverju ár-
inu. Það gefúr manni mjög mikið,“
segir Margrét að lokum.
-HG
Ólafur Sigurgeirsson lögfræðingur:
Skemmtilegast að ná gæsinni sitjandi
Eg byrjaði að skjóta gæs árið
1966, þegar ég var átján ára,
þannig að ég er búinn að
stunda þetta í 33 ár,“ segir Ólafur Sig-
urgeirsson, lögfræðingur og gæsa-
skytta. En hvað var það sem fékk
hann til að snúa sér að gæsaveiðum í
upphafi? Ólafur segist vera einn af
þeim sem hafa „veiðináttúru", eins
og hann kallar það. „Svo var frændi
minn í Borgarfirði mikil gæsaskytta
þegar ég var strákur og hann kenndi
mér grunnatriði, eins og hvemig gæs-
in hagar sér við hinar og þessar að-
stæður, hvar hún heldur sig og
hvemig maður fer að því að veiða
hana. Ef maður ætlar að endast í
þessu sporti er bráðnauðsynlegt að
vita þetta, því annars veiðir maður
ekkert og gefst fLjótlega upp.“
Hvemig stendur á því að þú ert bú-
inn að endast í þessu í rúma þrjá ára-
tugi? „Kannski er það bara vegna
þess að ég er orðinn svo gamall," seg-
ir Ólafur og hlær. „Nei, það er bara
svo skemmtilegt að vera að veiðum í
Ólafur hefur stundað gæsaveiðar í
33 ár.
íslenskri náttúm. Það alskemmtileg-
asta er það þegar maður er búinn að
skríða í túnum í ef til vill tvo tíma að
leita að gæs og getur svo skotið þá
fyrstu i hópnum sitjandi. Það er miik-
ill sigur, því gæsin er svo stygg að
maður getur sjaldan komist upp að
henni. En hinar skýtur maður á
lofti."
Hefur gæsaskyttum á íslandi fjölg-
að mikið síðan þú byijaðir? „Já, mjög
mikið. Það er aðallega af tveimur
ástæðum, held ég. Fólk ferðast svo
miklu meira en áður. Það hefur líka í
för með sér meiri útivist, og þar með
veiðar. Svo var Skotveiðifélagið með
námskeið fyrir nokkrum árum þar
sem kennd voru réttu handbrögðin
við gæsaveiðar og þá varð mikil
sprenging í fjölda veiðimanna því þá
gátu fleiri haldið á veiðar með góðum
árangri en áður.“ -HG
Byssudella breyttist í lífsstíl
Eg hef verið við veiðar frá 1980
og varla sleppt úr helgi síðan ég
byijaði. Vandinn við gæsaveiði
er sá að finna sér veiðistað þar sem
fuglamir hafa verið í friði. Það er
ekki nóg að finna bara fúglinn, held-
ur verður hann að vera öruggur um
sig á þessum stað. Annars næst eng-
inn árangur. Þegar fuglinn hefur
dvalist við beit á túni í nokkra daga
ótruflaður er hægt að leggja til at-
lögu. Gallinn er bara sá að núna er
orðin svo ofboðsleg ásókn í veiðamar
að fuglinn er orðinn mjög styggur.
Þetta á t.d. við á Suðurlandi og víðar
á landinu."
Víglundur segir að með aukinni
ásókn í veiðina hafi stofninn ekki
minnkað. „Þegar ásóknin eykst, veij-
ast fuglamir betur en áður og þannig
ver náttúran stofninn. Það er bara
verst að veiðitímabilin era á snarvit-
lausum tima. Það ýtir undir alls kon-
ar vitleysu í sambandi við veiðamar
sem hægt væri að komast hjá með
skynsamlegri veiðistjómun. Ég fer
t.d. ekki að veiða gæs fyrr en um
miðjan september, núna er hún
grindhoruð og með blóðfjaðrir."
En hvað veiðir Viglundur marga
fugla á ári? „Ég veiði 20-40 gæsir á ári
en ég hef veitt miklu meira. En ég skýt
margt fleira en gæs. Þar má fyrst og
fremst nefna ijúpu, svo hef ég veitt
svartbak, lunda, endur, skarfa og seli.
Áhuginn hefur breyst í gegnum árin.
Fyrst var þetta byssudella og maður
fékk alveg rosalegt adrenalínkikk út
úr þessu, spennan var svo mikil. Núna
er þetta frekar orðið lífsstíll. Mér
finnst svo gaman að vera á fjöllum.
Það er rólegt og þægilegt. Strákurinn
minn, tiu ára, er hins vegar kominn
með veiðidellu. Stundum höfúm við
konan farið saman að veiða og stund-
um kemur sonur minn með. En oft fer
fjölskyldan í berjamó eða dundar sér á
meðan ég er að veiðum." -HG
Víglundur er margreynd skytta,
enda hefur hann verið við veiðar
nærfellt hverja helgi síðan 1980.
AutoCAD 2000 ]►
AutoCAD 2000 ►
I- m
AutoCAD 2000]►
AutoCAD 2000 !►
Grunnur
Framhald
Nýjungar
3D
íil Autoik'sk.
Authorised Training Centre
© SflCRTILL