Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.1999, Page 1
Ofbeldis-
fullir
tölvuleikir
Bls. 20-21
í vinnu hjá
Microsoft
Bls. 18
Hin
fullkomna
fyrirsæta
Bls. 19
tölvui tækni og vísinda
PlayStation
Kauphringir gagnrýndir
Netverslunin Amazon.com er lent í vand-
ræðum eftir að fyrirtækið hefur tilkynnt að
það hyggist birta svokallaða „kauphringi"
(purchase circles) á vefsíðu sinni. Kaup-
Imingimir virka þannig að Amazon birtir
þar hvaða bækur eru vinsælastar á ákveðn-
um landssvæðum eða innan ákveðinna stórfyrirtækja. Þeir
sem aðhyllast vernd persónuupplýsinga á Netinu era ekki
par hrifnir af þessu og telja að birting upplýsinga af þessu
tagi muni verða til þess að fólk óttist að nýta sér Netið til
að versla. Meðal þess sem fram kemur í kauphringjakönn-
un Amazon er að vinsælasta bókin meðal starfsmanna
Microsoft er Business @ the speed of thought eftir Bill
Gates.
Gróðurhúsaáhrif slæm
fyrir ferðamenn
Ný skýrsla sem gefin var út af World Wide
Fund For Nature gefur þeim sem standa í
ferðamannabransanum ekkert til að hlakka
til. Þar kemur fram að vegna breyttra veður-
skilyrða vegna gróðurhúsaáhrifanna megi
vinsælir ferðamannastaðir búast við uppákomum eins og
hitabylgjum, þurrkum, hækkandi sjólínu, flóðum, skógar-
eldum og farsóttum. í skýrslunni voru tíu af vinsælustu
ferðamannastöðum heims skoðaðir með tilliti til þess hvers
mætti búast við ef spár visindamanna um hækkandi hitastig
jarðar á næstu árum myndu ganga eftir. Ferðamenn era
einmitt ein af ástæðum gróðurhúsaáhrifanna, því mengun
frá flugvélum er einn af helstu áhrifavöldum þeirra og sá
sem fer hraðast vaxandi um þessar mundir.
Síðastliðinn laugardag lentu í Kasakstan síð-
ustu geimfararnir sem búið hafa í rússnesku
geimstöðinni Mír. Þar með nálgast endalokin
óðfluga fyrir geimstöðina, sem hefur verið á
braut um jörðu síðan 1986. Hún hefur gegnt
hlutverki sínu vel og rúmlega það, því upphaf-
lega var ekki áætlað að reka hana lengur en I
fimm ár. En undanfarið hefur aldur stöðvarinnar farið að minna
á sig og sífellt fleiri bilanir hafa gert vart við sig. Þrátt fyrir það
hefur Rússum langað til að reka Mír í einhver ár í viðbót en mætt
kröftugum mótmælum Bandaríkjamanna sem vilja heldur að
Rússar beini takmörkuðum fjármunum rússnesku geimferða-
stofnunarinnar til verkefnisins um byggingu alþjóðlegrar geim-
stöðvar. Það verkefni hefur tafist talsvert síðustu ár vegna þess
hve Rússum hefur gengið illa að standa við sínar skuldbinding-
ar.
Einn geimfaranna sem lenti á laugardaginn, Viktor Afanasyev,
setti met í síðustu veru sinni í geimstöðinni. Hann hefur verið úti
í geimnum samtals í 742 daga, sem er tveimur mánuðum lengur
en nokkur annar hefur eytt fjarri jörðu. Geimfaramir voru allir
meira og minna klökkir við lendinguna og sögðu það hafa verið
mjög sorglegt að yfirgefa geimstöðina í síðasta skipti.
j'&M
Geimstöðin *
yfirgefin
®5j
n leit.is
iMm.
fGíssstr'
H,n^r KnW Uftitf, •* hitub* tk**u mia. i •' l»*»* •* b*inni
•tpQiTtjjii I í fU&toí fsí»vf}/ 'ÍnlawtiMi! fint&tti/tí I MöiifcifðMaM I
Mm
íifönuStUíidáar
3
* Oáöaáös:
‘ totoiettaiausia
• Sím
Si&tr
* tííöáSi
* tSilsMJsiait
®*U. 'Wvwvkmawiaj