Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.1999, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.1999, Blaðsíða 8
IV|ig langarað píjóna barnaföt „Það merkiiega við sjónvarp er að um leið og hlutfrnir fara að verða mjög ömurlegir, svona yfir eitthvert ákveöið strik, þá bara getur maöur ekki hætt að horfa!“ Eva María Jónsdóttir er hætt aö vera í stofum landsmanna og sítur nú í stofunni heima hjá sér og bíður eftir barni. Henni finnst aö vísu ekkert svo merkilegt að hún sé að fara eignast barn en Fókus sendi Möggu Stínu samt í heimsókn og stelpurnar spjölluðu um daginn, veginn og framtíðina og auðvitað handryksugur. „Það er ekkert merkilegt að ég sé að fara að eignast bam, það gera það allir. Jú, það er merki- legt fyrir mig en það er ekkert merkUegt á heimsmælikvarða og ég veit ekki hvort það er efni í við- tal,“ segir Eva María Jónsdóttir, barnshafandi kona í Reykjavík. Já, um er aö ræða unga konu sem vatt sér inn á heimili lands- manna í öllu sínu veldi með pomp og prakt þegar þættimir Stutt í spunann hófu göngu sína í októ- ber fyrir ári og varö hún umsvifa- laust ein umtalaðasta kona lands- ins. Menn hafa stytt sér margar stundirnar með því að viðra skoð- anir sínar hér og þar um klæða- burð hennar, sem og framkomu alla. En hvað sem því líður, fengu þættirnir geysigóðar viðtökur, voru komnir með meira áhorf en fréttirnar þegar þeim lauk í apríl síðastliðnum. 10 stelpur; reykjandi og drekkandi Við erum að tala um risíbúð í miðbænum. Þykkt hár niður að mitti. Kvenleg fegurð þar sem hún rís hæst, því hún er með barn í maganum sem er alveg að verða tilbúið til þess að mæta okkur en bíður eftir að mamma klári viðtal í risastórum sófa. „Mér finnst þú ættir að fá þér handryksugu,“ er það fyrsta sem Eva segir. MS: Já, þeir í Brynju eru stund- um aó benda mér á þetta. Eva: „Já, þetta er svo ansi hent- ugt þegar maður er t.d. með partí og fólkið slær öskunni af sígarett- unum bara á gólfið og svona.“ Já, já? „Já, ég var t.d. með 10 stelpur hér um daginn, reykjandi og drekkandi og mætti iðulega með ryksuguna og ryksugaði í kring- um þær, en fékk jú ákveðið augnaráð í staðinn. Annars var ég að spekúlera hvort ég mætti ekki bara prjóna meðan ég tala við þig?“ En ertu alveg hœtt í Stutt í spunann? Eva: „Já, ég er alveg hætt í kassanum. Ég get bara ekki hugs- að mér að skipta mér á milli barnsins og vinnunnar. Reyndar kemur nú í október þriggja þátta röð sem ég vann við í sumar. Þetta er spjall við eldra fólk sem er merkilegt og skemmtilegt og hefur frekar tregast við að veita viðtöl fram að þessu. Ég fékk að velja viðmælendurna sjálf og fékk mikið út úr því að kynnast þeim. En veturinn verður sem sagt full- ur af einhverju aUt öðru en vinnu. Ha? Það verða góð skipti.“ MS: Var Stutt í spunann ekki þín svona fyrsta stóra pródúksjón? „Jú, það fyrsta sem ég mátti bara hugsa sjálf út allan hringinn," segir Eva og út- skýrir að Dagsljós hafi ver- ið öðruvísi: „Fyrir fram mótað og maður vissi að hverju maður gekk. Það er auðvitað alltaf erfitt að byrja með eitthvað nýtt, en svo leið þessi vetur og það voru eins og gefur að skilja öpps and dáns en ég skemmti mér og fannst líka rosagaman að fá öU þessi viðbrögð! Mér fannst fólk oft bera nokkuð öfgafullar tilfinn- ingar til þáttarins, ýmist þoldi það hann ekki eða fannst hann frábær tilbreyting frá skipulaginu sem er aUsráðandi í sjónvarpsdag- skránni. Þannig að þetta var svo- lítil hamingjuganga sem er núna bara búin og nú legg ég í aðra.“ Bók um hjónaskilnaði En Stutt í spunann heldur auð- vitað áfram og nú er búið að lengja hann um tíu mínutur, þannig að hann er auk þess vax- andi. Kominn yfir á laugardags- kvöld. Sem er auðvitað besti tími vikunnar og það má því segja að þetta hafi aUt gengið upp. Eva: „AUir starfsmenn þáttar- ins frá því í fyrra halda áfram að þróa þáttinn. Hjálmar tekur við hlutverki mínu sem fullur starfs- maður í þættinum og fær með sér Heru Björk Þórhallsdóttur frá Byggðarhorni. Hún leikur eina af tríóinu í Litlu hryUingsbúðinni - söng í Skara Skrípó, hún var líka i lokaþættinum hjá okkur." MS: Ertu aö meina Ingólfs Guóbrandssonar-þœttinum? „Jiii! Já!“ stynur Eva og verður toginleit í framan. „Sko, allt í kringum þennan ítalsk-innblásna þátt var mjög skrítið. Ég vissi ein- hvern veginn að þetta yrði alveg hræðUegt," heldur hún áfram og hlær. „Ég varð sjálf að líta undan þegar ég horfði á þáttinn og hef heyrt um fullt af fólki sem varð að gera það sama.“ MS: Eg tók einmitt eftir því aö þaö var nú ekkert sérlega mikiö samband milli spyrjanda og við- mœlanda í þessu viötali? Eva: „Það merkilega við sjón- varp er að um leið og hlutirnir fara að verða mjög ömurlegir, svona yfir eitthvert ákveðið strik, þá bara getur maður ekki hætt að horfa! Það eru margir þættir sem hafa náð vinældum bara af því. Það er svolítið svona eins og Fók- us-blaðið þitt. Það er svo taktlaust stundum og hrikalegt að maður getur bara ekki annað en lesið það. Ég á líka eina bók sem er svona geggæðislega vond, alveg hryllileg og ég les hana reglulega. Hún er um hjónaskilnað og maður fær á tilfmninguna að höfundur- inn sé að lýsa sárri reynslu beint úr sinni eigin hjartakviku. En ég mæli með því að fólk lesi þessa bók, hún heitir Skellur á skell ofan og er einhver ljúfsárasta lesning sem ég hef séð um mína daga.“ Aldrei prjónað Og nú ertu ólétt? Eva: „Það sem mér finnst svo merkilegt við að vera ófrískur er að maður þarf ekkert t.d. að pína sig til að prjóna, þetta verður manni bara eiginlegt." MS: Hefuröu aldrei prjónaó áöur? „Nei,“ fullyrðir Eva, „og þetta er meira að segja eng- in tilgerð eða neitt, þetta bara kemur! Ég hitti mann úr fjármálalífinu í veislu um daginn sem benti mér á að maður þyrfti nú ekkert leng- ur að vera að prjóna eða hekla. Búðirnar væru nefnilega fullar af barnafótum og allt þetta prjón og hekl til- heyrði fyrri tíð þegar úrvalið var ekki jafn- mikið. Ég býst við að menn séu almennt sam- mála um að tímarnir hafi breyst og þetta sé nú oröið hinn mesti óþarfi. En hér sit ég eins og einhver alger eftirlegu- kind. Og mig LANGAR að prjóna barnaföt! Þetta eru hin raunveru- legu öfl sem ráða ferðinni." MS: Þaó er nú samt eins og þaó sé svona innbyggöur, gamall sveitarómantíker í þér. Bœöi hvaö varöar framkomu, útlit sem og talanda: „Ja, það er auðvitað langt síðan maður fór að róast, en mér finnst eftir að ég varð svona blessunar- lega á mig komin að þetta hafi keyrt algerlega um þverbak! Að- stæður sem ég hélt að kæmu kannski fyrst upp þegar ég yrði áttræð er ég að upplifa núna, þú veist, ég sit hérna ein við hann- yrðir og hlusta á MA- kvartettinn og er hæstánægð með það,“ segir Eva María og spyr að lokum: „Á ég að leyfa þér að hlusta á uppá- haldslagið mitt?“ Stutt í spunann fer í loftið 9. október. Eva María Jónsdóttir á einmitt að eignast barn á þeim degi. Hún vonast til að geta horft á sjónvarpið á meðan. „Það sem mér finnst svo merkilegt við að vera ófrískur er að maður þarf ekkert að pína sig til að prjóna, þetta verður manni bara eiginlegt. “ f Ó k U S 1. október 1999 8

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.