Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.1999, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.1999, Blaðsíða 14
Bruce Wiliis í fót- spor Chaplins? Bruce Willis ætlar að standa við orð sín á kvikmyndahátíð- inni í Toronto þegar hann sagð- ist vilja fá mýkri hlutverk því töffarinn, sem orðinn er 44 ára gamall, ætlar að leika í The Kid sem John Turteltaub leikstýrir. Chaplin gerði á sínum tíma kvikmynd sem einnig hét The Kid og er hún notuð til hliðsjón- ar þótt alls ekki sé um að ræða endurgerð. Fjallar myndin um samband á milli manns sem bú- inn er að tapa áttum og tíu ára drengs sem minnir hann á hvernig hann var sem drengur. Ekki hefur enn verið ráðið í hlutverk drengsins. Það skal engan undra þó Willis sé hrif- inn af því að leika á móti ung- um dreng, það hefur reynst honum vel hingað til því í hinni vinsælu kvikmynd The Sixth Sense leikur hann á móti ung- um dreng og gerði það einnig í Mercury Rising. Annaud og heims- styrjöldin Éinhver metnaðarfyllsti kvikmyndaleikstjóri samtím- ans er tvímælalaust hinn franski Jean-Jacques Annaud (Ques for Fire, Name of the Rose, Bear, The Lover). Hann tek- ur mikinn tíma í undirbúning hverrar kvik- myndar fyrir sig. Síðasta kvik- mynd hans, Seven Years in Tibet, var frum- sýnd fyrir rúmum tveimur árum og nú er hann í startholunum með Enemy at the Gates, epíska kvikmynd sem gerist í síðari heimsstyrj- öldinni. Annaud áætlar að byrja tökur i Þýskalandi um áramót. í helstu hlutverkum eru Ed Harris, Joseph Fiennes, Jude Law og Rachel Weisz. I myndinni er sögð sönn saga um einvígi milli rússnesks fjárhirð- is og þýsks liðsforingja og er bakgrunnurinn umsátrið um Stalingrad. Handritið skrifar Annaud ásamt Alan Godard. DiCaprio vitl ekki máiaferii Málsókn sem kvikmynda- framleiðandinn David Stutman ætlaði í gegn Leonardo DiCaprio hefur verið afturköll- uð. DeCaprio hafði sett bann á kvikmyndina Don’s Plum, sem hann lék í áður en hann varð frægur, þar sem hann hafði haldið að um stuttmynd væri að ræða. Þegar átti að fara að setja myndina á markað var hún komin í fulla lengd. Don’s Plum, sem tekin var á sex dögum árið 1996, fjallar um vinahóp sem kemur saman á kaffihúsi og var myndin að hluta impróviseruð. Samkomu- lag varð um að dreifa mætti myndinni í öllum heimsálfum nema Norður-Ameríku. Amerícan Pie, sem frumsýnd verður í dag, er ein af þessum ódýru kvikmynd- um sem óvænt siá í gegn. Þarna skiptir engu þótt ailir leikarar séu óþekktir, það er hínn beitti og skemmtilegi humor sem gert hefur myndina vinsæia. I r American Pie, sem í dag verður frumsýnd í Bíóhöllinni, Kringlu- bíói, Stjörnubíói, Nýja bíói i Kefla- vík og Nýja bíói á Akureyri, hefur notið mikilla vinsælda í Bandaríkj- unum undanfarnar vikur og hafa vinsældir hennar komið mjög óvænt. Fyrirfram var ekki búist við miklu, enda óþekktir leikarar í öllum hlutverkum og reynslulitlir menn við stýrið. American Pie er gamanmynd og þykir húmorinn minna mjög á There’s is Something about Mary sem segir okkur að hann er frekar grófur og villtur. American Pie fjallar um það sem ungir sveinar þurfa að fara í gegn- um, að losna við sveindóminn. Okk- ar strákar í myndinni eru nánast miður sín. Hormónarnir ílæða um líkamann en ekkert gengur hjá þeim enda eru þeir með eindæmum klaufalegir i öllum sínum tilburð- um og ekki bætir upp nánast engin reynsla af hinu kyninu. Það sem þeir ná ekki að skilja er að stelpun- um er alveg jafnannt um að missa meydóminn. í stað þess að grípa gæsina eru þeir í töffaraleik sem ekki gengur upp. Aðalpersóna myndarinnar er Jim (Jason Biggs) sem er eins og allir aðrir heilbrigðrir ungir strák- ar sem einnig eru hreinir sveinar. Hann hefur eins og vinir hans tekið það í sig að hann verði ekki maður með mönn- um nema hann missi sveindóminn. Ekki batnar ástand hans þegar for- eldrar hans koma inn til hans með- an hann er að horfa á klámmynd. Þegar kynni hans við útlenda stúlku endar með ósköpum er hans síðasta von Michelle (Alyson Hannigan), flautuleikari í skóla- hljómsveitinni, og má segja að áhugi hans aukist í hvert skipti sem hann sér hana handleika flaut- una. Það er eins ástatt fyrir félög- um hans, Kevin (Thomas Ian Nicholson), sem fær mikinn lær- dóm úr bók sem hann hefur komist yfir og telur hana allra meina bót, Oz (Chris Klein), sem vill láta kalla sig Casanova og er hrif- inn af kórstelpunni Heather (Mena Suvari), og Finch (Eddie Kaue Thomas) sem þykist meiri en hann er. Félagamir eiga svo bágt með að þola einn skólafé- I laga sinn, Stifler (Seann W. 1 Scott), og ástæðan er sú að hann hefur haft reynslu af kynlífi. Þegar þeir félagar ná sér niðri á honum mun hann í framhaldinu örugg- lega hugsa sig tvisvar um áður en hann sýpur á bjór sem honum hefur verið boðið upp á. L e i k - stjóri og framleið- , a n d i American Pie eru b r æ ð - urnir Chris Weitz og Paul Weitz og er þetta fyrsta kvikmyndin sem þeir gera. Áður hafa þeir saman skrifað handrit sem hafa vakið at- hygli, meðal annars við teikni- myndina Antz og Madeline. Þeir bræður fæddust í New York og eru komnir af fjölskyldu sem starfað hefur í kvikmyndaheiminum. Afi þeirra var umboðsmaður sem hafði á sinni könnu um tíma leikstjóra á borð við John Huston, Billy Wilder og Ingmar Bergman. Faðir þeirra, John, er handritshöfundur og skrifar um tísku og móðir þeirra, leik- konan Susan Kohner, hefur verið tilnefnd til ■ST óskarsverð- .* launa. -HK Jim (Jason Biggs) er örvæntingarfyllstur félaga sinna og einnig sá sem fá ráð hefur. bíódómur Regnboginn - Drepum frú Tingle ★ Kevin Williamson skaust upp á stjömuhimininn í Hollywood þegar hann ásamt Wes Craven hitti í mark með Scream og gerðu tán- ingahryllinginn að tískubólu sem ekki sér fyrir endann á. William- son, sem skrifaði handritið að Scr- eam, fylgdi því eftir með I Know What You Did Last Summer, sem var i anda Scream, og þá var svo komið að hann gat nánast leyft sér allt. Velgengnin hefur greinilega stigið honum til höfuðs því nú fylg- ir hann í þau misvitru fótspor handritshöfunda sem hafa náð langt, að telja sér trú um að hann geti einnig leikstýrt og er afrakst- urinn, Drepum frú Tingle (Teaching Mrs. Tingle), afskaplega vondur tryllir þar sem Williamson notar sömu formúlu og hefur gefið honum milljónir af dollurum í vas- ann, nefnilega skólakrakka sem lenda í vondum málum. Reynslu- leysi Willamson sem leikstjóra leynir sér ekki, en það sem kannski gerir myndina enn verri er að Williamson bregst á sínu sterkasta sviði, hann hefur skrifað vont handrit. Aðalpersónur myndar- innar eru þrír nemendur með mismikinn metnað og sögukennari sem nýtur þess að niðurlægja nem- endur sína. Krökkunum verður á í messunni og sögukennarinn frú Tingle ætlar sér að ná sér niðri á þeim og kæra eitt þeirra fyrir svindl. í örvæntingu fara krakkarnir heim til frúarinnar til að reyna að jafna málin, en þau hefðu betur setið heima og nagað sig í handarbökin yfir klaufaskapnum, því Tingle er enginn venjulegur sögu- kennari og tekur á mót þeim á annan hátt en þau höfðu vonast til. Fljótt fer allt úr böndunum og krakkarnir sitja uppi með óðan sögukennara bund- inn í rúmið sitt og vita ekkert hvað þau eiga að taka til bragðs. Það er í raun ekki snefíll af viti í sögunni og er eins og Williamson eða einhver sem hefur tekið völdin af honum hafi gert sér grein fyrir því og skellt misgóðum popplögum í tíma og ótíma í myndina til að missa ekki athygli unga fólksins sem myndin er ætluð. Það er þó til lítils því Williamson nær aldrei neinni spennu í myndina sem verður fá- ránlegri með hverri mín- útunni. Það sem heldur mynd- inni á floti er Helen Mir- ren sem enn eina ferðina sannar hversu mikil yfir- burðaleikkona hún er. Hún leikur frú Tingle eins og hún sé að leika frú Macbeth og fer létt með að ná athyglinni frá öllum öðrum, mælir sinn texta með tilþrifum án þess að ofleika. Þá sýnir Marisa Coughlan skemmtilega takta þegar hún tekur sig til og leik- ur atriði úr Exorcist. Svo gott sem það er þá kemur það myndinni ekkert við. Kevin Williamson. Kvik- myndataka: Jerzy Zielinski. Tón- list: John Frizzell. Aðalleikarar: Helen Mirren, Katie Holmes, Jef- frey Rambor og Marisa Coughlan. Hilmar Karlsson f Ó k U S 1. október 1999 14

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.