Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.1999, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.1999, Blaðsíða 20
in meö einelti í huga. Sýningin ber nafniö Ber. Allar sýningar Dansleikhússins eru frumsamin verk meö ákveöið þema í huga, þar sem mark- miðið er að gefa leiklist, dans og tónlist Jafnt vægl í heilstæðri sýningu. Þanniggefsttilvalið tækifæri til að upplifa öll listformin í einni heild. Dansleikhús (physical theatre) er þekkt listform erlendis en er tiltölulega nýtt á Islandi og er Dansleikhús með Ekka fyrsta sinnar teg- undar hér á landi. Leikarar og dansarar eru Alno Freyja Járvelá, Erna Ómarsdóttir, Friörik Frlðrlksson, Guömundur Elías Knudsen, Hrefna Hallgrímsdóttir, Karen María Jóns- dóttlr, Kolbrún Anna Björnsdóttir og Richard Kolnby. Tónlistarstjóri er Frank Pay og list- rænn stjórnandi er Árni Pétur Guöjónsson. Einungis verður sýnt fjórum sinnum og er því um að gera að drífa sig. Bjarnl Haukur Helllsbúi sýnir enn fyrir fullu húsi í íslensku Óperunni. Það eru engin tak- mörk fyrir því hvað margir mæta til hans og hlæja að manninum i lendarskýlunni. Enda er þaö draumur flestra að bregða sér í lendar- skýlu og segia brandara. En þó svo að það sé alltaf uppselt er oftast hægt að næla sér í ósóttar pantanir þannig að enginn skal ör- vænta. Síminn í Óperunni er 5511475. Sex i sveit er enn í fullum gangi i Borgarleik- húsinu og var sýningafjöldinn að skríða yfir hundraðið. Miðasaian í Borgarleikhúsinu er opin virka daga frá ki.12-18. Siminn þar er 568 8000. Á Litla svlðl Þjóðleikhússins er verið að ieika dramað Abel Snorko býr einn eftir Eric Emmanuel Schmitt kl. 20. Þetta er vinsæl sýning og því er nauðsynlegt að hringja í síma 5511200 og athuga með miða. Leikfélag Reykjavíkur sýnir Feguröardrottn- ingu frá Línakri í Borgarleikhúsinu kl 15. Stykkið er eftir Martin McDonagh og er í leik- stjórn Maríu Slguröardóttur. Um er að ræða verk sem fær fína dóma og þykir „æðislegt" eins og einhver voðalega merkilegur sagði. Meðal leikara eru Sigrún Edda Björnsdóttir og Halldór Gylfason (en sá maður er snillingur þegar það kemur að leik - og þeir eru ekkert of margir snillingarnir). Siminn í Borgarleikhús- inu er 568 8000 en ef þú vilt faxa þeim er númerið 568 0383. Sendu þeim visur. Klukkustrenglr eftir óskabarnið Jökul Jakobs- son var frumsýnt i gær og nú er önnur sýninga á þessari uppsetningu Leikfélags Akureyrar. Það er ekki uppsellt á þessa sýningu en meö- al leikara er Inglbjörg Stefánsdóttlr sem lék í Veggfóðri og Nei er ekkert svar. Forvitnilegt að sjá hvernig henni tekst til á sviðinu. Hún er allavega búin að læra i útlöndum og ætti því að vera þokkalega undir það búinn að fara með rulluna sína. Síminn i miðasölu er 462 1400. Sýningin hefst kl. 20. Lltla hrylllngsbúðln er leikin og sungin í Borg- arleikhúsinu kl. 14. Stefán Karl, Valur Freyr og Þérunn Lárusdóttir standa sig meö ágæt- um. „Þú verður tannlæknir" og aðrir stuðsmellir i gangi. Sniðugt að bjóða stóru ástinni út að éta i hádeginu og fara svo að sjá Bubba Morthens sem plöntu og öll trixinn sem eru í gangi. Síminn i Borgarleikhúsinu er 568 8000. Sýningar á barnaleikritinu Snuöra og Tuöra hefjast að nýju i Möguleikhúsinu við Hlemm 1 dag. Sýningin um Snuðru og Tuðru hefur notiö mikilla vinsælda frá því það var frumsýnt sl. vetur. Leikritið er byggt á sögum Iðunnar Steinsdóttur um systurnar Snuðru og Tuðru. Snuðra og Tuöra eru leiknar af þeim Drífu Arn- þórsdóttur og Helgu Völu Helgadóttur, leik- stjóri og höfundur leikmyndar er Bjarnl Ingv- arsson, leikgerðin er eftir Pétur Eggerz, tón- list eftir Vllhjálm Guöjónsson og Katrín Þor- valdsdóttir sá um búninga og brúöugerð. 40. sýning á leikritinu Tveir tvöfaldir eftir Ray Clooney verður leikin i Þjóðlelkhúsinu kl. 20. Svaka grín og mikill farsi að hætti Hilmls Snæs Guönasonar og Arnars Árnasonar. Þessi sýning er fyrir þá sem vilja hlæja eins og vitleysingar. Sýnt er á Stóra sviðinu og síminn í miðasölu 5511200. Nú er verið að sýna barna- og fjölskylduleikrit- ið Töfratívolí eftir Bernhard Goss í Tjarnabíói. Leikgerðina gerði leikhópurinn HEY meö Skúla Gautason leikara og fyrrum Sniglabandsmeð- lim í broddi fylkingar. En gamli svingurinn sem- ur auk þess tónlistina. Þetta er eitthvað virki- lega sætt og skemmtilegt. Foreldrar, hringið í síma 552 8515 og pantið miða fyrir grisling- ana. Þau veröa bara að komast í leikhús um helgina. Sýningin hefst kl. 14. Hafið hraðan á. •K abar@tt Menntaskólinn viö Sund (áður Menntaskólinn við Tjörnina) varð 30 ára I gær. Af því tilefni verður í dag afmælishátíö í skólanum frá kl. 11-14. Björn Bjarnason menntamálaráðherra flytur ávarp ásamt fleiri. Sýnt veröur brot úr nýjustu mynd Friðriks Þórs Friðrikssonar, Englum alheimslns, eftir samnefndri sögu Ein- ars Más Guðmundssonar. Þá veröur líka söng- ur o.fl. • Op n a nir Myndlistarmaöurinn Erling Þ.V. Kllngenberg opnar sýningu I galleri@hlemmur.ls, Þverholti 5, Reykjavik, í dag kl. 16. Þar mun listamaðurinn gera tilraun til að skilgreina biliö milli minnlmáttar og meirlháttar. Hann veltir fyrir sér hver drifkraftur listamannsins sé í raun, hvað knýr tilraunir hans áfram til fullkomnunar. Er það gamla klisjan, kynhvötin og dauðinn - óendanleikinn? Annars er ítarlegri umfjöllun um sýningu Klingenberg í myndlistardálknum hér í Lífinu eftir vinnu. Brynja Árnadóttir opnar sýningu á pennateikningum i Kaffl Krús á Selfossi. Þetta er ellefta einkasýnig hennar og stendur hún fram til 1. nóvember. Félag gullsmiöa opnar skartgripasýningu í Ráðhúsl Reykjavíkur i tilefni 75 ára afmælis síns. Á sýningunni verða annars vegar sýndir „hringir gulismiða fyrr og nú" og hins vegar nýsmíöaðir gripir þar sem gullsmiðir leika viö hugtökin „tíminn og vatnið". Gullsmiðir munu veröa gestum til leiðsagnar á sýningunni en hún er opin alla virka daga frá 8 til 19 og um helgar frá 12 til 18. Sýningunni lýkur 18. október. GUESS Watches KRINGLUNNI 8-12 tónleikar Hitað upp fyrir Hljómsveitin The Faculty stefnir á að gefa út stóra plötu á nýársdag en ætlar að gefa forsmekk að henni á Kakóbar Geysis í dag. Hinir sívinsælu síðdegistónleik- ar Hins hússins eru að byrja aftur eftir nokkurt hlé. Vegna haust- veðráttu er búið að flytja tónleik- ana frá Ingólfstorgi, þar sem þá var að finna i sumar, og inn á Kakóbar Geysis. Fyrstu tónleikar vetrarins verða í dag og er það hljómsveitin The Faculty sem ríð- ur á vaðið. „Við verðum pottþétt með eitt- hvert glænýtt efni sem ekki hefur heyrst áður og svo munum við flytja eitthvað af skífunni sem kom út í sumar,“ segir söngkonan Ragna Kristjánsdóttir og lofar heitum tónleikum. Hvaö er annars fram undan hjá The Faculty í vetur? „Við erum aðallega að vinna að okkar fyrsta stóra diski. Það er ekki alveg klárt hvenær hann kemur út en við stefnum á 1. jan- úar árið 2000. Svo bendir allt til að við spilum mikið á alls konar skemmtunum í framhaldsskólun- um í vetur,“ segir Ragna. * Tónleikarnir byrja kl. 17 og það kostar ekkert inn á þá. Það er því tilvalið fyrir þá sem eru að erind- ast í miðbænum á þessum tíma að fá í sig hita með heitum kakóbolla og tónum frá The Faculty. Hannes Scheving opnar sýningu á 30 akrýlmyndum hjá Blfreiöum og landbúnaðarvélum. Grjóthálsi 1. Þetta er fjóröa einkasýning Hannesar og hefur ekkert með bíla að gera. Sýningin er opin á afgreiðslutíma verslunarinnar. Jóhann Bogadóttlr opnar sýningu á málverkum í Hafnarborg kl. 15.00. Á sýningunni eru verk sem unnin eru á síðastliðnum þremur árum og ber sýningin nafnið „Frá Skeiðará til Sahara". Sýningin stendur til 25. október og er opin alla daga nema þriðjudaga, frá kl. 12-18. Sýning á kínverskum Ijósmyndum, sem ber heitið „Stórkostleg för um farinn veg", verður opnuö í Landsbókasafnl íslands. Ljósmyndirnar sýna árangur kínversku þjóðarinnar á þeim 50 árum sem liðin eru stðan Kínverska alþýðulýðveldið var stofnað. Sýningin er opin í dag og á morgun, kl. 11-17, og mánudag og þriðjudag, kl. 10-22. HJörtur Marteinsson opnar einkasýningu á lágmyndum og þrívíöum verkum í nýjum sýningarsal, Listasalnum Man á Skólavörðustíg 14. Sýningin ber yfirskriftina Myrkurbil þar sem Hjörtur kallast á viö fornar og nýjar hugmyndir heimsfræðinga um eðli og gerö alheimsins. Sýningin stendur til 17. október og er opin frá 10-18 á virkum dögum og um helgar frá 14-18. Opnunin er kl. 15 og eru allir velkomnir á hana. Krlstín Þorkelsdóttlr opnar sýningu á vatnslitamyndum í Hafnarborg, Menningar- og listastofnun Hafnarfjarðar, kl. 15. Sýningin ber heitiö Ljósdægur er opin alla daga nema þriðjudaga frá kl. 12-18. Á sýningunni eru landslagsmyndir sem Kristín hefur málað á vettvangi, annaðhvort á íslandi eða í Noregi. Einnig sýnir Kristln nokkrar portrettmyndir. Þetta er nlunda einkasýning Kristlnar og stendur sýningin til 25. október. 7 myndlistarkonur opna sýningu I Sparisjóðnum Garðatorgi 1, Garðabæ, I dag, kl. 13-16. Á sýningunni verða grafikmyndir og málverk. Þær sem sýna eru Freyja Önundardóttir, Guöný Jónsdóttir. Gunnhlldur Ólafsdóttir, Ingibjörg Hauksdóttlr, Jóhanna Sveinsdóttir, Kristín Blöndal og Sesselja Tómasdóttir. Þær hafa allar myndlistarnám að baki og hafa tekið þátt I fjölda sýninga. Þær reka ásamt 7 öðrum listakonum gallerí Listakot, Laugavegi 70. •Síöustu forvöö Málverkasýningu Birgis Slgurössonar lýkur I dag í Gullsól I Mörklnni. Sýningin ber heitið flæði og frustrasjónir og er fyrsta sýning Birg- is. Við sýningarlok kl. 16 mun Birgir mæta I Gullsól og flytja frumort Ijóð. Þessi Ijóð getur fólk heyrt með þvl að hringja I slma 570 77 25. Ljóðin kallast á við myndverkin á sýning- unni en ekki er þó nauðsynlegt að hafa endi- lega séð myndirnar til þess að geta hlustaö á Ijóöin. •Fundir Ný lífssjón, samtök fólks sem vantar á útlimi og aðstandenda þeirra, halda fund á Akureyri I dag ki.14 í sal Klwanlsklúbbsins, verslunar- miðstöðinni Sunnuhlíð 12K. I dag er skráður fjöldi félagsmanna um áttatíu og er bæði um að ræða einstaklinga sem misst eða fæðst hafa án útlims auk aðstandenda og velunn- ara. Markmið samtakanna er að veita féiags- mönnum sem og öðrum stuönlng og upplýs- ingar er varða málefni þeirra og efla tengsl fé- lagsmanna. Fundurinn er öllum opinn og heitt verður á könnunni. Bí ó i/Dagur Kári Pétursson er auðvitað hetja okkar fslendinga. Hann kom, sá og sigraði Nordisk Panorama - sýndi þessu Sköndum hverjir væru kóngarnir. Þetta eru lika fantagóðar myndir sem hann hefur gert, Old Spice og Lost Weekend. Það er ekki vitlaust að bregða sér i Háskólabíó kl. 20 og skoða meistara- verkin. Svo kostar lika bara 400 kall inn og það er alltaf mjög jákvætt. Glæný kvikmynd um hinn ágæta bar, Grand Rokk, verður sýnd kl. 17. Þetta er heimildar- mynd um staðinn þar sem fastakúnnar og þjóðkunnar persónur fara með aðalhlutverkin. Biómiðinn kostar 500 krónur og sýninginn tek- ur um klukkustund Það er kínversk kvikmyndavlka I Háskólabíói og kl. 17 er myndin The Opium War sýnd. Hún fjallar eins og nafnið gefur til kynna um kaup og sölu á dópi um miðja 19. öld I Kína. Mynd- ina gerði Xie Jin, en hann er einn sá frægasti I bransanum I Kína. •Sport Lokamót heimsbikarsins I Torfæru fer fram í dag og hefst keppni klukkan 11.00 I Grlnda- vík. Strákar,strákar!F]órir lelkir fara fram í 1. deild kvenna i handbolta í dagþar sem m.a. Víkingur og Stjarnan mætast I Vlkinni kl.16.30. Hið árlega Sparisjóöshlaup UMSB veröur I dag. Eins og I fýrrahefst hlaupið á Valfelli kl 14.00. Skráningar fara fram á Skrifstofu UM- SBeða á Valfelli rétt fyrir kl. 14.00.Sparisjóðs- hlaupið er boðhlaup þar sem 10 þáttakendur ■■■ LAUGAVEG 10% AUKAAFSLATTUR BÁÐA DAGANA. EKTA PELSAR, KR. 5. RÚLLUKRACA KJÓLAR, KR. 3.900 JAKKAR, KR. 2 OPIÐ 20 f Ó k U S 1. október 1999

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.