Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.1999, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.1999, Blaðsíða 3
ÞRIÐJUDAGUR 12. OKTÓBER 1999 19 ritHSiiíir UNITEI) STATES OFAMERICA Önnur Boeing 747-flugvélanna sem sérhönnuð hefur verið til að flytja forseta Bandaríkjanna og fylgdarlið hans. Air Force One: Mikiö lagt upp úr dul- kóðuðum samskiptum - vírar og snúrur tvöfalt lengri en í venjulegum flugvélum icokm Það fór sjálf- sagt ekki fram hjá neinum að forsetafrú Bandaríkj- anna, Hillary Clinton, heim- sótti okkur hingað upp á skerið um helgina. Sú heimsókn var hin ágætasta í alla staði en það sem vakti helsta athygli DV-Heims voru þær fréttir að Hillary kæmi með flugvél Bandaríkjahers númer eitt, Air Force One. Svo fór nú reyndar ekki, heldur kom Hillary með eldri vél. Engu að síður ákvað DV-Heimur að skoða nánar hvaða flugvél það er sem er í daglegu tali kölluð Air Force One. Það vita það sjálfsagt ekki allir en Air Force One er ekki einhver ein ákveðin flugvél heldur er þetta kallmerki þeirrar flugvélar sem flytur Bandaríkjaforseta hverju sinni. Þetta þýðir að strangt til tek- ið hefði flugvélin sem flutti Hillary hingað aldrei verið Air Force One af því að sjálfur forsetinn var ekki um borð. Annað sem fáir hafa gert sér grein fyrir er að Air Force One er í raun ekki ein flugvél, því þær eru tvær, vélarnar sem hafa verið sér- hannaðar til að flytja forseta Bandaríkjanna. Þær nota því oftast allra flugvéla heimsins kallmerkið „Air Force One“. Snúrufargan Þessar flugvélar eru báðar af gerðinni Boeing 747-200B og er um- sjón þeirra í höndum flughers Bandaríkjanna. Þær hafa verið sér- hannaðar til að þjóna forsetanum og fylgdarliði hans á ferðum víða um heiminn. Helstu breytingar sem hafa verið gerðar á þessari flugvél eru í sambandi við fjar- skiptatæki. Flugvélamar eru bún- ar nýjustu fjarskiptatækjum og dulkóðunarbúnaði þannig að for- setinn getur t.d. talað í síma án þess að eiga á hættu að hægt sé að hlera samtöl hans og einnig getur hann sent skrifuð, dulkóðuð skila- boð úr flugvélinni niður til jarðar. „Þessi skilaboð eru algert leyndarmál og munu eyðileggj- ast sjálfkrafa eftir 20 sekúnd- ur.“ Klassískt atriði úr fjölda vel þekktra njósnamynda gæti orðið að daglegu brauði tölvunotenda innan nokkmTa mánaða því nú er verið að þróa tölvupóstskerfi þar sem sendandinn getur ráðið því hvað pósturinn er lengi inni á tölvu viðtakandans áður en hann eyðileggst sjálfkrafa. Það er fyrirtækið Disappearing Inc. sem hefur þróað tækni til að setja eins konar „tímasprengju" í tölvupóstinn sem sér til þess að ef sendur er tölvupóstur sem send- andinn vill einhverra hluta vegna að verði ekki langlífur þá eyði- leggst pósturinn sjálfkrafa. Mikilvæg tækni Hönnuðir þessarar tækni segja hana vera virkilega mikilvæga. Tölvupóstur hafi upphaflega verið miðill sem menn notuðu til að eiga fljótleg samskipti á einfaldan hátt, en nú sé svo komið að farið sé að nota tölvupóst sem sönnunargögn í málaferlum og jafnvel lykilatriði varðandi rannsóknir ýmissa mikil- vægra mála. Tvö mjög nærtæk dæmi eru málaferlin sem hið opin- bera í Bandaríkjunum á í við Microsoft-tölvufýrirtækið þar sem tölvupóstur frá ýmsum starfs- mönnum fyrirtækisins hefur verið notaður sem sönnunargögn og rannsókn Mónikumálsins, þar sem tölvupóstur fraukunnar var notað- ur til að varpa ljósi á samband hennar við Bandaríkjaforseta. Þetta nýja kerfi frá Disappearing Inc. mun að öllum líkindum koma á markaðinn í byrjun næsta árs. Kerfið virkar með öllum venjuleg- um tölvupóstskerfum og skUaboð af þessu tagi fara auðveldlega í gegnum netþjóna, þannig að ekki þarf að gera neinar breytingar á tölvupóstskerfum fyrirtækja til að hægt verði að koma því i gagnið. Það er fyrirtmkið Disappearing Inc* sem hefurþrúað tækni tii að setja eins konar „timaspœngju" í töivu- póstinn smn sér tii þoss að ef sendur er tðtvupöstur sem smdandinn vili ain* hvarra hiuta vegna að v&rði ekki iangiífur þá eyðiieggst pósturinn Sjátfkrafa. W leít.ÍS finraá1’" V íslenska leitarvélin á Internetinu Netinu? Tæknihreytingar af þessu tagi hafa gert það að verkum að rafmagns- snúrur og virar alls kyns eru í hvorri flugvél, alls 380 km að lengd, sem er rúmlega tvöfóld lengd slíkra snúra í venjulegum 747-flugvélum. Aðrir eiginleikar sem eru ein- stakir í þessum forsetaflugvélum eru m.a. að þær flytja sjálfar með sér tæki til að hlaða farangri í vél- ina og þær geta tekið eldsneyti á flugi. Eins og nærri má geta hafa síðan verið gerðar verulegar breyt- ingar á innviðum vélarinnar og arkitektúr. Pláss fyrir 102 Meðal þess sem finna má í Air Force One er sérstök svíta fyrir forsetann auk þess sem hann hefur skrifstofu út af fyrir sig. Ráðstefnu- og borðsalur er einnig til staðar fyrir forsetann, fjölskyldu hans og nánasta starfslið. Aðstaða fyrir annað starfslið og gesti, eins og t.d. fyrir starfsfólk leyniþjónustunnar, öryggisgæslu og fjölmiölafólk, er svo aðskilin frá híbýlum forsetans. Meðal þess sem fínna má / Air Force One er sérstök svrta fyrir for- setann auk þess sem hann hefur skrifstofu út af fyrir sig. Ráð- stefnu- og borðsalur er einnig til staðar fyrir forsetann, fjöiskyldu hans og nánasta starfsiið. Tvö eldhús geta séð öllum farþeg- um fyrir mat i einu en alls taka flugvélamar 102 farþega að áhöfn meðtalinni. Flugvélarnar voru báðar teknar í notkun árið 1990 og er búist við að þær munu gegna hlutverki Air Force One eitthvað inn í næsta ár- þúsund. James Bond getur loksins sent tölvupóst: Tímasprengja eyöi- leggur skilaboðin - ef sendandinn vill ekki að hægt verði að lesa þau hvenær sem er ■ Nú geta ■ V James ■ ■ Bond og fleiri njósn- 1 arar hlakkað ' til að senda tölvupóst því bráðum kemur á markað póstkerfi sem getur eytt skilaboðum sjálf- krafa um leið og búið er að lesa þau

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.