Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.1999, Page 6

Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.1999, Page 6
-22 ÞRIÐJUDAGUR 12. OKTÓBER 1999 HwiSiir Farsímanotkun eykst Farsímar hafa hin síðustu ár náð ótrúlegri út- breiðslu. Hér á íslandi finnst manni hver einasti maður hafa einn slíkan i vasanum eða í belt- inu. Nú hafa Sameinuðu þjóðim- ar sent frá sér skýrslu þar sem fram kemur að með sama áfram- haldi verði farsímarnir fleiri heldur en venjulegir simar. Þar kemur einnig fram að nú eru í notkun um 400 milljónir farsíma og um 250 þúsund nýir notendur bætist við daglega. Mesta aukn- ingin á sér stað í Evrópu en í Bandaríkjunum þar sem æðið byrjaði er aukningin mun minni. Þrátt fyrir það eru flestir notend- ur farsíma í Bandaríkjunum. Microsoft vill Windows í snjallkortin Microsoft-fyrir- tækið er þessa dagana að fram- leiða hjálpar- tæki til að auð- velda fyrirtækjum að forrita hin svokölluðu Snjallkort. Snjallkortin hafa eins konar minniskubb sem getur geymt alls konar gögn, allt frá mynd- um til yfirlits yfir bankareikn- inga. Hjálpartæki Microsoft- manna inni- , heldur eins konar míní- útgáfu af _ Windows- » stýrikerfinu sem hægt er að for- rita snjallkortin með. Snjall- kortin eru vinsæl í Evrópu en Bandaríkjamenn hafa víst ver- ið eitthvað tregir við að taka upp notkun þeirra. Búast þeir sem til þekkja við því að það komi til með að breytast með þátttöku Microsoft í þessum iðnaði. Microsoft-menn hafa ákveðið að koma snjallkortun- um af stað með fleiri leiðum. Hefur Microsoft-fyrirtækið ákveðið að gefa 16.000 starfs- mönnum sínum snjallkort í þeim tilgangi að hvetja til út- breiðslu þeirra. m i for- Séð með augum dýra Vísindamennim- ir Yang Dan, Garret Stanley og Fei Li, sem allir stunda rannsóknir við Berkeley-háskól- ann í Kaliforníu, framkvæmdu merka tilraun nú á dögunum. Þeim tókst með hjálp tölvu að festa á myndband það sem þeir segja vera myndir séðar gegnum augu kattar. Með hávísindaleg- um aðferðum festu þeir skynjara við heila kattarins þar sem heilinn tengist augunum. Með því að þýða boðin sem náð- ust með þessum hætti fengu þeir myndir af umhverfi kattarins. Þessi umdeilda rannsókn gæti leitt til þess að hægt verði í framtiðinni að tengja til dæmis gervilimi beint við heilann sem myndi sjá um að stjórna þeim. Apple tekur upp þráöinn: Ný iMac-tölva á markaðinn - margt nýtt í pokahorninu Það var mikið um dýrðir þegar Steve Jobs, framkvæmdastjóri Apple, kynnti nýju iMac-tölvuna í síðustu viku. Hér sést pilturinn sýna áhorfendum hvað tölvan getur. í síðustu viku kynnti Apple- fyrirtækið til sögunnar nýjan iMac. iMac-tölv- an sló svo ræki- lega i gegn á síðasta ári að hún í raun bjargaði Apple-fyrirtækinu frá hálfgerðri glötun. Síðan Apple sneri við blaðinu hefur flest gengið því í haginn og nýjar vörur hafa verið kynntar til sögunnar hraðar en nokkurn óraði fyrir. Nú hefur Apple hug á að endur- taka leikinn með endurbættri iMac- tölvu. Reyndar er ekki margt skylt með nýju tölvunni og þeirri gömlu, fyrir utan útlitið, sem er reyndar líka endurbætt. Nýi iMakkinn mun koma í þremur útgáfum að þessu sinni, í fyrsta lagi grunn-iMac sem verður á lægra verði og svo tvær lúxusútgáfur af tölvunni. Grunn- tölvan verður seld í Bandaríkjunum á 999 dollara (um 73.000 kr.) en hin- ar tvær munu kosta annars vegar 1.299 (um 95.000 kr) og 1.499 (um 110.000 kr.). Innvolsið Það sem skiptir auðvitað mestu Það sem skiptir auð- vitað mestu máii varð~ andi töivur erþað sem er undir húddinu. Grunn-iMakkinn mun innihalda 350 Mhz G3 örgjörva, 64 Mb vinnsiuminni, geisladrif og 6 gígabæta harðan disk. Grunntölvan verður bara til f einum lit, bláberja-bláum. máli varðandi tölvur er það sem er undir húddinu. Grunn-iMakkinn mun innihalda 350 Mhz G3 örgjörva, 64 Mb vinnsluminni, geisladrif og 6 gígabæta harðan disk. Grunntölvan verður bara til í einum lit, bláberja- bláum. Tölvan sem kemur þar á eftir, iMac DV, verður með 400 Mhz G3 örgjörva, 10 gígabæta harðan disk og DVD-drif. Hægt verður að fá þessa útgáfu i 4 litum. Síðust kemur drossían í hópnum, svokölluð iMac DV Special Edition. Sú tölva mun innihalda 128MB vinnsluminni og 13 gígabæta harðan disk umfram iMac DV. Þessi lúxusútgáfa verður bara til í einum lit, grafít. Útlitið Þessi nýi iMakki er gerður út á útlitið eins og sá gamli. Hönnuninni hefur aðeins verið breytt. Plastskel- in sem umlykur líffærin er orðin að- eins gegnsærri og sýnir innvolsið betur en sú gamla gerði. Tölvunni munu fylgja hátalarar sem voru sér- hannaðir fyrir hana. Fyrirtækið Harman Kardon, sem framleiðir þessa hátalara, býður svo upp á ýmsar viðbætur við hátalarana, eins og t.d. bassabox og slíkt föndur. Án efa á Apple eftir að ganga vel með þessa nýju útgáfu á iMac. Eins og síðast verður verðinu stillt í hóf og eru þá komnar á markaðinn mjög kraftmiklar heimilistölvur sem, eins og alltaf, líta vel út. -sno „ Merkur fundur úti í geimnum: Orsmátt tungl á sporbaug um smástirni - í annaö skipti í sögunni sem slíkt finnst Þessi samsetta innrauða mynd sýnir okkur smástirnið Eugeniu i miðjunni en í kringum það má sjá sporbaug tunglsins, en myndirnar eru teknar á fimm dögum. Græna brotalínan sýnir svo sporbaug tunglsins. Stóri „kross- inn“ á myndinni er til kominn vegna Ijóss í sjónaukanum og er ekki raun- verulegt fyrirbæri. Geimvísinda- f-Í ;j"j l, menn tilkynntu J -'JJJ-l"1 j síðustu viku að 7J£jJJiíJj jeir hefðu fund- ið örsmátt tungl sem er á spor- baug um smástimi, en þetta er ein- ungis í annað skiptið í sögu geim- vísinda sem slíkt fyrirbæri sést. Hið nýja tungl, sem enn hefur ekki hlot- ið nafn, er á sporbaug um smástirn- ið Eugenia. Það sást í stjörnusjónauka á Hawaii, en notaður var sérstakur spegill á sjónaukann til að koma í veg fyrir að andrúmsloft jarðar truflaði útsýni sjónaukans. Það sem sást með þessu var örsmátt tungl, um 13 km að þvermáli sem gekk á sporbaug um hið kartöflulaga smá- stimi Eugenia, sem er að meðaltali 215 km í þvermál. Að sögn vísindamannanna sem fundu tunglið heíði i raun ekki ver- ið erfitt að finna það ef það hefði Fundur tunglsins hefur auðveldað vfslnda- mönnum að átta sig á þéttleika Eugeníu ö g með þvf að relkna úi aðdróttarafl smástlmisins á tunglið hefur komið f Ijós að Eugenia er af léttara taginu. verið eitt á ferð í gegnum smást- imabeltið milli Mars og Júpíter. En vegna nálægðarinnar við Eugenia, sem er 300 sinnum bjartari en tunglið, var það í raun falið í birtu smástirnisins, svipað og lýsing vasaljóss myndi týnast í birtunni af ljóskastara. Fundur tunglsins hefur auðveld- að vísindamönnum að átta sig á þéttleika Eugeniu og með því að reikna út aðdráttarafl smástirnisins á tunglið hefur komið i ljós að Eu- genia er af léttara taginu. Þéttleiki smástimisins er einungis um 20% meiri en vatns sem þýðir að það er sennilega ekki meira en lauslega samsett steinahrúga eða jafnvel bara ísbolti. Mario í golfið Karákterinn Mario er eigend- um Nintendo vel kunnugur. Þessi karakter hefur verið notaður í ýmsa leiki á Nintendo-leikjatölv- unni. Fyrst birtist Mario þessi í leiknum Donkey Kong, síðan hefur Mcirio komið fram í alls konar leikjum og jafnvel leikið i bíómyndum. Nú hefur enn einn leikurinn bæst við. í þetta skipti á Mario að spila golf í nýjum leik sem er væntanlegur fyrir Game Boy leikjatölvuna. Leikur- inn mun innihalda allt það sem góður golfleikur á að innihalda í smækkaðri mynd. J'ÍjJýH- J'ájJSJ/

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.