Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.1999, Side 5

Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.1999, Side 5
ÞRIÐJUDAGUR 9. NÓVEMBER 1999 5 Bjarni Guðmundsson. Lottóið til Stöðvar 2: Eftirsjá í góðum viðskiptavini - segir Sjónvarpið Frá og með næstu áramótum flyst Lottóið frá Sjónvarpinu þar sem það hefur verið frá upphafi og fer yfir til Stöðvar 2. Undanfarið hafa staðið yfir samningaviðræður á milli for- svarsmanna íslenskrar getspár, sem rekur Lottóið, annars vegar og Sjónvarpsins og Stöðvar 2 hins vegar. í þeim viðræðum hafði Stöð 2 betur og er niðurstaðan sú að um næstu áramót mun Lottóið hætta með laugardagsútdrátt sinn hjá Sjónvarpinu þar sem það hef- ur verið frá upphafi. Það verður því Stöð 2 sem verður þess heið- urs aðnjótandi að leiða Lottóút- sendinguna fyrstu skrefin inn í nýja öld. „Það er auðvitað eftirsjá i góð- um viðskiptavini," sagði Bjami Guðmundsson, framkvæmda- stjóri Sjónvarpsins. „Laugar- dagslottóið hefur verið hér í þrett- án ár og hættir nú um áramótin," sagði hann en vildi ekki tjá sig frekar um það mál. -HKr. Fréttir Reykvíkingur sem vill ekki horfa á ríkissjónvarpið: Rukkaður notagjöld - telur sig neyddan til að kaupa sjónvarp til að um af- i sjö ár losna við ágang innheimtumanna Reykvísk fjölskylda flutti heim frá Bandaríkjunum fyrir sjö árum og var þá búin að fá nóg af miklu flóði sjónvarpsefnis. Þrátt fyrir að þau hafi ekki átt sjónvarpstæki eft- ir heimkomuna hafa þau samt ítrek- að lent í höndum innheimtumanna RÚV sem krefja þau um greiðslu af- notagjalda. Nú sjá þau vart aðra leið til að fá frið fyrir átroðningi inn- heimtumanna en að láta undan og kaupa eirdaldlega sjónvarpstæki. „Þegar maður sá dagskrána hjá ríkissjónvarpinu eftir heimkomuna þá hafði maður engan áhuga á að horfa á það,“ sagði fjölskyldufaðir- inn sem ekki vildi láta nafns síns getið af ótta við að verða lagður í einelti af innheimtumönnnum RÚV. „Slíkt taka þessir menn bara ekki í mál. Ég er búinn að standa í stappi við RÚV allar götur síðan og eitt málið endaði í lögfræðingum. Nú síðast fékk ég sent ægilega failegt bréf ásamt giróseðli þar sem ég var beð- inn um að tilkynna ef ég væri með sjónvarp. Ég sendi þeim bréf til baka og sagði að ekkert hefði breyst í þessum efnum hjá mér. Ég sendi Bimi Bjarnasyni menntamálaráð- herra einnig bréf með fjórum já- og nei-spumingum.“ í svari Bjöms Bjamasonar við fyrstu tveim spumingunum kemur til að eiga viðtæki. Ef menn eigi fram að ekki sé skylda fyrir hendi slíkt tæki þá sé hins vegar skylda að greiða útvarpsgjald. Þá segir að samkvæmt útvarpslögum beri Rík- isútvarpinu að halda skrá yfir öll viðtæki sem notuð eru hér á landi og nota má við móttöku útvarpsefn- is. Einnig sé heimild til að tengja saman þjóðskrá og viðtækjaskrá. „Við síðustu tveim er farið í kringum hlutina og mér sent álit umboðsmanns Alþingis um mál sem mér koma ekkert við,“ segir Reyk- víkingurinn. Ég spurði hann hvort það væri tilfellið að ef fólk væri svona skrýtið og vildi ekki hafa slík tæki þá væri það undirselt því að þurfa að búa við stöðuga áreitni frá RÚV. í svömm ráðherra má sjá að þetta er einmitt tilfellið. Eigi maður ekki svona tæki og vill ekki borga þá er maður settur undir það að þetta lið sé hér bankandi á dymar í tima og ótíma og maður stendur í eilífum bréfaskriftum við þaö. Mað- ur verður að búa við stöðugan átroðning. Það er vonlaust mál að losna við þetta. Það má flokka þetta undir eitt af þeim vandamálum sem mennta- málaráðuneytið fæst við í skólum og heitir einelti," sagði Reykvíking- urinn. Hann sagðist hafa velt því fyrir sér hvort það sé virkilega ein leið til að losna undan þessu - að kaupa sjónvarpstæki. -HKr. Grand Cherokee Ltd, ek. 120 þús. km. Ásett verð 2.100.000. Tilboðsverð 1.950.000. Peugeot 406 '98, ek. 19 þús. km. Ásett verð 1.590.000. Tilboðsverð 1.490.000. VW Golf stw 4x4 '98, ek. 43 þús. km. Ásett verð 1.590.000. Tilboðsverð 1.390.000. Ford Mustang '94, ek. 89 þús. km. Ásett verð 2.100.000. Tilboðsverð 1.790.000. Chevrolet Blazer '91, ek. 105 þús. km. Ásett verð 1.250.000. Tilboðsverð 1.090.000. ek. 118 þús. km. Tilboðsverð 590.000. Opel Astra '97, ek. 19 þús. km. Ásett verð 1.190.000. Tilboðsverð 1.080.000. MMC Carisma '98, ek. 34 þús. km. Ásett verð 1.590.000. Tilboðsverð 1.490.000. Daihatsu Rocky '90, ek. 156 þús. km. Ásett verð 690.000. Tilboðsverð 530.000. Grand Voyager '94,4x4, 7 manna, ek. 156 þús. km. Tilboðsverð 1.190.000. MMC Pajero '87, ek. 190 þús. km. Tilboðsverö: 290.000. Hyundai H100 dísil, '97, ek. 55 þús. km. Ásettverð 1.090.000. Tilboðsverð 820.000. Srt. í JlíJB Chrysler Voyager '91,4x4, 7 manna, ek. 154 þús. km. Tilboðsverð 790.000. Ford Ranger pick up '95, ek. 47 þús. km. Tilboðsverð 930.000. Cherokee Laredo '91, 5 gíra, ek. 141 þús km. Tilboðsverð 730.000. Chrysler Neon '95, ek. 90 þús. km. Ásett verð 990.000. Tilboðsverð 820.000. NÝBÝLAVEGUR 2 • SÍMI 550 2400 • OPIÐ VIRKA DAGA 9-18

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.