Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.1999, Síða 5
ÞRIÐJUDAGUR 9. NÓVEMBER 1999
5
Bjarni Guðmundsson.
Lottóið til Stöðvar 2:
Eftirsjá í góðum
viðskiptavini
- segir Sjónvarpið
Frá og með næstu áramótum
flyst Lottóið frá Sjónvarpinu þar
sem það hefur verið frá upphafi
og fer yfir til Stöðvar 2.
Undanfarið hafa staðið yfir
samningaviðræður á milli for-
svarsmanna íslenskrar getspár,
sem rekur Lottóið, annars vegar
og Sjónvarpsins og Stöðvar 2 hins
vegar. í þeim viðræðum hafði
Stöð 2 betur og er niðurstaðan sú
að um næstu áramót mun Lottóið
hætta með laugardagsútdrátt sinn
hjá Sjónvarpinu þar sem það hef-
ur verið frá upphafi. Það verður
því Stöð 2 sem verður þess heið-
urs aðnjótandi að leiða Lottóút-
sendinguna fyrstu skrefin inn í
nýja öld.
„Það er auðvitað eftirsjá i góð-
um viðskiptavini," sagði Bjami
Guðmundsson, framkvæmda-
stjóri Sjónvarpsins. „Laugar-
dagslottóið hefur verið hér í þrett-
án ár og hættir nú um áramótin,"
sagði hann en vildi ekki tjá sig
frekar um það mál. -HKr.
Fréttir
Reykvíkingur sem vill ekki horfa á ríkissjónvarpið:
Rukkaður
notagjöld
- telur sig neyddan til að kaupa sjónvarp til að
um af-
i sjö ár
losna við ágang innheimtumanna
Reykvísk fjölskylda flutti heim
frá Bandaríkjunum fyrir sjö árum
og var þá búin að fá nóg af miklu
flóði sjónvarpsefnis. Þrátt fyrir að
þau hafi ekki átt sjónvarpstæki eft-
ir heimkomuna hafa þau samt ítrek-
að lent í höndum innheimtumanna
RÚV sem krefja þau um greiðslu af-
notagjalda. Nú sjá þau vart aðra leið
til að fá frið fyrir átroðningi inn-
heimtumanna en að láta undan og
kaupa eirdaldlega sjónvarpstæki.
„Þegar maður sá dagskrána hjá
ríkissjónvarpinu eftir heimkomuna
þá hafði maður engan áhuga á að
horfa á það,“ sagði fjölskyldufaðir-
inn sem ekki vildi láta nafns síns
getið af ótta við að verða lagður í
einelti af innheimtumönnnum RÚV.
„Slíkt taka þessir menn bara ekki í
mál.
Ég er búinn að standa í stappi við
RÚV allar götur síðan og eitt málið
endaði í lögfræðingum. Nú síðast
fékk ég sent ægilega failegt bréf
ásamt giróseðli þar sem ég var beð-
inn um að tilkynna ef ég væri með
sjónvarp. Ég sendi þeim bréf til
baka og sagði að ekkert hefði breyst
í þessum efnum hjá mér. Ég sendi
Bimi Bjarnasyni menntamálaráð-
herra einnig bréf með fjórum já- og
nei-spumingum.“
í svari Bjöms Bjamasonar við
fyrstu tveim spumingunum kemur til að eiga viðtæki. Ef menn eigi
fram að ekki sé skylda fyrir hendi slíkt tæki þá sé hins vegar skylda að
greiða útvarpsgjald. Þá segir að
samkvæmt útvarpslögum beri Rík-
isútvarpinu að halda skrá yfir öll
viðtæki sem notuð eru hér á landi
og nota má við móttöku útvarpsefn-
is. Einnig sé heimild til að tengja
saman þjóðskrá og viðtækjaskrá.
„Við síðustu tveim er farið í
kringum hlutina og mér sent álit
umboðsmanns Alþingis um mál sem
mér koma ekkert við,“ segir Reyk-
víkingurinn. Ég spurði hann hvort
það væri tilfellið að ef fólk væri
svona skrýtið og vildi ekki hafa slík
tæki þá væri það undirselt því að
þurfa að búa við stöðuga áreitni frá
RÚV. í svömm ráðherra má sjá að
þetta er einmitt tilfellið. Eigi maður
ekki svona tæki og vill ekki borga
þá er maður settur undir það að
þetta lið sé hér bankandi á dymar í
tima og ótíma og maður stendur í
eilífum bréfaskriftum við þaö. Mað-
ur verður að búa við stöðugan
átroðning.
Það er vonlaust mál að losna við
þetta. Það má flokka þetta undir eitt
af þeim vandamálum sem mennta-
málaráðuneytið fæst við í skólum
og heitir einelti," sagði Reykvíking-
urinn. Hann sagðist hafa velt því
fyrir sér hvort það sé virkilega ein
leið til að losna undan þessu - að
kaupa sjónvarpstæki. -HKr.
Grand Cherokee Ltd, ek. 120 þús. km.
Ásett verð 2.100.000.
Tilboðsverð 1.950.000.
Peugeot 406 '98, ek. 19 þús. km. Ásett
verð 1.590.000.
Tilboðsverð 1.490.000.
VW Golf stw 4x4 '98, ek. 43 þús. km.
Ásett verð 1.590.000.
Tilboðsverð 1.390.000.
Ford Mustang '94, ek. 89 þús. km.
Ásett verð 2.100.000.
Tilboðsverð 1.790.000.
Chevrolet Blazer '91, ek. 105 þús. km.
Ásett verð 1.250.000.
Tilboðsverð 1.090.000.
ek. 118 þús. km.
Tilboðsverð 590.000.
Opel Astra '97, ek. 19 þús. km. Ásett
verð 1.190.000.
Tilboðsverð 1.080.000.
MMC Carisma '98, ek. 34 þús. km.
Ásett verð 1.590.000.
Tilboðsverð 1.490.000.
Daihatsu Rocky '90, ek. 156 þús. km.
Ásett verð 690.000.
Tilboðsverð 530.000.
Grand Voyager '94,4x4, 7 manna, ek.
156 þús. km.
Tilboðsverð 1.190.000.
MMC Pajero '87, ek. 190 þús. km.
Tilboðsverö: 290.000.
Hyundai H100 dísil, '97, ek. 55 þús. km.
Ásettverð 1.090.000.
Tilboðsverð 820.000.
Srt. í JlíJB
Chrysler Voyager '91,4x4, 7 manna, ek.
154 þús. km.
Tilboðsverð 790.000.
Ford Ranger pick up '95, ek. 47 þús. km.
Tilboðsverð 930.000.
Cherokee Laredo '91, 5 gíra, ek. 141
þús km.
Tilboðsverð 730.000.
Chrysler Neon '95, ek. 90 þús. km.
Ásett verð 990.000.
Tilboðsverð 820.000.
NÝBÝLAVEGUR 2 • SÍMI 550 2400 • OPIÐ VIRKA DAGA 9-18