Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.1999, Page 6

Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.1999, Page 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 9. NÓVEMBER 1999 Fréttir Jón Steinar Gunnlaugsson, verjandi mannsins sem var sýknaöur af kynferðisbroti: Múgæsing - ákærði er beittur ranglæti - telur að þeir dómarar sem sakfelldu manninn hafi látið undan pressu Hæstiréttur. Lögmaðurinn segir múgæsingu beitt gegn æðsta dómstóli landsins. Ég gagnrýni harölega frétt DV í gær, mánudag, þar sem sýknaður maður í kynferðisafbrotamáli er kallaður bamaníðingur og haft er viðtal við Álfheiði Ingadóttur þar sem hún hefur uppi rangar staðhæf- ingar um efni málsins. í þessu máli virðist standa svo á að fólk sem tek- ur til máls í þessari frétt krefjist þess að menn séu sakfelldir fyrir sakargiftir á sviði kynferðisafbrota án þess að þær hafi verið sannað- ar,“ sagði Jón Steinar Gunnlaugs- son hæstaréttarlögmaður, verjandi mannsins sem Hæstiréttur sýknaði fyrir helgi af sakargiftum af að hafa misnotað dóttur sína kynferðislega. Jón bendir á að rétt sé að fólk hafi i huga mannréttindareglur sem lögfestar em í sfjómarskránni og séu í Mannréttindasáttmála Evrópu - að menn skuli vera saklausir uns sekt þeirra er sönnuð. Minnihluti dómara virti ekki grundvallarreglur „Þetta mál hefur farið fyrir dóm- stólana," segir Jón. „Þar hefur sönnunarfærsla farið fram og undir allri þeirri pressu sem er fyrir hendi um sakfellingar á þessu sviði. Ég tel að fólk eigi að hafa í huga að niðurstaðan var sýkna vegna þess að sakimar vom ekki sannaðar. Það er rétt að það voru nokkrir dómarar sem vildu sakfelldu ákærða þrátt fyrir sýknuna. Ég lít svo á að þeir hafi veriö að láta und- an pressunni og færðu ekki fram neinar tækar röksemdir fyrir sak- fellingum sínum. Það var auðvitað Jón Steinar Gunnlaugsson hæsta- réttarlögmaður. Sýknaður maður er beittur gríðarlegu ranglæti, segir hann. mjög alvarlegt mál að þeir skyldu ekki virða þessa grundvallarreglu í dómum sínum eins og meirihlutinn gerði,“ segir Jón. Maðurinn er beittur ranglæti Jón Steinar segir að þegar litið sé á kröfuna sem býr að baki máiflutn- ingi þess fólks sem vill mótmæla sýknudómi Hæstaréttar á Internet- inu virðist krafan vera sú að það eigi að nema úr gildi þessa þýðingar- miklu mannréttindareglu á íslandi. „Þetta er fólk sem telur sig þess umkomið að fella dóma yfir manni sem hefur verið sýknaður í saka- máli eftir alla þá sönnunarfærslu sem þar hefur fariö fram - telur sig í stakk búið að sakfella hann án þess að vita neitt um atriöi málsins. Þetta er múgæsing sem beitt er gegn æðsta dómstóli þjóðarinnar sem er í mjög erfiðu máli aö sinna einni brýnustu skyldu sinni. Það er mjög alvarlegt mál að fólk skuli gera sig sekt um að ráðast með þess- um hætti á dómstól sem er að gegna skyldu sinni að þessu leyti. Það er eins og megi lesa það út úr þessum máiflutningi að i Hæstarétti sitji eitthvert fólk sem helst vilji verða til þess að sekir menn um ad- varleg afbrot sleppi. Þetta er málflutningur sem ætti ekki að vera nokkrum manni sæm- andi. Ég leyfi mér að skora á alla þá sem fylgjast vilja meö þessu máli að íhuga hvers konar múgæsing er hér á ferðinni gagnvart manni sem hef- ur verið sýknaður af þessum alvar- legum sakargiftum. Með þessari framkomu er verið að beita hann gríðarlegu ranglæti," sagði Jón Steinar Gunnlaugsson. -Ótt Manneklan á leikskólunum: Starfsfólk á gæslu- völlum til hjálpar? - stéttarfélagiö ekki hrifiö. Gjaldskrárhækkun fyrir borgarráö í dag „Ég held að þetta ætti að geta auð- veldað okkur bæði að halda í fólk og jafnvel að fá nýtt,“ segir Kristín Blöndal, formaður leikskólaráðs Reykjavíkur, um tillögu sem hún vonast til að borgarráð samþykki á fundi sinum í dag um að framlög til leikskólanna verði hækkuö um 70 milljónir króna. Gert er ráð fyrir að gjaldskrá leikskólanna verði hækk- uð sem þvl nemur og mun hækkun- in verða að lágmarki 11% en senni- lega einhverjum prósentum meiri. „Þetta fer auðvitað allt beint til starfsfólksins en það er ekki búið að ákveða hvemig þessu verður deilt út á leikskólana þannig að það er ekki hægt að svara því enn þá hvaða áhrif þetta hefur á kjör starfs- fólksins. En ef tillagan verður sam- þykkt fjöllum viö um það mjög fljót- lega hjá Leikskólum Reykjavíkur,“ segir Kristín. Von um 20 starfsmenn Að sögn Kristínar er nú verið að kanna hvort ekki megi fá starfs- menn gæsluvalla borgarinnar til að koma til starfa inn á leikskólana enda sé ákaflega lítil aðsókn á marga gæsluvelli um þessar mund- ir. Til þess þurfi þó samþykki starfs- mannanna sjálfra, leikskólastjór- anna og stéttarfélaganna en starfs- fólk gæsluvalla er í Starfsmannafé- lagi Reykjavíkur en ófaglært starfs- fólk leikskólanna í Eflingu. „Við höfum rætt við forystumenn Efling- ar en það er óhætt að segja að þeir vora ekki mjög hrifnir því samning- ar þessara hópa eru ólikir," segir Kristín. Þá segir hún mismunandi skoðanir vera á hugmyndinni með- Kristfn Blöndal: „Þó þetta líti illa út um næstu mánaðamót er aldrei að vita nema það bjargist." al starfsfólks gæsluvallanna. „Sum- um finnst þetta fráleitt en öðrum líst vel á þetta en vilja bíða og sjá hvað stéttarfélagið segir.“ Um 60 starfsmenn eru nú starf- andi á gæsluvöllum borgarinnar. „Þótt við fengjum aðeins 20 væri það alveg frábært," segir Kristín og bætir við að ef af verður muni þeim gæsluvöllum þar sem minnsta að- sóknin er verða lokað. Að sögn Kristínar hefur afstaða leikskólastjóranna tO þessarar hug- myndar enn ekki verið könnuð. Lítil breyting hefur oröiö til batn- aðar hvaða varðar starfsmanna- vanda leikskólanna á undanfömum dögum. „Ástandið er svipað og ver- ið hefur, það vantar um 70 manns. En það eru miklar breytingar frá degi til dags, í báðir áttir, þannig að þótt þetta líti illa út um næstu mán- aðamót er aldrei að vita nema það bjargist," segir Kristín. -GAR

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.