Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.1999, Page 6
6
ÞRIÐJUDAGUR 9. NÓVEMBER 1999
Fréttir
Jón Steinar Gunnlaugsson, verjandi mannsins sem var sýknaöur af kynferðisbroti:
Múgæsing - ákærði
er beittur ranglæti
- telur að þeir dómarar sem sakfelldu manninn hafi látið undan pressu
Hæstiréttur. Lögmaðurinn segir múgæsingu beitt gegn æðsta dómstóli landsins.
Ég gagnrýni harölega frétt DV í
gær, mánudag, þar sem sýknaður
maður í kynferðisafbrotamáli er
kallaður bamaníðingur og haft er
viðtal við Álfheiði Ingadóttur þar
sem hún hefur uppi rangar staðhæf-
ingar um efni málsins. í þessu máli
virðist standa svo á að fólk sem tek-
ur til máls í þessari frétt krefjist
þess að menn séu sakfelldir fyrir
sakargiftir á sviði kynferðisafbrota
án þess að þær hafi verið sannað-
ar,“ sagði Jón Steinar Gunnlaugs-
son hæstaréttarlögmaður, verjandi
mannsins sem Hæstiréttur sýknaði
fyrir helgi af sakargiftum af að hafa
misnotað dóttur sína kynferðislega.
Jón bendir á að rétt sé að fólk
hafi i huga mannréttindareglur sem
lögfestar em í sfjómarskránni og
séu í Mannréttindasáttmála Evrópu
- að menn skuli vera saklausir uns
sekt þeirra er sönnuð.
Minnihluti dómara virti ekki
grundvallarreglur
„Þetta mál hefur farið fyrir dóm-
stólana," segir Jón. „Þar hefur
sönnunarfærsla farið fram og undir
allri þeirri pressu sem er fyrir
hendi um sakfellingar á þessu sviði.
Ég tel að fólk eigi að hafa í huga að
niðurstaðan var sýkna vegna þess
að sakimar vom ekki sannaðar.
Það er rétt að það voru nokkrir
dómarar sem vildu sakfelldu
ákærða þrátt fyrir sýknuna. Ég lít
svo á að þeir hafi veriö að láta und-
an pressunni og færðu ekki fram
neinar tækar röksemdir fyrir sak-
fellingum sínum. Það var auðvitað
Jón Steinar Gunnlaugsson hæsta-
réttarlögmaður. Sýknaður maður er
beittur gríðarlegu ranglæti, segir
hann.
mjög alvarlegt mál að þeir skyldu
ekki virða þessa grundvallarreglu í
dómum sínum eins og meirihlutinn
gerði,“ segir Jón.
Maðurinn er beittur ranglæti
Jón Steinar segir að þegar litið sé
á kröfuna sem býr að baki máiflutn-
ingi þess fólks sem vill mótmæla
sýknudómi Hæstaréttar á Internet-
inu virðist krafan vera sú að það eigi
að nema úr gildi þessa þýðingar-
miklu mannréttindareglu á íslandi.
„Þetta er fólk sem telur sig þess
umkomið að fella dóma yfir manni
sem hefur verið sýknaður í saka-
máli eftir alla þá sönnunarfærslu
sem þar hefur fariö fram - telur sig
í stakk búið að sakfella hann án
þess að vita neitt um atriöi málsins.
Þetta er múgæsing sem beitt er
gegn æðsta dómstóli þjóðarinnar
sem er í mjög erfiðu máli aö sinna
einni brýnustu skyldu sinni. Það er
mjög alvarlegt mál að fólk skuli
gera sig sekt um að ráðast með þess-
um hætti á dómstól sem er að gegna
skyldu sinni að þessu leyti.
Það er eins og megi lesa það út úr
þessum máiflutningi að i Hæstarétti
sitji eitthvert fólk sem helst vilji
verða til þess að sekir menn um ad-
varleg afbrot sleppi.
Þetta er málflutningur sem ætti
ekki að vera nokkrum manni sæm-
andi. Ég leyfi mér að skora á alla þá
sem fylgjast vilja meö þessu máli að
íhuga hvers konar múgæsing er hér
á ferðinni gagnvart manni sem hef-
ur verið sýknaður af þessum alvar-
legum sakargiftum.
Með þessari framkomu er verið
að beita hann gríðarlegu ranglæti,"
sagði Jón Steinar Gunnlaugsson.
-Ótt
Manneklan á leikskólunum:
Starfsfólk á gæslu-
völlum til hjálpar?
- stéttarfélagiö ekki hrifiö. Gjaldskrárhækkun fyrir borgarráö í dag
„Ég held að þetta ætti að geta auð-
veldað okkur bæði að halda í fólk og
jafnvel að fá nýtt,“ segir Kristín
Blöndal, formaður leikskólaráðs
Reykjavíkur, um tillögu sem hún
vonast til að borgarráð samþykki á
fundi sinum í dag um að framlög til
leikskólanna verði hækkuö um 70
milljónir króna. Gert er ráð fyrir að
gjaldskrá leikskólanna verði hækk-
uð sem þvl nemur og mun hækkun-
in verða að lágmarki 11% en senni-
lega einhverjum prósentum meiri.
„Þetta fer auðvitað allt beint til
starfsfólksins en það er ekki búið að
ákveða hvemig þessu verður deilt
út á leikskólana þannig að það er
ekki hægt að svara því enn þá
hvaða áhrif þetta hefur á kjör starfs-
fólksins. En ef tillagan verður sam-
þykkt fjöllum viö um það mjög fljót-
lega hjá Leikskólum Reykjavíkur,“
segir Kristín.
Von um 20 starfsmenn
Að sögn Kristínar er nú verið að
kanna hvort ekki megi fá starfs-
menn gæsluvalla borgarinnar til að
koma til starfa inn á leikskólana
enda sé ákaflega lítil aðsókn á
marga gæsluvelli um þessar mund-
ir. Til þess þurfi þó samþykki starfs-
mannanna sjálfra, leikskólastjór-
anna og stéttarfélaganna en starfs-
fólk gæsluvalla er í Starfsmannafé-
lagi Reykjavíkur en ófaglært starfs-
fólk leikskólanna í Eflingu. „Við
höfum rætt við forystumenn Efling-
ar en það er óhætt að segja að þeir
vora ekki mjög hrifnir því samning-
ar þessara hópa eru ólikir," segir
Kristín. Þá segir hún mismunandi
skoðanir vera á hugmyndinni með-
Kristfn Blöndal: „Þó þetta líti illa út
um næstu mánaðamót er aldrei að
vita nema það bjargist."
al starfsfólks gæsluvallanna. „Sum-
um finnst þetta fráleitt en öðrum
líst vel á þetta en vilja bíða og sjá
hvað stéttarfélagið segir.“
Um 60 starfsmenn eru nú starf-
andi á gæsluvöllum borgarinnar.
„Þótt við fengjum aðeins 20 væri
það alveg frábært," segir Kristín og
bætir við að ef af verður muni þeim
gæsluvöllum þar sem minnsta að-
sóknin er verða lokað.
Að sögn Kristínar hefur afstaða
leikskólastjóranna tO þessarar hug-
myndar enn ekki verið könnuð.
Lítil breyting hefur oröiö til batn-
aðar hvaða varðar starfsmanna-
vanda leikskólanna á undanfömum
dögum. „Ástandið er svipað og ver-
ið hefur, það vantar um 70 manns.
En það eru miklar breytingar frá
degi til dags, í báðir áttir, þannig að
þótt þetta líti illa út um næstu mán-
aðamót er aldrei að vita nema það
bjargist," segir Kristín. -GAR