Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.1999, Page 7
ÞRIÐJUDAGUR 9. NÓVEMBER 1999
7
pv_____________________________________________________________________________________________Viðskipti
Þetta helst: Viðskipti á VÞÍ 965 m.kr., þar af 239 m.kr. með hlutabréf. ... SÍF og SH hækkuðu um 2,5%. ... Úrvals-
vísitalan hækkaði um 0,717 og er nú 1.425,2. ... Hraðfrystihús Þórshafnar hækkaði um 13,6%. ... Landsbankinn
hækkaði um 4,65% í 26 m.kr. viðskiptum. ... Samherji lækkaði um 4,16%. ... Stálsmiðjan lækkaði um 13,8%.
Landsbankinn - fjárfesting
kaupir í HÞ
Landsbankinn - fjárfesting hf.
hefur fest kaup á 5,63% hlut í
Hraðfrystistöð Þórshafnar hf.
(HÞ) en félagið átti ekki fyrir hlut
í HÞ. Nafnvirði hlutarins er 24,3
milljónir króna að nafnverði eða
um 45 milljónir króna að mark-
aðsvirði.
Obreytt neysluvísitala í
nóvember
Kaupþing spáir óbreyttri vísi-
tölu neysluverðs í nóvember en
spá Kaupþings um verðbólgu frá
upphafi til loka árs lækkar litil-
lega og er nú 5,3%. Siðar í dag
birtir Hagstofan vísitölu neyslu-
verðs fyrir nóvember.
Hlutabréf í Microsoft falla
Þegar markaðir voru opnaðir í
Evrópu í gærmorgun tók gengi
hlutabréfa Microsoft að falla og
nemur fallið 13,5%. Ástæðan mun
vera úrskurður alríkisdómara í
Bandaríkjunum um að Microsoft
hefði nýtt sér gróflega markaðs-
ráðandi yfirburði sína. Talið er
líklegt að bréfin muni halda
áfram að falla næstu daga þegar
markaðir í Bandaríkjunum taka
við sér.
Framleiðslustjóri SS segir
starfi sínu lausu.
Jón G. Jónsson, framleiðslustjóri
SS, hefur sagt starfi sínu lausu.
Hann fer til starfa hjá íslenska álfé-
laginu hf. í Straumsvík í lok janúar
nk. Jón hóf störf hjá Sláturfélaginu
í ágúst 1987. Hann gegndi m.a. lyk-
ilhlutverki við flutning og uppbygg-
ingu kjötvinnslunnar á Hvolsvelli.
Starf framleiðslustjóra verður aug-
lýst fljótlega.
Vaxtahækkun hugsanleg
í síðustu viku ákvað Seðlabanki
Evrópu að hækka stýrivexti um
0,50%. Með þessu tekur bankinn
til baka 0,50% vaxtalækkutt- 'frá
því í apríl síðastliðnum þar sem
ekki er talin þörf á svo lágum
skammtímavöxtiun. Landsbank-
inn telur þvi að með þessum
vaxtahækkunum hafi verið
höggvið í vaxtamuninn og því sé
líklegt að Seðlabankinn íhugi að
hækka stýrivexti um 0,25-0,50%,
til þess að viðhalda nauðsynlegum
vaxtamun. íslandsbanki F&M tel-
ur hins vegar aö ekki verði hugað
að vaxtahækkun nema fari að
bera á veikingu krónunnar.
Forstjóraskipti hjá Marel
Geir A. Gunnlaugsson hefur lát-
ið af störfum sem forstjóri Marels
hf. að eigin ósk. Við starfi hans
tekur Hörður Arnarson, fram-
kvæmdastjóri vöruþróunar og
framleiðslusviðs fyrirtækisins
Hagvaxtarspár hækkaðar
Englandsbanki birti í gær nýja
hagvaxtarspá þar sem gert er ráö
fyrir meiri hagvexti en áður hafði
verið búist við. Ný spá hljóðar
upp á 2,5% hagvöxt á þessu ári í
stað 2,25% sem áður hafði verið
spáð. Bankinn sendi hins vegar
skýr skilaboð til stjórnmála-
manna að ekki væri æskilegt að
auka ríkisútgjöld í samræmi við
aukinn hagvöxt heldur ætti að
búa i haginn fyrir framtíðina.
Vaxtahækkun hefur lítil áhrif
Ernest Welteke, Seðlabanka-
stjóri Þýskalands, sagði að vaxta-
hækkun Seðlabanka Evrópu
myndi hafa lítil áhrif á hagvöxt í
Þýskalandi. Hann lagði áherslu á
að lækkun langtímavaxta væri
mikilvægari fyrir Þýskaland.
Kaupþing sækir um leyfi til
bankastarfsemi í Lúxemborg
Á fostúdaginn var tilkynnt að
verðbréfafyrirtækið Kaupthing Lux-
embourg S.A. hefði sótt um leyfi til
alhliða bankastarfsemi. Ráðgert er
að bankinn taki til starfa í byrjun
árs 2000 að fengnum tilskildum leyf-
um frá yfirvöldum bankamála í
Lúxemborg.
Auk Magnúsar Guðmundssonar,
núverandi framkvæmdastjóra
Kaupthing Luxembourg S.A., hefur
Daninn Johnie Brögger verið ráð-
inn framkvæmdastjóri að bankan-
um.
Verðbréfafyrirtæki Kaupþings í
Lúxemborg var komið á fót vorið
1998 og hefur skjótt vaxið fiskur um
hrygg. Það er í beinu framhaldi af
hröðum vexti og góðum árangri
Kaupthing Luxembourg S.A. sem
ákveðið er að færa út kvíamar og
sækja um leyfi til reksturs banka í
Lúxemborg. í upphafi munu 14
manns starfa hjá bankanum og
verður eigið fé hans 250
milljónir LUF eða um 500
milljónir íslenskra króna.
Bankinn verður að fullu í
eigu Kaupþings hf.
Lúxemborg er miðdepill
alþjóðlegs fjármálaumhverfis
og þar er hagkvæmt rekstr-
arumhverfi 220 banka frá 45
löndum. „Vaxandi starfsemi sigurður Einars-
okkar i Lúxemborg er til sonj f0rstjóri
vitnis um að útrás í fjármála- Kaúpþings.
starfsemi er vel til þess
fallin að draga arð til ís-
lands sem að öðrum kosti
félli erlendum fjármála-
stofnunum í skaut,“ segir
Sigurður Einarsson, for-
stjóri Kaupþings, í tilefni
af ákvörðuninni um starf-
rækslu fyrsta bankans í
eigu íslendinga á erlendri
grund.
Nafnbirting innherja er mikilvæg réttarbót
- að mati FBA
Það yrði mikilvæg réttarbót yrði
sú regla tekin upp að birta nöfn inn-
herja sem eiga viðskipti með skráð
verðbréf. Þetta er mat Fjárfestingar-
banka atvinnulífsins hf. (FBA) en
nú eru slík viðskipti tilkynnt undir
nafnleynd.
FBA segir að athygli hafi vakið í
síðustu viku þegar forstjóri Fjár-
málaeftirlitsins, Páll Gunnar Páls-
son, benti á nauðsyn þess að þessi
regla yrði tekin upp. „Ljóst er að
hér yrði um mikilvæga réttarbót að
ræða og samræmingu við fram-
kvæmd á mörkuðum í nágranna-
ríkjum okkar,“ segir í Morgunkomi
FBA.
FBA segir að slíkar upplýsingar
myndu veita markaðinum mikil-
vægar vísbendingar um hver trú
viðkomandi innherja er á verðbréf-
um umrædds félags, auk þess sem
upplýsingar gætu verið fólgnar í því
hvaða stöðu viðkomandi innherji
gegndi innan félagsins. „í þessu
samhengi er einnig nauðsynlegt að
taka upp þá reglu að tilgreina hver
eign innherjans var áður en við-
skiptin áttu sér stað og hver eign
hans er eftir viðskiptin, en miklu
getur skipt hvort innherji er að
selja aðeins litinn hluta eignar sinn-
ar eða allan hluta eignar hans svo
dæmi sé tekið,“ segir FBA.
FBA segir að tilkynningar um
innherjaviðskipti hafi, eins og þær
eru settar fram, aðeins takmarkað
gildi fyrir markaðinn. „Oft á tiðum
berast tilkynningamar of seint til
hlutaskráa félaganna og tafir geta
jafnvel orðið á tilkynningum hluta-
skráa til Verðbréfaþings íslands.
Með tilkomu rafrænnar eignar-
skráningar Verðbréfaskráningar ís-
lands er ljóst að hér verður hægt að
gera bragarbót á og eðlilegt væri að
nýjar reglur yrðu settar samhliða
rafvæðingu verðbréfa."
SH með 20% í FPI
hvers hluthafa.
FPI Ltd. er al-
menningshlutafélag
skráð á mörkuðum í
Montreal og Toronto.
Fyrirtækið gerir út
skip og starfrækir
fiskvinnslustöðvar á
Nýfundnalandi, rek-
ur fiskréttaverk-
smiðjur á Nýfundna-
landi og í Bandaríkj-
unum og stundar al-
þjóðleg viðskipti með
fisk. Heildarvelta fé-
lagsins á síðasta ári
var 681 milljón CAD
og hagnaður rúmar 8
milljónir CAD. Eign-
ir alls voru 326 millj-
ón CAD og eigið fé
158 milljón CAD.
SH er aðili að tilboði
í öll hlutabréf FPI
Limited, móðurfélags
Fishery Products
International Ltd. á Ný-
fundnalandi. Á föstu-
daginn var tilboð 3ja
aðila mn kaup á öllum
hlutabréfum FPI Ltd.
gert opinbert.
Þeir sem að tilboðinu
standa era auk SH, Bill
Barry eigandi Barry
Group á Nýfundnalandi
og Clearwater Fine
Fodds á Nova Scotia.
Fyrirtæki þessi eru
þekkt á sínu sviði inn-
an sjávarútvegsgeirans.
Stofhað hefur verið sér-
stakt félag á Nýfundna-
landi sem stendur að
tilboðinu, Neos
Seafoods og er hlutur
SH í því 20%. Tilboðið tfi hlutafa
FPI Ltd. hljóðar upp á 9 Kanadadoll-
ara (CAD) á hvern hlut, eða sem
nemur 142 m. CAD að heildarverð-
mæti. Miðað við skráð gengi á bréf-
um FPI þann 4 nóv. er hér um 25%
MP með 18% í Sæplasti
- keypt með endursölu í huga
Dulvin ehf. hefur selt
11,83% hlut sinn í Sæplasti
hf. eða 11,1 milljón króna að
nafnverði og Samvinnulíf-
eyrissjóðurinn hefur selt
6,2% í Sæplasti hf. 5,8 millj-
ónir að nafnverði. Kaupand-
inn er MP-verðbréf hf. en
fyrirtækið á nú 18,02% eða
16,9 milljónir að nafnverði
og um 165 milljónir króna
að markaðsvirði.
Dulvin er eihkahlutafélag
sem m.a. er í eigu eins
stærsta samkeppnisaðila
Auður Finn-
bogadóttir, for-
stöðumaður MP-
verðbréfa.
Sæplasts, Borgarplasts hf.
Auður Finnbogadóttir,
forstöðumaður MP-verð-
bréfa, segir aö kaupin séu
gerð með endursölu í huga
en viðræður um sölu á
bréfunum muni hefjast
strax eftir helgi. Vitað sé af
áhuga fyrir bréfunum og
ekkert sé því til fyrirstöðu
að bréfin verði seld í einu
lagi. Það verði hins vegar
að koma í ljós hvað salan
muni taka langan tíma.
Vetrarferðineftiróiaf
Gunnarsson er sjálfstæður
lokahluti þríleiksins sem
hófst með Tröllakirkju.
Kynngimögnuð frásögn,
spennandi, hröð og
dramatísk, hlaðin þeim
krafti sem jafnan einkennir
verk Ólafs Gunnarssonar.
0
FORLAGIÐ
www.malogmcnnlng.is
hærra verð að ræða. Tilboðið renn-
ur út um áramótin og er skilyrt þvi
að 66,67% hlutabréfa náist og að
gerðar verði nauðsynlegar breyting-
ar á lögum á Nýfundnalandi, sem
m.a. takmarkar hámarkseignarhlut