Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.1999, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.1999, Blaðsíða 7
ÞRIÐJUDAGUR 9. NÓVEMBER 1999 7 pv_____________________________________________________________________________________________Viðskipti Þetta helst: Viðskipti á VÞÍ 965 m.kr., þar af 239 m.kr. með hlutabréf. ... SÍF og SH hækkuðu um 2,5%. ... Úrvals- vísitalan hækkaði um 0,717 og er nú 1.425,2. ... Hraðfrystihús Þórshafnar hækkaði um 13,6%. ... Landsbankinn hækkaði um 4,65% í 26 m.kr. viðskiptum. ... Samherji lækkaði um 4,16%. ... Stálsmiðjan lækkaði um 13,8%. Landsbankinn - fjárfesting kaupir í HÞ Landsbankinn - fjárfesting hf. hefur fest kaup á 5,63% hlut í Hraðfrystistöð Þórshafnar hf. (HÞ) en félagið átti ekki fyrir hlut í HÞ. Nafnvirði hlutarins er 24,3 milljónir króna að nafnverði eða um 45 milljónir króna að mark- aðsvirði. Obreytt neysluvísitala í nóvember Kaupþing spáir óbreyttri vísi- tölu neysluverðs í nóvember en spá Kaupþings um verðbólgu frá upphafi til loka árs lækkar litil- lega og er nú 5,3%. Siðar í dag birtir Hagstofan vísitölu neyslu- verðs fyrir nóvember. Hlutabréf í Microsoft falla Þegar markaðir voru opnaðir í Evrópu í gærmorgun tók gengi hlutabréfa Microsoft að falla og nemur fallið 13,5%. Ástæðan mun vera úrskurður alríkisdómara í Bandaríkjunum um að Microsoft hefði nýtt sér gróflega markaðs- ráðandi yfirburði sína. Talið er líklegt að bréfin muni halda áfram að falla næstu daga þegar markaðir í Bandaríkjunum taka við sér. Framleiðslustjóri SS segir starfi sínu lausu. Jón G. Jónsson, framleiðslustjóri SS, hefur sagt starfi sínu lausu. Hann fer til starfa hjá íslenska álfé- laginu hf. í Straumsvík í lok janúar nk. Jón hóf störf hjá Sláturfélaginu í ágúst 1987. Hann gegndi m.a. lyk- ilhlutverki við flutning og uppbygg- ingu kjötvinnslunnar á Hvolsvelli. Starf framleiðslustjóra verður aug- lýst fljótlega. Vaxtahækkun hugsanleg í síðustu viku ákvað Seðlabanki Evrópu að hækka stýrivexti um 0,50%. Með þessu tekur bankinn til baka 0,50% vaxtalækkutt- 'frá því í apríl síðastliðnum þar sem ekki er talin þörf á svo lágum skammtímavöxtiun. Landsbank- inn telur þvi að með þessum vaxtahækkunum hafi verið höggvið í vaxtamuninn og því sé líklegt að Seðlabankinn íhugi að hækka stýrivexti um 0,25-0,50%, til þess að viðhalda nauðsynlegum vaxtamun. íslandsbanki F&M tel- ur hins vegar aö ekki verði hugað að vaxtahækkun nema fari að bera á veikingu krónunnar. Forstjóraskipti hjá Marel Geir A. Gunnlaugsson hefur lát- ið af störfum sem forstjóri Marels hf. að eigin ósk. Við starfi hans tekur Hörður Arnarson, fram- kvæmdastjóri vöruþróunar og framleiðslusviðs fyrirtækisins Hagvaxtarspár hækkaðar Englandsbanki birti í gær nýja hagvaxtarspá þar sem gert er ráö fyrir meiri hagvexti en áður hafði verið búist við. Ný spá hljóðar upp á 2,5% hagvöxt á þessu ári í stað 2,25% sem áður hafði verið spáð. Bankinn sendi hins vegar skýr skilaboð til stjórnmála- manna að ekki væri æskilegt að auka ríkisútgjöld í samræmi við aukinn hagvöxt heldur ætti að búa i haginn fyrir framtíðina. Vaxtahækkun hefur lítil áhrif Ernest Welteke, Seðlabanka- stjóri Þýskalands, sagði að vaxta- hækkun Seðlabanka Evrópu myndi hafa lítil áhrif á hagvöxt í Þýskalandi. Hann lagði áherslu á að lækkun langtímavaxta væri mikilvægari fyrir Þýskaland. Kaupþing sækir um leyfi til bankastarfsemi í Lúxemborg Á fostúdaginn var tilkynnt að verðbréfafyrirtækið Kaupthing Lux- embourg S.A. hefði sótt um leyfi til alhliða bankastarfsemi. Ráðgert er að bankinn taki til starfa í byrjun árs 2000 að fengnum tilskildum leyf- um frá yfirvöldum bankamála í Lúxemborg. Auk Magnúsar Guðmundssonar, núverandi framkvæmdastjóra Kaupthing Luxembourg S.A., hefur Daninn Johnie Brögger verið ráð- inn framkvæmdastjóri að bankan- um. Verðbréfafyrirtæki Kaupþings í Lúxemborg var komið á fót vorið 1998 og hefur skjótt vaxið fiskur um hrygg. Það er í beinu framhaldi af hröðum vexti og góðum árangri Kaupthing Luxembourg S.A. sem ákveðið er að færa út kvíamar og sækja um leyfi til reksturs banka í Lúxemborg. í upphafi munu 14 manns starfa hjá bankanum og verður eigið fé hans 250 milljónir LUF eða um 500 milljónir íslenskra króna. Bankinn verður að fullu í eigu Kaupþings hf. Lúxemborg er miðdepill alþjóðlegs fjármálaumhverfis og þar er hagkvæmt rekstr- arumhverfi 220 banka frá 45 löndum. „Vaxandi starfsemi sigurður Einars- okkar i Lúxemborg er til sonj f0rstjóri vitnis um að útrás í fjármála- Kaúpþings. starfsemi er vel til þess fallin að draga arð til ís- lands sem að öðrum kosti félli erlendum fjármála- stofnunum í skaut,“ segir Sigurður Einarsson, for- stjóri Kaupþings, í tilefni af ákvörðuninni um starf- rækslu fyrsta bankans í eigu íslendinga á erlendri grund. Nafnbirting innherja er mikilvæg réttarbót - að mati FBA Það yrði mikilvæg réttarbót yrði sú regla tekin upp að birta nöfn inn- herja sem eiga viðskipti með skráð verðbréf. Þetta er mat Fjárfestingar- banka atvinnulífsins hf. (FBA) en nú eru slík viðskipti tilkynnt undir nafnleynd. FBA segir að athygli hafi vakið í síðustu viku þegar forstjóri Fjár- málaeftirlitsins, Páll Gunnar Páls- son, benti á nauðsyn þess að þessi regla yrði tekin upp. „Ljóst er að hér yrði um mikilvæga réttarbót að ræða og samræmingu við fram- kvæmd á mörkuðum í nágranna- ríkjum okkar,“ segir í Morgunkomi FBA. FBA segir að slíkar upplýsingar myndu veita markaðinum mikil- vægar vísbendingar um hver trú viðkomandi innherja er á verðbréf- um umrædds félags, auk þess sem upplýsingar gætu verið fólgnar í því hvaða stöðu viðkomandi innherji gegndi innan félagsins. „í þessu samhengi er einnig nauðsynlegt að taka upp þá reglu að tilgreina hver eign innherjans var áður en við- skiptin áttu sér stað og hver eign hans er eftir viðskiptin, en miklu getur skipt hvort innherji er að selja aðeins litinn hluta eignar sinn- ar eða allan hluta eignar hans svo dæmi sé tekið,“ segir FBA. FBA segir að tilkynningar um innherjaviðskipti hafi, eins og þær eru settar fram, aðeins takmarkað gildi fyrir markaðinn. „Oft á tiðum berast tilkynningamar of seint til hlutaskráa félaganna og tafir geta jafnvel orðið á tilkynningum hluta- skráa til Verðbréfaþings íslands. Með tilkomu rafrænnar eignar- skráningar Verðbréfaskráningar ís- lands er ljóst að hér verður hægt að gera bragarbót á og eðlilegt væri að nýjar reglur yrðu settar samhliða rafvæðingu verðbréfa." SH með 20% í FPI hvers hluthafa. FPI Ltd. er al- menningshlutafélag skráð á mörkuðum í Montreal og Toronto. Fyrirtækið gerir út skip og starfrækir fiskvinnslustöðvar á Nýfundnalandi, rek- ur fiskréttaverk- smiðjur á Nýfundna- landi og í Bandaríkj- unum og stundar al- þjóðleg viðskipti með fisk. Heildarvelta fé- lagsins á síðasta ári var 681 milljón CAD og hagnaður rúmar 8 milljónir CAD. Eign- ir alls voru 326 millj- ón CAD og eigið fé 158 milljón CAD. SH er aðili að tilboði í öll hlutabréf FPI Limited, móðurfélags Fishery Products International Ltd. á Ný- fundnalandi. Á föstu- daginn var tilboð 3ja aðila mn kaup á öllum hlutabréfum FPI Ltd. gert opinbert. Þeir sem að tilboðinu standa era auk SH, Bill Barry eigandi Barry Group á Nýfundnalandi og Clearwater Fine Fodds á Nova Scotia. Fyrirtæki þessi eru þekkt á sínu sviði inn- an sjávarútvegsgeirans. Stofhað hefur verið sér- stakt félag á Nýfundna- landi sem stendur að tilboðinu, Neos Seafoods og er hlutur SH í því 20%. Tilboðið tfi hlutafa FPI Ltd. hljóðar upp á 9 Kanadadoll- ara (CAD) á hvern hlut, eða sem nemur 142 m. CAD að heildarverð- mæti. Miðað við skráð gengi á bréf- um FPI þann 4 nóv. er hér um 25% MP með 18% í Sæplasti - keypt með endursölu í huga Dulvin ehf. hefur selt 11,83% hlut sinn í Sæplasti hf. eða 11,1 milljón króna að nafnverði og Samvinnulíf- eyrissjóðurinn hefur selt 6,2% í Sæplasti hf. 5,8 millj- ónir að nafnverði. Kaupand- inn er MP-verðbréf hf. en fyrirtækið á nú 18,02% eða 16,9 milljónir að nafnverði og um 165 milljónir króna að markaðsvirði. Dulvin er eihkahlutafélag sem m.a. er í eigu eins stærsta samkeppnisaðila Auður Finn- bogadóttir, for- stöðumaður MP- verðbréfa. Sæplasts, Borgarplasts hf. Auður Finnbogadóttir, forstöðumaður MP-verð- bréfa, segir aö kaupin séu gerð með endursölu í huga en viðræður um sölu á bréfunum muni hefjast strax eftir helgi. Vitað sé af áhuga fyrir bréfunum og ekkert sé því til fyrirstöðu að bréfin verði seld í einu lagi. Það verði hins vegar að koma í ljós hvað salan muni taka langan tíma. Vetrarferðineftiróiaf Gunnarsson er sjálfstæður lokahluti þríleiksins sem hófst með Tröllakirkju. Kynngimögnuð frásögn, spennandi, hröð og dramatísk, hlaðin þeim krafti sem jafnan einkennir verk Ólafs Gunnarssonar. 0 FORLAGIÐ www.malogmcnnlng.is hærra verð að ræða. Tilboðið renn- ur út um áramótin og er skilyrt þvi að 66,67% hlutabréfa náist og að gerðar verði nauðsynlegar breyting- ar á lögum á Nýfundnalandi, sem m.a. takmarkar hámarkseignarhlut

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.