Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.1999, Side 14

Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.1999, Side 14
14 Kynslóðin sem kann að njóta Hafa þau einhver sérkenni? Jú, það er hin nýja kynslóð verð- bréfagutta og -pía. Milljónirnar skipta tugum ef ekki hundruðum sem þau handfjatla - kannski ekki beint heldur vinna með og ráð- stafa. En hvernig eru þessar manneskjur og hvemig er lífi þeirra háttað? Tilveran fór á stúfana og kynnti sérfólkið í fjármálaheim- inum á íslandi - hina nýju kynslóð. i © e •••••••••••••••••( Ármann Þorvaldsson: Lífið mætti vera lengra Armann Þorvaldsson er þrí- tugur Reykvíkingur. Hann hóf framhaldsskólagöngu sína í sagnfræði en i því námi kviknaði áhugi hans á við- skiptum. Leið hans lá þar næst til Bandaríkjanna þar sem hann tók NBA-próf í viðskiptum (master of boolshit art!). Hann er giftur Þór- dísi Edwald kennaranema og eiga þau tvö böm, Bjarka og Margréti. Hann ólst upp í Breiðholti, eða eins og forstjóri Kaupþings kynnir hann: Hann er úr Bófahólum og Byssu- felli. Ármann var strax ákveðinn i að vinna hjá fjármálafyrirtæki eftir nám. „Kaupþing var eina fjármála- fyrirtækið sem vildi taka við mér. Þetta er liður í samfélagsþjónustu að ráða mig,“ segir Ármann og tist- ir.“ - En í hverju felst vinnan? „Ég er forstöðumaður fyrirtækjasviðs Kaupþings. Verkeöii fyrirtækisins lúta að ráðgjöf til fyrirtækja, fyrir- tækjasölum og setningu fyrirtækja á markað." - En er þetta ekki hrikalegt álag? „Þetta er þannig starf að maður fer éddrei úr vinnunni. Ætli það verði ekki að teljast mikið álag. Það er mikil viðvera. Ókosturinn er að maður fer úr vinnunni en er með ÞRIÐJUDAGUR 9. NÓVEMBER 1999 „Það er helsti ókostur minn hversu mikið góðmenni ég er,“ segir Ármann. hana í kollinum og vaknar hugs- andi um vinnuna. Þetta verður eins konar lífsstíll. En konan mín er sér- staklega umburðarlynd." - Hvemig maður ertu? „Ég er alltof góður, er rakið góðmenni! Það er helsti ókostur minn hversu mik- ið góðmenni ég er,“ segir Ármann. - Hvað viðhorf hefurðu til lifsins? „Mér fmnst lífið allt of stutt og því nýti ég það sem best. Ég legg enga sérstaka áherslu á að verða ríkur, ég vil frekar njóta lífsins nú en geta þó framfleytt mér á seinni árum. Ég er samt óttalegur eyðsluseggur." - Hvar líður þér best? „Þórdís, konan mín, myndi öragglega segja fyrir framan sjónvarpið með fjar- stýringuna, skiptandi á milli Sein- feld- og Friends-þáttanna. En mér líður mjög vel á golfvellinum,“ seg- ir Ármann Þorvaldsson. -hól Einar Örn Ólafsson: Eyðsla einkennandi fyrir mína kynslóð Einar Öm Ólafsson frá FBA er 26 ára og ein- hleypur vesturbæingur. Hann er véla- og iðnaðarverk- fræöingur úr HÍ og hefur starfað í FBA frá stofnun. Hann starfar á gjaldeyris- og vaxtamarkaði. - Hvemig ferðu með þína eigin peninga? „Ég fer ekkert rosalega vel með eigin pen- inga að því leyti að ég eyði of miklu en ég legg samt eitt- hvað fyrir. Mánaðarlaunin fara mest í eyðslu sem er ein- kenn- andi fyrir mína kynslóð." - Er starfið skemmtilegt? „Já, það er mikill hraði og mikið líf. Ég er ekki einn á einhverri skrifstofu og hitti því marga og tala við enn fleiri. Það er vitanlega mikið álag en ég þrífst vel í þessari spennu. Svo er hugsanlega gert meira úr þessu álagi en það raunverulega er. Það er meira erlendis." - En vinnufélagarnir? „Það er mjög náið samband milli okkar. Við foram á barinn saman eftir vinnu og slíkt. Þetta er lítið fyrirfæki, 70-80 starfsmenn, og flestir á sama aldri, þ.e. 23-35 ára.“ - Eru vinir þínir í þessum bransa? „Nei, enginn þeirra. Margir era lögfræðingar en sem betur fer í flestum stéttum þannig að við höf- um „heitasta" slúðrið í hverri stétt.“ - Hvernig maður ertu? „Ég er náttúrlega mjög góður og þótt ég sé stund- um smágrimmur lærir fólk fljótt að taka mér. En ég er ekki vondur." - En þín lífsins gildi? „Að skemmta sér í þeirri stöðu sem maður er í hveiju sinni, hvort sem maður er ungur og einhleypur eða gamall ellilifeyriþegi. Svo enda ég væntanlega í þægilegri sófavinnu með konu upp á arminn, nokk- „Svo enda ég væntanlega í þægilegri sófavinnu með konu upp á arminn,ur böm og hund,“ segir Ein- nokkur börn og hund,“ segir Einar Örn. ar Örn Ólafsson. -hól - í hverju er starfið fólgið? „Starfið snýst meðal ann- ars um að fylgjast með og melta þær upplýsingar sem hafa áhrif á verð- bréfamarkaðinn. Einnig felst í starfinu svokölluð miðlun, þ.e. kaup og sala verðbréfa, samskipti við viðskiptavini, samninga- gerð, stjómun o.fl.“ - Hvað gerir þú í frístund- um? „Ég fer í líkamsrækt sem er alveg nauðsynlegt, tek þátt í félagsstörfúm, hitti fjölskyldu og vini og kíki á skemmtistaðina af og til.“ - Ferðu vel með eigin pen- inga? „Starf í þessum geira leiðir vissulega til þess að maður veltir fjár- málum meira fyrir sér en ella. Mitt viðhorf til pen- inga er þó þannig að ég ætla ekki að safna ótak- markað og geyma allt til elliáranna heldur vil ég „Starf í þessum geira leiðir vissulega til þess að maður layfa mér5að nota oittðvað veltir fjármálum meira fyrir sér en ellasegir Auður. ^ sparnaðinum jafnoðum, t.d. í ferðalog. Auður Finnbogadóttir: Ætla ekki að geyma allt til elliáranna uður Finnbogadóttir er forstöðu- M&k maður verðbréfaviðskipta hjá JLkra MP Verðbréfum hf. Hún er 32 ára gömul, einhleyp og barnlaus. Auður flutti til Reykjavíkur 16 ára göm- ul en hún ólst upp í Garði á Suðumesj- um. Hún varð stúdent frá Verslunarskól- anum og fór svo í framhaldsnám í al- þjóðlegum viðskiptum til Boulder í Colorado í Bandaríkjunum. í náminu vaknaði áhugi hennar á íjármálum. MP Verðbréf voru stofnuð í júní síð- astliðinn og hefur Auður tekið þátt í að koma fyrirtækinu af stað. - Hver er lífssýnin þín? Dagurinn í dag eftir G. Brandes. Dagurinn í dag er sérstakur. Hann tilheyrir þér. Gœrdagurinn sáldraóist milli fingra þinna. Honum verður ekki breytt. Þú veist ekki hvort hann kemur. Dagurinn í dag er hið eina sem þú getur verið viss um. Hann getur þú fyllt með eigin ákvörðunum. Notfœrðu þér það. -hól

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.