Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.1999, Síða 14
14
Kynslóðin
sem kann
að njóta
Hafa þau einhver sérkenni? Jú, það er hin nýja kynslóð verð-
bréfagutta og -pía. Milljónirnar skipta tugum ef ekki hundruðum
sem þau handfjatla - kannski ekki beint heldur vinna með og ráð-
stafa. En hvernig eru þessar manneskjur og hvemig er lífi þeirra
háttað? Tilveran fór á stúfana og kynnti sérfólkið í fjármálaheim-
inum á íslandi - hina nýju kynslóð.
i © e •••••••••••••••••(
Ármann Þorvaldsson:
Lífið mætti vera lengra
Armann Þorvaldsson er þrí-
tugur Reykvíkingur. Hann
hóf framhaldsskólagöngu
sína í sagnfræði en i því
námi kviknaði áhugi hans á við-
skiptum. Leið hans lá þar næst til
Bandaríkjanna þar sem hann tók
NBA-próf í viðskiptum (master of
boolshit art!). Hann er giftur Þór-
dísi Edwald kennaranema og eiga
þau tvö böm, Bjarka og Margréti.
Hann ólst upp í Breiðholti, eða eins
og forstjóri Kaupþings kynnir hann:
Hann er úr Bófahólum og Byssu-
felli. Ármann var strax ákveðinn i
að vinna hjá fjármálafyrirtæki eftir
nám. „Kaupþing var eina fjármála-
fyrirtækið sem vildi taka við mér.
Þetta er liður í samfélagsþjónustu
að ráða mig,“ segir Ármann og tist-
ir.“
- En í hverju felst vinnan? „Ég er
forstöðumaður fyrirtækjasviðs
Kaupþings. Verkeöii fyrirtækisins
lúta að ráðgjöf til fyrirtækja, fyrir-
tækjasölum og setningu fyrirtækja
á markað."
- En er þetta ekki hrikalegt álag?
„Þetta er þannig starf að maður fer
éddrei úr vinnunni. Ætli það verði
ekki að teljast mikið álag. Það er
mikil viðvera. Ókosturinn er að
maður fer úr vinnunni en er með
ÞRIÐJUDAGUR 9. NÓVEMBER 1999
„Það er helsti ókostur minn hversu mikið góðmenni ég er,“ segir Ármann.
hana í kollinum og vaknar hugs-
andi um vinnuna. Þetta verður eins
konar lífsstíll. En konan mín er sér-
staklega umburðarlynd."
- Hvemig maður ertu? „Ég er
alltof góður, er rakið góðmenni! Það
er helsti ókostur minn hversu mik-
ið góðmenni ég er,“ segir Ármann.
- Hvað viðhorf hefurðu til lifsins?
„Mér fmnst lífið allt of stutt og því
nýti ég það sem best. Ég legg enga
sérstaka áherslu á að verða ríkur,
ég vil frekar njóta lífsins nú en geta
þó framfleytt mér á seinni árum. Ég
er samt óttalegur eyðsluseggur."
- Hvar líður þér best? „Þórdís,
konan mín, myndi öragglega segja
fyrir framan sjónvarpið með fjar-
stýringuna, skiptandi á milli Sein-
feld- og Friends-þáttanna. En mér
líður mjög vel á golfvellinum,“ seg-
ir Ármann Þorvaldsson. -hól
Einar Örn Ólafsson:
Eyðsla einkennandi fyrir mína kynslóð
Einar Öm Ólafsson frá
FBA er 26 ára og ein-
hleypur vesturbæingur.
Hann er véla- og iðnaðarverk-
fræöingur úr HÍ og hefur
starfað í FBA frá stofnun.
Hann starfar á gjaldeyris- og
vaxtamarkaði.
- Hvemig ferðu með þína
eigin peninga? „Ég fer ekkert
rosalega vel með eigin pen-
inga að því leyti að ég eyði of
miklu en ég legg samt eitt-
hvað fyrir. Mánaðarlaunin
fara mest í eyðslu sem er ein-
kenn-
andi fyrir mína kynslóð."
- Er starfið skemmtilegt?
„Já, það er mikill hraði og
mikið líf. Ég er ekki einn á
einhverri skrifstofu og hitti
því marga og tala við enn
fleiri. Það er vitanlega mikið
álag en ég þrífst vel í þessari
spennu. Svo er hugsanlega
gert meira úr þessu álagi en
það raunverulega er. Það er
meira erlendis."
- En vinnufélagarnir? „Það
er mjög náið samband milli
okkar. Við foram á barinn
saman eftir vinnu og slíkt.
Þetta er lítið fyrirfæki, 70-80
starfsmenn, og flestir á sama
aldri, þ.e. 23-35 ára.“
- Eru vinir þínir í þessum
bransa? „Nei, enginn þeirra.
Margir era lögfræðingar en
sem betur fer í flestum
stéttum þannig að við höf-
um „heitasta" slúðrið í
hverri stétt.“
- Hvernig maður ertu?
„Ég er náttúrlega mjög
góður og þótt ég sé stund-
um smágrimmur lærir
fólk fljótt að taka mér. En
ég er ekki vondur."
- En þín lífsins gildi? „Að
skemmta sér í þeirri stöðu
sem maður er í hveiju
sinni, hvort sem maður er
ungur og einhleypur eða
gamall ellilifeyriþegi. Svo
enda ég væntanlega í
þægilegri sófavinnu með
konu upp á arminn, nokk-
„Svo enda ég væntanlega í þægilegri sófavinnu með konu upp á arminn,ur böm og hund,“ segir Ein-
nokkur börn og hund,“ segir Einar Örn. ar Örn Ólafsson.
-hól
- í hverju er starfið fólgið?
„Starfið snýst meðal ann-
ars um að fylgjast með og
melta þær upplýsingar
sem hafa áhrif á verð-
bréfamarkaðinn. Einnig
felst í starfinu svokölluð
miðlun, þ.e. kaup og sala
verðbréfa, samskipti við
viðskiptavini, samninga-
gerð, stjómun o.fl.“
- Hvað gerir þú í frístund-
um? „Ég fer í líkamsrækt
sem er alveg nauðsynlegt,
tek þátt í félagsstörfúm,
hitti fjölskyldu og vini og
kíki á skemmtistaðina af
og til.“
- Ferðu vel með eigin pen-
inga? „Starf í þessum
geira leiðir vissulega til
þess að maður veltir fjár-
málum meira fyrir sér en
ella. Mitt viðhorf til pen-
inga er þó þannig að ég
ætla ekki að safna ótak-
markað og geyma allt til
elliáranna heldur vil ég
„Starf í þessum geira leiðir vissulega til þess að maður layfa mér5að nota oittðvað
veltir fjármálum meira fyrir sér en ellasegir Auður. ^ sparnaðinum jafnoðum,
t.d. í ferðalog.
Auður Finnbogadóttir:
Ætla ekki að geyma allt til elliáranna
uður Finnbogadóttir er forstöðu-
M&k maður verðbréfaviðskipta hjá
JLkra MP Verðbréfum hf. Hún er 32 ára
gömul, einhleyp og barnlaus.
Auður flutti til Reykjavíkur 16 ára göm-
ul en hún ólst upp í Garði á Suðumesj-
um. Hún varð stúdent frá Verslunarskól-
anum og fór svo í framhaldsnám í al-
þjóðlegum viðskiptum til Boulder í
Colorado í Bandaríkjunum. í náminu
vaknaði áhugi hennar á íjármálum.
MP Verðbréf voru stofnuð í júní síð-
astliðinn og hefur Auður tekið þátt í að
koma fyrirtækinu af stað.
- Hver er lífssýnin þín? Dagurinn í
dag eftir G. Brandes.
Dagurinn í dag er sérstakur.
Hann tilheyrir þér.
Gœrdagurinn sáldraóist milli fingra þinna.
Honum verður ekki breytt.
Þú veist ekki hvort hann kemur.
Dagurinn í dag er hið eina sem
þú getur verið viss um.
Hann getur þú fyllt með eigin ákvörðunum.
Notfœrðu þér það.
-hól